Morgunblaðið - 19.10.1977, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKTOBER 1977
blMAK
28810
24460
bílaleigan
GEYSIR
BORGARTUNI 24
Hús á Blöndu-
ósi tengd hita-
veitu í þess-
ari viku
Kostnaðurinn
LOFTLEIDIR
C 2 1190 2 11 38
FERÐABILAR hf.
Bílaleiga. sími 81260.
Fólksbilar, stationbilar, sendibíl-
ar, hópferðabilar og jeppar
Ókannað mál
með afnota-
gjöld útvarps
og sjónvarps
MORGUNBLAÐIÐ spurði Vil-
hjálm Hjálmarsson mcnntamála-
ráðherra að því i gær hvernig
afnotagjald af útvarpí og sjón-
varpi yrði háttað þegar dagskrá
fellur niður í svo langan tima sem
raun ber vitni, en dagblöðin inn-
heimta t.d. ekki áskriftargjald
fyrir þann tíma sem blöð koma
ekki út vegna verkfalla eða
annarra sérstakra ástæðna.
Menntamálaráðherra kvað þetta
vera eitt af mörgu sem ætti eftir
að ræða, því staða sem þessi hefði
aldrei komið upp hjá rikisút-
varpinu.
undir áætlun
VATNI var hleypt á aðalæð hita-
veitunnar til Blönduóss í fyrra-
dag og í þessari viku verða fyrstu
húsin tengd inn á kerfi hitaveitu
Blönduóss. I.agning hitaveitu
Blönduóss hófst fyrir 4 mánuðum
og er allt verkið nú langt komið
og mánuði á undan áætlun. Þá er
Ijóst, að kostnaður við langingu
hitaveitunnar verður undir áætl-
un.
Jón Isberg sýslumaður á
Blönduósi sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að lagning
aðalæðarinnar frá Reykjum á
Reykjabraut til Blönduóss hefði
gengið mjög vel, en alls væri
fjarlægðin milli þessara staða 14
km. Þá væri að mestu lokið við að
leggja dreifikerfið um kauptúnið
og væri það 21 km. að lengd,
þannig að samtals væri lengd að-
alveituæðar og dreifikerfis 26 km.
Þá sagði Jön að verkið i heild
væri meira en mánuði á undan
áætlun og um 60% húsa á Blöndu-
ósi yrðu tengd dreifikerfinu þeg-
ar í haust.
Talið er að nægjanlegt vatn fá-
ist um langa framtíð á Reykjum á
Reykjabraut. Ur þeirri holu sem
Blönduósingar nota koma nær 50
sekúndulítrar af 70 stiga heitu
vatni, en næstu ár þarf kauptúnið
aðeins um 40 sekúndulitra og í
framtiðinni er talið nægjanlegt að
dýpka holuna til að ná í meira og
heitara vatn.
Formenn og stjórnarmenn hinna ýmsu félaga frá landsbyggðinni ræða málin hjá Iþróttamiðstöðinni. 1
miðjunni f hjólastól er formaður Landssambands fatlaðra, Theodór Jónsson. Ljósmynd Mbl. SigurKeir.
V estmannaey jar:
Iþróttamiðstöðin og elliheim-
ilið fá viðurkenningu fatlaðra
SJÁLFSBJÖRG, Lands-
samband fatlaðra, hélt
sambandsstjórnarfund í
íþróttamiðstöðinni í Vest-
mannaeyjum 8. okt. s.l., en
íþróttamiðstöðin í Vest-
mannaeyjum er fyrsta hús
sinnar tegundar á landinu
þar sem fullt tillit er tekið
til fatlaðra og fékk húsið
Flugumferðarstjórnin á N-Atlantshafi:
Veitir 150 manns atvinnu
og röskar 700 milljónir
króna í gjaldeyristekjur
Allt sem hindrar edlilega flugumferðarstjórn
er okkur til vandræða, segir flugmálastjóri
því ásamt Elliheimilinu
Hraunbúóum alþjóða-
merki fatlaðra, en þaö gef-
ur til kynna að fólk í hjóla-
stólum geti farið óhindrað
ferða sinna innan bygg-
ingarinnar. Fundarmenn
Sjálfsbjargar voru mjög
ánægðir með alla aðstöðu í
íþróttamiðstöðinni við
Brimhólabraut, en Vigfús
Gunnarsson, formaður
ferlinefndar, setti upp
viðurkenningarmerkið að
viðstöddum Páli
Zóphóníassyni bæjar-
stjóra, Stefáni Runólfssyni
formanni byggingarnefnd-
ar, Vigni Guðnasyni fram-
kvæmdastjóra og stjórnar-
mönnum Sjálfsbjargar.
