Morgunblaðið - 08.10.1977, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÖBER 1977
7
r
Embætti sem
enginn vill
Prófkjör hafa verið tíðk-
uð i öllum islenzkum
stjórnmálaflokkum nema
Alþýðubandalaginu. Þar
hafa klíkusjónarmið ráðið
framboðum til þessa
Hinn almenni kjósandi
hefur beðið utan garðs
þess, hverjum „höfðingj-
unum" þóknaðist að raða
i líkleg sæti til kjörs i
sveitarstjómir eða til Al-
þingis. Það þykja þvi
nokkur tíðindi, er Alþýðu-
bandalagið i Reykjanes-
kjördæmi boðar „forval"
um framboð til Alþingis.
Að visu er þetta „forval"
háð margháttuðum tak-
mörkunum: bundið
flokksaðild og þvi, að
flokksmenn hafi aðstöðu
til að sækja fund á
ákveðnum tima. Það er
þvi ekki um opið prófkjör
að ræða, sem stendur
rýmilegan tima, og niður-
stöður eru aðeins „leið-
beinandi" en ekki bind-
andi. Þrátt fyrir þessa
annmarka alla er „forval-
ið" þó skref i áttina:
vottur þess að „klikurn-
ar" hafa orðið að láta litið
eitt undan siga fyrir þrýst-
ingi óbreyttra flokks-
manna.
Ein röksemdin, sem
heyrst hefur úr röðum
kommúnista, gegn próf-
kjöri og áhrifum hinna
„óbreyttu kjósenda" á
röðun á framboðslista, er
sú, að slíkt efni til innan-
flokksátaka. Með sama
hætti mætti segja að falla
ætti frá lýðræðislegum
kosningum i þjóðfélaginu
sökum þess, að þeim
fylgja flokkaátök. Sann-
leikurinn er sá, miðað við
óbreyttar kosningareglur,
að þingmenn eru ekki síð-
ur valdir i röðum á fram-
boðslista en i sjálfum
þingkosningunum. Það er
þvi við hæfi að sem flestir
hafi áhrif á þá röðun.
En þeir Alþýðubanda-
lagsmenn þurfa naumast
að óttast innanflokksátök
vegna væntanlegra for-
mannskosninga, er
Ragnar Arnalds lætur af
embætti Forvígismenn
bandalagsins kepptust við
að lýsa þvi yfir, aðspurðir.
i blaðaviðtölum fyrir
skemmstu, að þeir myndu
ekki gefa kost á sér til
sliks embættis. Á sama
tima er reynt að höggva !
að Alþýðuflokknum fyrir
þá sök, hve menn eru þar
fúsir til framboðs og
flokksembætta. Slikt ber
þó lifi og áhuga vott. Hitt
flokksleiða og svefnhöfgi.
Lettland
Sigurður E. Guðmunds-
son skrifar grein i Alþýðu-
blaðið sl. fimmtudag, þar
sem hann fjallar um sýn-
ingu Menningartengsla
íslands og Sovétrikjanna,
i tilefni 60 ára afmælis
októberbyltingarinnar, en
sú sýning var „helguð"
Lettlandi. Lettland var
innlimað i Sovétrikin i
byrjun síðari heimstyrj-
aldarinnar — og siðan
hefur markvisst verið
unnið að þvi að eyða sér-
kennum og sjálfstæðis-
hugmyndum letta, m.a.
með margfrægum „mann-
flutningum".
Sigurður vitnar til bækl-
ings, sem MÍR gaf út, i
tilefni sýningarinnar, en
þar segir: „íbúar Sovét-
Lettlands eru nú 2.5 mill-
jónir talsins, þar af eru
56.8% Lettar að þjóðemi,
29.8% Rússar og 13.4%
af öðru þjóðerni." Siðan
segir Sigurður: „Sam-
kvæmt þessu er svo kom-
ið nú, að aðeins röskur
helmingur ibúanna eru
Lettar, aðrir eru útlend-
ingar, sýnilega með fasta
búsetu i landinu. Og af
2,5 milljónum ibúa eru
835 þúsundir Rússar ....
Liklegt má telja að hlut-
verk þeirra sé tviþætt.
Annars vegar er þeim
ætlað að tryggja tök
sovétstjómarinnar á Lett-
um; hinsvegar em þeir i
tengslum við hina miklu
flotahöfn Rússa í Riga."
