Morgunblaðið - 13.10.1977, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. OKTÖBER 1977
VON IRA ún
EFTIR markalaust jafntefli íra og
Búlgara í Dublin í gærkvöldi, er Ijóst
að leikur Frakka og Búlgara sem
fram á að fara 16. nóvember n.k.
verður hreinn úrslitaleikur í riðlin-
um. Þurfa Frakkar að vinna þann
leik til þess að tryggja sér sess í
úrslitakeppninni í Argentinu, en
Búlgörum nægir hins vegar jafntefli.
Er talið mjög líklegt að Frakkarnir
komist áfram, þar sem þeir eru jafn-
an sterkir á heimavelli sínum.
írarnir áttu heldur meira í leiknum i
gærkvöldi. enda stilltu Búlgarar liði
sínu upp til varnarleiks Strax á 10
mínútu átti t d Johnny Giles. sem
jafnframt er þjálfari írska liðsins,
hörkuskot af 20 metra.fæn, sem strauk
þverslá búlgarska marksins og nokkru
síðar átti Don Givens opið færi, sem
hann misnotaði herfilega
Þegar á leikmn leið fóru Búlgarar að
sýna meiri sóknartilburði og áttu þeir
tvívegis þokkaleg marktækifæri en
höfðu ekki heppnina með sér
Tveir leikmanna irska liðsins Don
Givens og O'Leary voru bókaðir i leikn-
um og tveir leikmanna Búlgaranna
fengu emnig að sjá gula spjaldið, þeir
Vasilev og Kostov, en þeir meðhöndl-
uðu Liverpool-leikmanninn Steve
Heighway heldur ómjúklega
Lið írlands: Mulligan, O'Leary,
Lawrenson, Holmes. Giles, Brady,
Daly, Givens, Heighway, Stapleton
Lið Búlariu: Steikov. Vasilev, Ange-
lov, Bonev. Ivkov. Arabov, Kolev,
Kostov, Dievizov, Panov. Kzvetkov
Staðan i riðli fimm eftir leikinn
Búlgaria 3 1 2 0 4 — 3 4
Frakkland 3 111 4 — 3 3
írland 4 112 2 — 4 3
Austurríkismenn standa vel
að vígi eftir jafntefli í gær
EFTIR 1 — 1 jafntefli við Austur
Þjóðverja i Leipzig i gærkvöldi
standa Austurrikismenn vel að vigi i
sinum riðli i undankeppni heims-
meistarakeppninnar i knattspyrnu
Hafa þeir hlotið 8 stig, og eiga eftir
leik við Tyrki á útivelli sem fram
mun fara 16. nóvember n.k. Aðal-
keppinautur Austurrikis um sætið i
Argentinu, A-Þýzkaland, á eftir leiki
við Möltu, 30. október og við Tyrki á
útivelli 16. nóvember. Vinni Austur-
rikismenn leik sinn við Tyrki, sem
telja verður liklegt nægir það ekki
Austur Þjóðverjum að vinna báða
sina leiki.
Öllum á óvart léku Austurríkis-
menn stifan sóknarleik til að byrja
með i leiknum i gærkvöldi. Kom
þetta Þjóðverjunum i opna skjöldu
og lentu þeir hvað eftir annað i
erfiðleikum i fyrri hálfleiknum og á
43. minútu gátu þeir ekki komið í
veg fyrir mark er miðvallarleikmað-
urinn Bruno Pezzy átti góða sendinu
á framherjann, Roland Hattenberger,
sem skoraði af öryggi.
í seinni hálfleik snéru Austurrikis-
menn blaðinu við og stilltu liði sinu
upp i vörn. Fljótlega, eða á 51.
minútu, tókst Löwe að jafna fyrir
Austur Þjóðverja og undir lok leiks-
ins var stöðug pressa að marki
Austurrikismannanna og fengu Þjóð-
verjar þá tvivegis opin tækifæri sem
þeir nýttu ekki. í annað þessara
skipta fékk Riediger knöttinn fyrir
opnu marki Austurrikismanna, en
skallaði þá hátt yfir og í hitt skiptið
var Reinhard Haefner kominn einn
innfyrir en skot hans fór framhjá.