Vigfús Gunnarsson formaður
ferlinefndar feslir merkið upp I
Iþróttamiðslöðinni.
„ÞETTA er auðvitað ákaflega
bagalegt og raunar sorglegt,
þegar það bætist við það ástand,
sem verið hefur á brezka flugum-
sjónarsvæðinu. Það hafa verið
Albert vill
ganga í Hvöt
ÞAU tíðindi hafa gerzt að einn
þingmanna Sjálfstæðisflokksins,
Albert Guðmundsson, hefur sótt
uin að gerast „félagskraftur" í
Hvöt, félagi sjálfstæðiskvenna.
Albert tjáði Mbl. að sig langaði
til að láta reyna á það hvort jafn-
rétti kynjanna væri virkilega við
lýði þegar um væri að ræða svið
þar sem konur einar hefðu hingað
til ráðið ríkjum.
Margrét Einarsdóttir varafor-
maður Hvatar hafði það um málið
að segja er Mbl. innti hana eftir
viðbrögðum stjórnarinnar við um-
sókninni, að tij þess að Albert
fengi inngöngu i félagið væri
nauðsynlegt að breyta lögum þess
þar eð ákvæði væri um að félagar
skyldu vera konur. Hún vildi
engu spá um lyktir málsins, en
sagði að persónulega litist sér vel
a að fá Albert Guðmundsson í
Ilvöt.
Það hefur áður gerzt að karlar
vildu ganga i Hvöt en fengu ekki.
Síðan eru allmörg ár og viðbuið
að viðhorf til slíkra umsókna hafi
breyzt, en búast má við að érindi
Alberts Verði til umræðu á aðal-
fundi Hvatar, sem haldinn verður
i nöbembermánuði n.k.
gerðar harðar atlögur að þessu
svæði okkar og allt sem hindrar
eðlilega fluumferðarstjórn af
okkar hálfu er okkur til vand-
ræða,“ sagði Agnar Kofoed Han-
sen, flugmálastjóri, er Mbl. ræddi
við hann í gær. „I beinhörðum
tölum er mikið í húfi fyrir okkur
því samkvæmt samningnum um
flugumferðarst jórnina okkar
hafa um 150 manns atvinnu og í
gjalde.vri á þessi starfsemi að
færa okkur á áttunda hundrað
milljónir króna. En það, sem
skiptir sköpum er það að enda
þótt við misstum þessa alþjóðlegu
flugumsjón úr okkar höndum, þá
yrðum við áfram aö halda uppi
umtalsverðri 'starfsemi vegna
okkar eigin flugs, en nú greiðum
við sjálfir aðeins örlítinn
hundraðshluta af þessum kostn-
aði.“
íslenzka flugumsjónarsvæðið
nær alveg norður á pól, suöur aó
Hjaltlandseyjum, vestur að
Kanada og austur að Noregi.
Sagði Agnar að tilraunir til að
taka þetta svæði af okkur hefðu
verið viðloðandi allt síðan 1962 og
hefðu verið gerðar harðar at-
lögur, en þeim hefði jafnan tekizt
að hrinda til þessa. Bandaríkja-
menn hafa verið hvað harðastir í
því að telja íslenzku flugum-
ferðarstjórnina óþarfa og hafa
bent á að tvö flugumsjónarsvæði,
það er Prestwiek-Shannon
svæðið, sem Bretar eru aðalmenn
á og Gander-svæðið, sem Kanada-
menn stjórna, væru nóg. Tvisvar
hafa þeir flutt tillögur þar að lút-
andi á sérstökum ráðstefnum um
flugið yfir N-Atlantshaf, en með
því að tína til öll hugsanleg rök
hefur tekizt að fá yfirgnæfandi
meirihlutafylgi við áframhald-
andi flugumferðarstjórn á
íslandi. Sagði Agnar að þar væri
þyngst á metunum sú staðreynd
að flugumferðarstjórn á Islandi
væri hagkvæmari kostur en
annað.
