Morgunblaðið - 17.08.1977, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 17.08.1977, Blaðsíða 21
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. AGUST 1977 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Hellissandur Umboðsmaður óskast til að annast dreif- ingu og innheimtu fyrir Morgunblaðið. Uppl. hjá umboðsmanni í síma 6741 og afgreiðslumanni í Reykjavík, sími 10100. Atvinna Óskum að ráða traustan starfsmann í sprautumálun. Upplýsingar í verksmiðj- unni. Stálumbúdir h/ f v/Kleppsveg. Sími: 36145. Flugvirkjar ARNARFLUG óskar að ráða 2 — 3 flugvirkja sem fyrst. Upplýsingar veittar á skrifstofu félagsins Síðumúla 34 Reykjavík sími 82122. Skrifstofustarf Alþýðusamband íslands óskar eftir starfs- manni til að annast vélritun og síma- vörslu. Kunnátta í ensku og einhverju norðurlandamáli nauðsynleg. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist blaðinu fyrir 25. 8. merkt Skrifstofustarf 4345.________ Sölustjóri Óskum að ráða strax mann á aldrinum 25 — 30 ára. Nauðsynlegt að umsækj- andi hafi reynslu í sölustjórnun og gott vald á ensku. Upplýsingar á skrifstofunni (ekki í síma) frá k 4—5 í dag og næstu daga Rolf Johansen og C0. Laugavegi 1 78. Kennara vantar að Landakotsskóla Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 13042. Skrifstofustarf Heildverslun óskar að ráða í starf við símavörslu og önnur almenn störf á skrif- stofu. Umsóknir sendist Mbl. merktar: „Stundvís — 7320", fyrir 20. þ.m. Kennarar Kennara vantar við Grunnskólann í Stykk- ishólmi næsta skólaár. Kennslugreinar: kennsla 6 ára barna íslenska og erlend mál í 7. og 9. bekk og framhaldsdeildum. íþróttir pilta. Húsnæði er fyrir hendi. Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 93- 8160 og formaður skólanefndar í síma 93-8101 og 93-8165 Skólanefnd HÓTEL BORG Næturvörð vantar á Hótel Borg frá 1. sept. n.k. Um hálft starf getur orðið að ræða. Tungu- málakunnátta svo og algjör reglusemi skilyrði. Uppl. hjá skrifstofustjóra. Hótel Borg. Mötuneyti Starfskraftur óskast til starfa í mötuneyti að Vinnuheimilinu Reykjalundi. Upplýs- ingar í sima: 66200. Baðverðir Baðverði vantar við íþróttahús Hauka í Hafnarfirði. Umsóknum sé skilað í póst- hólf 1 4, Hafnarfirði fyrir 1 . sept. n.k. Afgreiðslustarf í verslun vorri er laust til umsóknar. Upplýsingar um starfið veittar á skrif- stofunni næstu daga svo og skráning áhugasamra umsækjenda. (fflwnausHix Siðumúli 7—9 Skipa- verkfræðingur véla- tæknifræðingur Siglingamálastofnun ríkisins vill ráða til starfa sem fyrst skipaverkfræðing og skipa- eða vélatæknifræðing. