Morgunblaðið - 13.10.1977, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1977
35
Nicki Lauda er Júdas
segir Enzo Ferrari
NICKI Lauda, hinn ný-
bakaði heimsmeistari í
kappakstri 1977, mun
aka Brabham-bifreið á
næsta keppnistímabili,
en allt frá því að Lauda
hóf kappakstur fyrir al-
vöru hefur hann ekið bif-
reiðum frá Ferrari-
verksmiðjunum. Kom
ákvörðun Nicki Lauda
um að hætta hjá Ferrari
ekki á óvart, þar sem vit-
að var að hann lenti í
hörðum deilum við hinn
79 ára gamla stjórnanda
fyrirtækisins, Enzo Ferr-
ari, eftir að Lauda hætti í
kappakstrinum í Japan í
fyrra, en þar átti hann
góða möguleika á að
tryggja sér heimsmeist-
aratitilinn. Taldi Lauda
hrautina of hættulega og
hætti um miðja keppn-
ina.
Nýlega birti vestur-þýzka
blaðið Bild viðtal við Enzo Ferr-
ari, þar sem gamli maðurinn
valdi Lauda hin verstu orð. —
Lauda er Júdas, sagði Ferrari,
— hann lætur kaupa sig fyrir
30 salami-pylsur. (Fyrirtækið
sem er á bak við Brabham
framleiðir mjólkur- og kjötvör-
ur). — Lauda hefur svikið mig,
bætti gamli maðurinn við, — og
hann fær ekki að koma nálægt
nýju bifreiðunum okkar. Ég
mun finna annan ökumann sem
verður fljótur að svipta Lauda
af toppnum, enda er það ekki
honum að þakka að hann er nú
orðinn heimsmeistari að nýju,
heldur hinum frábæru bifreið-
um sem hann hefur ekið í
keppninni.
Góðar gjafir
frá Adidas
Nýlega hefur Adidas sportvöru-
fyrirtækið gefið eftirtöldum aðil-
um knattspyrnuskó og keppnis-
búninga: íslenzka landsliðinu,
Val, Akranesi og Fram. Að auki
hafa nokkrir frjálsíþróttamenn
hér fengið Adidas-íþróttavörur að
gjöf.
Gjafir þessar eru hingað komn-
ar fyrir milligöngu heildverzlun-
ar Björgvins Schram, sem hefur
umboð fyrir Adidas.
Hollendingar
unnu Dani í
unglingaleik
Hollendingar sigruðu Dani 2—1
í landsleik í knattspyrnu leik-
manna 21 árs og yngri, en leikur
þessi fór fram í Alaborg um helg-
ina. Staðan í hálfleik var 1—1.
Mörk Hollands skoruðu Henk van
Löuwen og Loek Ursem, en Lars
Lunkvist skoraði mark Dananna.
VEL HEPPNUÐ ÞYZKA-
LANDSFERÐ KR-INGA
LAUGARDAGINN 20. ágúst s.l.
lögSu tuttugu KR-ingar úr meistara-
flokki karla upp í ÞýskalandsferS
ásamt þjálfara sinum, Geir
Hallsteinssyni.
Tilgangur fararinnar var tviþœttur,
annars vegar sem undirbúningur
fyrir komandi keppnistimabil, en
eins og vitaS er unnu KR-ingar sér
rétt til aS leika i 1. deild siSast liSiS
vor og hins vegar til styrktar.
samheldni og félagsanda leikmanna.
KeppnisferSin ték 13 daga og
leiknir voru 9 leikir. Úrslit urSu þau
aS S leikir unnust, tveim lauk meS
jafntefli og tvö urSu töpin. en þaS
var gegn 1. deildar félögunum
Neuhausen, sem nýlega vann
Dankersen, og Göppingen. Þessir
leikir voru mjög jafnir þar til um 10
minútur voru til leiksloka. en þá kom
mikil þreyta i mannskap okkar, enda
búnir aS vera i ferSalagi meS lang-
ferSabil i margar stundir fyrir leik-
inn. Leiknum viS Göppingen var
sjónvarpað, þar sem veriS var aS
kynna 1. deildarliSin áður en
meistarakeppnin hófst. Fyrri hálfleik
lauk meS sigri okkar 12—10, og er
það einn besti leikur sem sést hefur
til KR-liSsins. En eins og áður segir
var ávallt erfitt aS leika seinni
hálfleik á fullu vegna þreytu í svo
löngu ferSalagi. en leiknum lauk
meS sigri Göppingen 24—19.
Vinsælasti og besti leikmaSur
Göppingen er Gunnar Einarsson,
sem skoraSi gullfalleg mörk i
leiknum, og má landslið okkar teljast
gott. ef það hefur ekki þörf fyrir
þennan vinstri handar leikmann.
