Morgunblaðið - 06.02.1980, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 1980
+ Sonur okkar GUÐNI RÚNAR HALLDÓRSSON lést af slysförum 5. febrúar. Fyrir hönd aöstandenda Sjöfn Jónasdóttir, Halldór Gunnarsson.
Eiginmaöur minn GUNNLAUGURJÓNSSON húsasmíóameistari Háfúni 28 Keflavík er andaöist 29. janúar s.l. veröur jarösunginn frá Akraneskirkju laugardaginn 9. febrúar kl. 11,15 f.h. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim, sem vildu minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélag íslands. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna Guórún Halldórsdóttir.
+ Eiginmaöur minn, KRISTINN OTTASON, skipasmiöur, Granaskjóli 14, lést á Borgarspítalanum þann 4. febrúar. Fyrir hönd barna og tengdabarna, Guölaug Eiríksdóttir.
+ Bróðir minn, JÓHANN S. EINARSSON, frá Keflavík, S er látinn. Jarðarförin fer fram í Fossvógskirkju fimmtudaginn 7. febrúar kl. 2.30. Sigríöur Einarsdóttir.
+ Eiginmaður minn og faöir okkar, TÓMAS TÓMASSON, Langholtsvegí 165, lést á heimili sínu mánudaginn 4. febrúar. Elísabet Elíasdóttir og börn.
+ Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug við andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, MARGRÉTAR GUNNARSDÓTTUR, Bjarmastíg 15, Akureyri. Gísli Bjarnason, Lóa Bjarnadóttír, Geir Jóelsson, Sigurbjörn Bjarnason, Axelína Stefánsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir Gould, Ernest C. Gould. og barnabörn.
+ Þökkum auðsýnda samúö viö fráfall og jarðarför GUDBJARGAR EINARSDÓTTUR, frá Akurprýði. Guörún J. Geirdal, Óöinn S. Geirdal, Einar Ó. Jónsson, Sigríöur Jónsdóttir, Guölaug Vestmann, Grétar Jónsson, Guöjón Á. Jónsson, Ágústa Markúsdóttir, börn og barnabörn.
+ Þökkum innilega auðsýnda samúö viö andlát og útför SALVARAR ÁGÚSTU ÓFEIGSDÓTTUR, frá Borgarkoti, Skeiöum. Dóra Halldórsdóttir, Hallberg Halldórsson, Victor Halldórsson.
+ Þökkum innilega samúð og vinarhug viö andlát og jaröarför JÓNÍNU HELGU TÍMÓTHEUSDÓTTUR. Dósóþeus Tímótheusson, Jón Tímótheusson, Aðalheiöur Síguröardóttir, Ólafur Tímótheusson, Magnea Ásmundsdóttir, og aörir vandamenn.
Jón Jónsson vél-
stjóri — Minning
Þeim fækkar frumherjum
íslenskrar tæknimenntunar sem
fæddir voru á síðasta áratug
aldarinnar sem leið og nutu verk-
og bóklegrar fræðslu á fyrsta
fjórðungi þessarar aldar. Þeir
hafa horfið einn af öðrum yfir
móðuna miklu. Yngri menn með
lengra nám og nýja tækni hafa
tekið við og byggt ofaná þann
grundvöll íslenskrar tæknikunn-
áttu og menningar sem lagður var
af þeim sem voru ungir á árunum
fyrir 1930.
Einn þessara frumherja er í dag
kvaddur hinstu kveðju: Jón Jóns-
son vélstjóri, Ránargötu la í
Reykjavík.
Jón vélstjóri var af vestfirskum
stofni, fæddur að Gemlufalli í
Dýrafirði 23. apríl 1895. Foreldrar
hans voru Jón Magnússon og
Guðrún Jónsdóttir er síðar bjuggu
að Miðhlíð í Dýrafirði. Svo sem
tíðkaðist á uppvaxtarárum Jóns
fór hann sem aðrir ungir menn til
sjóróðra fljótlega eftir fermingu
en útræði var víða og stutt á
fiskimið.
A þessum árum var verið að
vélvæða vestfirsku áraskipin.
Síðar voru stærri bátar byggðir til
aukinnar og lengri sóknar á ennþá
fengsælli fiskislóðir. Sem ungur
sjómaður fylgdist Jón með þessari
öru þróun og aflaði hann sér
vélgæsluréttinda á mótornám-
skeiði á ísafirði árið 1918. Stund-
aði síðan vélstjórn á ýmsum bát-
um fram yfir 1920. Þá fór hann í
járnsmíðanám í Hafnarfirði og
síðar í Vélskóla íslands en þaðan
lauk hann vélstjóraprófi árið 1926.
Næsta áratuginn starfaði Jón sem
vélstjóri á togurum.
Okkar ástkæri + KARL ÓLAFUR ÓSKARSSON,
flugvélstjóri, Austurbrún 39,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 8. febrúar kl.
1.30. Helga Lorenz, Magnús Karlsson, Jóhanna Ósk Karlsdóttir, Finnbogi Óskarsson, Jóhanna Jóhannesdóttir.
+
Hjartanlega þökkum við auðsýnda samúð og vináttu viö fráfall og
útför
ERLU MAGNÚSDÓTTUR,
Sunnuvegi 33,
Reykjavík.