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf óskast sendar siglingamálastjóra, pósthólf 484, Reykjavík. Frá Gagnfræðaskólan- umí Keflavík Gangavörður óskast við skólann til eins árs, frá 1. september. Upplýsingar veitir skólastjórinn í síma: 1045 og 2597. Umsóknum sé skilað til skólastjóra eða bæjarstjóra fyrir 25. þ.m. Skólastjóri. Friðrik Friðriksson póst- og símstjóri, Súðavík — Minning Ég er einn þeirra, sem víða hafa dvalizt og mörgum kynnzt á lífs- leiðinni. Að meiri hluta góðu fólki. Hinu þarf maður að gleyma sem fyrst. Til Vestfjarða lá leið min fyrir skömmu. Var ég skólastjóri barna- og unglingaskólans i Súða- vík við Álftafjörð eitt ár. Ég er nú einu sinni þannig gerður að eiga auðvelt með að blanda geði við fólk af hinum ýmsu gerðum. Og á ekki stærri stað en Súðavík er, komst ég í kynni víð flesta þorps- búa. Hvort mér hefur orðið það til ávinnings i starfi, skal ósagt látið, en ég tel mig þó hafa auðgazt á því mannlega séð. Einn þeirra, sem ég komst talsvert í kynni við, er nú nýlátinn: Friðrik Friðriks- son, póst- og simstjóri á staðnum. Hann fæddust 14. febrúar 1911 i Súðavik. Voru foreldrar hans Friðrik Guðjónsson kennari þar um langa hrið og símstjóri til ævi- ioka, 1932, og Daðína Hjaltadóttir kona hans. Friðrik Friðriksson lauk ungur prófi úr Samvinnu- skólanum í Reykjavík, en stjórn- andi skólans var hinn þjóðkunni hugsjóna- og gáfumaður Jónas Jónsson frá Hriflu. Dáði Friðrik hann sökum mannkosta hans og hæfileika. Að prófi loknu tók Friðrik við símstöðinni af föður sínum, sem þá var nýlega látinn. Oft komum við hjón í litlu sím- stöðina i Súðavík, þar sem Friðrik og kona hans, Kristín Samúels- dóttir, bjuggu alla sína samveru- tíð. Kristín sat við símaborðið og sinnti sínu oft þreytandi starfi af dugnaði og samvizkusemi, en Friðrik sat við skrifborð sitt í sama herbergi, kafinn störfum í þágu embættisins. Á honum var enginn asi, en allt gekk sem gera þurfti. Hann var hægfara maður og tranaði sér hvergi fram. Mátti segja um hann, að hann væri einn hinna hljóðlátu í landinu, sem vinna sín störf í kyrrþey og gera sífellt skyldu sina og meira en það. Ég heyrði hann aldrei leggja neinum illt til. Hann leitaði fyrst og fremst að þvi góða í hverjum manni. Þau hjón voru afar sam- hent í starfi og nutu almennra vinsælda fólks, sem við þau átti skipti. S.l. vor gekkst Friðrik undir læknisaðgerð á Landakotsspitala og lá þar um hríð. Við hjónin heimsóttum hann þar. Ég held að honum hafi þótt vænt um þá heimsókn. Á sama tima lá Kristin kona hans á Landspítalanum. Friðrik brosti til okkar sinu góð- látlega, hljóða brosi. Það gleymist ekki. Nokkrum dögum síðar út- skrifaðist hann af sjúkrahúsinu og hélt vestur til sinna kæru átt- haga við Djúp. Þá var Kristin enn ekki komin að sunnan af sjúkra- húsinu. Tveimur dögum fyrir andlatið var Friðrik fluttur út á ísafjarðar- sjúkrahús. Þar varð hann bráð- kvaddur. Betri dauðdaga hefði hann ekki getað hugsað sér. Og gleðiefni, að hann þurfti ekki að líða langvarandi þjáningar áður en yfir lauk. Friðrik lézt 5. ágúst s.l. og var jarðsettur i Súðavíkurkirkjugarði hinn 13. ágúst. Farsælu ævistarfi er lokið. Nú er Súðavik einum ágætismanninum fátækari. Kristinu sendum við samúðar- kveðjur svo og öðrum aðstandend- um Friðriks sál. Friðrikssonar. Auðunn Bragi Sveinsson. