Morgunblaðið - 13.10.1977, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1977
Umræóur utan dagskrár á Alþingi:
Jafnari og aukinn
kosningaréttur
Þingflokkanefnd kanni samstarfsvilja
um breytingar á yfirstandandi þingi
GEIR Hallgrímsson forsætisráðherra lýsti því yfir á
Alþingi í gær, í svari við fyrirspurn frá Gylfa Þ. Gísla-
syni, að ríkisstjórnin hefði ákveðið að beita sér fyrir
viðræðum milli stjórnmálaflokka, til að kanna hvaða
úrræði væru fyrir hendi til endurbóta á kosningalöggjöf
og stjórnarskrá. Jafnframt myndi stjórnarskrárnefnd
innt eftir skýrslu or greinargerð um störf nefndarinnar
almennt, þ.á m. því er lýtur að hreytingum til jöfnunar á
kosningarétti (vægi atkvæða) og valfrelsi kjósenda milli
frambjóðenda á framhoðslistum. Forsætisráðherra lagði
áher/lu á, að viðræður yrðu hafnar í þeim tilgangi að
kanna, hve víðtæk samstaða næðist meðal þingmanna á
þessu sviði. Ekki væri ástæða til að fara út í persónuleg
viðhorf sín nú, enda hefði hann þegar látið þau í Ijós á
opinberum vettvangi.
Jafn kosningarréttur
Fersónulegra kjör
Gylfi Þ. Gíslason (A) kvaddi
sér hljóðs utan dagskrár í neðri
deild Alþingis í gær og gerði að
umtalsefni jöfnun kosningarrétt-
ar í landinu og persónulegra val
sveitarstjórnarmanna og þing-
manna. Dráttur hefði orðið á
endurskoðun stjórnarskrár. Verk-
efni hennar væri og miklu við-
tækara en þeir tveír þættir, sem
hann nefndi hér. Að sínu mati
væri ástæða til aö fela sérstakri
þingnefnd að fjalla sérstaklega
um þau mál, er lúta að kosningum
og rétti kjósenda, þannig að unnt
væri að afgreiða þau á þessu sið-
asta þingi kjörtímabilsins. Til
þess væri tóm, ef vilji væri fyrir
hendi. Og svo virtist sem slíkur
vilji til breytinga á kosningalög-
um, í átt til aukins lýðræðis, væri
til staðar. Því væri ástæða til að
kanna nú, hve víðtækri samstöðu
væri hægt aö ná á Alþingi til
slíkra breytinga. Þingflokkur Al-
þýðublokksins bæri því fram
fyrirspurn til forsætisráðherra
hvað ríkisstjórnin hygóist gera í
þessum málum — á þessu þingi.
Hreyfi ríkísstjórnin því ekki
muni Alþýðuflokkurinn flytja
þingsályktun, þar sem sérstakri
þingnefnd verði falið að semja
frumvarp um breytingar á stjórn-
arskrá og kosningalögum, sem
feli það í sér að kjósendur hafi
sem jöfnust áhrif á skipan Al-
þingis, án tillits til búsetu, og að
þeir hafi úrslitaáhrif á, hverjir
hljóti kosningu af einstökum
framboðslistum.
Þessari fyrirspurn svaraði for-
sætisráðherra svo sem að framan
greinir.
Færar leiðir
til breytinga
Ingólfur Jónsson (S) kvaðst
hafa rætt þau mál, sein hér hafði
borið á góma, við dr. Gunnar
Schram prófessor, starfsmann
stjórnarskrárnefndar, m.a. hverj-
ar breytingar væru tiltækar með
umfjöllun á kosningalögum. Vafa-
mál væri að tími ynnist til að
breyta stjórnarskrá með þeim
hætti, sem eðlilegt væri að standa
að slíkum bréytingum, fyrir kom-
andi alþingiskosningar. Hins-
vegar væri til athugunar, hvort
vilji væri fyrir hendi til breytinga
á kosningalögum. Þær leiðir, sem
færar þættu í því efni, væru þess-
ar:
1. Ef vilji væri fyri hendi mætti
gera þá breytingu á 122. gr. kosn-
ingalaga, að uppbótarþingsætum
yrði úthlutað eftir atkvæða magni
einu saman en ekki hlutfalli át-
kvæða.
