Morgunblaðið - 11.12.1979, Qupperneq 5
■ MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1979
5
Hádegistónleikar Söngskólans:
Einsöngur í stað
Silungakvintetts
TÍUNDU hádegistónleikar
Söngskólans í Reykjavík
verða miðvikudaginn 12.
Jólamerki Landssambands
íslenzkra frímerkjasafnara er
nýkomið út. Á því er mynd af
Dómkirkjunni í Reykjavík og
jafnframt merki Landssam-
bandsins.
Sigrún Thorarensen teikn-
aði jólamerkið að þessu sinni.
Eru sex merki í örkinni. Sú
nýbreytni hefur verið tekin
upp að geta útgefanda, teikn-
ara, prentiðnaðarstofnana og
upplags á neðri jaðri arkar-
innar. Um leið er prentað
Gleðileg jól á ýmsum tungu-
málum á hinum arkarjöðrun-
um.
des. n.k. kl. 12.10 í tónleika-
sal Söngskólans að Hverf-
isgötu 44, Reykjavík.
Á þessum degi hafði verið
auglýstur píanókvintett, „Sil-
ungskvintettinn", en vegna veik-
indaforfalla er þeim tónleikum
frestað um eina viku og verða
þeir miðvikudaginn 19. des. n.k.
Þess í stað munu Garðar Cortes
söngvari og Krystyna Cortes
píanóleikari flytja antik-aríur
og aríur úr kirkjuverkum.
Foreldra- og
barnaréttur
Fundur verður haldinn í Lög-
fræðingafélagi íslands
fimmtudaginn 13. desember
n.k. kl. 20.30 í Lögbergi, húsi
lagadeildar.
Fundarefni: Foreldraréttur
— barnaréttur. Hugleiðingar
um væntanleg barnalög.
Málshefjandi: Dr. Ármann
Snævarr, hæstaréttardómari.
Öllu áhugafólki um þessi
mál er heimill aðgangur.
„Haldið til haga“,
síðara bindi æviminninga
Bjartmars Guðmundssonar
Komið er út síðara bindi ævi-
minningar Bjartmars Guð-
mundssonar frá Sandi og nefnist
„Ilaldið til haga“. í bókinni eru
alls 19 þættir og prýða það
allmargar myndir.
Bókaútgáfan Skjaldborg gefur
bókina út. Á kápusíðu segir m.a.:
„Fyrra bindið Hér geta allir verið
sælir hlaut miklar vinsældir og
varð metsölubók í Þingeyjarsýslu.
Þá fékk Bjartmar viðurkenningu
hjá Úthlutunarnefnd listamanna-
launa fyrir bókina Hér geta allir
verið sælir.
Þessi bók Haldið til haga er lík
fyrri bókinni og koma margir við
sögu, bæði sveitungar Bjartmars
og fleiri. Allir þættirnir eru vel
skrifaðir „og þeir bestu með óven-
julegum ágætum", svo vitnað sé til
Bjartmar Guðmundsson
orða Gísla Jónssonar mennta-
skólakennara í ritdómi um fyrra
bindið."
Samkór Kópavogs
fagnar Jólunum
Samkór Kópavogs fagnar jólunum með jólasöngvum í Kópavogs-
kirkju þriðjudaginn 11. des. kl. 20.30. Guðrún Oskarsdóttir leikur
einleik á trompet. Einsöng syngja Kristín Sigtryggsdóttir, Hrönn
Hafliðadóttir og Baldur Karlsson. Kórinn syngur jólalög undir stjórn
Kristinar Jóhannesdóttur.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Krystyna Cortes
Á efnisskránni eru „Caor mio
ben" eftir Giordani, „O del mio
dolce ardor" eftir Gluck,
„Kirkjuarían eftir Stradella,
Garðar Cortes
recit og aría úr Messíasi eftir
Hándel, „Panis Angelicus" eftir
C. Franck og aría úr Requiem
eftir Verdi.
Jólafundur
hjá Hvöt
HVÖT, félag sjálfstæðis-
kvenna í Reykjavík, heldur
jólafund fimmtudaginn 13.
desember n.k. í sjálfstæðis-
húsinu Valhöll við Háaleitis-
braut 1.
Séra Bernharður Guð-
mundsson mun flytja hug-
vekju og börn og unglingar
sjá um tónlistarflutning.
Hið vinsæla jólahappdrætti
verður og veitingar. Kynnir
á fundinum verður Hulda
Valtýsdóttir.
Að venju er jólafundurinn
hjá Hvöt fyrir alla fjölskyld-
una og hefst hann klukkan
20.00, en húsið verður opnað
klukkan 19.30.
Föt með og án vestis í fjölmörgum efnisgerðum
Stakir jakkar og buxur o.m.fl.
NÝJAR VÖRUR
DAGLEGA
TIL JÓLA
Austurstræti 22. Sími frá skiptiborði 85055.