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Vinsamlegast útskýrið fyrir mér þessa ritningargrein: „All- ir sem komu á undan mér, eru þjófar og ræningjar“ (Jóh. 10,8). í 10. kap. Jótiannesar guðspjalls er Jesú að ræða um þá hættulegu staðreynd , að margir hafa þótzt vera frelsarar og að þeir hafa alltaf fengið fylgjend- ur. Fólk er eins og fé, sem auðvelt er að tvístra. Á dögum Krists notuðu menn stór fjárbyrgi, þar sem kindur margra fjárhirða voru hýstar. Þannig vernduðu þeir féð fyrir villidýrum næturinnar. Á morgnana komu hirðarnir og kölluðu hver á sínar kindur. Jesú sagði, að hans sauðir myndu heyra rödd hans. Margir hirðar höfðu komið fyrir hans daga, en þeir hlýddu þeim ekki. í raun og veru var Jesú að lýsa yfir með þessum -orðum sínum að hann væri í sannleika hirðir og frelsari. Jafnvel nú um stundir eru margir falsspámenn og falshirðar, og þeir leiða fávíst fólk eins og fávísa sauði í ótrúlegar ógöngur. Kristur einn er hinn sanni frelsari. Hann einn kom til þess að veita okkur sanna lausn frá syndunum. MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. AGUST 1977 21 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar 2 stúlkur óska eftir 2ja' tll 3ja herb. ibúð í bæn- um. Upplýsingar í sima 73229. Vesturbær. 4 herbergja falleg ibúð i vest- urbæ til sölu. Nánari uppl. i sima 26307 milli 6—8 e.h. Ódýrar kápur til sölu kápur og dragtir saumaðar eftir máli, er með efni. Kápusaumastofan Díana, Miðtúni 78, sími 1 8481 Útsala — Útsala 20—80% afsláttur. Dragtin Klapparstig 37. 30 stórir linubalar til sölu eða i skiptum fyrir minni bala. Uppl. i sima 92- 7603. Mold til sölu Heimkeyrð. Upplýsingar i sima 51468. Vlunið sérverzlunina með ódýran fatnað. Verðlistinn Laugarnesvegi 82. s. 31330. UTIVISTARFERÐIR Föstud. 19/8 kl. 20 Hábarmur—Laugar og víðar. Frjáls er í tjöldum i fjallasal. Fararstj. Jón I. Bjarnason. Föstud. 26/8 AðalbláberjaferÖ til Húsavíkur. Einnig gengnar Tjörnesfjörur. Fararstj. Einar Þ. Guðjohnsen. Upplýsingar og farseðlar á skrifst. Lækjarg. 6, simi 14606. Kristniboðssamband- ið. Samkoma verður haldin í Kristniboðshúsinu Betaníu Laufásvegi 13 í kvöld kl. 20.30. Guðni Gunnarsson talar. Allir eru velkomnir. Hörgshlíð 12 Samkoma fellur niður i kvöld. SIMAR. 11798 OG 19533. Föstudagur 19. ág. kl. 20 1. Þórsmörk 2. Landmannalaugar Eldgjá. 2 5. ág. 4-ra daga ferð norð- ur fyrir Hofsjökul. Gist i húsum. 3. Grasaferð til Hvera- valla. Gist i húsum. 4 Gönguferð á Tind- fjallajökul. Gist í tjöldum. Farmiðasala á skrifstofunni. Sumarleyfisferðir 1 9. ág. 6 daga ferð til Esju- fjalla í Vatnajökli. Gengið þangað eftir jökiinum frá lóninu á Breiðamerkur- sandi. Gist allar næturnar i húsum Jöklarannsóknar- félagsins. 24. ág. 5 daga ferð á syðri Fjallabaksveg. Gist í tjöldum. 25. ág. 4-ra daga berja ferð í Bjarkarlund. Farmiðar og nánari upplýs- ingar á skrifstofunni. Um helgina: Gönguferð á Es- ju, á Botnssúlur, að fossinum Glym. Auglýst siðar. Ferðafélag íslands. FARFUGLar 19.