2. Þá mætti og fella niður það
ákvæði, að aðeins 1 uppbótarþing-
maður mætti koma í hluta sama
flokks í hverju kjördæmi.
Hagstofan hefði reiknað út að
þessar breytingar myndu flytja
uppbótarþingmenn yfir til
Reykjavíkur- og Reykjaneskjör-
dæma, — og leiðrétta misræmi
milli vægis atkvæða í kjördæm-
um, úr 1 á móti 4 — eins og það
hefði mest reynst 1974 — í 1 á
móti 2. Miðaö við síðustu kosn-
ingatölur hefðu, með þessum
breytingum, verið 2645 atkv. að
baki hvers Reykjavíkurþing-
manns, 2876 i Reykjanesi, 2235 á
Norðurlandi eystra en undir 200 í
öðrum kjördæmum.
Unnt myndi og aó koma á per-
sónubundnum kosningum með
lagabreytingum einum saman. 1)
Einfaldasta leiðin væri að lög-
festa ákvæði um að nöfnum a.m.k.
aðalmanna á framboðslistum
skyldí raðað í stafrófsröð, ekki í
númeraröð eftir flokkaákvörðun
eins og nú tíðkast. Kjósandi tölu-
setur síðan nöfn frambjóðenda á
þeim lista er hann kýs að eigin
geðþótta. Þannig er málum háttað
í írlandi. Einnig í framkvæmd í
Danmörku, þar sem slíkt er þó
ekki lögskylt. Sl. 10 ár hafa allir
flokkar þar boðið fram óraðaðan
framboðslista, nema kommún-
istar og Vinstri-sósialistar. 2) Þá
mætti og setja í lög heimildar-
ákvæði til flokka um sjálfræði
þeim til handa, um framsetningu
raðaðs eða óraðaðs lista, eins og
tiðkast í Danmörku. 3) Breyta
mætti 110 gr. kosningalaga, þann
veg, að breyti kjósandi röðun á
lista, hafi sú breyting fullt gildi í
stað 'á gildis, eins og nú er. Jafn-
vel mætti hafa gildi breytingar
tvöfalt, til að vega upp á móti
valdi flokks við röðun á lista. 4)
Innleiða mætti hliðstætt fyrir-
komulag og dönsk lög gera ráð
fyrir. Núverandi kjördæmaskip-
an yrði þá óbreytt og heildarmagn
atkvæða flokki til handa í hverju
kjördæmi réði úrslitum um þing-
mannatölu hans. Hins vegar yrði
kjördæmum skipt upp í einmenn-
is eða tvímennis kjörsvæði. Sömu
frambjóðendur yrðu i framboði i
öllum kjörsvæðum en ekki i sömu
röð. Þeir frambjóðendur, sem
flest fengju persónuleg atkvæði
myndu síðan deila meö sér at-
kvæðum viðkomandi flokka í
kjördæminu. Með þessum hætti
væri að hluta haldið í kosti ein-
menniskjördæmis, þótt áfram
yrði kosið hlutfallskosningu i
stórum kjördæmum.
Þetta væru hugsanlegar leiðir,
sem kanna þýrfti, bæði efnislega
og með tilliti til hugsanlegrar
samstöðu í þinginu. Stjórnar-
skrárnefnd myndi koma saman,
að'sögn formanns hennar (Hanni-
bls Valdimarssenar) mjög fljót-
lega, og yrðu þessar leiðir að sjálf-
sögðu einnig ræddar þar.
Endurskoðun á
geðþóttaákvörðun
HIN fyrirvaralausa og með
öllu óvænta lokun Háskóla
Islands og menntaskólanna
hér i bænum, -—- vegna verk-
falls BSRB er ákvörðun sem
eðlilega hefur vakið undrun
og mikið umtal fólks
Slíkt þarf engan að undra,
þvi ekkert smámál er það
fyrir þúsundir nema við þess-
ar menntastofnanir að rjúfa
starfsfrið þeirra að ástæðu-
lausu og skipa þeim út á
götuna Ekki eru kennarar
þessara skóla aðilar að verk-
fallinu.
