Morgunblaðið - 22.02.1980, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.02.1980, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1980 I.jósm. Mhl. ÓI.K.M. TiskusýninKadomur sýna sportfatnað á tiskusýningu scm haldin var á kaupstcfnunni fslcnsk föt á Hótcl LoftlciAum. Bændur undirbúa samdrátt mjólk- urframleiðslu FUNDIR BúnaAarþinKs standa nú yfir scm kunnuxt cr af fréttum og hafa nú verið iögð fram þar 24 mál um hin ýmsu efni og hefur þeim verið vísað til nefnda til umsagnar. Arni Jónasson erindreki Stétt- arsambands bænda flutti á mánu- dag erindi um kvótaskiptingu i landbúnaðarframleiðslu, sem koma á til framkvæmda í ár. Kom Þrjár sovésk- ar kvikmyndir MENNINGARTENGSL íslands og Ráðstjórnarrikjanna sýna þrjár sov- éskar kvikmyndir frá árinu 1977 i MfR-salnum Laugavegi 178 næstu daga. Þetta eru myndirnar „Prinsessan á bauninni" sem sýnd verður 23. febrúar, „Ástarævintýri á skrifstof- unni“ sem sýnd verður laugardaginn 23. febrúar og „Munaðarleysingjar" sem sýnd verður 8. mars n.k. fram í máli hans að bændur eru þegar farnir að gera áætlanir sínar um samdrátt, sérstaklega í mjólkurframleiðslunni. í gær flutti Guðbrandur Hlíðar dýra- læknir erindi um júgurbólgur. Þá hefur verið samþykkt álykt- un um eitt mál, niðurfellingu nýbyggingargjalds á útihúsum, en nefnd hefur lokið umfjöllun um það mál. Hijóðar ályktunin á þessa leið: Búnaðarþing ítrekar samþykkt frá fundi sínum 1979 um afnám ný- byggingargjalds af útihúsum í sveitum og skorar á landbúnað- arráðherra að hlutast til um að heimild í 2. grein laga um nýbygg- ingargjald til að undanþiggja ákveðna tegund mannvirkja gjaldskyldu, verði notuð þegar um er að ræða byggingar útihúsa í sveitum og gróðurhúsa. Búnaðarþingsfulltrúar þágu á þriðjudag heimboð til forsetahjón- anna að Bessastöðum. Stefnt er að því að ljúka störfum Búnaðar- þings um mánaðamót. 80 tonn í tveimur róðrum HornafirAi. 20. febrúar. NÚ HAFA þrír bátar byrjað netaveiðar héðan frá Höfn og hefur afli þeirra verið misjafn. Þó byrjaði vel hjá einum þessara háta, Garðey SF 22, og var aflinn til dæmis 80 tonn í tveimur róðrum, þar af var aflinn í þeim seinni 42 tonn; 30 tonn ufsi og tólf tonn þorskur. í þcim róðri var aðeins einu sinni dregið. Skipstjóri á Garðey er Örn Þór Þorbjörnsson og sagðist hann hafa verið í þessum róðrum rétt vestan við InKÓlfshöfða. Af línubátum er það að segja, að lélegar gæftir hafa verið undan- farið og tregt fiskirí og eru þeir vafalaust farnir að hugsa til hreyfings yfir á þorskanetin. Fróttaritari. Akureyri: Samsýning í Háhól Akureyri. 20. febrúar. ÞESSA viku stendur yfir í Gall- crí Iláhól samsýning á listaverk- um eftir ungt fólk, sem vakið hefur athygli fyrir myndlist sína á síðustu árum. Myndirnar eru ýmist unnar í olíu, vatnslit eða leir og eru allar til sölu. Myndlistarmennirnir eru: Gunnar Örn, Örn Þorsteinsson, Gunnlaugur Stefán Gíslason, Helgi Vilberg, Jónína Guðnadóttir og Guðmundur Ármann. Sýningin er opin virka dag klukkan 20 til 22, en á laugardag og sunnudag klukkan 15 til 22. Henni lýkur á sunnudagskvöld. Sv.P. Danskennsla og leikfimi í Reykhólasveit Miðhúsum 20. (ebr. Það virðist vera nóg um að vera hér í félagsmálum og má þar til nefna að íþróttakennari Reykhólaskóla, Ebenezer Jensson, hefur leikfimi fyrir konur á öllum aldri einu sinni i viku og er mikill áhugi hjá þeim að notfæra sér þessa kennslu. Fyrir skömmu hóf prestsfrúin hér, frú Eygló Bjarnadóttir, að kenna fólki danssporin og er þetta námskeið vel sótt, enda ekki alls staðar þar sem danskennari er mitt á meðal íbúanna. Núna er Leikfél- agið Skrugga byrjað að æfa leikrit- ið Lína langsokkur og er leikstjóri Þóra Lovísa Friðleifsdóttir. Sveinn. INNLENT Norræn æska þingar í Rvík - í tengslum við Norðurlandaráðsþingið „DAGANA 1. og 2. mars verður haldið í Reykjavik þing Norður- landaráðs æskunnar. Æskulýðs- nefndir Norrænu félaganna, á íslandi samstarfsnefnd Æskulýðs- sambands íslands og Norræna fé- lagsins, sjá um undirbúning og skipulag þingsins, sem verður haldið á hótel Heklu. Æskulýðsnefndir Norrænu félag- anna, æskulýðsnefndir þingflokka á Norðurlöndum og norræn sam- starfsfélög þeirra eiga rétt á að senda fulltrúa á þingið. Gert er ráð fyrir að innlendir og erlendir þátt- takendur verði um 50 talsins. Meðal þeirra sem flytja