Hins vegar kvaðst Agnar vilja
taka fram, að verkfallsaðgerðir
BSRB hefðu ekki leitt til neinna
árekstra i sambandi við þá flug-
umferðarstjórn, sem í gengi er.
„Það litla, sem þetta er, hefur
gengið árekstralaust," sagði flug-
málastjóri. „Og það er mikils virði
út af fyrir sig, því svona starf er
ekki vinnandi vegur að inna af
hendi, ef ekki er friður til þess.“
Ráðstefna um menntun
á framhaldsskólastigi
DAGANA 21. og 22. októ-
ber gengst Bandalag há-
skólamanna fyrir ráð-
stefnu um menntun á
framhaldsskólastigi, og
hefst hún kl. 13:30 á föstu-
dag með ávarpi mennta-
málaráðherra. Fer hún
fram að Hótel Loftleiðum
og lýkur henni kl. 18:30 á
laugardeginum 22. okt.
Á fyrri degi ráðstefnunnar
verða flutt þessi erindi: Jón
Böðvgrsson og Ólafur H. Óskars-
son fjalla um skipulag framhalds-
fckólastigs, Kristján J. Gunnars-
son fjallar um yfirstjórn, skóla-
vald og ákvarðanatöku, Örn
Helgason fjallar um samband há-
skóla og framhaldsskóla. Að lokn-
um erindunum verða umræður.
Laugardag 22. okt. hefst ráð-
stefnan kl. 9:30 og þá fjalla Páll
Skúlason og Sveinbjörn Björns-
son um spurninguna: Hvað ræður
skiptingu námsefnis milli fram-
haldsskóla og háskóla? Siðan mun
Halldór Guðjónsson fjalla um
undirbúning háskólanáms hér og
erlendis. Að loknum þessum
erindum eða kl. 11 starfa um-
ræðuhópar og almennar umræður
verða eftir að umræðuhóparnir
hafa skilað áliti.
I frétt frá BHM segir að þessi
ráðstefna sé m.a. haldin vegna
þeirra þýðingarmiklu stefnumót-
unar sem nú sé framundan við
skipulagningu náms á framhalds-
skólastigi og er ráðstefnan opin
öllum meðan húsrúm leyfir.
Útvarp Reykjavík
VEÐURFREGNUM veróur útvarpað frá Veðurstofunni kl. 01.00, 07.00, 08.15,
10.10, 12.25, 16,15, 18.45 og 22.15 verkfallsdagana. Á sömu tímum verður útvarpað
tilkynningum frá tilk.vnningaskyldunni, lögreglu, vitamálastjóra, almannavörn-
um, Slysavarnafélagi íslands björgunarsveitum, svo og nauðsynlegar tilk.vnning-
ar stjórnvalda varðandi öryggisvörslu og heilsugæslu.
Húsavík:
Benedikt Jóns-
son sýnir í nýj-
um sýningarsal
Húsavfk. 17. október.
NÚ NVVERIÐ hefur verið tekinn
í notkun nýr sýningarsalur í
Safnahúsi Húsavíkur. Er hann
aðallega ætlaður fyrir mynd-
listarsýningar. A hinum tveimur
hæðum hússins eru bókasafn og
náttúrugripasafn.
Fyrstur til að sýna í þessum
nýja sal, er Benedíkt Jónsson list-
málari, sem er gamall og gróinn
Húsvíkingur. Þetta er ellefta sýn-
ing Benedikts. Á sýningunni er 61
mynd og eru þær málaðar i oliu,
vatnslitum, krít og akríllitum.
Sýningin hefur verið mjög vel
sótt og hefur Benedikt þegar selt
26 myndir, en sýningunni lýkur
næstkomandi fimmtudagskvöld.
Fréttaritari.