Morgunblaðið - 04.05.1978, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 04.05.1978, Qupperneq 16
48 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1978 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1978 49 Ljósmyndirnar tóku ólafur K. Magnús- son, Sigurgeir Jónasson, Gunnar Hannesson og Mats Wibe Lund e Hvert handtak skiptir máli JT' 1. maí blaði Morgunblaðsins Ivoru um 50 viðtöl við forystu- menn verkalýðsfélaga og fólk úr ýmsum áttum og starfs- greinum þar sem ýmist var fjallað um félagsmál eða persónu- lega reynslu. Hér birtum við nokkr- ar litmyndir úr ýmsum starfsgrein- um og fer vel á því að bregða litagleðinni fyrir þegar vorið er að komast á kreik. Hér eru myndir frá sjávarsíðunni af trillubónda að fara á sjó, sjómönnum að gera veiðarfær- in klár, heyskap á túni undir jöklinum og við bregðum okkur einnig á vit nýjustu tækni þar sem rafmagnið leikur aðalhlutverkið. í rafiðnaðinum hafa orðið stórstígar framfarir á undanförnum árum og þróunin í uppbyggingu þar að lútandi hefur tekið snarlegan kipp. í myndgerð fyrir blöð og bækur má einnig segja að sé um nýjungar að ræða á hverjum degi og þannig er allt breytingunni undirorpið. Þó er sumt sem heldur gamla laginu lengur en annað og enn setja hreinsunarmenn svip á bæi og lagning malbiks byggist á gamal- reyndri aðferð og sama er að segja um flatninguna á þorskinum þótt vélar komi þar einnig við sögu. Þetta eru svipmyndir úr atvinnulífi ís- lands þar sem hver grein skipar sinn mikilvæga sess og handtak hvers manns skiptir máli. i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.