ræður á þinginu er Friðjón Þórðarson dómsmálaráðherra, sem mun fjalla um efnið: ísland og norræn sam- vinna. Dagbjört Höskuldsdóttir flytur erindi um hlutverk ungs fólks í norrænni samvinnu og Erlendur Patursson talar um þátttöku jaðar- svæða í norrænni samvinnu á sviði samgöngu-, menningar- og efna- hagsmála. Ennfremur eru á dagskrá pallborðsumræður um norrænt gervihnattasjónvarp. Þingfulltrúar munu sækja heim forsetahjónin á Bessastöðum síðdegis laugardaginn 1. mars. Þing- inu lýkur sunnudagskvöldið 2. mars, en þátttakendur dveljast hérlendis til 7. mars og fylgjast sem áheyrnarfuiltrúar með fundi Norð- urlandaráðs, er verður settur mánu- daginn 3. mars í Þjóðleikhúsinu. Nauðungaruppboð Eftir kröfu Arnar Clausen hrl., skattheimtu ríkissjóös í Kópavogi, Ásgeirs Thoroddsen hdl., Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Útvegsbanka íslands, Jóns Finnssonar hrl., Oddvita Tálknafjarðarhrepps, Magnúsar Sigurössonar hdl. og Sam- vinnutrygginga, veröa eftirtaldar bifreiöir seldar á nauöungar- uppboði, sem haldiö veröur viö bæjarfógetaskrifstofuna í Kópavogi, aö Auöbrekku 57, föstudaginn 29. febrúar 1980 kl. 16.00. Y-554 Y-1372 Y-3354 Y-3481 Y-3515 Y-3535 Y-4924 Y-5879 Y-7240 Y-7292 Y-7368 Y-7751 G-261 G-7960 G-11213 R-9846 R-33163 R-44400 R-46547 R-56069 R-59592 R-63399 Ford Falcon árg. ’65, Saab 99 árg. ’73, Fiat og dráttarvél Yd-54. Uppbodsskilmálar liggja frammi á skrifstofu uppboðshald- ara. Greiösla fari fram við hamarshögg. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nauðungaruppboð Eftir kröfu Ásgeirs Thoroddsen hdl., bæjarsjóös Kópavogs, skattheimtu ríkissjóös í Kópavogi, innheimtustofnunar sveitar félaga, skattheimtu ríkissjóðs í Hafnarfiröi, Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Benedikts Sigurössonar hdl., Hákonar H. Krist- jónssonar hdl., Einars Viöars hrl., Skúla J. Pálmasonar hrl. og Inga R. Helgasonar hrl., veröa eftirtaldirJausafjármundir seldir á nauöungaruppboöi, sem haldið veröur á bæjarfógetaskrif- stofunni að Auðbrekku 57, Kópavogi, föstudaginn 29. febrúar 1980 kl. 14.00. Verður uppboöi síöan framhaldið á öörum stööum, þar sem munir eru. 1. Raðsófasett, skemill, sófborö, JVC plötuspilari, Kenwood- magnari, hátalarar, hornskápur, Yamaha hljómflutnings- tæki, Ingis ísskápur, þvottavél, sófasett, hægindastóll, hillusamstæöa, Zopþas þvottavél, KPS frystikista, Candy ísskápur, AEG þvottavél, HMN sjónvarp, ísskápur, Rolls þvottavél, Hitachi sjónvarp. 2. Laukvél. síldarflökunarvél, F.J.Edwards vélklippur, renni- bekkur, 4 iönaöarsaumvélar, Master 60 hitablásari, Burnsi- de peningaskápur, Hugin peningakassi, skrifborö, Kienzie bókhaldsvél, höggpressa, vélsög, Calor rúlla, 4 Calor pressur, þvottavél, 3 Tjaldþorgartjöld, bandsög rúllusuöu- vél, spónarpressa, hjólsög, spónskurðarvél, kantlímingar- vél, fræsari, þykktarhefill, afréttari, Schleicher dílavél, De Walt bútsög, Wadkin afréttari, OTT spónpressa, Hambok sög, hefill, spónlagningapressa, Schleicher dílaborvél, Walker Turner borvél, Rival pússvél, Honeywell spónlagn- ingapressa, TR-2 tvíblaöasög, De Walt sög og G-Stefan kantlímingvél. Uppboösskilmálar 'iggja frammi á skrifstofu uppboöshald- ara. Greiðsla fer fram viö hamarshögg. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Lúxus íbúð Bjóðum til sölu eina íbúð í sambyggðinni Hæöargaröi 1—27. íbúöin hefur sér inngang og er stofa, boröstofa, 2 herbergi, eldhús og baö á hæö og þvottahús, geymsla og leikherbergi í kjallara. Sam- tals um 120 fm. íbúöin hentar einkar vel fyrir einhleypt fólk eöa barnlaus hjón, sem vilja búa þægilega. íbúöin er nú tilbúin undir tréverk og málningu, en veröur fullgerð, ef kaupandi óskar. Nánari upplýsingar í skrifstofunni, Funahöföa 19, símar 83895 og 83307. Byggingarfélagiö Ármannsfell. P I VIÐTALSTÍMI | Alþingismanna og ^ borgarfulltrúa | Sjálfstæðisflokksins | í Reykjavík ^ Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum frá klukkan 14.00 til 16.00. Er þar tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum boöið að notfæra sór viðtalstíma þessa. Laugardaginn 23. febrúar veröur til viötals Albert Guðmundsson. Albert er í borgarráði, framkvæmdarnefnd vegna byggingastofnana í þágu aldraðra, hafnarstjórn, launamála-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.