Morgunblaðið - 19.10.1977, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÖBER 1977
15
Baader—Ensslin—Raspe
— Höfuðpauramir sem féllu fyrir eigin hendi—
Vandaðar vetrarflíkur.
Snið, efni og frágangur, alltsamkvæmt
ströngustu hefð frá MAX.
Laugavegi 66 II hæð, sími: 25980. Sendum í póstkröfu.
Allt var þetta fólk meðal þeirra 1 1
hryðjuverkamanna sem ræningjar
Hanns-Martin Schleyers kröfðust að
sleppt yrði úr fangelsum í Vestur-
Þýzkalandi gegn því að þeir létu
bandingja sinn lausan á llfi. en ræn-
ingjar Boeing 737 Lufthansa-
þotunnar kröfðust þess á hinn bóg-
inn að öllum tugthúslimum úr
hryðjuverkaklíkunni yrði sleppt gegn
þvi að farþegum og áhöfn þotunnar
yrði sleppt
Baader, Ensslin og Raspe voru
handtekin fyrir fimm árum og um
sömu mundir var Ulrike Meinhof
einnig handtekin, en hún hengdi sig
í fangaklefa sínum í maímánuði
1976
Baader- Meinhof Hvers konar
fyrirbæri er þessi hópur, sem
undanfarin ár hefur haldið v-þýzku
þjóðfélagi í járngreipum? Umsvif
hopsins hafa valdið þvi að fjöldi
friðsamra borgara getur ekki um
frjálst höfuð strokið og öryggisráð-
stafanir eru orðnar svo viðtækar að
háttsettur embættismaður lýsti ör-
væntingu sinni nýlega með þessum
orðum i blaðaviðtali: „Ég get ekki
fengið mér bjórglas nema öryggis-
verðir séu yfir mér Ég get ekki farið
á salerni nema þeir séu við dyrnar
Ég gæti ekki átt mér viðhald nema
öryggisverðirnir væru yfir og allt um
kring. Fjölskyldulíf mitt er i molum."
Eftir minningarathöfn um Jiirgen
Ponto bankastjóra, sem Baader-
Meinhof klíkan myrti i júli sl., söfn-
uðust ýmsir viðstaddra saman Einn
þeirra litaðist um ? herberginu, sem
var fullt af athafnamönnum í við-
skipta- og stjórnmálalifinu, og sagði:
„Næsta fórnarlamb hryðjuverka-
mannanna er alveg áreiðanlega inn-
an þessara veggja." Sá, sem lét
þessi orð falla var Hanns-Martin
Schleyer
Mikið hefur verið rætt og ritað um
Baader-Meinhof hópinn siðan hann
fór að láta að sér kveða Höfuðpaur-
arnir og stofnendur hópsins áttu
rætur sinar meðal venjulegra borg-
ara, en hneigðust til vinstri í stjórn-
málum eftir að þeir voru komnir á
fullorðins ár. Ulrike Meinhof taldist
t.d til „stofukomma” lengi vel Hún
var gift, átti börn og heimili, og var í
töluverðum metum sem vinstri sinn-
aður blaðamaður er hún sagði skilið
við þessa tiltölulega öruggu tilveru
og ákvað að sælurikinu yrði ekki
komið á nema með blóðugri bylt-
ingu innan frá.
í fyrstunni varð Baader-Meinhof
klíkan fámenn og laus í böndunum,
en nú er talið fullvist að hryðjuverka-
hópnum hafi vaxið svo fiskur um
hrygg, að i innsta kjarnanum, sem
nefnir sig Rauðu herdeildina, séu
um 50 harðsvíraðir hryðjuverka-
menn, en þeir hafi auk þess um sig
nokkurs konar hirð um 100 „bylt-
ingarhermanna ', sem meðal annars
hafa það hlutverk að aðstoða höfuð-
of mikið úr áhrifum þessa hóps Þvi
má telja að Hans Josef-Horchem,
yfirmaður Hamborgardeildar rann-
sóknalögreglunnar. hafi ekki tekið of
djúpt i árinni er hann lét svo um
mælt fyrir skömmu, að stuðnings-
mennirnir væru sennilega i kringum
2500 talsins Horchem telur, að
þetta fólk sé ekki reiðubúið til að
taka beinan þátt i morðum, mann-
ránum og öðrum hryðjuverkum, en
hins vegar sé það fúst að hylma yfir
með glæpamönnunum, Ijá þeim
húsaskjól og greiða götu þeirra á
flótta undan lögreglunni með öðrum
hætti
Þar til Schleyer var rænt í byrjun
september áttu Andreas Baader,
Gudrun Ensslin og Jan-Carl Raspe
ásamt fylgifiskum sinum náðuga
daga i Stammheim-fangelsinu i
Stuttgart Heilli álmu hafði verið
breytt með tilliti til sérþarfa þeirra og
i samræmi við þær öryggiskröfur
sem gerðar voru i sambandi við
gæzlu þeirra G nginum fyrir fram-
an klefana var breytt i notalega setu-
stofu og allir höfðu fangarnir eigið
sjónvarps- og útvarpstæki Fangarn-
ir höfðu aðgang að vel búnu bóka-
safni og leikfimisal. auk þess sem
þeir voru áskrifendur að yfir 140
dagblöðum og timaritum. — þar á
meðal Pravda Fangafæðið var held-
ur ekkert slor, því i viðbót við það fé.
sem ætlað var til að fæða hvern
Framhald á bls. 19.
paurana við framkvæmd einstakra
aðgerða, — sjá um fölsun vega-
bréfa, útvega faratæki og fylgsni
o.s.frv Þegar „byltingarhermennirn-
ir" hafa síðan sannað ágæti sitt geta
þeir átt von á þvi að verða hækkaðir
í tign og teknir i Rauðu herdeildina,
ög er talið að Susanne Albrecht.
morðinginn sem barði að dyrum hjá
Ponto með fangið fullt af rauðum
rósum, hefði öðlazt slikan frama
Hversu margir stuðningsmenn
Baader-Memhof eru í Vestur-
Þýzkalandi hefur jafnan verið mikl-
um \tefa undirorpið, en vestur-þýzk
yfirvöld hafa yfirleitt ekki viljað gera
ANDREAS Baader, Gudrun Ensslin og Jan-Carl Raspe, sem frömdu
sjálfsmorð I Stammheim-fangelsinu i Stuttgart i fyrrinótt, voru öll dæmd
til lifstíSarfangelsisvistar fyrír morð, sprengjutilræði og bankarán i april
sl. vor. Baader og Raspe skutu sig i hofuðið en Ensslin hengdi sig i
gluggakarmi i fangaklefanum. Irmgard Múller lagði brauðsaxi sér í
hjartastað, en tilraun hennar til sjálfsmorðs mistókst, og er hún ekki talin
í Irfshættu Múller fékk fjögurra og hálfs árs fangelsisdóm í vor.