Morgunblaðið - 03.06.1978, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 03.06.1978, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1978 í rústum bæjarins Biut Gebel í Suður-Lfbanon. Þar höfðu Palestínumenn áður hreiðrað um sig. Eftir innrás ísraela eru flestir ibúanna farnir á braut og Paiestinuskæruliðar hafa ekki treyst sér til að haldast þar við. Myndina tók Beate Hamizrachi fyrir Mbl. Arafat heitír kyrrð Ikirút 2. júní. ltruter. YASSER Arafat, leiðtogi PLO, hvatti í dag liðsmenn sína til að gera ekki frekari árásir á ísrael frá Suður-Líbanon. Þetta staðfesti yfirmaður Friðargæzlusveita Sameinuðu þjóðanna, Emmanuel Erskine. Var það Erskine sem sagði frá þessu að loknum tveggja stunda löngum fundi með Arafat. Höfðu þeir rætt þar mjög ítarlega um þá ólgu sem hefur verið í S-Líbanon og skemmdarverk sem skæruliðar PLO hafa unnið og iðulega bitnað á hermönnum Friðargæzluliðsins. Erskine kvaðst fagna því mjög að Arafat hefði fallizt á að hvetja menn sína til að halda friðinn og hann hefði fulla ástæðu til þess að vænta Arafat þess, að hugur fylgdi máli að þessu sinni. Hann sagðist þó ekki vera alls kostar dús við ástandið og hann væri ekki hundrað prósent viss um að allir Palestínumenn yrðu við þessari áskorun Arafats. Aftur á móti væri þetta þó mikilvægur áfangi og óþarft væri að ala með sér vantraust og efasemdir fyrir- fram. Salah Khalaf, næstæðsti maður í skæruliðahópnum Fatah, sagði í viðtali í þessari viku að flestir Palestínumenn hefðu horfið frá fyrri hugmyndum um að gera árásir á ísrael frá Suður-Líbanon og myndu freista þess að gera slíkar atlögur frá Sýrlandi og Jórdaníu og auk þess af sjó. Fordæma „íhlutun NATO Praie. 2. júní. AP. í SAMEIGINLEGRI yfirlýsingu sem gefin var út í Prag að loknum fundum þeirra Husaks, flokksleiðtoga í Tékkóslóvakíu, og Brezhnevs. forseta Sovétríkj- anna. er fordæmd cnn á ný „vestræn ihlutun íyrir forgöngu NATO í Zaire“. Varað er við því að vestrænir aðilar haldi uppi stiiðugum „ögrunum“ meðfram landamærum Angoia og Mosam- bik. Var þessi orðsending gefin út skömmu áður en Brezhnev forseti Sovétríkjanna héit heimleiðis eftir fjögurra daga opinbera heimsókn í Tékkóslóvakíu. Skömmu áður en hann hélt á braut hafði Husak sæmt hann orðu Klement Gottwald fyrir að „byggja upp sósíalískt ættland“ ríkja í Brezhnev eins og tékkneska fréttastofan orðaði það. Zaire” í yfirlýsingunni er og lögð áherzla á þann ásetning landanna tveggja að „halda áfram stúðningi við kúgaðar þjóðir Zimbawe (Ró- desíu, Namibiu, Suðvest- ur-Afríku), svo og Suður-Afríku". Bent er á hver hætta geti stafað af áframhaldandi hernaðarlegum ögrunum og áreitni ríkisstjórna sem aðhyllast kynþáttamisrétti og sömuleiðis er fagnað hversu glæsi- legur árangur hafi náðst í Eþíópíu og látin er í ljós sannfæring um að gott samkomulag í þessum hluta Afríku kæmi öllum Afríkuríkjum til góða. Vikið er að SALT-viðræðunum, en þó aðallega til að benda á „úthald ogþol“ Sovétríkjanna, sem séu óþreytandi að reyna að ná Framhald á bls. 26. Þetta gerdist laugardaginn 3. júní 1976 — Torres, fv. forseti Bólivíu, finnst myrtur í Argen- tínu, 1974 — Sýrlenzkir og ísra- eiskir hershðfðingjar ná sam- komulagi um aðalatriði áætlun- ar um aðskilnað herja á Golan-hæðum. 1973 — Hljóðfrá sovézk far- þegaþota ferst á flugsýningu nálægt París. 1966 — Peng Cheng borgar- stjóri í Peking settur af. 1963 — Jóhannes páfi XXIII andast, 81 árs garnall. 1940 — Brottflutningi Banda- manna frá Frakklandi lýkur. 1937 — Hertoginn af Windsor gengur að eiga frú Wallis Simpson. 1935 — Franska farþegaskip- ið „Normandie" setur hraðamet á jómfrúrsiglingu og fer á fjórum dögum og ellefu kist. yfir Atlantshaf. 1899 — Ný réttarhöld fyrir- skipuð í Dreyfus-málinu og hin fyrri dæmd ómerk. 18% — Rússar fá réttindi til járnbrautarreksturs í Norð- ur-Mansjúríu samkvæmt samn- ingi við Kínverja um 15 ára varnarbandalag. 1647 - Cromweli flýr frá London, snýr baki við þinginu og gengur í lið með hernum. 