Morgunblaðið - 29.09.1979, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 29.09.1979, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979 45 7TT VELVAKANDI SVARAR í SÍMA I0100KL 10—11 , FRÁ MÁNUDEGI ' 7r iw lUArnFK'ua'iJ n sem flestum áhorfendum sjón- varpsins líkar best kemur frá hinum enskumælandi löndum, þ.e. Bandaríkjunum og Bretlandi. Þetta kemur í ljós í viðtölum við fólk í blöðum og skrifum í ledendadálkum. Einnig hefur þetta komið mjög greinilega fram í vali kvikmyndahúsa hérlendis á myndum og eins þegar haldnar hafa verið svokallaðar „kvikmynd- avikur" frá ýmsum löndum. Ég álít mjög áríðandi að sjón- varpið haldi uppi þeirri dagskrá um helgar (popp og annað skemmtiefni), að fólk, og þá ekki síst unglingar, vilji heldur vera heima en sækja skemmtistaði. Þegar þannig er á málum haldið er sjónvarpið örugglega á réttri leið. Með þökk fyrir birtinguna Vilhjálmur Gíslason. • Enn um ókurteisi húsvarðar I Morgunblaðinu s.l. þriðju- dag birtist greinakorn í Velvak- anda með spurningunni, hver er maðurinn? Þar fyrlgir með að húsvörður nokkur hafi hringt og verið óánægður vegna greinar minnar sem birtist s.l. sunnudag um ókursteisi húsvarðar nokkurs. Þessi húsvörður sem hringdi held- ur því fram að grein mín komi óorði á alla húsvarðastéttina. Þetta er stór misskilningur. Mér hefur aldrei komið til hugar að ófrægja alla húsvarðastéttina. Það eru til heiðarlegir menn í þeirri stétt sem víðar. En spurn- ingu þessa húsvarðar þar sem hann fer fram á að ég geri nákvæmari grein fyrir umræddri grein minni get ég svarað á þeSsa leið: Hvers vegna kemur áður- nefnd grein mín svona óþægilega við þennan húsvörð? Einnig fer sá hinn sami fram á að ég nafngreini viðkomandi húsvörð. Ég mun alls ekki gera það, en orð mín um ókurteisi hans standa óbreytt. Og að lokum, þeir taki til sín sem eiga en ekki aðrir. Eyjólfur Guðmundsson • Um framhalds- þætti sjón- varpsins L.K. hringdi til Velvakanda og vildi þakka sjónvarpinu fyrir mjög góða dagskrá á miðvikudags- kvöld. „Sænski þátturinn er ef til vill ekki í hæsta gæðaflokki en efnið er gott og skemmtilegt. Sömu sögu er að segja um „Listmunahúsið." Efni þáttarins er öðru vísi en í þeim framhalds- þáttum sem komið hafa í íslenska sjónvarpinu hingað til og er til- breytingin ágæt. Leikararnir í þessum þáttum standa líka mjög vel fyrir sínu, eins og yfirleitt allir enskir leikarar sem íslendingar sjá í sjónvarpinu. En þakkir ætla ég ekki að láta fara eintómar. Norski fram- haldsmyndaþátturinn sem er á laugardagskvöldum er eitthvað SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á alþjóðlegu skákmóti í Nal- unchev í Póllandi í sumar kom þessi staða upp í skák þeirra Pshevoszniks, Póllandi, sem hafði hvítt og átti leik, og A-Þýzka stórmeistarans Vogt. 26. Rxf7! - IIxf7, 27. IIxf7 - Kxf7 28. IIfl+ og svartur gafst upp, því að hvítur vinnur eftir bæði 28.... Kg8, 29. Dc4+ og 28.... Ke8, 29. Bxc6. Þrátt fyrir þetta varð Vogt efstur á mótinu ásamt Sovétmönnunum Mikhail Zeitlin og Moiseev. Þeir hlutu allir 10 vinninga af 17 mögulegum. Næstir komu síðan þeir Schiissler, Svíþjóð, Luchak, Póllandi, Ivanovic, Júgóslavíu og Espig, A-Þýzkalandi með 9'Æ vinning. það _ fáránlegasta sjónvarpsefni sem Islendingum hefur verið boðið upp á. í fyrsta lagi er erfitt að skilja að nokkur sjónvarpsstöð skuli hafa fjármagnað gerð þeirra og í öðru lagi er það óskiljanlegt hvernig forráðamönnum íslenska sjónvarpsins datt í hug að bjóða okkur áhorfendum upp á slíkt efni og það á laugardagskvöldum. Veit ég að fleiri eru sömu skoðunar, ef til vill langflestir." Þakkir Innilegar þakkir til ættingja og vina sem glöddu mig á áttræðisafmæli mínu, þann 22. seþt. sl., meö heimsóknum, gjöfum og skeytum og geröu mér daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll. Þórunn Jóhannesdóttír, Kleppsvegi 8, Reykjavík. Laugard. 29. sept. kl. 16:00. Danski rithöfundurinn og listfræöingurinn Povl Vad flytur fyrirlestur, sem hann nefnir: „Kunst i Holste- bro“. Sýningin íslensk grafík opin kl. 14:00 til 22:00 laugardag og sunnudag. Síöustu sýningardagar. NORR4NA HUSIO POHJOLAN TAIO NORDENS HUS KARATE 3ja mánaöa byrjendanámskeiö hefjast 2. okt. hjá Karatefélagi íslands. Aöalkennari veröur R. Santos 3. Dan. Kennt veröur Shotokan Karate. Góö líkamsrækt fyrir bæöi kynin. Innritun hefst í dag laugar- dag kl. 11 —13 og á þriðjudag kl. 21.30— 22.30 í síma 16288 og aö Brautarholti 18 4. hæö. Karatefélag íslands. Nýkomin ensk mahony húsgögn inn Hverfisgötu 74. Sími 15102. ir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.