Staðan í riðli þrjú er nú þannig:
Austurriki 5 3 2 0 13—2 8
A Þýzkaland 4 1 3 0 4—3 5
Tyrkland 3 111 5—2 3
Malta 4 0 0 4 0—15 0
Skotarnir fagna marki Ktmny Dalglish sem gulltryggdi þeim farseðlana til Mexikó. ^
SKOTAR TRYGGÐU SER
FARSEÐLA TIL ARGENTÍNU
í GÆRKVÖLDI tókst Skotum að
tryggja sér farseðla til úrslitakeppni
heimsmeistarakeppninnar i knatt-
spyrnu i Argentínu að ári, en þá
sigruðu þeir Wales með tveimur
mörkun gegn engu i sjöunda Evrópu-
riðli undankeppninnar. Hafa Skotar
þar með hlotið 6 stig i sinum riðli og
úrslit í leik Tékkóslóvakiu og Wales
sem fram fara 16. nóvember
skiptir ekki máli.
Skotar eru fimmta þjóðin er þegar
hefur tryggt sér rétt til þátttöku i úr-
slitakeppninni Hinar eru Vestur-
Þjóðverjar, Argentína, Brasilía og Perú
Er þetta i annað skiptið í röð sem
Skotar eru með í úrslitakepppninni,
þar sem þeir voru meðal þátttökuþjóða
í Vestur-Þýzkalandi 1974
Leikur Skota og Wales-búa í gær-
kvöldi var nokkuð þófkenndur til að
byrja með, en Skotarnir voru þó jafnan
ENN URÐU ENGLENDINGAR
AÐ BÍTA í SÚRA EPLIÐ
ENGLENDINGAR Urðu fyrir sárum
vonbrigðum í gærkvöldi er þeir urðu
að gera sér 2—0 sigur yfir Luxem
burgurum að góðu i undankeppni
heimsmeistarakeppninnar i knatt-
spyrnu. Með þessum úrslitum
standa Englendingar enn verr að vígi
i sinum riðli, og eru nú nánast aðeins
fræðilegir möguleikar á að þeir kom
ist í úrslitakeppnina í Argentínu.
Eiga Englendingar eftir að leika
heima við bæði Finna og Luxemburg-
ara.
Englendmgar höfðu gert sér vonir
um stórsigur í leiknum i gærkvöldi og
ætluðu þannig að laga verulega marka-
hlutfall sitt í riðlmum, en vera kann að
það skeri úr um hvort Ítalía eða Eng-
land kemst til Argentínu En Luxem-
burgararnir börðust hetjulegri baráttu í
leiknum í gærkvöldi, ákaft studdir af
um 10 000 áhorfendum, sem flestir
voru á þeirra bandi Eins og búizt var
við fyrir»fram var um stanzlausa sókn
Englendinga að ræða í leiknum og
oftast voru allir leikmennirnir að mark-
verði Englands undanskildum mni í
vítateigi Luxemburgara En erfiðlega
gekk fyrir stjörnurnar að komðst í
gegnum hma þéttu vörn áhugamann-
anna, og þegar reynd voru markskot
bjargaði Jeannot Moes í marki Luxem-
burgaranna hvað eftir annað stórglæsi-
lega
Það var ekki fyrr en á 3 1 mínútu að
Englendmgum tókst að finna leiðina
gegnum varnarmúrinn Myndaðist þá
smuga sem Ray Kennedy tókst að
notfæra sér Gekk síðan hvorki né rak
hjá Englendmgum og var komið fram í
viðbótartíma vegna meiðsla er þeir
skoruðu aftur Kennedy vann þá skalla-
einvígi við einn af varnarmönnum
Luxemburgar og tókst að koma knettin-
um til Paul Marmer sem skoraði með
skoti af stuttu færi
Staðan í riðli tvö eftir leikinn í gær-
kveldi er þannig
England 5 4 0 1 13 — 4 8
Ítalía 3 3 0 0 9—1 6
Finnland 5 2 0 3 10—10 4
Luxemburg 5 0 0 5 2—19 0
atkvæðameiri og náði ágætum leikköfl-
um Skall tvívegis hurð nærri hælum
við mark Wales og fyrri hálfleik. en
Skotarnir höfðu ekki heppnina með
sér
Þegar röskar 10 mín voru til Jeiksloka
var staðan enn 0—0, en þá var einum
skozka leikmanninum brugðið innan
vítateigs Wales og ekki um annað að
ræða fyrir dómarann en að dæma vita-
spyrnu Hana tók fyrirliði skozka liðsins
Don Masson og skoraði af öryggi Eftir
markið reyndu Walesbúar að sækja af
krafti og slökuðu þá nokkuð á í vörn-
inni Varð það til þess að hinum mark-
sækna leikmanni Liverpool-liðsins,
Kenny Dalglish, tókst að stinga sér i
gegnum vörn þeirra og skora
Áhorfendur að leiknum voru 50 850
Lið Skotlands: Rough, McGrain,
McQueen, Forsyth, Jardine, Hartford,
Rioch, Macari, Dalglish, Jordan,
Johnston,
Lið Wales: Davies, Jones, Phillips.