Engu er likara en að
menntamálaráðherra geri sér
enga grein fyrir þvi, sem
þessi röskun hefur í för með
sér. — Það er eins og hann
haldi að lokun skólanna sé
eitthvað í líkingu við að
hætta við að fara í fimmbió.
Ráðherrann hlýtur að gera
sér grein fyrir að nemendur
þessara skóla þurfa að skila
fyrirframákveðnu námsefni á
ákveðnum tímum skólaárs-
ins. Svona lokun getur því
hæglega haft í för með sér
m.a. að fara verður hraðar
yfir námsefnið en forsvaran-
legt getur talizt.
Einn er sá staður, þar sem
ég hélt að þetta myndi vekja
mikla athygli og umræðu,
það er í sölum Alþingis. Þó
ekki séu margír dagar síðan
þingið kom saman, er engu
líkara en að lokun marg-
nefndra skóla hafi farið fram-
hjá þeim sem þar starfa. Eng-
inn hefur beðið menntamála-
ráðherrann um að gera þing-
heimi grein fyrir þessari geð-
þóttaákvörðun sinni á þriðju-
daginn var Hvar eru rökin?
Nei, enginn hefur spurt um
það og er það miður farið.
Lokun skóla með þeim
hætti sem hér virðist hafa átt
sér stað getur ekki og má
ekki vera ákvörðun eins ráð-
herra i heilli ríkisstjórn á ís-
landi. Slíka ákvörðun verða
allir ráðherrar hennar að taka
sameiginlega.
Fullyrða má að mikill meiri-
hluti þeirra háskólastúdenta
og menntaskólanema, sem
voru reknir út á götuna um
daginn, vilji beina þeim til-
mælum til allrar ríkisstjórnar-
innar i heild að taka ákvörð-
un menntamálaráðherra til
endurskoðunar; opna skól-
ana og tryggja þar með
skólafólkinu starfsfríð á ný-
byrjuðu skólaári — Nógur
er innanlandsófriðurinn
samt
Sverrir Þórðarson.
Sýnt hvert stefnir
Ellert B. Sehram (S) þakkaði
(it*ir
Hallj’rímsson
Gvlfi Þ.
(•islason
Injíólfur Kllerl B.
Jonsson Schram
Jón
Skaftason
Magnús
Kjart ansson
Karvcl Páll
Pálmason Pétursson
Þt>rarinn
Þt>rarinsson
Gylfa fyrirspurn og ríkisstjórn
þegar tekna ákvörðun um þing-
flokkanefnd. Sýnt væri, hver vilji
þingmanna er í þessu efni, enda
þegar komin fram bæði þings-
ályktunartillaga og frumvarp að
lögum, sem ganga í svipaða átt og
fyrirspurn Gylfa. Hann mínnti og
á tillögu til þingsályktunar, sem
hann og 15 aðrir þingmenn hefðu
flutt um þetta efni á sl. þingi.
Jafnt vægi atkvæða, eða sem jafn-
ast vægi þeirra, og valfrelsi kjós-
enda milli frambjóðenda á sama
framboðslista væru spor að auknu
jýðræði í landinu. En ekki væri
Framhald á bls. 21.
Þingfréttir
í stuttu máli:
18 ára
kosninga-
aldur tO
sveitar-
stjórna
I GÆR voru lögð fram eftirfar-
andi þingmál:
0 — Frumvarp til laga, flutt af
Benedikt Gröndal (A), þess efnis
að kosningaréttur til sveitar-
stjórna skuli miðast við 18 ára
aldur (í stað 20 ára nú).
