Morgunblaðið - 14.06.1977, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.06.1977, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JUNl 1977 Stofna kröfur um sjáffstjórn einingu íhættu áratug til að dreifa atvinnufyrirtækj- um um landið, en þó hafa 82 af 100 stærstu fyrirtækjum Spánar aðalskrif- stofur sínar og verksmiðjjr í Madrid- héraði, Katalóníu og Baskahéruðunum. Tekjur á mann eru 30% hærri en meðaltekjur á mann í landinu í heild í Madrid, mestallri Katalóníu og í Baska- héruðunum. Tekjur á mann eru lægri en meðaltekjur á mann i landinu i heild i mestallri Kastilíu og allri Anda- lúsíu, Extremadura, Galizíu og Leon. Atvinnuleysi er mest í Andalúsiu eða 15 til 20 af hundraði. Þar er mest ólæsi og meira um sjálfsmorð en annars stað- ar á Spáni. Hvergi eru meiri óeirðir og fleiri nautaöt. Lögreglan er hvergi at- hafnameiri en þar. íbúar Baskahéraðanna og Katalóníu eru þannig betur settir efnahagslega en aðrir íbúar Spánar að íbúum Madrid undanskildum. En þeir virðast litla samúð hafa með íbúum fátækari hér- aða og krefjast meiri opinberra fram- kvæmda hjá sér í stað þess að tekjur af sköttum þeirra verði látnar renna til þeirra sem eru lakar settir. Afstaða þeirra er yfirleitt sú að fátækara fólkið skorti framtakssemi. Bilið milli rikra héraða og fátækra er ekki síður alvar- legt vandamál á Spáni en kröfur um pólitíska sjálfstjórn. Baráttan fyrir sjálfstjórn hefur kynt undir hryðjuverkastarfsemi öfga- manna til hægri og vinstri. Lítil samtök maoista, Grapo, rændu í vetur tveimur francoistum, Oriol y Urquijo og Villaescusa hershöfðingja. Þar með fengu hægrisinnar tækifæri til að skora á herinn að bjarga Spáni frá stjórnleysi undir vígorðinu „Umbætur = hryðjuverk". Þannig er beint sam- band á milli ofbeldisverka hægriöfga- manna og vinstriöfgamanna. Hryðjuverkamenn geta breytt at- burðarásinni eins og sást á morði bask- neskra öfgamanna á Carrero Blanco aðmírál 1973, sem dró meir úr líkum á þvi að francoisminn héldi velli en öll barátta lýðræðissinna. Áhrifamestu öfgamennvrnir til vinstri eru sennilega trotskyistar sem eru klofnir í þrjá til fjóra hópa. Öfga- menn til hægri eru klofnir í efnis- hyggjumenn og hugsjónamenn en i síð- arnefnda hópnum eru strangir kaþól- ikkar og þjóðernissinnar. Klofningsins er vart í félagi fyrrverandi hermanna undir forystu Jose Antonio Giron. Fal- angistar hafa klofnað i nokkra hópa. Hermenn Krists konungs og önnur samtök ofstopafullra hægrimanna hafa látið mikið að sér kveða og skotið til bana að minnsta kosti 15 menn á einu ári og misþyrmt mörgum öðrum, en enginn hægrisinnaður hryðjuverka- maður hefur verið leiddur fyrir rétt. Öfgamenn til hægri hafa nýlega fengið virkan stuðning frá itölskum og suður- amerískum nýfasistum og foringi bankaránsins mikla i Nizza í fyrra segir að um 4 milljónir punda af ránsfengn- um hafi verið sendar til hægrisamtaka í Madrid. KortiS sýnir héruð Spánar, tungumálin sem töluS eru og tekjuskipt- ingu. Kröfur einstakra héraða um aukið sjálfsforræði er eitt viðkvæmasta málið i kosningunum á Spáni 15. júni. Flestir flokkarnir styðja þessar kröfur að vissu marki, en margir þeirra óttast að þær geti stofnað einingu ríkisins i voða ef komið verði of langt til móts við þær. Flokkarnir vilja því yfirleitt sterka miðstjórn, þótt þeir séu hlynntir vissri viðurkenníngu á kröfum héraðanna um