Morgunblaðið - 05.04.1978, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 05.04.1978, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. APRIL 1978 w Standard gerir Asgeiri freistandi tilboö, en hann stendur fast á sínu APRÍLGABB Ríkisútvarpsins um að knattspyrnumaðurinn snjalli, Ásgcir SÍKurvinsson, væri á lciðinni til Spánar, var í rauninni ekki algjöriega út í hött. Ásgeir hefur þó alls ekki skrifað undir samning við Barcelona og á ekki að koma i stað Johans Cryuff þar eins og útvarpið sagði, en hins vegar hefur Atletico Madrid að undanförnu verið á höttunum eftir erlendum leik- mönnum og er Ásgeir einn þeirra leikmanna, sem félagið hefur sýnt áhuga á. Að undanförnu hefur ýmisiegt gerzt í málum Ásgeirs, félög í þremur löndum utan Belgiu hafa sýnt honum áhuga og Standard Liege hefur gert Ásgeiri álitlegt tilboð. Ásgeir sagði í spjalli við Morgunhlaðið í' gær að vissulcga væri þetta tilboð spennandi, en hann sagðist þó ekki reikna með að skrifa undir samning við félag sitt að nýju — að minnsta kost ekki að svo komnu máli. — Ef ég hef ekki skrifað undir samning við félagið fyrir lok þessa mánaðar, þarf Standard að setja mig á sölulista fyrir mánaðamótin, sagði Ásgeir Sigurvinsson í spjalli við Morgunblaðið í gær. — Eg er ákveðinn í að fara á sölulista, því að þá verður mun þægilegra fyrir mig í alla staði að athuga með samning hjá öðru félagi. Mest langar mig til V-Þýzkalands, en þangað vil ég helzt ekki fara nema til einhvers toppliðs, liðs sem á að vera nokkuð öruggt með Evrópu- keppni, sagði Ásgeir. Morgunblaðið hefur fregnað að meðal þeirra félaga í Vest- ur-Þýzkalandi, sem sýnt hafa áhuga á Ásgeiri séu Frankfurt og Dortmund, en bæði félögin eru um miðja 1. deildina í V-Þýzkalandi. Þá hefur Atletico Madrid sýnt áhuga á Ásgeiri og áður hefur komið fram að hollenzka stórliðið Ajax vill gparnan fá Ásgeir til liðs við sig. Ásgeir staðfesti það, í í FÉLAGSHEIMILI Standard í Liege í Belgíu hanga uppi myndir af öllum leikmönnum félagsins og sterkustu lcikmennirnir tróna í heiðurssessi fyrir miðju. Á þessari mynd má sjá Nikel, markhæsta leikmanninn f belgísku 1. deildinnþ en á honum hefur Hamborg SV mikinn áhuga. Þá kemur ungverski leikmaðurinn Visnyei, sem átt hefur við meiðsli að stríða í vetur. Ásgeir Sigurvinsson er næstur og síðan mynd af belgiska landsliðsmarkverðinum Piot, sem enn hefur ekki náð sér eftir fótbrot, sem hann hlaut fyrir rúmu ári síðan. (ljósm. Mbl. — áij). „Ætla lista fara á sölu- svo til // spjallinu við Morgunblaðið í gær, að þessi félög hefðu að undanförnu athugað möguleika á að hann skrifaði undir samning við þau. samningaviðræður hefðu farið fram við nokkur þeirra og stæðu jafnvel yfir enn þá. Ekkert væri þó Góður árangur Vilmundarytra SPRETTHLAUPARINN Vilmundur Vilhjálmsson úr KR, virðist í mjög góðri æfingu og liklegur til stórafreka á hlaupabrautinni í sumar sé tekið mið af þeim árangri sem Vilmundur náði nýlega á móti í skóla sínum, Loughborough, á Englandi. í keppni tveggja beztu íþrótta- 4,5 sekúndum, sigraði í þrístökki skóla Bretlands, Loughboroughs og Borough Road, í byrjun marz hljóp Vilmundur 40 metra hlaup á án atrennu með 9,77 metra stökki og varð þriðji í kúluvarpi. Vilmundur varpaði kúlunni 14,17 metra sem er hans bezti árangur í greininni. í 40 metra hlaupinu tapaði Vilmundur á sjónarmun, en hlaut sama tíma og sigurvegarinn. Næsta dag tók Vilmundur þátt í 100 metra hlaupi utanhúss á móti skóla síns. Sigraði hann auðveld- lega á 10,6 sekúndum. Bendir sá árangur Vilmundar til þess að hann sé kominn yfir meiðsli þau sem hann varð fyrir í febrúar en þá brákaðist hann á fæti á æfingu og var settur í gifs. Morgunblaðið hefur þær spurnir af Vilmundi að æfingar gengju mjög vel hjá honum, og að hann æfði betur en áður. Vilmundur hljóp 100 metrana í fyrrasumar á 10,46 sekúndum sem jafngildir 10,2 sekúndum þegar tími er tekinn á skeiðklukku. Á móti í Troisdorf í Vestur-Þýzkalandi í fyrra hljóp Vilmundur á 10,2 sekúndum, en meðvindur reyndist þá 2,5 metrar á sekúndu. Hálftíma áður hljóp Vilmundur á sama móti á 10,3 sekúndum og jafnaði þar með Islandsmet Hilmars Þorbjörns- sonar. Miðað við þann árangur sem Vilmundur