Morgunblaðið - 15.08.1978, Síða 35

Morgunblaðið - 15.08.1978, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGUST 1978 35 Símamynd AP Fólk í V-Beirut virðir fyrir sér rústir níuhæða byggingar, sem sprenBd var í loft upp á sunnudag. Yfir 100 Palestínuarabar og Líbanonbúar fórust. Sprengingin í Beirút: Sýnir betur fram á hve sundurtætt skæruliðahreyfing Palestínumanna er lit irút. 1 1. ávíúst. AI». SÚ ásökun frá írak-sinnuðum skæruliðaforingja, að keppninautur hliðhollur Sýrlendingum hafi komið fyrir sprengjunni sem olli hinni miclu sprengingu í Beirút á sunnudag, hefur dregið fram í dagsljósið enn eina grein hinnar sundurtættu hreyfingar Palestínumanna. Ásökunin dregur einnig fram í dagsljósið þá staðreynd að hryðjuverkamannasamtökin stjórnast nú mjög af ríg ýmissa ríkisstjórna Arabalanda, sem enn virðast ekki gera sér grein fyrir áhrifamætti sameiginlegr- ar baráttu gegn ísrael. I fyrstu var almennt talið að sprengjutilræðið gegn klofningssamtökunum Frelsis- fylkingu Palestínu (PLF), sem aðhyllist Irakstjórn, væri verk A1 Fatah, hóps Yasser Arafats. Þessar tvær fylkingar áttu fyrir skemmstu í opinni innbyrðis styrjöld sem blossaði meðal annars upp í byssubardaga og aftökum í Evrópu. En Abul Abass, foringi PLF, sakaði í dag lítt þekkta hreyf- ingu skæruliða, Almannaráð alþýðufylkingarinnar til frels- unar Palestínu (PFLP—GC), um verknaðinn, en hreyfing þessi er hópur hryðjuverkamanna sem klauf sig frá meginstofni hinnar herskáu hreyfingar „Alþýðu- fylkingin" til frelsunar Palestínu (PFLP) sem dr. George Habash stýrir. Abass tjáði fréttamanni AP að PFLP- GC, sem styður stjórnina í Irak, hefði það að markmiði að afmá PLF og að koma í veg fyrir að síðustu tilraunir leiðtoga Pale- stínumanna í þá veru að ná innbyrðis samstöðu yrðu árangursríkar. Ekkert hefur heyrzt frá PFLP-GC um þessar ásakanir. Hins vegar hefur Arafat átt viðræður að undanförnu við Abass og aðra leiðtoga Pale- stínumanna sem aðhyllast írak í þeim tilgangi að jafna innbyrðis ágreining, og þykir því ólíklegt að sprengingin sé verk A1 Fatah, þar sem hermt er að viðræður foringjanna hafi borið einhvern árangur. í sprengingunni fórust 11 fylgismenn Arafats og þykir það einnig leiða gruninn frá Arafat. Af hverju skyldu samtök hliðholl Sýrlandi vilja útrýma samtökum hliðhollum írak og þannig standa í vegi fyrir einingu í röðum hryðjuverka- manna? Önnur fylkingin nýtur stuðn- ings ríkisstjórnarinnar í Damaskus en hin er studd af stjórninni í Bagdad. Báðar stjórnirnar telja sig vera í fylkingarbrjósti fyrir sameigin- legri hreyfingu Araba gegn Israel, en greinir á um hvernig heyja skuli þá baráttu. írak er í forsyari fyrir þeim sem líta á vopnaða styrjöld sem einu leið- ina til lausnar deilunnar fyrir botni Miðjaðarhafs, en stjórnin í Sýrlandi hefur haft það að markmiði að leita eftir friðsam- legri lausn vandans. Skæruliðahreyfingar Pale- stínumanna fylgja allar annarri hvorri stjórninni að málum, og fer það allt eftir því hvort landið veitir þeim fjárhagslegan stuðn- ing. Klofningshópar, sem telja sig hinn eina sanna og hæfastan aðila til að endurheimta fyrr- verandi heimaland Palestínu- manna, hafa að undanförnu látið í veðri vaka að hóparnir skyldu láta byssukjaftana skera úr um hver væri beztur, og hefur það valdið hófsamari leiðtogum Palestínumanna verulegum áhyggjum. Abul Abass foringi