Morgunblaðið - 15.10.1977, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÖBER 1977
7
píþróltlrB
1 T^kfSietnd^æBhefur slegtð VaUmervn og
FH-lnga út úr Evrópufceppnlnnl I handknattleik:
Beiðni Vals og FH um imdan-
þágu til að komast til Fær-
eyja og Fiimlands var hafnað
„Vonbrigði með
verkfallsnefnd”
Eftirfarandi frétt
(frásögn) birtist í
ramma á íþróttasíðu
dagblaðsins Tímans í
gær:
„SOS-Reykjavík —
Við höfum orðið fyrir
afskaplega mikium von-
brigðum með verkfaiis-
nefnd BSRB, fyrir að
hún skyldi ekki veita
undanþágu, til að Valur
og FH kæmust til Fær-
eyja og Finnlands, til
að leika Evrópuleiki
sína. Eg sé ekki, að
undanþágan hafi haft
nein áhrif, sagði Sigurð-
ur Jónsson, formaður
H.S.Í., þega Tíminn
hafði samband við
hann.
— Valsmenn hafa
reynt mikið að fá
undanþágu til að kom-
ast til Færeyja, og við
höfum reynt að veita
þeim aðstoð. Við höfum
komið algjörlega að lok-
uðum dyrum. — Það er
vonlaust að tala við
þessa menn, þeir verða
að reyna að sýna vald
sitt, þessir aumingja
menn.
— Það var auðsótt
fyrir okkur að fá undan-
þágu hjá verkalýðs-
félögunum, i þau skipti
sem við höfum leitað til
þeirra, þegar þau voru í
verkföllum. Þá hafa
þau sagt, elskurnar
mínar, við erum ekki í
verkfalli við ykkur og
það er sjálfsagt að veita
ykkur undanþágu, ef
hægt er að koma því við.
En hjá BSRB var
undanþágu okkar
algjörlega hafnað.
— Hvað bar nefndin
fyrir sig í sambandi við
að hafa hafnað Vals-
mönnum um undan-
þágu?
— Þetta eru ekki
menn, sem þurfa að
bera neitt fyrir sig.
Þetta eru mennirnir,
sem ráða landinu í dag.
Þetta er nú ekkert smá-
ræði, ef þú kæmir
þarna og horfðir á þessa
nefnd — u.þ.b. 25
manns, sem situr þarna
og dæmir. Það var svo
mikill alvöruspipur á
biessuðum mönnunum,
að maður fylltist
ábyrgðart ilfinningu
þegar við komum þarna
í salinn, sem þeir hafa
lagt undir sig.
— Það stefnir allt í
þá átt að bæði Valur og
FH verði dæmd úr
Evrópukeppninni?
— Við eigum alveg eins
von á því og ekki nóg
með það, spurningin er,
hvort fslen/k lið eru
ekki einnig úr leik á
næsta ári. Þá munu
félögin þurfa að borga
háar sektir fyrir að
mæta ekki til leiks.
— Við skýrðum þetta
fyrir verkfallsnefnd
BSRB, en það var ekki
tekið til greina.“
Átak gegn um-
ferðarslysum
Það er ekki margt
sem veldur meiri
hörmungum, fleiri
dauðsföllum, alvarlegri
örkumlum eða meiri
röskun á Iffi og högum
einstaklinga og fjöl-
skyldna en sú háa tíðni
umferðarslysa, sem
staðreynd er hér á
landi. Haust og vetur,
með skammdegi,
myrkri fsingu og snjóa-
lögum. bjóða heim
fleiri hættum í umferð
en aðrir ártímar. Þá get-
ur það skipt sköpum um
lff og heilsu að farar-
tæki og stjórnandi þess
séu vel í stakk búin,
hvað búnað bifreiðar og
stjórnunarhæfni snert-
ir — og taki fullt tillit
til þeirra akstursskil-
yrða, sem hverju sinni
eru fyrir hendi, sem og
umferðarreglna. Gang-
andi vegfarendur þurfa
og að fara út í yztu æsar
eftir boðnum reglum,
er þeir eiga leið um ak-
brautir.
Samhuga átak til að
koma í veg fyrir um-
ferðarslys getur áorkað
mjög miklu til góðs.
