Morgunblaðið - 16.07.1977, Qupperneq 1
40 SIÐUR
155. tbl. 64. árg. LAUGARDAGUR 16. JULÍ 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Neyðarskurðadgerð undir
berum himni á New York-
búum sem slösuðust f
ólátunum f Brooklynhverfi
eftir myrkvunina. Vegna
rafmagnsleysisins fóru
skurðlæknar sjúkrahúss f
hverfinu með sjúklinga sfna
út á götu og skáru. þá upp
þar við Ijósgeisla sjúkrabfls.
Þúsundir heimilislausir,
hundruð verzlana rústir
Gfnur eins og hráviði f útstillingaglugga fataverzlunar í New York.
Þögul fórnarlömb óaldarinnar f kjölfar myrkvunarinnar.
Síldveiðibann í stað
útfærslu—tillaga Ira
Dyflinni. 1S. júlf. Reuter.
IRSKA stjórnin sagði f dag að
hún ætlaði að fá stjórnarnefnd
Efnahagsbandalagsins til að sam-
þykkja að síldveiðar verði bann-
aðar f óákveðinn tfma á frskum
miðum til að stuðla að verndun
fiskstofna.
Ráðstafanirnar eiga að koma í
staðinn fyrir einhliða útfærslu
irskrar fiskveiðilögsögu i 50 milur
sem Evrópudómstóllinn hefur
ógilt og frá þeim var skýrt að
loknum stjórnarfundi i Dyflinni.
Irska stjórnin mun senda
stjórnarnefnd EBE tillögur sinar
á morgun og fara þess á leit að
síldveiðar verði bannaðar innan
Sendinefnd íslands á hafréttarráðstefnunni:
Vonumst eftir góðum árangrí
Sérákvæðið um ísland enn í öUum skjölum
„lSLENZKA sendinefndin er
bjartsýn og væntir þess að f
nýju uppkasti að hafréttarsátt-
mála verði gætt allra þeirra
atriða f sambandi við fiskveið-
ar, sem við þurfum á að halda,“
sagði Eyjólfur Konráð Jónsson
f samtali við Morgunblaðið f
gær. Ráðstefnunni lýkur f dag,
en hinn nýi texti kemur ekki
fyrr en f næstu viku, m.a. vegna
rafmagnsbilunarinnar f New
York.
„Eg get ekki séð að nokkur
hætta sé á þvf að fyrri texta
varðandi hámarksafla og hag-
nýtingu hans verði breytt og
það þýðir að þau mál ákveður
strandrfkið sjálft," sagði Hans
G. Andersen, formaður fs-
lenzku sendinefndarinnar f
samtali við Morgunblaðið.
Hans sagði ennfremur: „1
upphafi var ráðgert að sam-
ræmdur heildartexti myndi
liggja fyrir er tvær vikur væru
eftir af þessum fundi, en vegna
stöðugra fundarhalda reyndist
þetta ekki framkvæmanlegt og
var þá miðað við að textinn yrði
tilbúinn á siðasta fundardegi,
þ.e.a.s. f dag. Þessi ráðagerð fór
einnig út um þúfur, m.a. vegna
rafmagnsbilunarinnar i New
York, sem varð til þess að ekk-
ert var unnið i gær.
A fundi stjórnarnefndarinn-
ar í morgun voru ræddir mögu-
leikar á að halda fund í næstu
viku, en þar sem ekki var ör-
uggt að textinn myndi þá liggja
Framhald á bls. 12
50 milna frá ströndum írska lýð-
veldisins., Stjórnin mun einnig
æskja heimildar til að ákveða
möskvastærð.
i Skagen I Danmörku sam-
þykktu fulltrúar danskra og
sænskra sjómanna sem stunda
síldveiðar á Skagerak að taka upp
aflakvóta sjálfviljugir og auka
möskvastærð.
Sildveiðisjómennirnir sam-
þykktu að möskvastærð skyldi
minnst vera 32 millimetrar við
veiðar á Skagerak og að landað
yrði í viku hverri alls 1.000 köss-
um (sem hver um sig jafngildir
15—25 kilóum).
Þessar ákvarðanir fylgja í kjöl-
far tillögu frá stjórnarnefnd EBE
fyrr í vikunni þess efnis að fyrir-
Eramhald á bls. 11
N -Kóreumenn
beðnir um líkin
komst lífs af. Landherinn hefur
birt nöfn fjórmenninganna en
kveðst ekki vita nafn þess sem
særðist og var tekinn til fanga.
l ramhald á bls. 11
Erfir
Viktoría
ríkið?