Yorath, Tibbott, Flynn, Deacy,
Thomas, Toshac, Sayer, Curtis
StanQn i riol ■ rtlti, I i L I
ENN BÆTTI HOLLENZKA
SILFURLIÐIÐ STÖÐU SÍNA
SILFURLIÐ Hollands frá síó-
usfu heimsmeistarakeppni í
knattsp.vrnu steig enn eitt
skrefid í átt til úrslita-
keppninnar í Arjíentínu næsta
sumar er þaú sigraúi Norður-
Ira í Belfast í gærkvoldi með
einu marki gegn engu. iMega
Belgíumenn, sem eru aðal-
keppinautar Hollendinga, að-
eins tapa einu stigi í þeim
tveimur leikjum sem þeir eiga
eftir til þess að Hollendingar
sigri örugglega í riðlinum, en
Holland og Belgía eiga eftir að
leika og fer sá leikur fram í
Hollandi lti. nóvemher n.k. Síð-
asti leikurinn í riðlinum verð-
ur svo milli Norður-íra og
Belgíumanna.
Leikurinn í Belfast í gær-
kvöldi var vel leikinn af báðum
iiðum og bauð upp á mörg
spennandi andartiik tyrir Iram-
an mörkin. Var greinilegt að
Hollendingar lögðu alla
áherzlu á að taka ekki mikla
áhættu í leiknum. Þeir náðu
snemma góðum tökum á vallar-
miðjunni og virtust láta sér það
vel líka þótt knötturinn væri
þar langtímum saman í fyrri
hálfleiknum. Þó náðu Norður-
Irarnir oft að brjótast I gegnum
vörn þeirra og fengu þá stund-
um sæmileg marktækifæri.
Þegar á leikinn leið tóku IIol-
lendingar að sa-kja meira og
var þá mikill kraftur og hraði í
áhlaupunum. Á 74. mínútu
tókst þeim að skora og gera út
um leikinn. Johnny Reh. sendi
þá knöttinn inn í eyðu þar sem
van der-Kerkhoff kom á fullri
ferð, náði að leggja knöttinn
f.vrir sig og skjóta síðan þrumu-
skoti með vinstri fa*ti sem Pat
Jennings í írska markinu átti
ekki möguleika á að ná.
Hinn fra*gi knattspyrnugarp-
ur Johan Cruyff lék nú með
hollen/.ka landsliðinu eftir a11-
langt hlé vegna meiðsla. Náði
hann sér aldrei á strik í leikn-
um og ógnaði lítið.
LIÐ NORÐIIR-IRI.ANDS:
Jennings, Riee, Nieholl,
Hunter, Nelson, O’NiIl,
McCreery, Mellroy, MeGrath,
Best Anderson.
LIÐ HOLLANDS: Jonglhoed,
Suurbier, Krol, Ilovenkamp,
Rijs Berger, van der Kerkhof,
van Hanegem, Jansen, Cruyff,
Rep Rene van der Kerkhof, van
der Kulen, Dushaha. Tveir þeir
síðastnefndu voru varamenn og
komu inná í leiknum.
Staðan í riðli fjögur eftir
leikinn:
Holland 5 4 1« 10—3 9
Belgía 4 3 0 1 7—2 6
Norður-Irlandö 1 1 3 4—fi 3
tsland 6 1 0 5 2—12 2
Johan Gruyff — var með hoilen/ka liðinu í gærkvöldi en hafði
sig lítið f frammi.