PLF er svarinn andstæðingur Ahmed Jebril leiðtoga PFLP-GC. Telja sumir að eigi ásökun Abass um hlutdeild hreyfingar Jebrils við rök að styðjast, sé sá möguleiki fyrir hendi að Jebril hafi gerzt staðgengill Arafats. Þessir sömu segja að það sé ásetningur Arafats að gera Bagdadsinna áhrifalausa í baráttu Palestínu- manna gegn ísrael, en sem yfirmaður allsherjarhreyfingar Palestínumanna geti hann ekki staðið opinberlega fyrir blóðsút- hellingum og gert tilkall um leið til að vera leiðtogi skæruliða- hreyfingarinnar sem telur átta aðskilin samtök. Þettagerðist 15. ágúsl 1977 — Indverska stjórnin handtekur fjóra háttsetta menn úr ráðuneyti Indiru Gandhi og ásakar þá um mútuþægni og spillingu. 1976 — Tilkynnt er, að yfir 10.000 flóttamenn frá Indókína verði fluttir til Bandaríkjanna. 1973 — Öryggisráð áfellist ísrael fyrir að neyða farþega- flugvél til að lenda á her- numdu svæði. 1948 — A-þýzkir verkamenn hefja byggingu Berlínarmúrs- ins. 1948 — Lýst yfir sjálfstæði lýðveldisins Kóreu með Syng- man Rhee sem forseta. 1923 — Hersveitir írska frí- ríkisins handtaka de Valera. 1918 — Bandaríkin og Rúss- land slíta stjórnmálasam- bandi sín á milli. Orð dagsinsi Að predika hóf- semi fyrir fátækum er eins og að segja dauðhungruðum að eta (Oscar Wilde — írskættað- ur rithöfundur, 1845—1900). Innlenti F. Jón Olafsson frá Grunnavík 1705 — Verk- smiðjuhús boðin upp í Reykja- vík (síðara sinni) 1791 — Fundur Trampe greifa og Jones skipherra 1809 — Þing- vallarfundur 1862—1864 — Lindberghs-hjónin koma til íslands 1933 — Bob Mathias keppir í Reykjavík 1950 — „Tungufoss" kemur með loft- púðaskip til Eyja 1967 — Hornsteinn lagður að stöðvar- húsi Sigölduvirkjunar — F. Matthías Bjarnason 1921. Loftbelgsfarar: Allt gengur enn samkvæmt áætlun Bodíord. Massachusott.s. — 11. áuúsi. Koutor. OFURHUGARNIR þrír frá Nýju Mexico, sem héldu upp í loftin blá frá fylkinu Maine nyrzt á austur- strönd Bandaríkjanna á laugar- dagskvöld og ætla að freista þess öðru sinni að komast yfir Atlants- hafið í loftbelg og setja þar með mct, voru vel haldnir og hressir í „Tvíerninum", að því er talsmað- ur þeirra sagði í gær. Þeim miðaði vel áfram og voru í gærkveldi búnir að leggja að baki um 15—1600 km eða þriðjung þeirrar vegalengdar, sem þeir einsetja sér að fara, en heildar- végalengdin er 5120 km. Þeir voru, er síðast fréttist, um 750 km austur af Nýfundnalandi í 15.000 feta hæð í fjögurra gráðu frosti. Sögðust þeir reikna með að lenda einhvers staðar á vesturströnd Frakklands á fimmtudag, ef þeir halda þeim hraða, sem þeir hafa haldið hingað til eða milli 30 og 40 km á klukkustund. Er þeir lögðu af stað á laugar- dagskvöld höfðu þeir með sér í loftbelgnum um 2,5 tonna ballest, mestmegnis sand, sem þeir nota til að stjórna hinum helíum-fyllta loftbelg og í gær höfðu þeir losað um 700 kíló af sandi til að ná æskilegri hæð. — Okkur liður öllum vel. Við erum í mjög æskilegri hæð sem stendur og léttum á ballestinni öðru hverju, sögðu þeir loftbelgs- farar við talsmann sinn í gær. Þeir skiptast á að sofa fjóra tíma í senn en þess á milli huga þeir að búnaði sínum og halda stefnunni. Ef ofurhugunum þremur, þeim Maxie Anderson, Larry Newmann og Ben Abruzzo, tekst áform sitt verða þeir jafnframt þeir fyrstu sem tekst að fljúga loftbelg yfir Atlantshaf. Síðast mistókst til- raun þeirra eins og kunnugt er með nauðlendingu hér við land og það er ekki fyrsta tilraun af þessu tagi, sem mistekst. Alls hafa 17 tilraunir til að fljúga loftbelg yfir Dauðsföllum fjölgar vegna áfengisneyzlu London. 