—21. ágúst Ferð í Þjófadali. Farmiðasala og allar nánari ulplýsingar á Farfuglaheimilinu Laufásvegi 41. sími 24950. raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar Lögtaksúrskurður Hérmeð úrskurðast lögtak fyrir gjaldfölln- um og ógreiddum þinggjöldum ársins 1977 álögðum í Kópavogskaupstað, en þau eru: tekjuskattur, eignarskattur, kirkjugjald, slysatryggingagjald v/ heim- ilisstarfa, iðnaðargjald, slysatrygginga- gjald atvinnurekanda skv. 36. gr. laga nr. 67/ 1971, lífeyristryggingargjald skv. 9. gr. laga nr. 1 1/1975, atvinnuleysis- tryggingargjald, almennur og sérstakur launaskattur, kirkjugarðsgjald, iðnlána- sjóðsgjald og sjúkratryggingagjald. Enn- fremur fyrir skipaskoðunargjaldi, lestar- gjaldi og vitagjaldi, bifreiðaskatti, skoðun- argjaldi bifreiða og slysatryggingagjaldi ökumanna 1977, vélaeftirlitsgjaldi, áföllnum og ógreiddum skemmtanaskatti og miðagjaldi, söluskatti af skemmtun- um, vörugjaldi af innl. framl. sbr. 1. 65/ 1975, gjöldum af innlendum tollvöruteg- undum, matvælaeftirlitsgjaldi og gjaldi til styrktarsjóðs fatlaðra, skipulagsgjaldi af nýbyggingum, söluskatti, sem í eindaga er fallinn, svo og fyrir viðbótar- og auka- álagningum söluskatts vegna fyrri tíma- bila. Verða lögtök látin fara fram án frekari fyrirvara, á kostnað gjaldenda en ábyrgð ríkissjóðs, að 8 dögum liðnum frá birt- ingu úrskurðar þessa, ef full skil hafa ekki verið gerð. Bæjarfógetinn í Kópavogi, 15. ágúst 1977. Fiskiskip Höfum til sölu báta af eftirtöldum stærðum. 5, 9, 10, 12, 30, 36, 49, 73 tonn. Oskum eftir sem flestum stærðum fiskiskipa á söluskrá. Borgarskip s / f., skipasala Grettisgata 56, Sími 12320 Ólafur Stefánsson hdl. Skúli B. Ólafsson viðskiptafr. heimasími 12077 heimasími 23676. Hópferðabíll til sölu. Til sölu Scania Vabis 45 farþega, árgerð 1960. Skipti á minni bíl möguleg. Upp- lýsingar í síma 97-421 7. Þakka innilega öllum, sem sendu mér fjarverandi, blóm, skeyti og gjafir á áttatíu ára afmæli mínu 3. ágúst s.l. Guð blessi ykkur öll. Jón Skagan. Innilega þakka ég börnum mínum, öðrum ættingjum og öllum vinum, er sýndu mér vinsemd og heiður með heillaóskum, gjöfum og heimsóknum á áttræðis afmæli mínu 6. ágúst sl. Guð blessi ykkur öll. Pálína Færseth Vatnsnesvegi 31 Keflavík Hestamenn athugið Tek að mér hesta í hagagöngu og fóðrun í haust og í vetur. Upplýsingar í síma 99-4474. Kaupgreiðendur Enn á ný er skorað á kaupgreiðendur sem hafa í þjónustu sinni starfsfólk búsett í Kópavogi að senda mér tafarlaust starfs- mannaskrár ef þeir hafa ekki þegar gert það, að viðlagðri ábyrgð að lögum. Bæjarfógetinn í Kópavogi. FÉLAGSSTARF Stjórn kjördæmissamtaka ungra sjálfstæðismanna í Reykjaneskjördæmi boðar til fundar fimmtudaginn 18. ágúst n.k. kl. 20.30 i Sjálfstæðishúsinu Keflavík. Fundarefni: Undirbúningur fyrir S.U.S.