Þegar fjölmiðlar hafa
hafið herferð, samátak,
gegn umferðarslysum,
hefur tíðni þeirra ætíð
lækkað um sinn. Það er
þörf á slíku samátaki
næstu vikur og mánuði. i
iílcðður
á morgun
DÓMKIRKJAN Messa kl. 11
árd., með hinum nýja messu-
söng Ragnars Björnssonar dóm-
organista. Séra Þórir
Stephensen. Messa kl. 2 síðd.
Herra Sigurbjörn Einarsson
biskup prédikar. Séra Hjalti
Guðmundsson þjónar fyrir alt-
ari ásamt Jónasi Gíslasyni
dócent.
NESKIRKJA Barnasamkoma
kl. 10.30 árd. Séra Frank M.
Halldórsson. Fermingamessa
kl. 2 síðd. Báðir prestarnir.
FRlKIRKJAN Reykjavik.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðni Gunnarsson. Messa kl. 2.
síðd. Séra Þorsteinn Björnsson.
HATEIGSKIRKJA Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 árd. Séra Tómas
Sveinsson. Messa kl. 2 síðd.
Séra Arngrimur Jónsson. Síð-
degisguðsþjónusta kl. 5. Séra
Tómas Sveinsson.
FlLADELFlUKIRKJAN Safn-
aðarguðsþjónusta kl. 2 siðd.
Athugið: Aðeins fyrir söfnuð-
inn. Almenn guðsþjónusta kl. 8
síðd. Einar J. Gislason.
LAUGARNESKIRKJA Barna-
guðsþjónusta kl. 11 árd. Messa
kl. 2 síðd. Organisti Jón G.
Þórarinsson. Séra Halldór S.
Gröndal.
DÓMKIRKJA Krists Konungs,
Landakoti. Lágmessa kl. 8.30
árd. Hámessa kl. 10.30 árd. Lág-
messa kl. 2 síðd. Alla virka daga
er lágmessa kl. 6 síðd., nema á
laugardögum, þá kl. 2 siðd.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL
Messa í Bústaðakirkju kl. 10.30
árd. Ferming og altarisganga.
Séra Lárus Halldórsson.
HJALPRÆÐISHERINN
Helgunarsamkoma kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 2 síðd.
Hjálpræðissamkoma kl. 8.30
siðd. Heimilasambandið tekur
þátt í samkomunni. Lautinant
A. Evju.
SUNNUDAGASKÓLI K.F.U.M.
Sunnudagaskóli fyrir öll börn
að Amtmannsstfg 2B klukkan
10.30 árd.
BÚSTAÐAKIRKJA Barnasam-
koma í Bústöðum fellur niður.
Fermingarmessur Breiðholts-
presta kl. 10.30 árd. og kl. 2
síðd. Séra Ölafur Skúlason.
SELTJARNARNESSÓKN.
Guðsþjónusta verður kl. 11 árd.
í Félagsheimilinu. Séra Guð-
mundur Öskar Ölafsson.
LANGHÓLTSKIRKJA. Barna
samkoma kl. 10.30 árd. Séra
Arelíus Nielsson. Guðsþjónusta
kl. 2 síðd. Ræðuefni: Hann sá
gegnum holt og hæðir. Séra Sig-
urður Haukur Guðjónsson.
ARBÆJARPRESTAKALL.
Barnasamkoma í Arbæjarskóla
kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta í i
Arbæjarkirkju kl. 2 síðd. —
Ferming og altarisganga. Séra
Guðmundur Þorsteinsson.
KIRKJA ÓAða safnaðarins.
Messa kl. 2 siðd. Séra Emil
Björnsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL
FELLA- OG HÓLASÓKN.
Fermingarguðsþjónusta og alt-
arisganga í Bústaðakirkju kl. 2
síðd. Séra Hreinn Hjartarson.
Barnaguðsþjónustan í Fella-
skóla fellur niður vegna verk-
falls BSRB.
ELLI- OG HJÚKRUNARHEIM-
ILIÐ Grund. Guðsþjónusta kl. 2
síðd. Séra Þorsteinn L. Jónsson
prédikar. Fél. fyrrverandi
sóknarpresta,
HALLGRlMSKIRKJA Messa
Ferming og altarisganga kl. 11
árd. A þriðjudaginn klukkan
10.30 árd. Lesmessa, beðið fyrir
sjúkum. Séra Ragnar Fjalar
LárUsson.