Sama sagan endurtók sig gegn Neu-
hausen, fyrri hálfleikur var jafn
8—8 en við töpuSum leiknum
21 — 16.
FerSast var með dönskum lang-
ferSabil vitt og breitt um Þýskaland
og alls var ekiS rúma 2000 kiló-
metra. Yfirleitt var gist á hótelum,
en einnig á heimilum gestgjafa.
Undirbúningur undir ferð þessa
KR-mgar stóðu sig tnjög vel í lærdómsrfkri keppnisför sinni til Þýzkalands f haust. Virðist félagið nú
tefla fram heilsteyptu og góðu liði og máttu Islandsmeistarar Valá vel við una að vinna KR með einu
marki í fyrsta leik 1. deildar keppninnar. Myndin er úr þeim leik og sýnir Steindór Gunnarsson
Valsmann skora, án þess að Jóhannes Stefánsson, KR-ingur og fyrrum Valsmaður fái vörnum við komið.
hefur staðið yfir frá sl. áramótum og
eiga þeir Sigurgeir Guðmannsson,
framkvæmdastjóri Í.B.R. og þýskur
Islandsvinur og handknattleiksunn-
andi. jarðfræðingurinn Gustav Alte-
vogt allan veg og vanda af ferð
þessari ásamt stjóm handknattleiks-
deildar KR. Kostnaður fararinnar var
greiddur af leikmönnum sjálfum og
öfluðu þeir sér tekna með flugelda-
sölu og 17. júni sölutjaldi. Einnig
tóku þau félög sem heimsótt voru
þátt i kostnaðinum. Um ferðina er
það að segja, að hún heppnaðist
frábærlega vel og óhappalaust. Allar
móttökur Þjóðverjanna voru til
mikillar fyrirmyndar og gestrisni
þeirra mikil.
Það sem sérstaklega vakti athygli
varðandi þýskan handknattleik er
dómgæslan Munurinn á þvi hvernig
þýskir og islenskir dómarar túlka
lögin er slikur, að ætla má að ekki sé
dæmt eftir sömu reglum. Það sem er
tvimælalaust brottrekstrarsök á
íslandi er ekki ástæða tiltals i Þýska-
landi. Harkan er allsráðandi. Til
dæmis var aðeins þrisvar sýnt gult
spjald í öllum niu leikjunum. (Þýskir
handknattleiksdómarar hafa tekið
upp gul og rauð spjöld likt og i
knattspyrnunni.) Þó voru sumir
leikirnir hreinræktuð slagsmál á köfl-
um, en þannig handknattleik vill
fólkið sjá í Þýskalandi.
Mikill munur er á þýskum og
íslenskum handknattleik. Sóknir
þeirra byggjast flestar á gegnum
brotum af linu og hraðaupphlaupum.
Stórskyttur og leikmenn sem ráða
yfir mikilli tækni og leikni voru fáir.
Sérstaklega var þetta áberandi,
þegar við lékum gegn Göppingen og
sáum yfirburði Gunnars Einarssonar
á þesSu sviði.
Handknattleiksmenn úr KR hvetja
alla iþróttaflokka til að fara slikar
ferðir. Þrátt fyrir mikla undir-
búningsvinnu og erfitt ferðalag eru
keppnisferðir sem þessar ógleyman-
legar og einstakar.
Að síðustu er ekki úr vegi að
minnast orða, sem einn gestgjafa
okkar viðhafði er hann sagði að sam-
skipti íþróttafólks hefði oft meiri
áhrif til tryggingar heimsfriði, en
margar ferðir diplomata. Alla vega
ber þessi hópur KR-inga hlýjan hug
til Þjóðverja eftir þessa för og getur
ekki annað, en borið þeim vel
söguna
((Frá Handknattleiksdeild KR.)
Risaferðabingó í Sigtúni
í KVÖLD kl. 20.30. Húsið opnar kl. 19
Takið þátt í góðri
skemmtun og
spennandi keppni
um glæsilegar
sólarlandaferðir
FERBASKRIISTOFAN SIINNA UKJAREÖTU 2
Skemmtiatriði:
Hinn frábæri Jörundur flytur nýja skemmtiþætti
og kynnir efnið af nýrri hljómplötu sinni
Stutt ferðakynning:
Sagt frá Kanaríeyjaferðum og öðrum spennandi
ferðamöguleikum í vetur
Glæsileg tískusýning:
Karon samtök sýningarfólks sýna.
Fegurðardrottning íslands 1977 og ungfrú Reykjauík 1 977 ásamt
fleirri stúlkum sem tekið hafa þátt í fegurðarsamtökum erlendis fyrir
íslands hönd sýna það nýjasta í kvenfatatískunni
JÖRUNDUR
i