Stokkhólmi — 15. júlí — AP
KARL Gústav Svíakonungur
tilkynnti i dag, að nýfæddri
dóttur hans og Silviu drottn-
ingar yrði gefið nafnið
Viktoría Ingrid Alice Desireé.
Konungur tók fram að ekki
Eramhald á bls. 11
Washington, 15. júlí. Reuter.
BANDARÍKJASTJÓRN vonar að
Norður-Kóreumenn afhendi her-
manninn sem særðist og lfk
þeirra þriggja sem félfu þegar
þyrfa þeirra var skotin niður yfir
Norður-Kóreu að því er utanrfkis-
ráðuneytið f Washington sagði i
dag.
Samningaviðræður fara fram
um málið i vopnahlésnefndinni í
Panmunjom á vopnlausa svæð-
inu, að þvi er talsmaður ráðuneyt-
isins, Hodding Carter, sagði
blaðamönnum.
Hann sagði að Bandarikjastjórn
hefði farið þess á leit i nefndinni
að likunum yrði skilað og að það
yrði mjög vel þegið ef það yrði
gert fljótt.
Fjölskyldur mannanna sem
voru í þyrlunni bíða þess í ofvæni
að heyra nafn þess eina sem
Neew York — 15. júlf — Reuter — AP.
ÞÚSUNDIR misstu heimili sfn f óöldinni f kjölfar rafmagnsfeysisins f
New York-borg f fyrrakvöld. Hundruð verzlana eru rústir einar eftir
rán, skemmdarverk og íkveikjur. Að þvf er Abraham Beame borgar-
stjóri sagði I dag hefur lögreglunni tekizt að ná yfirhöndinni f
hverfum sem verst urðu úti og er Iffið f milljónaborginni smám saman
að færast f samt horf.
Af hálfu borgaryfirvalda var
skýrt frá því í dag, að beint fjár-
hagstjón New York-borgar muni
nema hundruðum milljóna dala,
og Beame borgarstjóri sagði að
áfallið mundi hafa mjög alvarleg
áhrif á efnahagslega afkomu, sem
var afleit fyrir. Enn hefur enginn
reynt að rneta heildartjónið til
fjár en þó er talið að það muni
fara langt yfir einn milljarð dala.
Yfir 100 lögregluþjónar særð-
ust i átökum við óðan múg, sem
fór um með ránum og gripdeild-
um, og 20 slökkviliðsmenn eru í
sjúkrahúsum, sumir alvarlega
brenndir. Tveggja mánaða barn
brann inni og kona lézt er straum-
ur fór af öndunarvél í sjúkrahúsi
einu, en ekki hafa borizt fregnir
af öðrum dauðsföllum, sem beint
má rekja til rafmagnsleysisins.
Alls voru um þrjú þúsund
manns handteknir meðan á raf-
magnsleysinu stóð. Beame
borgarstjóri sagði í dag, að að þeir
yrðu allir ákærðir og hét því að
þeir fengju makleg málagjöld.
Það var um hálfellefuleytið i
gærkvöldi að ljósin tendruðust i
hverfum, sem lengst voru raf-
mangslaus. 1 morgun opnuðu
bankar, verzlanir og skrifstofur a
Manhattan á eðlilegum tima og
gekk umferð um borgina greið-
lega.
Mest urðu skemmdarverkin í
Bronx, Brooklyn og Manhattan,
en þeir, sem nú eru heimilislaus-
ir, bjuggu flestir í tbúðum fyrir
ofan verzlanir sem urðu ikveikju-
æðinu að bráð. Flestar verzlanir
sem urðu fyrir barðinu á
skemmdarverkamönnum voru
Framhald á bls. 11
Rússunum
hótað eftir
flugránið
Moskvu, 15. júlí. Reuter.
RÚSSAR hótuðu í kvöld tveim-
ur ungum Rússum sem sneru
sovézkri flugvél' til Finnlands
„harðri refsingu".
Samkvæmt samningi við
Rússa skiluðu Finnar Rússun-
um þegar þeir höfðu gefizt
upp. Þeir eru Alexander
Zagirnjak, 19 ára, og Gennady
Selushko, 22 ára.
Moskvu-útvarpið gagnrýndi
BBC harðlega í útsendingu á
tékknesku i dag fyrir að segja
þannig frá málinu að harmað
væri að flugvélarránið hefði
ekki tekizt.
Útvarpið sakaði jafnframt
BBC um að veita kennslu i
flugránum og kvað það algert
hneyksli.
Tass segir að flugræningj-
arnir hafi verið dæmdir fyrir
þjófnað áður en þeir rændu
flugvél Aeroflot._______