Morgunblaðið - 16.07.1977, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JULl 1977
17
Samskiptin
ganga eðli-
lega og áreynslulítið fyrir sig
Raimond Hergt, sendiherra, f skrifstofu sinni.
Þýzki sendiherrann,
Raimond Hergt:
Auó l-bílarnir eru frábærir að gæðum og með
fullkominn tæknibúnað. — Sjón er sögu ríkari. -
RAIMOND Ilergt hefur verið
sendiherra Sambandslýðveldis-
ins Þýzkalands á Islandi f 3 ár,
kom hingað f maímánuði 1974
frá Bonn, þar sem hann hafði
verið í 5 ár f heimalandi, eftir
dvöl f Helsinki á árunum
1961—68. — ,jEg hafði aldrei
til lslands komið," sagði hann f
viðtali við Mbl., „en hafði átt
kost á að láta f Ijós óskir um
dvalarstað og valdi tsland. Og
ég var mjög ánægður með að
verða sendur hingað.“
Er talið berst að samskiptum
tslands og Þýzkalands áður
fyrr, sagði sendiherrann, að
hann væri að vfsu ekki frá
neinni af þeim borgum í Norð-
ur Þýzkalandi, sem tslendingar
höfðu þá átt samskipti við. —
„Ég er frá Bayern og gerði þvf
mitt bezta til að vekja áhuga
tslendinga á þvf að heimsækja
Miinchen, heimaborg mfna. En
þar eru alltaf margir fslenzkir
námsmenn við háskólanám,“
bætti hann við.
Er sendiherrann var spurður
um hver hefðu verið helztu
verkefni hans vegna samskipta
þessarra tveggja þjóða, sfðan
hann varð þýzkur sendiherra á
tslandi, svaraði hann:
— „Þvf er ekki erfitt að
svara. Fyrstu tvö árin stóð yfir
fiskveiðideilan. Erfitt? Jú, en
það var mjög áhugavert og
ögrandi viðfangsefni að vinna
að þvf, að leysa slfka deilu.
— Nei, nú höfum við hér f
sendiráðinu ekki lengur við
nein vandamál að glfma á þessu
sviði, þvf þetta er ekki lengur
þýzkt málefni, sagði Hergt. Nú
er þetta mál Efnahagsbanda-
lagsins og við þurfum þvf ekki
að standa f neinum samninga
viðræðum um það. Þjóðverjar
eru að sjálfsögðu þátttakendur
f Efnahagsbandalaginu, og þvf
kemur fyrir að við erum beðnir
um álit, en það kemur ekki oft
fyrir. Við hér f sendiráðinu er-
um þvf f mjög þægilegri að-
stöðu.“
— „Þýzku togararnir, sem
veiða hér við land, eru yfirleitt
á miðunum f 10—12 daga, og
halda svo beint til Bremer-
haven eða Cuxhaven, til að
selja fiskinn," útskýrði sendi-
herrann, er hann var spurður
hvort sendiráðið hefði afskipti
af þýzku togurunum hér við
land. — Aður fyrr, meðan þeir
voru að veiðum nær ströndinni,
þá komu þeir stundum til hafn-
ar á Islandi. Nú eru þeir miklu
Iengra úti og með togaraflotan-
um eru verndarskip þeim til
aðstoðar, og læknir er um borð.
Þau sjá þvf um alla aðstoð við
togarana. Verndarskipin koma
síöku sinnum inn til Reykja-
vfkur og þá hitti ég skipstjór-
ann. Það er allt og sumt.“
Drepið var á samskipti land-
anna á fleiri sviðum, og sendi-
herrann sagði, að þó slfk sam-
skipti væru mikil, þá gengju
þau ákaflega eðlilega og
áreynslulftið fyrir sig. Verzl-
unarviðskipti væru t.d. mikil
milli þessara tveggja þjóða, en
sendiráðsfólk væri fremur
áhorfendur að þeim en að það
hefði þar bein afskipti. Halli þó
nokkuð á tslendinga f þeim við-
skiptum, og sagði sendiherr-
ann, að þeir veltu þvf fyrir sér,
hvernig þeir gætu orðið að liði
við að auka útflutning Islend-
inga til Þýzkalands. Þvf, eins og
hann orðaði það, báðir aðilar
eru ánægðari, þegar jöfnuður
er á slfkum viðskiptum.
Áhugi þýzka ferðamanna á
tslandi fer ört vaxandi, sagði
sendiherrann. Á sl. ári komu
hingað 10 þúsund þýzkir ferða-
menn, en árið áður 7 þúsund.
Ferðamenn eiga f litlum erfið-
leikum og þurfa litla aðstoð.
Áðeins kemur fyrir fótbrot eða
tapað vegabréf, það er allt og
sumt,“ sagði sendiherrann.
Sama sagði hann að væri að
segja um námsfólkið fsienzka,
sem sækir mikið til Þýzka-
lands.
Þar hefur verið komið upp
þýzkri háskólaþjónustustofn-
un, sem annast slfkt. En Þjóð-
verjar veita nokkra námsstyrki
við háskóla og vfsindastyrki,
sem sendiráðið hefur milli-
•s i-
Audi lOO
V.W. 1200
hefir aldrei verið betri
og hagkvæmari í rekstri
Golf
fallegur nútímabíll með
fullkomnum búnaði.
göngu um.
„Hins vegar reynum við að
beita okkur fyrir auknum
menningarsamskiptum milli
þjóðanna," sagði Raimond
Hergt, sendiherra.
„Við reyndum að efla kynni
þjóðanna af menningu hvorrar
annarrar. t þeim efnum á ekki
Framhald á bls. 26
LT sendibíll
hagkvæmur og fáanlegur
af mörgum gerðum.
Komiö — skoðið og kynnist Volkswagen og Auói
— Landskunn viðgerða- og varahlutaþjónusta.
Volkswagen OGOOAu«3i HEKLA HF.
Laugavegi 1 70—172 — Slmi 21240
VOLKSWAGEN og Auói bílarnir
eru Vestur-þýzk gæðaframleiðsla