11. áuúst. AP. DAUÐSFÖLLUM aí völdum liír- arskorpu vegna áfengisdrykkju fjölgar stöðugt. að sögn áfengis- sérfræðings, og kennir hann þar um tiltölulega lágum tollum á áfengi í Bretlandi. Jan de Lint segir í grein í nýjasta hefti tímaritsins „The British Journal on Alcohol and Alcoholism" að í 24 af 25 iðnríkj- um hafi meðaldrykkja á áfengi aukizt frá 1960 til 1973. Aukningin var allt frá 10% upp í 100%.. Aðeins í Frakklandi minnkaði drykkja á hvern íbúa. Þar er meðaldrykkjan á áfengi nú 24.1 lítri á mann, en hefur lækkað um 12%. Frakkland er samt efst á blaði yfir þau lönd, þar sem mest er drukkið af áfengi. I Frakklandi látast 61 af hverjum 100.000 karlmönnum úr lifrarskorpu og 25 af hverjum kvenmönnum. Þessi tala er mun hærri í Frakklandi en á Ítalíu, sem kemur næst hvað varðar dauðsföll úr lifrarskorpu. 22 andófs- menn fá sakaruppgjöf Sooul. 15. áKÚst. Kouti-r. TUTTUGU og tveimur suður-kór- eönskum andófsmönnum verða gefnar upp sakir á þjóðhátíðardegi íandsins í dag. Leiðtogi andófs- manna í landinu og fyrrverandi frambjóðandi við forsetakjör, Kim Dae-Jung, verður ekki á meðal þeirra. Atlantshaf endað ýmist með dauðsföllum eða björgun á elleftu stundu. Þeir, sem lengst hafa komizt í þessum tilraunum, voru þeir Don Cameron og Christopher Davis. Þeir áttu aðeins 117 mílur ófarnar að franskri strönd er þeir misstu flugið og var bjargað. páfadóm virkari London. 11. ágúst. AI*. Rcutcr. BREYTT viðhorf páfadóms með sameiningu kirkjunnar og heims- frið að markmiði og mann á páfastóli. sem þekkir vel til ástands heimsmála og er óragur við að viðra nýjar skoðanir innan kirkjunnar, er meginkrafan í yfirlýsingu 10 virtra guðfræð- inga innan kaþólsku kirkjunnar. Þessi yfirlýsing, sem send hefur verið kardínálasamkundunni er ákveður kjör páfa síðar í þessum mánuði, birtist 1 Lundúnablaðinu Times í dag. I yfirlýsingunni er þess farið á leit við samkunduna, að hún gefi sér góðan tíma til að ræða hugmyndir, sem fram koma í yfirlýsingunni. Þar segir m.a. að nauðsynlegt sé að taka upp víðtæka samvinnu við hinar ýmsu kirkjudeildir, uppræta sundrungu innan kristinnar kirkju og þar sem kaþólska kirkjan sé öflugasta eining hennar, sé það hlutverk forystumanna hennar að hafa frumkvæði að slíkri samvinnu. Um hlutverk væntanlegs páfa segir í yfirlýsingunni, að hann verði að vera maður, sem sé vel kunnugur ástandi heimsmála og að verði að vera óhræddur við að beita sér fyrir framgangi góðra málefna í krafti valda sinna. Hann eigi að vera víðsýnn, umburðar- lyndur og fordómalaus. víða um heim Amsterdam 21 skýjaó Aþena 30 iéttskýjaö Berlín 21 skýjaÓ Brússel 2v het skirt Chicago 31 heióskirt Frankfurt 19 skyjaó Genf 14 skýjað Helsinkí 15 heióskírt Jóh.borg 25 léttskýjað Kaupm.höfn 20 skýjaö Lissabon 32 léttskýjaó London 23 skýjaó Los Angeles 25 skýjað Madrid 35 léttskýjaö Malaga 27 alskýjaó Miami 30 rigning Moskva 19 skýjaó New York 28 skýjaó Ósló 20 skýjaó Palma 29 heióaktrt París 22 léttskýjaó Reykjavík 14 skýjaö Róm 23 skúrir Stokkhólmur 17 rigning Tel Aviv 28 léttskýjaó Tókýó 33 heióskírt Vancouver 21 skýjaó Vín 23 léttskýjaó

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.