Guðlaugur Jónsson,
Magnús Guðlaugsson, Jón Benedikt Guölaugsson,
Járnbrá Fríöriksdóttir,
Hilma Magnúsdóttir, Björn Karlsson,
Ragna Berget, Oddvar Berget,
Ásta Elstner Wolfgang Elstner,
Sverrir Magnússon, Margrét Einarsdóttir.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúö og vináttu við fráfall
mannsins míns, föður okkar og tengdaföður,
SIGUROAR J. HALLDÓRSSONAR
Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki á deild 4-D,
Landspítalanum.
Sigríður Jónasdóttir,
Lilja Sígurðardóttir, Steinþór Ingvarsson,
Jónas Sigurösson, Helga Hallbergsdóttir,
Þórhildur Sæmundsdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför móður okkar,
JÓHÖNNU INGIBJARGAR SIGURDARDÓTTUR,
Reynimel 68.
Björn Ásgeírsson,
Jón Snorri Ásgeirsson,
Sigurður Ásgeirsson
og fjölskyldur.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 88., 92. og 96. tölublaði
Lögbirtingablaösins 1979, á Asbraut 13 —
hluta —, þinglýstri eign Bjarna Zophanías-
sonar, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudag-
inn 13. febrúar 1980 kl. 11:00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 88., 92. og 96. tölublaði
Lögbirtingablaðsins 1979, á Alfhólsvegi 55,
þinglýstri eign Guömundar Einarssonar, fer
fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 13.
febrúar 1980 kl. 10:30.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nokkru eftir að Laxfoss eldri
var byggður í Danmörku réðst Jón
sem yfirvélstjóri á skipið sem hélt
uppi áætlunarferðum frá Reykja-
vík til Borgarness og Akraness.
Fékk hann þjálfun til hins nýja
starfs í Odense og Kalundborg í
Danmörku veturinn 1936. Starfaði
Jón síðan sem yfirvélstjóri á
Laxfossi um tveggja áratuga
skeið.
Eftir að Laxfoss strandaði við
Kjalarnes starfaði Jón í landi,
fyrst sem verkstjóri í Vélsmiðju
Sigurðar Sveinbjörnssonar en frá
árinu 1957, meðan starfsorkan
entist, við véla- og verkfærasölu
hjá Fjalari hf. í Reykjavík en að
stofnun þess fyrirtækis átti hann
aðild ásamt öðrum.
A árunum eftir heimsstyrjöld-
ina síðari komu fram á sjónarsvið-
ið ýmsar tæknilegar nýjungar.
Fylgdist Jón eftir föngum með
þeim nýjungum sem hægt var að
afla og snertu starfssvið hans. Má
í því sambandi nefna fyrstu loft-
kældu dieselvélina sem flutt var
hingað til lands, en leyfi fyrir
nokkrum slíkum vélum fékkst
eftir nokkra fyrirhöfn hjá nýbygg-
ingarráði er starfaði um miðjan
fimmtá áratuginn. Ræsti Jón vél-
stjóri fyrstu þessara véla er voru
af Armstrong Siddeley gerð og
knúði sú vél síðar, um margra ára
skeið heimilisrafstöð á sögufrægu
sunnlensku prestsetri. Sumarið
1948 kynnti Jón sér í Bretlandi
nýja málmhuðunartæki sem þá
var að ryð\. sér til rúms þar í
landi og fi.,tti hingað heim. Þá
átti hann þátt í að kynna ýmsar
fleiri tæknilegar nýjungar, enda
hugurinn jafnan opinn fyrir öllu
því sem til gagns og hagræðis
mætti verða.
Jón var hamingjumaður í heim-
ilislífi. Eftirlifandi kona hans er
Fanney Guðmundsdóttir, Jónsson-
ar, járnsmiðs í Hafnarfirði. Áttu
þau gullbrúðkaup á sl. vori. Synir
þeirra eru fimm. Hafa þrír þeirra
fetað í fótspor föður síns, numið
vélfræði og lokið prófi frá Vél-
skóla íslands. Þannig taka synir
við af feðrum og ein kynslóð af
annarri.
Á árunum sem Jón var að alast
upp vestur í Dýrafirði, fluttust
þangað í sveit, að Núpi, bræðurn-
ir, síra Sigtryggur og Kristinn
bóndi Guðlaugsson, Nýir straum-
ar bárust með þeim bræðrum, sem
efldu unga menn til starfs og
dáða. Á þessum sömu árum flutt-
ist stjórnin inn í landið. Styrktust
menn í þeirri vissu að nýir tímar
og betri færu í hönd. Sú varð og
raunin. Jón vélstjóri var sá gæfu-
maður að fá tækifæri til að taka
þátt í þeirri mestu breytingu sem
orðið hefir frá upphafi Islands
byggðar á lífskjörum hér á landi,
frá áraskipum til skuttogara, frá
moldarkofum til góðra híbýla, og
allt sem þar er á milli er í stuttu
máli árangurinn af starfi þeirrar
kynslóðar sem Jón tilheyrði.
Sannarlega lá hann ekki á liði sínu
að skila jafnan góðu og farsælu
dagsverki á löngum starfsdegi
sem byrjaði þegar á unga aldri og
entist allt fram að áttræðu.
Þökk sé Jóni að leiðarlokum.
Megi sá sem öllu ræður og stjórn-
ar, styðja hann og styrkja er hann
nú hefir haldið á fund þeirra sem
á undan eru horfnir yfir móðuna
miklu, svo og veita huggun í
harmi, eftirlifandi eiginkonu, son-
um og ástvinum öllum.
Þ.B.