Morgunblaðið - 22.10.1977, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 22.10.1977, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1977 37 félk í fréttum + Það er afar eðlilegt að börn líkist foreidrum sínum og margir þykjast sjá ættarsvip i gegnum marga ættliði. Charles ríkisarfi í Englandi hefur alltaf verið talinn lifandi eftirmynd föður síns, hertogans af Edinburgh, en eftir þessum myndum að dæma getum við ekki betur séð en að hann líkist móður sinni drottningunni heilmikið, eða hvað finnst ykkur?. + Leikarinn þekkti, Marlon Brando. hefur aldrei verið fáanlegur til að gefa eigin- handaráritanir, sem rnargir sækjast mjög eftir hjá leikur- um og ýmsu frægu fólki. En nú hefur Brando brotið þetta boðorð og það var litil 10 ára gömul ensk skólastúlka sem fékk hann til þess. Marlon Brando skrifar litlu stúlkunni i hverri viku. Vinar hans segja að orsökin sé sú að hann hafi alltaf langað til að eignast dóttur. + t danska Belledebladet fundum við þessa mynd ásamt eftirfarandi texta: tslenskir hestar eru einstök dýr. Þeir eru ákaflega fótvissir og óragir við vötn. Það sást best á Evrópumeistaramóti hestamanna í Skiver- en í sumar. Þar er þessi mynd tekin af hesti og reiðmanni úti f sjó. + Báðar þessar myndir eru af leikaranum Rich- ard Bashart. Á mynd- inni til vinstri sjáum við hvernig hann Iftur út I raun og veru en á mvndinni til vinstri sést hvað hægt er að gera með andlitsföðrun en þannig lítur hann út í kvikmyndinni „Eyja dr, Moreaus". En þar á hann að vera úlfur í mannsgervi. Sr. Arelius Níelsson: Ávarp á bifreiðastöð- inni Bæiarleiðir UÉR BIRTIST ávarp það. sem sr. Arelíus Níelsson flutti, er hið nýja hús Bæjarleiða var vígt 5. okt. s.l. — Er það birt vegna mis- skilnings, er fram kom í frásögn af vígslunni og umræðu um ávarpið. Kæri framkvæmdastjóri. og viróulegu bilstjórar Bæjarleiða. Þegar litið er yfir farinn veg síðustu tvo áratugi, hefur leiðin vissulega oft legið saman hjá ykk- ur hérna fyrir neðan og okkur fyrir ofan Langholtsveginn. Vil ég þar fyrir kirkjunnar hönd sér- staklega þakka aksturinn í sum- ferferð aldraðra sem þið hafið gefið í mörg ár. Vissulega gætu það orðið marg- ar krónur með benzinverði og núllakrónum nútímans en um það hafið þið aldrei fengist. Heldur hefur þetta verið lagt fram af örlæti og fórnarlund, þótt dýr dagur sé. En vissulega er það fleira, sem þakka skal. Hvað er ánægjulegra en að koma inn í hlýjan og fallegan bíl hjá góðum, liprum og traustum bilstjóra. En þannig hafið þið jafnan verið öil þessi samleiðarár. Enda var stöðin ykkar upphaflega vígð af kirkjunnar hönd, meðan þið voruð byrjandi stofnun á litia skúrnum hérna við veginn. Og satt að segja finnst mér margt geta orðið sameiginlegt með þeim, sem eiga að visa veginn i kirkj- unni og aka veginn i borginni. Kjarni hvors tveggja eru orð Meistarans mikla um veginn, sannleikann og lifið. En þar er hann sjálfur leiðsögumaðurinn á þennan þrenns konar hátt. Fátt gæti orðið ykkur mikilsverðara og hugstæðara en vegurinn alla daga. Aka þannig áfram veginn hverju sinni, að hann verði braút hamingjunnar að takmarki hins fagra og góða. En til þess þarf að gæta sannleikans, sem við gætum á hversdagslegan hátt á þessu sviði nefnt umferðarreglurnar. Hvernig gætum við þeirra á veg- um lifsins og þið á vegum borgar- innar. Sagt er að menn aki eins og þeir lifa. En takmarkið. meginatriðið á veginum og í reglunum, sannleik- anum er svo hið þriðja og mesta, lifið sjálft. Hvernig er þess"gætt í allri umferð okkar, og allri um- ferðinni á brautum lífs og borg- ar? Þótt þið — að allra dómi standið ykkur þar vel, þá verður ekki sagt, að þar séu ekki mikil vandamál á ferð. Hræðileg tjón og hryllileg slys, sem valda hörm- ungum, þjáningum, örkumlun, sorgum og dauða verða nær dag- lega á veginum, ef ábyrgðin gagn- vart lífinu gleymist eitt andartak, já, brot úr andartaki. Þess vegna er vandi og vegsemd þess, sem vagninum stjórnar mik- il. Heill þeim, sem hér vinnur að með sæmd. Fátt er þyngra presti en tilkynna slys. Fátt er þyngra vagnstjóra en valda slysi. Að sið- ustu. Einu sinni bað öldruð kona mig að koma til sín á hinstu stundu. Hún sagði við mig. Þegar ég er farin og verð kvödd í kirkj- unni ætla ég að biðja þig að minn- ast sona minna í bæn. Þeir eru vagnstjórar. Og oft hef ég verið hrædd og kviðafull. Hjá vagn- stjóra er vandinn mikill og hætt- an tvöföld bæði að verða fyrir slysi og valda slysi. En vegsemdin er líka mikil, að vera öðrum ljós á vegi og að kunna heilum vagni heim að aka. Biddu Drottinn að greiða þannig veg þeirra að þeir verði aldrei öðrum að tjóni, en jafnan öðrum til gleði á gæfubrautum. Hér bið ég ykkur þessa við þessi þáttaskil til hagræðis og hagnaðar i starfsemi stofnunarinnar Bæjar- leiða. Akið svo allir heilum vagni heim úr hverri ferð um framtíð alla. Verið ljós á vegi. Arelíus Níelsson. Háskólatónleikar Fyrstu Háskólatónleikar vetrarins verða i Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut laugardaginn 22. október kl 15. Sigríður E. Magnúsdóttir syngur lög eftir Haydn, Schubert, Strauss, Britten og Sibelius við undirleik Ólafs Vignis Albertssonar. Aðgangur er öllum heimill og kostar 600 kr Tónleikanefnd Háskóla íslands. Vegg- og loftklæðningar á ótrúlega hagstæðu verði Koto Kr. 1.990 - Gullálmur Kr. 2.590 - Oregon pine Kr. 3.150- Eik Kr. 3.370 - Teak Kr. 3.370 - Hnota Kr. 3.440 - Palisander Kr. 3.580 - Strigaáferð Kr. 1.410- \ Öll verð pr. fermeter — með scluskatti. Ennfremur eigum við furu- og grenipanel í 6 mismunandi gerðum. Gerið verðsamanburð — það borgar sig. '^?Uí?í/ÍMw?VíL’örui.,erzluMU\ , BJÖRNINN Skúlatúni 4. Sími 25150. Reykjavik

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.