Morgunblaðið - 18.07.1978, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 18.07.1978, Blaðsíða 43
25 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1978 Enn skrópa dómaramir í 3. deild ENN BER við að dómarar skrópa á leiki í 3. deild ug er það að sjálfsögðu miður <>K kemur þeim afar illa fjárhagsleKa sem ferðast þurfa lansar leiðir til þess eins að snáfa heim leiklausir vegna þess að dómarar sáu ekki ástæðu til þess að sýna sig. Hekla — Þ6r 1—1 Leikurinn var að sögn í jafnara lagi, nema hvað sókn Heklu var mjög þung lokakaflann. Þór hafði forystu í leikhléi meö marki Stefáns Garðars- sonar, en Heklu tókst að jafna í síðari hálfleik með marki Kristjóns Kristj- ánssonar. Þaö telst vart til tíöinda lengur aö dómari skrópi og varö heimamaður að hlaupa { skaröið. Grindavík — USVS 5—0 Sigurgeir Guðjónsson var maður dagsins, en hann skoraöi þrennu í leiknum. Leikurinn var alger ein- stefna eins og markatalan gefur til kynna, en það voru þeir Einar J. Ólafsson og Óskar Sævarsson sem skoruöu hin mörk Grindavíkur. Selfoss — Vídir 2—2 Selfyssingar muna vart eftir hressi- legri ieik síöustu misserin og var leikurinn bæöi vel leikinn og hörku- spennandi allt fram á lokamínútuna. Seifoss skoraði tvívegis í fyrri hálfleik og var þar Sumarliöi Guöbjartsson að verki í báöum tilvikum. En Víðismenn gáfust ekki upp þó aö á móti blési og um miöjan síðari hálfleik tókst Guðmundi Knútssyni að jafna metin, en fékk góða aöstoö frá vörn heimamanna. Við svo búið hófu Selfyssingar stórsókn og linnti henni ekki fyrr en að Sigurður Reynir Óttarsson hafði skoraö sigurmarkiö, en rétt áður hafði Sumarliöi átt skot í þverslá. Leikinn dæmdi Einar Hjartarson og var hann einn besti maðurinn á vellinum. ÍK — Stefnir 1—1 Heimaliðið var sterkara og hefði átt að sigra ef skoðuö eru marktæki- færin. Axel Jónsson náði forystunni fyrir ÍK, en Stefni tókst að jafna fyrir hlé og þar við sat þrátt fyrir mörg og góð færi ÍK. Léttir — Bolungarvík 1—1 Bolvíkingar voru sterkari í fyrri hálfleik og höfðu þeir eins marks forskot í leikhléi. Léttismenn létu sig ekki muna um þaö aö misnota vítaspyrnu í fyrri hálfleik, en engu að síður tókst þeim að krækja í annaö stigið og það var Gunnar Gunnars- son sem tryggði þeim það með góðu marki. Snæfell — Leiknir RVK 2—2 Á heildina litið var leikurinn jafn, en framan af sótti Snæfell mun meira. Þeir voru eigi að síöur marki undir í leikhléi og var þaö Þorsteinn Ög- mundsson sem markiö skoraði. í síðari hálfleik jafnaöi Smári Axelsson fyrir Snæfell, en Þorsteinn náöi ööru sinni forystunni fyrir Leikni. Smári haföi heldur ekki sagt sitt síðasta orö og þegar 15 mínútur voru til leiksloka skoraöi hann ööru sinni jöfnunar- mark fyrir Snæfell. Hér neyddist heimamaöur til aö sinna dómgæslu vegna skrópsýki dómara. Skallagrímur — Víkingur 1—2 Skallagrímur hefur löngum haft tak á Víkingi og aö þessu sinni var um hörkuviðureign að ræða þrátt fyrir að gengi liðanna hefur verið eins ólíkt og hugsast getur í sumar. Jónas Kristó- fersson náði forystunni fyrir Víking í fyrri hálfleik, en Skallagrími tókst að jafna fyrir hlé með marki Gunnars Jónssonar. í síðari hálfleik tókst Jónasi aö tryggja Víkingi bæöi stigin meö marki sem kom í kjölfar mikilla varnarmistaka. Afturelding — Óðinn 8—1 Hafþór Kristjánsson var maðurinn sem tekið var eftir í leik þessum, en hann skoraði 3 mörk