Morgunblaðið - 14.08.1979, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 14.08.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1979 19 Stórmót á Hellu: Spennandi keppni í hlaupagreinum Stórmót sunnlenskra hesta- manna var haldið á Hellu nú um helgina. Veður var óhagstaett til mótahalds á laugardeginum en hélst ágætt mestan hluta sunnu- dags. Margt hrossa var skráö til keppni, en á dagskrá var gæöinga- keppni fullorðinna og unglinga, kappreiðar og kynbótasýning á hryssum. í kappreiðum náðust góðir tímar enda mörg af frægustu hlaupahrossum landsins mætt til leiks. í a-flokki gæðinga sigraði Þytur, rauður 13 v. frá Hamarsheiði. Eigandi og knapi er Sigfús Guö- mundsson í V.-Geldungaholti. Þyt- ur vekur ávallt mikla athygli fyrir tíguleika og myndarskap enda margverölaunaöur. Annar varð Frami 7 vetra frá Kirkjubæ, eigandi og knapi Skúli Steinsson. í þriöja sæti varð svo Rauði-Núpur rauö- stjörnóttur, 9 v. frá Ljósafossi. Eigandi er Skúli Steinsson. Báðir þessir síöarnefndu voru einnig reyndir í 250 m skeiöi seinna um daginn. í b-flokki gæöinga stóð efst Steinunn, grá 7 v. frá Eyrarbakka. Eigandi og knapi er Skúli Steins- son. í öðru sæti varð Hetja, mó- brún frá Vík. Eigandi og knapi Bjarni Þorbergsson Hraunbæ. Þriöja sætiö skipaöi svo Skussi, rauður 8 v. frá Laugarvatni. Eig- andi og knapi Hreinn Þorkelsson. í gæðingakeppni unglinga vakti það athygli hversu vel ríöandi krakkarnir voru, einnig hitt að krakkarnir riðu sama prógram og fullorönir og voru dæmdir eftir sama dómkerfi. í gæðingakeppni unglinga 12 ára og yngri varð röð sem hér segir: Efst varð Ör, Jörp 6 vetra frá Selfossi, eigandi Magnús Hákon- arson og knapi Óli Ö. Magnússon. Annar varð Óðinn 6 v. frá Gufu- nesi, eigandi Sigfús Guðmunds- son, en knapi Árný Sigfúsdóttir og þriðji varð svo Baröi, jarpskjóttur 10 v. frá Vtra- Dalsgeröi, eigandi Sigfús Guömundsson og knapi Guðmundur Sigfússon. í gæöinga- keppni unglinga 13—15 ára stóð hinsvegar efstur Blendingur, grár 8 vetra frá Gamla-Hrauni. Eigandi Bjarni Bragason og knapi Leifur Bragason. Annar varö Hausti jarp- stjörnuóttur 6 v. frá V.-Geldinga- holti, eigandi og knapi Þorleifur Sigfússon. Þriðji varö svo Ljúfur rauðblesóttur 12 v. frá Kirkjubæ, eigandi Siguröur Haraldsson, knapi Ágúst Sigurösson. Eins og venja hefur, veriö, var haldin kynbótasýning á hryssum, Hestar þær dæmdar og veitt verðlaun þrem efstu í hvorum flokki. Það verður að segjast eins og er að það var fátt um fína drætti og meirihlutinn af þeim hryssum sem sýndar voru mega meö réttu kall- ast „dót“ eins og hrossaræktar- ráðunautur oröaöi það. Er það alveg merkilegt hvað mönnum dettur í hug að koma með á sýningu. Aðeins ein hryssa fékk I. verðlaun, enda var hún f sérflokki hvað snertir hæfileika og tamn- ingu. Efst í flokki hryssna 6 v. og eldri varð Kolfinna 4758 brún 7 v. frá Kröggólfsstööum, faöir Hörður 591 frá Kolkuósi og móöir Kolbrún Eins og svo oft áöur á sunnlsnskum hestamsnnamótum settu Þeir Skúli Steinsson og Sigtús Gudmundsson sinn svip á Stórmótið. Skúli átti efsta hest í B-flokki gæöinga og annan og priðja hest í A-fiokki og hár situr hann Frama (t.v. á mynd). Sigfús Guðmundsson situr hér Þyt, sem stóð efstur alhliða gæðinga. Kolfinna frá Kröggólfsstöðum var i sérflokki af þeim hryssum, sem sýndar voru á mótinu enda sú eina peirra, er fékk I. verölaun. Knapi er Eyjólfur isólfsson. Ljósm. Valdimar Kristinsson. Það var ekkert gefið eftir í úrslitaspretti 350 metr- anna enda komu prír fyrstu hestarnir allir í mark á sama tíma. Þeir voru, taldir frá vinstri, Stormur, knapi Tómas Ragnarsson, Kóngur, knapi Hinrik Bragason og Óli, knapi Baldur Baldursson. 