0 — Frumyarp til laga, flutt af
Sighvati Björgvinssyni (A) og
tveimur öðrum þingmönnum Al-
þýðuflokksins, þess efnis að kom-
ið verði á fót samstarfsnefndum
starfsfólks og stjórnenda fyrir-
tækja og stofnenda, sem hafa í
þjónustu sinni 40 starfsmenn eða
fleiri (undanþegin er áburðar-
verksmiðja og sementsverk-
smiðja). Nefndirnar skulu vera
stjórnendum tíl ráðuneytis um
vinnuaðstöðu, vinnutilhögun og
starfsumhverfi.
0 — Frumvarp til laga, flutt af
sömu þingmönnum, um breytingu
á hlutafjárlögum, þess efnis, að
starfsfólk fyrirtækja, þar sem
vinna 40 eða fleiri, öðlist rétt til
að kjósa úr sínum höpi fulltrúa í
stjórnir fyrirtækjanna.
0 — Tillaga til þingsályktun-
ar, flutt af Magnúsi Kjartanssyni
(Abl), þess efnis að Alþingi skori
á rikisstjórnina og fulltrúa ís-
lands i Norðurlandaráði, að beita
sér fyrir því að Grænlendingar fái
fulla aðild að Norðurlandaráði.
0 — Tillaga til þingsályktun-
ar, flutt af Benedikt Gröndal, um
allsherjarathugun og úttekt á ör-
yggi og hollustuháttun aæ vinnu-
stöðum.
0 — Tillaga til þingsályktun-
ar, flutt af Helga F. Seljan (Abl),
og fleiri samflokksþingmönnum,
þess efnis að ríkisstjórnin undir-
búi frumvarp til laga, er tryggi
innlendri lyfjaframleiðslu ,,for-
gang umfram innflutt lyf, sé hún
fyllilega samkeppnisfær.“
Nefndakjör
á Alþingi
1 GÆR var kjörið í þingnefndir
— bæði í Sameinuðu þingi og
þingdeildum. Þingnefndir
verða þann veg skipaðar.
SAMEINAÐ ÞING.
Fjárveitinganefnd: Steinþór
Gestsson (S), Pálmi Jónsson
(S), Lárus Jönsson (S), Ellert
B. Schram (S), Þórarinn Sigur-
jónsson (F), Ingi Tryggvason
(F), Sighvatur Björgvinsson
(A), Geir Gunnarsson (Abl) og
Helgi F. Seljan (Abl). Breyting
frá fyrra þingi: Ellert B.
Schram kemur í stað Jóns heit-
ins Arnasonar, þingmanns
Vestlendinga.
Utanríkismálanefnd: Jóhann
Hafstein (S), Friðjón Þórðar-
son (S), Guðmundur H.
Garðarsson (S), Þórarinn
Þórarinsson (F), Tómas Árna-
son (F), Gylfi Þ. Gíslason (A)
og Gils Guðmundsson (Abl).
Varamenn: Ragnhildur
Helgadóttir (S), Eyjólfur K.
Jónsson (S), Pétur Sigurðsson
(S), Steingrimur Hermannsson
(F), Ingvar Gíslason (F), Bene-
dikt Gröndal (A) og Magnús
Kjartansson (Abl).
Atvinnumálanefnd: Guð-
mundur H. Garðarsson (S), Jón
G. Sólnes (S), Sverrir
Hermannsson (S), Steingrímur
Hermannsson (F), Páll Péturs-
son (F), Karvel Pálmason
(SFV) og Gils Guðmundsson
(Abl).
Allsherjarnefnd: Lárus Jóns-
son (S), Ólafur G. Einarsson
(S), Ellert B. Sehram (S), Jón
Skaftason (F), Jón Helgason
(F), Magnús T. Ólafsson (SFV)
og Jónas Árnason (Abl).
Þingfararkaupsnefnd: Sverr-
ir Hermannsson (S), Friðjón
Þórðarson (S), Sigurlaug
Bjarnadóttir (S), Ingvar Gísla-
son (F), Gunnlaugur Finnsson
(F), Eggert G. Þorsteinsson
(A) og Helgi F. Seljan (Abl).
Frá nefndakjöri í þingdeild-
um verður greint á þingsíðu
Mbl. síðar.