í hvorum hálfleik, samtals 6 mörk. Jóhann P. Sturluson og Diðrik Ásgeirsson sáu um frekari mörk Aftureldingar, en Jóhanni tókst að minnka muninn fyrir Öðinn er staðan var 6—0. Svartdælir — Leiftur 0—3 Leikurinn skiptist í tvo ólíka hluta, í fyrri hálfleik voru gestirnir mun sterkari, skoruðu þrívegis og heföu getaö skoraö fleiri, en í síðari hálfleik snerist dæmiö við og sóttu þá Svarfdælir mun meira, án þess þó að þeim tækist aö skora. Mörk Leifturs skoruðu Steinn Helgason (2) og Ægir Öiafsson. Höföstrendingar — KS 1—8 Markatalan segir allt sem segja þarf um leik þennan, yfirburðir KS voru algerir og meira að segja misnotuðu þeir vítaspyrnu þegar staðan var orðin 8—1. Hörður Júlíusson skoraöi 4 mörk, Björn Sveinsson tvö, Sigurjón Erlendsson og Friðfinnur Hauksson eitt mark hvor. Bjarni Konráðsson skoraöi eina mark heimamanna úr vítaspyrnu. Dagsbrún — Magni 1—3 Dagsbrún var betri í fyrri hálfleik, en tókst ekki að nýta sér færi sín. í byrjun síðari hálfleiks skoruðu Greni- víkingar síöan þrívegis meö mjög skömmu millibili og gerðu þar með út um leikinn sér í hag. Það voru þeir Hringur Jóhannesson (2) og Sæ- mundur Guðmundsson sem skoruöu fyrir Magna, en Steindór Steindórs- son svaraði fyrir Dagsbrún rétt fyrir leikslok. Árroðinn — Reynir 1—0 Leikurinn var jafn og hugsanlega hefði jafntefli verið farsælasta lausn- in, en Hafberg Svansson var þó ekki á þeirri skoðun, því að hann skoraði eina mark leiksins í síöari hálfleik. Leiknir — Sindri 1—1 Mark Jóns í fyrri hálfleik fyrir hönd Sindra leit lengi vel út fyrir að ætla að veröa eina mark leiksins, en í síöari hluta síðari hálfleiks tókst Helga Ingasyni aö jafna metin úr vítaspyrnu og þar við sat. Leiknis- menn afrekuöu þaö í fyrri hálfleik aö misnota vítaspyrnu, auk þess sem af þeim var dæmt mark vegna rang- stöðu. — 99- Meistaramót íslands í handknattleik utanhúss íslandsmót í handknattleik utanhúss verður haldiö við Melaskólann um miðjan ágústmánuð n.k. Keppt verður í M.fl. karla, M.fl. kvenna og 2. fl. kvenna. Þátttökutilkynningar verða að hafa borist Stefáni Stefánssyni, pósthólf 5030, Reykjavík fyrir 31. júlí n.k. Þátttökugjöld fyrir M.fl. karla kr. 15.000.-, M.fl. kvenna kr. 10.000,- og 2. fl. kvenna kr. 5000.- verða að fylgja þátttökutilkynningum, annars verður þátttaka ekki tekin til greina. Handknattleiksdeild KR. • Grasvöllurinn með f jórum hlaupabrautum umhverfis, þar sem knatt- spyrnu* og frjálsíþróttakeppnin fer fram. • Stór hluti landsmótsins á að fara fram í hinu nýja Blæsilejfa íþróttahúsi Selfyssintfa. Talsverðu verki er enn ólokið. en Selfyssinjjar a'tla sér að ljúka því fyrir landsmótið og draga hvergi af sér. A myndinni sést Guðmundur Jónsson framkva'mdastjóri landsmótsnefndar ra'ða við einn trésmiðinn og er engu líkara að hann sé að sýna honum dansspor. bað verður dansað í íþróttahúsinu öll kvöldin. Máske er Guðmundur að próía gólfið. viilfttmi r 1*1 rtrt rri « íi I ímHHI • Við hliðina á Sundhöll Selfoss stendur nýja útisundlaugin sem keppt verður í á landsmótinu. í baksýn stendur nýja íþróttahúsið. kl. 14.30— .00 Hátíðardagskrá — — Grasvöllur. Mótslit — Gras- Grasvöllur. völlur. kl. 18—20 Fjölskylduskemmtun kl. —18 Knattspyrna 1,—2. sæti — íþróttahús. kl. 21—01 Dansleikur — íþrótta- hús. Enfremur frímerkjasýnig alla daga í safnahúsi. -[>r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.