Þegar hávaða-
blað þegir
Enn segir Sigurður:
,, ÞjóSviljinn" blað hinnar
vakandi þjóðfélags-
umræðu" hefur aldrei
skrifað um hin hrikalegu
örlög Letta, frekar en ann-
að. sem miður fer i þjóð-
félagsmálum austan
tjalds. Það má heldur ekki
gleymast, að Þjóðviljinn
hefur ætíð lýst það rak-
laus ósannindi, þegar lýð-
ræðissinnar hafa haldið
þvi fram, að Rússar hafi,
eftir innlimum Lettlands.
flutt þangað til búsetu
mikinn fjölda fólks frá
öðrum hlutum Sovétrikj-
anna Nú er komið i Ijós,
að staðhæfingar
lýðæssina voru réttar,
ekki aðeins gagnvart Lett-
landi. heldur má telja full-
vist, að Rússar hafi einnig
beitt Eista og Litháa sömu
fantatökunum."
Þögn Þjóðviljans. MÍR
málgagnsins, helgast
e.t.v. af þvi að skeggið er
skylt hökunni.
m|K Jl% Jileðður GUÐSPJALL DAGSINS Matt 22.: Hvers son er Krist- ur?
H JL í r á morgun 4t f8£í PPP®*. V* LITUR DAGSINS: Grænn. Táknar vöx. einkum vöxt hins andlega lífs.
DÓMKIRKJAN
Messa kl. II árd. Fluttur verður
nýr messusöngur eftir Ragnar
Björnsson dómorganista. Séra
Hjalti Guðmundsson. Messa kl.
2 síðd. Ferming og altaris-
ganga. Séra Þórir Stephensen
Barnasamkoma kl. 10 í dag,
laugardag, i Vesturbæjarskól-
anum við Öldugötu. Séra Þórir
Stephensen.
FELLA OG HOLASÖKN.
Barnasamkoma i Fellaskóla kl.
11 árd. Guðsþjónusta í skólan-
um kl. 2 síðd. Séra Hreinn
Hjartarson.
NESKIRKJA
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðsþjónusta kl. 2 siðd. Séra
Guðmundur Óskar Ólafsson.
Aðalsafnaðarfundur verður
haldinn strax að lokinni guðs-
þjónustu.
HALLGRÍMSKIRKJA
Messa kl. 11 árd. Séra Ragnar
Fjalar Lárusson.
LANDSPlTALINN
Messa kl. 10 árd. Séra Ragnar
Fjalar Lárusson.
dOmkirkja krists
KONUNGS
Landakoti. Lágmessa kl. 8.30.
árd. Hámessa kl. 10.30 árd. Lág-
messa kl. 2 síðd. Alla virka daga
er lágmessa kl. 6 síðd., nema
laugardaga, þá kl. 2.
ELLI- OG HJUKRUNAR-
HEIMILIÐ
Grund Guðsþjónusta kl. 10 árd.
Séra Páll Þórðarson prédikar.
FlLADELFÍUKIRKJAN
Almenn guðsþjónusta kl. 8
siðd. Ræðumaður Hallgrímur
Guðmansson. Einar J. Gislason.
grensAskirkja
Barnasamkoma kl. 11 árd.
Guðsþjónusta, ferming —
altarisganga. kl. 2 síðd. Séra
Halldór S. Gröndal.
ÁRBÆJARPRESTAKALL
Barnasamkoma í Arbæjarskóla
kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta i
skólanum kl. 2 siðd. Séra
Guðmundur Þorsteinsson.
LAUGARNESKIRKJA
Barnaguðsþjónusta kl. 11 árd.
Messa kl. 2 siðd., ferming og
altarisganga. Sóknarprestur.
BUSTAÐAKIRKJA
Barnasamkoma i Bústöðum kl.
11 árd. Fermingarmessa kl.
10.30 árd. Organisfi Guðni Þ.
Guðmundsson. Séra Ólafur
Skúlason.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL
Barnasamkoma kl. 11 árd.
Guðsþjónusta í Breiðholtsskóla
kl. 2 sid. Ungt fólk talar og
syngur. Séra Lárus Halldórs-
son.
LANGHOLTSPRESTAKALL
Fermingarmessa kl. 10.30 árd.
Séra Árelius Nielsson.
FRlKIRKJAN
Reykjavík. Messa kl. 2 síðd.
Organisti Sigurður Isólfsson.
Séra Þorsteinn Björnsson.
HATEIGSKIRKJA
Barnaguðsþjónusta kl. 11 árd.
Séra Arngrímur Jónsson. Guðs-
þjónusta kl. 2 síðd. Séra Tómas
Sveinsson. Tónleikar verða i
kirkjunni kl. 5 síðd. Kirkjukór-
inn syngur undir stjórn
organistans Marteins Hunger
Friðrikssonar.
hjalpræðisherinn
Helgunarsamkoma kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 2 siðd.