-þing. Ungir sjálfstæðismenn í Kópavogi Fundur í Sjálfstæðishúsinu, Hamraborg 1 fimmtudaginn 18. ágúst kl. 1 7:30. Fundarefni: 1. Staða ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi. 2. Þing SUS í Vestmannaeyjum 16. —18. sept. n.k. Fulltrúar frá stjórn SUS mæta á fundinn. Stjórnin. Skemmtiferð Hvatar laugardaginn 20. ágúst Hvöt félag sjálfstæðisKvenna fer skemmtiferð n.k. laugardag. Lagt verður af stað frá Valhöll. Bolholti 7 kl. 9 f.h. Farið verður sem leið liggur austur að Selfossi og Mjólkurbú Flóamanna skoðað. Þá ekið að Laugarvatni og þar snæddur heitur hádegisverður. Eftir viðdvöl að Laugarvatni verður farið í Þjórsárdal og Þjóðveldisbærinn þar skoðaður ásamt Hjálpar- fossi. A leiðinni i bæinn verður ekið niður Hreppa, gegnum Biskups- tungur með smáviðdvöl i Skálholti og siðan á Þingvöllum. Þátttökugjald er aðeins kr. 2800 og er þá innifalinn hádegis- verðurinn að Laugarvatni. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir fimmtudagskvöld 18. ágúst i slma 82900 i Valhöll og þar verða seldir farmiðar. Allar sjálfstæðiskonur hvattar til þátttöku og taki með sér gesti. Málfundafélagið Óðinn efnir til skemmtiferðar sunnudaginn 2 1. ágúst. Farið verður að Búrfelli, i Sögualdarbæinn i Þjórsárdal, að Hrauneyjarfossum, og í Sigöldu. Farseðill fyrir fullorðna kostar 2500 kr. fyrir börn 1000 kr. Innifalið er hádegisverður, lagt verður af stað frá Valhöll, Háaleitisbraut 1, kl. 8. Allt sjálfstæðisfólk velkomið. Upplýsingar um ferðina eru veittar á skrifstofu Óðins, milli kl 17 og 19 i Valhöll, simi 82927. Fer»a- og skemmtinefnd — Fáein orð um sauðfjár- ræktína... Framhald af bls 11 ef yfirdýralæknir eða hlutaðeig- andi héraðsdýralæknir telur, að slátrun og meðferð sláturafurða geti tekizt þar á viðunandi hátt. Undanþágu má þó ekki veita nema til ársloka 1979.“ — Svipuð lög, um undanþágu handa slátur- húsum, voru samþykkt á Alþingi í ráðherratíð Ingólfs Jónssonar, einnig til þriggja ára. Sláturhúsamálin eiga að sjálf- sögðu að vera í höndum yfirdýra- læknis, þö virðist eðlilegast að landbúnaðarráðherra hafi úr- skurðarvald ef til ágreinings kem- ur og ætti ekki að þurfa nein sérstök lög til þess. Það sem ég hefi sagt hér að framan um sláturhúsin er aðal- lega miðað við sláturhús Kaupfél- ags Borgfirðinga i Borgarnesi, er það elzt af nýju sláturhúsunum. Eins og þegar hefir sagt verið fer fram i 8 nýjustu sláturhúsunum ríflega þriðjungur af allri sauð- fjárslátrun landsmanna. Þá kem ég að því atriði, sem að minu mati er mjög athyglisvert. Það er alltaf verið að rembast við, undir for- ystu kjötmatsins, að velja allt bezta kjötið i útflutninginn, sem á erlendum markaði selst fyrir hálfvirði eða minna, ef miðað er við markaðsverð á kjöti hér á landi. Af dilkakjöti er bezta neyzlukjötió flokkarnir: 6,2 og 8, en í þessurn flokkum er fallþung- inn frá 12,5 kg. — 19 kg. Kjöt úr þessum flokkum ætti að velja sem neyzlukjöt handa fólk- inu í landinu, svo geta þeir sem það vilja gefið vinum sínum er- lendum afganginn. —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.