Morgunblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 28.04.1979, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979 41 fclk í fréttum ÞESSI mynd er úr brúðkaupi Patty Hearst, dóttur bandaríska blaðakóngsins, en hún giftist fyrir skömmu. Var mikil og fjölmenn brúðkaupsveizla haldin. Hjónavígslan fór fram í San Francisco. Voru brúðhjónin gefin saman í kapellu Bandaríkjaflota. — Fyrir rúmlega tveim mánuðum var Patty Hearst sleppt úr fangelsi þar sem hún afplánaði dóm fyrir aðild að ráni. — Brúðhjónin Patty og Bernhard Shaw brúðgumi, ganga úr kapellunni. PÁFINN á Péturstorgi á pálmasunnudag. Hafði Jóhannes Páll þá gengið gegnum hina miklu mannþröng sem var á torginu. í pálmasunnudagsræðunni sinni hafði hann undirstrikað að ekki yrði vikið frá þeirri reglu að kaþólskir prestar skyldu lifa einlífi og kvænast ekki. FRANSKA kvikmyndaleikkonan Claudine Auger er hér stödd í flugstöðinni á Heathrow-flugvelli í London. — Hún kom til borgarinnar til að vera þar við frumsýningu kvikmyndarinnar „Butterfly on the Shoulder“, sem hún leikur í. Þessi mynd var kjörin bezta franska kvikmynd ársins 1978. Viö erum fluttir frá Nýbýlavegi 2 aö Skemmuvegi 6 Söluaöili fyrir Tíre$tone • Alhliða hjólbarðaþjónusta. • Hjólbarðasala. Nýir og sólaðir hjólbarðar. • Jafnvægisstilling. • Öll bjónusta innanhúss. Hjólbarðaviðgerð Kópavogs Skemmuvegi 6, sími 75135. Auglýsing um aðalskoðun bifreiða í lögsagnar- umdæmi Reykjavíkur í maímánuði 1979. Miövikudagur 2. maí Ft-24701 til R-25200, Fimmtudagur 3. maí Ft-25201 tii R-25700 Föstudagur 4. maí R-25701 til R-26200 Mánudagur 7. maí R-26201 til R-26700 Þriöjudagur 8. maí R-26701 til R-27200 Miövikudagur 9. maí R-27201 til R-27700 Fimmtudagur 10. maí R-27701 til R-28200 Föstudagur 11. maí R-28201 til R-28700 Mánudagur 14. maí R-28701 til R-29200 Þriöjudagur 15. maí R-29201 til R-29700 Miövikudagur 16. maí R-29701 til R-30200 Fimmtudagur 17. maí R-30201 til R-30700 Föstudagur 18. maí R-30701 til R-31200 Mánudagur 21. maí R-31201 til R-31700 Þriöjudagur 22. maí R-31701 til R-32200 Miövikudagur 23. amí R-32201 til R-32700 Föstudagur 25. maí R-32701 til R-33200 Mánudagur 28. maí R-33201 til R-33700 Þriöjudagur 29. maí R-33701 til R-34200 Miðvikudagur 30. maí R-34201 til R-34700 Fimmtudagur 31. maí R-34701 til R-35200 Bifreiðaeigendum ber aö koma meö bifreiöar sínar til bifreiðaeftirlits ríkisins, Bíldshöföa 8 og veröur skoöun framkvæmd þar alla virka daga kl. 08:00 og 16:00. Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja bifreiöum til skoðunar. Viö skoðun skulu ökumenn bifreiöanna leggja fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir því aö bifreiöaskattur sé greiddur og vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi. Athygli skal vakin á því, aö skráningarnúmer skulu vera vel læsileg. Samkvæmt gildandi reglum skal vera gjaldmælir í leigubifreiöum sem sýnir rétt ökuglald á hverjum tíma. Á leigubifreiöum til mannflutninga, allt aö 8 farþega, skal vera sérstakt merki meö bókstafnum L. Vanræki einhver aö koma bifreiö sinni til skoðunar á auglýstum tíma verður hann látinn sæta sektum sam- kvæmt umferóarlögum og bifreiöin tekin úr umferð hvar sem til hennar næst. Bifreiöaeftirlitið er lokað á laugardögum. Lögregiustjórinn í Reykjavík 24. apríl 1979 Sigurjón Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.