3059 frá Þingnesi. Eigandi er Gunnar Baldursson Kvíarhóli og knapi Eyjólfur ísólfsson. Hún hlaut í einkunn 8.04 og I. verðlaun. Önnur varð Spóna-Brúnka brún 8 vetra frá Mýrum, eigandi og knapi Guöni Jónsson. Hún hlaut í eink- unn 7.85 og II. verðlaun. Þriðja sætið skipaði svo Lukka rauð- stjörnublesótt 7 v. frá KirKjubæ. Eigandi og knapi Hafsteinn Jóns- son. í þessum flokki var ein hryssa sem skar sig nokkuö úr og er rétt að geta. En það var Svala grá 6 v. frá Skálmholti og er hún undan Kút 747 frá Eyrarbakka. Er þetta myndarleg og hágeng tölthryssa , en vantar skeiöið og dregur þaö hana niður í einkunn. Hún hlaut í einkunn 7.60 og II. verðlaun. í yngri flokki stóð efst Kolfreyja, Jörp 5 v. frá Torfastööum. Faðir er Kolbakur 730 frá Gufunesi og móðir Freyja frá Nýja-Bæ, eigandi er Guömund- ur Gíslason og knapi var Eiríkur Þ. Guömundsson. Hún hlaut í eink- unn 7,94 og önnur verölaun. í öðru sæti var Teysta 4750 móálótt 5 v. frá Kálfhól, eigandi er Jón Eiríks- son Vorsabæ og knapi Björn Jóns- son. Hún hlaut í einkunn 7.67 og II. verðlaun. í þriðja sæti varö svo Kinna gráhrímótt 5 v. frá Þingdal, eigandi er Sigmar Óskarsson Sel- fossi, en knapi var Jónas Lillien- dahl. Kinna hlaut í einkunn 7.60 og önnur verðlaun. í kappreiðum náðust yfirleitt góðir tímar og voru þar oft á tíöum mjög spennandi og tvísýnt um úrslit í einstökum greinum. í 250 m folahlaupi voru mættir til leiks m.a. Léttfeti og Leó, en þessir hestar hafa staðið mjög framar- lega í þessari vegalengt í sumar. Einnig á Léttfeti vikugamalt ís- landsmet í 300 m stökki. Það fór svo að Léttfeti hafði betur en litlu munaði. Léttfeti hljóp vegalendgd- ina á 18.6 sek. Eigandi hans er Guömundur Magnússon en knapi var Baldur Baldursson. Annar varö svo Leó, Baldurs Baldurssonar, en hann hljóp á 18.7 sek. og á sama tíma hljóp Snegla Sigfinns Páls- sonar frá Stóru-Lág, knapi Svanur Guðmundsson, en hún var dæmd sjónarmun á eftir. í 350 m stökki var keppnin æsispennandi. Þrjú hross, Oli, Kóngur og Stormur, hlupu samsíða alla vegalengdina og komu á sama tíma í mark 24.8 sek. en sjónarmunur réö um röðun í verðlaunasæti. Óli, eigandi Guöni Kristinsson og knapi Baldur Baldursson, var dæmdur fyrstur.Annar varð Kóngur Jó- hannesar Jóhannessonar, knapi Hinrik Bragason. Þriðji varö svo Stormur Hafþórs Hafdal, knapi Tómas Ragnarsson. Stormur hafði hlaupið á 24.5 sek. í undanrásum. í 800 m stökki sigraði Þróttur, eigandi og knapi Tómas Ragnars- son á 61.3 sek. Annar varð Gustur á 61.8 sek. og þriðji varð Móri á 63.3 sek. Voru skiptar skoðanir hver hefði verið í þriðja sæti, en sumir vildu meina að þriðji hefði verið Gauti Ragnars Tómassonar. í 150 m skeiði sigraði Logi, eigandi og knapi Friðþjófur Vignis- son, Ásmundarstööum, náði hann tímanum 15.6 sek. sem er mjög góður tími. Önnur varð Dimmbrá, eigandi Þorkell Bjarnason en knapi Þorkell Þorkelsson, hún hljóp á 15.8 sek. og þriöji varð Blesi, eigandi Ólafur Pálsson og knapi Páll Ólafsson, hann htjóp á 16.5 sek. í 250 m skeiði var keppni nokk- uð spennandi. Eftir fyrri daginn var Vafi meö bestan tíma en nýi methafinn Skjóni hljóp upp. En Skjóna brást ekki bogalistin á sunnudeginum og skeiðaði hann vegalengdina á 23.4 sek. Eigandi hans er Helgi Valmundsson en knapi var Albert Jónsson. Annar varð svo Vafi Erlings Sigurösson- ar, en hann hljóp á 24.2 sek. og í þriðja sæti varð svo til óþekkt hross, Gola Unnar Jónsdóttur, knapi Páll Ólafsson, hún hljóp á 24.3 sek. V.K.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.