LANGSPlTALINN. Messa kl.
10 árd. Séra Ragnar Fjalar
Lárusson.
ASPRESTAKALL. Messa að
Norðurbrún 1 kl. 2 síðd. Séra
Grímur Grímsson.
GÚÐSPJALL DAGSINS
Matt. 9:
Jesús læknar hinn lama.
LITUR DAGSINS:
Grænn. Táknar vöxt.
Einkum vöxt hins andlega
lífs.
KARSNESPRESTAKALL.
Barnasamkoma í Kársnesskóla
kl. 11 árd. Guðsþjónusta i Kópa-
vogskirkju kl. 11 árd. Séra Árni
Pálsson.
DIGRANESPRESTAKALL.
Barnasamkoma í Safnaðar-
heimilinu við Bjarnhólastíg kl.
11 árd. Guðsþjónusta i Kópa-
vogskirkju kl. 2 siðd. Ferming
og altarisganga. Séra Þorberg-
ur Kristjánsson.
KAPELLA St. Jósefssystra
Garðabæ. Hámessa kl. 2 síðdeg-
is.
MOSFELLSPRESTAKALL.
Lágafellskirkja: Fjölskyldu-
messa kl. 2 síðd. Séra Birgir
Ásgeirsson.
VIÐISTAÐAPRESTAKALL.
Barnasamkoma i Viðistaða-
skóla fellur niður vegna verk-
falls BSRB. Guðsþjónusta kl. 2
siðd. i Hafnarfjarðarkirkju.
Safnaðarfundur i Góðtemplara-
húsinu eftir messu. Sjá nánar i
Dreifibréfi. Séra Sigurður H.
Guðmundsson.
FRlKIRKJAN i Hafnarfirði.
Barnaguðsþjónusta kl. 10.30
árd. Guðsþjónusta kl. 2 síðd.
Sérstaklega er vænzt ferming-
arbarnanna og foreldra þeirra.
Séra Magnús Guðjónsson.
NJARÐVlKÚRPREfiTAKALL.
Sunnudagaskóli i Stapa kl. 11
árd. og i Safnaðarheimili Innri-
Njarðvíkurkirkju kl. 1.30 síðd
Séra Páll Þórðarson.
KEFLAVlKURKIRKJA.
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
Sóknarprestur.
GRINDAVlKURKIRKJA.
Barnasamkoma kl. 11 árd.
Sóknarprestur.
KIRKJUVOGSKIRKJA. Messa
kl. 2 síðd: Sóknarprestur.
ÚTSKALAKIRKJA. Messa kl.
2 siód. ,
STOKKSEYRARKIRKJA.
Barnaguðsþjónusta kl. 10.30
árd. Almenn guðsþjónusta kl. 2
síðd. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA. Barna-
samkoma kl. 10.30 árd. Messa
kl. 2 síðd. Séra Björn Jónsson.
Sölubörn
Merkjasala
Blindravinafélags íslands,
veröur á sunnudaginn 16. okt. n.k.
og hefst kl. 10 f.h.
Merkin verða afhent úr bílum, sem verða
við flesta barnaskóla í Reykjavík,
Kópavogi og Hafnafirði.
---------\
Góð
sölulaun
_________>
Sölubörn komið og seljið
merki til hjálpar blindum.
Foreldrar leyfið börnunum
að selja merki Blindravina-
félags íslands.
'SUMAfí/Ð 78
km
Nokkur sumarhús og hjólhýsi
verða se/d með eftirfarandi
kjorum.
0 Va greitt þegar^kaup eru ókveðin
| 2/4 greitt ( vetur, fram að afhendingu hússins ( vor
0 V• linað fram á haust 1978.
Bæði sumarhúsin og hjólhýsin er hægt að sy-na nuna
Vinsamlega athugið að sumarhús og hjólhýsi verða aðeins flutt inn næsta ár gegn
staðfestum fyrirframpöntunum
GÍSLIJ0NSS0N & C0 HF
Sundabora 41. Sími 86644.