hefur þegar náð má fastlega gera ráð fyrir því að þessi harði íþróttamaður nálgist 10 sekúndna múrinn f sumar. --ágás. ákveðið og það sem gerðist þessa dagana væri að mestu leyti á bak við tjöldin. Aðspurður um síðustu leiki í 1. deildinni í Belgíu sagði Ásgeir, að nú væri Anderlecht búið að ná Standard að stigum og það væri sín skoðun að leikmenn Standard mættu hafa sig alla við ef þeir ættu að ná 2. eða 3. sætinu í deildinni og tryggja sér þátttöku í UEFA-keppninni næsta haust. — Anderlecht er komið á skrið og ég held að þeir tapi varla leik það sem eftir er keppninnar í 1. deild og nái því 2. sætinu, sagði Ásgeir. Við eigum reyndar þrjá frekar létta leiki eftir af þeim 4 sem eftir eru í deildinni og ættum að ná þriðja sætinu. Lierse er þó aðeins 3 stigum á eftir okkur og til alls líklegt þannig að við megum ekkert slaka á. — Um síðustu helgi vorum við óheppnir að vinna ekki sigur á La Louviere. Við skoruðum strax á fyrstu mínútunum, ég gaf fyrir frá vinstri, hreinlega setti boltann á tærnar áGorez, sem gat ekki annað en skorað. Við lékum síðan yfirvegað það sem eftir var og fórum rólega í sakirnar til að eiga ekki á hættu að missa niður fengið forskot. Síðan gerðist lítið í leiknum fyrr en undir lokin að blökkumaður í liði Louviere skor- aði stórkostlegt mark. Hann varð að þvælast með boltann inni í teignum hjá okkur og allt í einu var hann búinn að skora með óverjandi hjólhestaspyrnu — stór- glæsilegt, en óvænt mark. Við misstum þarna stig, sem við hefðum átt að ná örugglega og höfum verið mikið skammaðir fyrir rólegheitin í leiknum. — Vellirnir hérna eru óðum að lagast og það er aftur farið að verða gaman að knattspyrnunni, hitinn orðinn um og yfir 15 stig og allt annað að spila. í vetur hefur þetta verið hryllilegt og ég held að við hjá Standard séum allra verst settir, því æfingavellir félagsins verða eitt flag strax á haustin, því hjá félaginu eru 300—400 guttar, sem æfa, og þó vellirnir séu margir þá þola þeir ekki álagið þennan erfiða árstíma. — Brugge er, helg ég, alveg öruggt með meistaratitilinn aftur og liðið er mjög sterkt núna. Anderlecht er ekki síður sterkt um þessar mundir og er að komast á mikinn skrið. Þeir verða alveg örugglega sigurvegarar í Evrópu- keppni bikarmeistara, það má eitthvað mikið bregða útaf ef svo fer ekki. Af belgísku félögunum hef ég mestan áhuga á að fara til þeirra og nokkrar viðræður hafa farið fram. Það er þó erfitt að skipta á milli félaga innan Belgíu, stuðningsmenn félaganna taka því illa og erfitt er að eiga við svoleiðis hluti, en það er þó ekki útséð með það frekar en önnur félög, sem verið hafa og eru inni í myndinni. — Um Ajax er það að segja að ég er ekki ýkja spenntur fyrir Ilollandi, knattspyrnan þar er ckki eins skemmtileg og hér og þar eru ekki eins miklir peningar þó svo að nokkur félög skeri sig úr þar eins og annars staðar. Á næstu vikum kemur í ljós hvað verður og ljóst er að miklar breytingar verða meðal leik- manna Standard Liege fyrir næsta vetur. Þannig talaði Gunther Netzer nýlega við Nick- cl, markakónginn í belgi'sku knattspyrnunni, og ekki er ólík- legt að hann fari til Ilamborg SV, sagði Ásgeir Sigurvinsson að lokum. - áij Getrauna- spá M.B.L. Morgunbiaðið S •o JO 3 •O < 2 o & -C &e cd q 2 a k. > c *o Tfminn Útvarpið Vfsir c c > •© *o A Sunday Mirror Sunday People Sunday Express News of the world Sunday Telegraph SAMTALS 1 X 2 Arsenal — Orient 1 1 i 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 13 0 0 Ipswich — WBA 1 2 X X 2 1 2 1 2 2 1 2 1 5 2 6 Birmingham — Norwich 1 1 1 i 1 1 1 X 1 1 X X 1 10 3 0 Chelsea — Man. City 1 X X X 1 1 X 1 X 1 2 2 X 5 6 2 Coventry — Everton 1 2 1 X 1 X X 1 1 2 X 1 X 6 5 2 Leeds — West Ham 1 1 1 1 2 X 1 1 1 1 1 1 1 11 1 1 Liverpool — Leicester 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 13 0 0 Man. Utd. - QPR 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 13 0 0 Middlesbro — Bristol X X 1 1 X 1 1 1 1 1 1 X 1 9 4 0 Newcastle — Aston Villa 1 2 X 1 X 1 X X X 2 2 X X 3 7 3 Blackburn — Brighton X X X X 2 1 X 2 X X X 1 2 2 8 3 Tottenham — Bolton 1 1 X 1 X X 1 1 1 X X 1 1 8 5 0

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.