1621 - Hollenzka Vest- ur-Indíu-félagið fær leyfisbréf sem veitir því réttindi í Nýju Niðurlöndum - nú New York. Afmæli dagsins. Philippe Quinault franskt leikritaskáid (1635-1688) - Sir William F. Petrie brezkur fornleifafræðing- ur (1853—1942) — Tony Curtis bandarískur leikari (1925— —) Innlent. Flugfélag Akureyrar (nú íslands) stofnað 1937 — Stjórn Ásgeirs Ásgeirssonar skipuð 1932 - D. Haukur Erlendsson 1334 — Vest- firðingaskrá 1501. Orð dagsins. Ég gæti fellt mig nógu vei við landið mitt ef það væri ekki vegna landa minna — Horace Walpol enskur rithöfundur (1717-1797) Freddie Laker aðlaður London, 2. júní. AP. ELIZABETH II Bretadrottning aðlaði í dag Freddie Laker, upp- hafsmann fluglestarinnar yfir Atlantshaf, sem hefur gjörbreytt fargjöldum á þeirri flugleið eins og alkunna er. Var sagt frá þessu í tengslum við hátíðahöld sem nú standa yfir í Bretlandi í tilefni 25 ára krýningarafmælis Elizabethar drottningar hinn 2. júní. Sir Freddie, eins og hann mun nú verða kallaður, er einn af sjö hundruð manns sem drottningin mun sæma titlum og viðurkenn- ingum af ýmsum gráðum. Meðal þeirra sem heiður hljóta er ástralski tennisleikarinn John Newcombe, leikkonan Glenda Jackson og yfirmaður Konunglegu brezku akademíunnar Sir Hugh Maxwell Casson. Að öðru leyti eru ekki mjög margir þekktir aðilar á lista drottningar í ár að sögn AP-fréttastofunnar. Freddie Laker er 55 ára gamall milljónamæringur. Hann byrjaði rekstur hinnar umdeildu fluglest- ar sinnar með DC 10 vélum í september í fyrra eftir sex ára baráttu og þras við brezk og bandarísk yfirvöld og flugfélög sem þótti nærri sér höggvið með þeim kjörum sem hann bauð. 1 Bretlandi eru eins og í upphafi segir hin litskrúðugustu hátíða- höld nú og verða fram yfir helgi. I kvöld, föstudag mun drottning ásamt fjölskyldu sinni fylgjast með mikilli flugeldasýningu frá svölum Buckinghamhallar. Að öðru leyti hefur drottning látið í ljós þá ósk að sem minnst umstang verði í sambandi við krýningaraf- mælið vegna þess að sl. ár hafi verið hið raunverulega afmælisár hennar, en hún tók við í febrúar 1952 er faðir hennar Georg VI lézt, en krýning hennar fór fram rösku ári síðar. K.B. Andersen hættir Kaupm.höfn 2. júní — AP. K.B.ANDERSEN utanríkisráð- herra Dana mun láta af embætti frá og með 1. júlí n.k. að því er Anker Jörgensen forsætisráð- herra sagði í dag. Jörgensen sagði að Andersen hætti sam- kvæmt eigin ósk og myndi ein- beita sér að innanrikismálum Danmerkur svo og málefnum kjördæmis síns. Jörgensen kvaðst sjálfur mundu um hríð hafa á hendi embætti utanríkisráðherra en vegna þess að utanríkisráð- herra þyrfti meðal annars að vera mjög mikið á ferðaiögum, myndi hann leggja allt kapp á að finna eftirmann K.B. sem allra fyrst. K.B.Andersen hefur veriö utan- ríkisráðherra í núverandi stjórn síðan 1975 og hann hefur einnig farið með sama embætti í tveimur fyrrverandi ríkisstjórnum Jafnað- armannaflokksins. Þessi breyting á ríkisstjórninni kom ekki mjög skyndilega þar sem K.B. hafði tilkynnt að hann væri frambjóðandi til þingforseta og var kjörinn í það í dag, föstudag. Aðstoðarutanríkisráðherrann Lisa Östergaard mun áfram gegna K. B. Andcrsen sínu starfi og annast daglegar annir í ráðuneytinu. Samkvæmt heimildum í póli- tískum röðum er búizt við að Knud Heinesen núverandi fjármálaráð- herra sé líklegastur eftirmaður K.B.Andersens en hann mun ekki að svo stöddu geta tekið við starfinu vegna fjárlagaundirbún- ings. Krafizt 10—15 ára fangelsis yfir Tórmó-sakborningum Túrínó. 2. júní. AP. SAKSÓKNARINN í réttar- höldunum yfir félögum Rauðu herdeildarinnar sem hafa stað- ið í Tórínó undanfarið krafðist þess í dag að höfuðpaurar hinna ákærðu yrðu dæmdir í fangelsi frá 10-15 árum en nokkrir í þrjú til átta ár. Flestir þeir sem koma við sögu þessara réttarhalda hafa orðið fyrir líflátshótunum meðan á réttarhöldunum hefur staðið og stórkostlegöryggisvarzla hefur verið viðhöfð bæði gagn- vart sakborningum og öðrum, sem hafa komið nálægt málinu á einn eða annan hátt, en þekkzt hefur áður. Alls voru 49 sakborningar fyrir rétti vegna aðildar að hryðjuverkum sem franiin hafa verið í nafni Rauðu herdeildarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.