Hjálpræðissamkoma kl. 8.30
siðd. Lautinant A. Evju.
SUNNUDAGASKOLI k.f.u.m.
að Amtmannsstig 2B fyrir öll
börn kl. 10.30 árd.
ASPRESTAKALL
Messa kl. 2 síðd. að Norðurbrún
1. Fundur i safnaðarfélaginu
eftir messuna. Gestur fundar-
ins verður Sigurður Þórarins-
son jarðfræðingur. Séra Grim-
ur Grímsson.
MOSFELLSPRESTAKALL
Lágafellskirkja: Barnasam-
koma kl. 10.30 árd. Guðsþjón-
usta kl. 2 síðd. Séra Birgir
Ásgeirsson.
DIGRANESPRESTAKALL
Barnasamkoma kl. 11 árd. i
safnaðarheimilinu við Bjarn-
hólastig. Séra Þorbergur Krist-
jánsson.
KARSNESPRESTAKALL
Barnasamkoma í Kársnesskóla
kl. 11 árd. Fermingarguðsþjón-
usta i Kópavogskirkju kl. 2
síðd. Séra Arni Pálsson.
KAPELLA
St. Jósefssystra i Garðabæ. Há-
messa kl. 2 síðd.
GARÐAKIRKJA
Guðsþjónusta kl. 2 siðd. Séra
Sigurður H. Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
Barnasamkoma kl. 11 árd.
Messa kl. 2 síðd. Séra Gunnþór
Ingason.
VÍÐISTAÐASÖKN
Barnasamkoma í Víðistaða-
skóla kl. 11 árd. Séra Sigurður
H. Guðmundsson.
NJARVlKURPRESTAKALL
Guðsþjónusta í Stapa kl. 2 siðd.
Séra Páll Þórðarson.
KEFLA VlKURKIRKJA
Hátíðarmessa kl. 2 síðd. Biskup
íslands prédikar. Séra Björn
Jönsson þjónar fyrir altari
ásamt sóknarpresti. Steindu
gluggarnir formlega afhentir
að lokinni messu.
Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA
Barnaguðsþjónusta kl. 10.30
árd. Almenn guðsþjónusta kl. 2
síðd. Sóknarprestur.
GUALVERJABÆJARKIRKJA
Almenn guðsþjónusta kl. 4.30
siðd. Sóknarprestur.
STORÓLFSHVOLSKIRKJA
Messa kl. 2 siðd. Séra Stefán
Lárusson.
INNRA-HÓLMSKIRKJA
Guðsþjónusta kl. 2 siðd. Séra
Jón Einarsson.
AKRANESKIRKJA
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Messa kl. 5 siðd. Séra Jón
Einarsson i Saurbæ messar.
Séra Björn Jónsson.
Basar
Hinn árlegi basar Systrafélagsins Alfa
verður að Hallveigarstöðum á morgun,
sunnudag, kl. 2. e.h.
Margt góðra muna og einnig kökur.
Stjórnin.
Bifreiðaeigendur ath.
Nú er rétti tíminn að láta yfirfara gömlu snjó-
dekkin. Eigum til ný og sóluð snjódekk með eða
án snjónagla í flestum stærðum.
Hjólbarðaviðgerð Kópavogs,
Nýbýlaveg 2. sími 40093.
Vegg- og loftklæðningar
á ótrúlega hagstæðu verði
Koto Kr. 1.990 -
Gullálmur Kr. 2.590 -
Oregon pine Kr. 3.150-
Eik Kr. 3.370 -
Teak Kr. 3.370 -
Hnota Kr. 3.440 -
Palisander Kr. 3.580 -
Strigaáferð Kr. 1.410-
Öll verð pr. fermeter
— með scluskatti.
★
Ennfremur eigum við
furu- og grenipanel
í 16 mismunandi gerð-
um.
Gerið verðsamanburð
— það borgar sig.
s;Bi(C>^ÍHcjj»i'öruv’erzíuMÍ»\^,
BJÖRNINNr
Skúlatúni 4. Sími 25 1 50. Reykjavík
Arídandi
ordsending
tilbænda
Vegna sérstakra samninga, getum við boðið
mjög takmarkað magn af URSUS dráttar-
vélum.
40 hestafla vélin á 729.000,—
65 hestafla vélin á 999.000.—
85 hestafla vélin á 1.950.000. -
Þetta tilboð gildir, meðan birgðir endast,
eða til nóvemberloka.
Greiðsluskilmálar eru, að vélin greiðist
fyrir áramót.
VÉLABORG
Sundaborg nr. 10 - Sími 86655 og 86680