sjálfstjórn. Baskar ganga lengst í kröfum sfnum og öfgamenn til hægri eru hörðustv andstæðingar þeirra og annarra hópa sem krefjast aukins sjálfsforræðis. Martin Villa innanrikisráðherra hefur nýlega leyft Böskum að draga fána sinn að húni í fyrsta skipti í 40 ár og það hefur vakið feikilega reiði öfga- manna til hægri. Stjórn Adolfo Suarez forsætisráð- herra lítur svo á, að hún geti ekki hafizt handa um verulegar umbætur í Baskahéruðunum að svo stöddu, að minnsta kosti ekki meðan ekkert lát er á pólitiskum ofbeldisverkum. Skæru- liðar aðskilnaðarhreyfingar Baska (ETA) standa fyrir árásum á þjóðvarð- liða og ástandið hefur vakið beiskju meðal ibúanna. En það vekur ekki síð- ur beiskju að skattar þykja háir og að stjórnin i Madrid þykir gera lítið til þess að auka framkvæmdir og opinbera þjónustu í Baskahéruðunum. Flestir Baskar styðja Þjóðernissinna- flokk Baska enda hefur sá flokkur ver- ið flokkur kaþólskra millistétta frá gamalli tíð. Flestir baskneskir verka- menn eru hins vegar hófsamir sósíalist- ar og öfgamenn til hægri og vinstri hafa lítið fylgi. ETA nýtur stuðnings ungra presta og vinstrisinnaðra stú- denta og hreyfingin kom ekki fram á sjónarsviðið fyrr en 1969 þegar kúgun- arráðstafanir i Baskahéruðunum keyrðu fram úr hófi. Baskneskumæl- andi menn eru nú í minnihluta hérað- anna, en íbúar þeirra eru 2.7 milljónir. Önnur helzta sjálfstjórnarhreyfingin er í Katalóníu, sem hefur sex milljónir ibua og hafði sjálfstjórn á árum spænska lýðveldisins. Katalónska er ró- mönsk tunga og Franco bannaöi bækur og blöð á katalónsku. Suarez forsætis- ráðherra hefur heitið því að endur- vekja nokkur réttindi, sem Katalóníu- menn endurheimtu á síðustu öld eftir aldalanga kúgun, og gera katalónsku jafnréttháa kastilísku. Allir helztu stjórnmálaflokkar Kata- lóníu, menningarsamtök og verkalýðs- félög eru aðilar að ólöglegum samtök- úm, sem kallast „Assemblea de Cata- lunya", og voru stofnuð með leynd í Barcelona fyrir fimm árum. Helztu lýð- ræðisflokkarnir eru Katalónski sósía- listaflokkurinn (sem er tengdur Sam- bandi sósíalistaflokka og undir forystu Joan Reventos), flokkur kristilegra demókrata, íhaldsmenn undir forystu Jordi Pujol, flokkar frjálslyndra og Regions and minority languages Regional economic inequality 7 Vilincia j IBAtEARIC ffl Languagat: , t-:-;-] Gallego (=] Basque Catalan Grossproduct por head inthoprovincos: 1970-75 Abovenationalaverage: ||l%-30% H More than 30% Belovv nat lonal average ITffll 1 % - 30 % I -: 3 Morethsn30% Martin Villa innanrfkisráðherra sósíaldemókrata og flokkur kommún- ista, sem í Katalóníu heitir Sameinaði sósíalistaflokkurinn. Sjálfstjórnarhreyfing er einnig við lýði I Galicíu í norðvesturhluta Spánar þar sem Franco fæddist, á Balerísku eyjunum á Miðjarðarhafi, og f Val- encia-héraði. Katalónska er töluð á eyj- unum og í Valencia og áhrif katalónsku hreyfingarinnar eru mikil á báðum stöðum. Sjálfstæðishreyfing starfar á Kanaríeyjum og nýtur stuðníngs frá Alsír. Auk þess krefjast íbúar Anda- lúsfu og Aragon aukinna áhrifa í sér- málum sínum. Skattar frá Baskahéruðunum og Katalóníu hafa runnið til opinberra framkvæmda í fátækari héruðum Spánar. Tilraunir voru gerðar á síðasta Kistur þriggja af fimm kommúnistum sem myrtir voru I Madrid. Katalónfumenn eru stillt fólk. . . svona yfirleitt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.