Morgunblaðið - 29.02.1980, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 1980
23
Vill leiftur-
sókn gegn
verðbólgu
Washington. 28. febr. — AP.
BARRY P. Bosworth, fyrrum
formaður kaupgjalds- og verð-
lagsnefndar Carter-stjórnar-
innar í Bandaríkjunum, hvatti
í dag til „leiftursóknar“ til að
stöðva aukningu verðbólgunn-
ar þar í landi, og gæti sú sókn
meðal annars falið í sér
strangt eftirlit með kaupgjaldi
og verðlagi, og skömmtun á
bensíni. Kvaðst Bosworth and-
vígur þeirri stefnu Carters
forseta að reyna að hefta verð-
bólguna i áföngum, en verð-
bólgan í Bandaríkjunum er nú
18% á ársgrundvelli.
Þótt Carter hafi viðurkennt
að aukning verðbólgunnar sé nú
komin á „hættustig", hefur
hann neitað að fallast á lög-
bundna takmörkun hækkunar
Veður
víða um heim
Akureyn
Amsterdam
Barcelona
Berlin
BrUssel
Buenos Aires
Chicago
Feneyjar
Frankfurt
Genl
Helsinki
Jerúsalem
Jóhannesarb.
8
13
-2
8
30
-1
8
S
7
0
10
23
Kaupmannahöfn -1
Las Palmas
Lissabon
London
Los Angeles
Madrid
Mallorca
Miami
Moskva
New York
Osló
Reykjavík
Rio de Janeiro
Róm
Stokkhólmur
Sydney
Tel Aviv
Tókýó
Vancouver
Vínarborg
18
13
11
27
8
14
20
-3
2
1
0
21
8
1
29
16
6
13
4
alskýjað
skýjaó
mistur
skýjaó
skýjaó
heióskírt
heióskírt
þokumistur
heióskírt
skýjað
skýjaó
léttskýjaó
skýjað
skýjað
alskýjaó
léttskýjað
heióskírt
skýjaó
heióskírt
súld
heiðskírt
skýjaó
heiðskírt
skýjaó
ískorn
skýjaó
heióskírt
skýjaó
heiðskírt
léttskýjaó
skýjað
heiðskírt
heióskírt
kaupgjalds og verðlags, sem
hann telur ekki ná tilgangi
sínum, heldur auka verðbólguna
með aukinni eftirspurn áður en
viðkomandi lög tækju gildi.
Hins vegar hefur Edward M.
Kennedy öldungadeildarþing-
maður krafizt þess í kosninga-
baráttu sinni undanfarið að
bannaðar verði allar hækkanir
á kaupgjaldi og verðlagi næsta
hálfa árið, en því næst taki við
samningsbundið eftirlit með
hækkunum.
Ummæli Bosworths komu
fram á fundi hans með fjárlaga
nefnd Öldungadeildar þingsins,
og sagði hann að víðtækra
aðgerða væri þörf til að ná
tökum á verðbólgunni. Auk lög-
bundins eftirlits með kaup- og
verðhækkunum þyrfti að draga
úr ríkisútgjöldum, minnka inn-
flutning á olíu um 10—15% og
takmarka húsbyggingarlán.
Bosworth sagði að draga
mætti úr olíuinnflutningnum
með bensínskömmtun eða 50
senta skatti á bensíngallon (um
kr. 50 á lítra). Taldi hann líklegt
að almenningur gæti betur sætt
sig við skömmtun, en spáði því
að yfirvöld kysu heldur auka-
skattinn, sem auðveldari væri í
framkvæmd. _
PIERRE Trudeau gekk ekki einungis vel í kjörkleí-
unum í kosningunum á dogunum. Meðan kjöríund-
ur stóð sem hæst brá hann sér á skauta í Toronto og
stormaði þar að sjálfsögðu fram úr öðru skauta-
fólki.
Allir kusu
allir kjörnir
Movskvu. 28. febrúar. AP.
TASS fréttastofan sovéska skýrði
frá því í dag að í kosningum til
Æðsta ráðs Sovétríkjanna síðast-
liðinn sunnudag hafi kosninga-
þátttaka náð 99.99% í öllum
ríkjum Sovétríkjanna nema
Rússlandi. þar sem þátttakan var
99,98%.
Samkvæmt lögum geta kjósend-
ur annað hvort greitt frambjóð-
anda kommúnistaflokksins at-
kvæði, eða látið vera að kjósa
hann. Voru allir frambjóðendur
kjörnir, en fæst atkvæði hlutu
frambjóðendur í Rússlandi,
99,90% greiddra atkvæða. Bæði í
Georgíu og Azerbajan fengu fram-
bjóðendur flokksins 99,99%
greiddra atkvæða. íbúafjöldi Sov-
étríkjanna er nú 264,5 milljónir,
og af þeim greiddu 176,5 milljónir
atkvæði, eða 66% þjóðarinnar.
Meðal þeirra, sem náðu end-
urkjöri, var Leonid I. Brezhnev
forseti.
Stálverkamenn
snúa til vinnu
Lundúnum. 28. febrúar. AP.
ÞÚSUNDIR brezkra stálverka-
manna. sem starfa hjá fyrirtækjum í
einkaeign. sneru aftur til vinnu í
gær en aukinnar andstöðu gætir við
verkfal) stálverkamanna brezka
rikisfyrirtækisins „British Steel“.
Verkamennirnir sem sneru aftur til
vinnu starfa við fyrirtæki í Mersey-
side og Sheffield. Á mánudag sneru
800 verkamenn aftur til vinnu í
Kent.
Aukinnar andstöðu hefur gætt við
verkfallið eftir að verkamenn í
bílaiðnaðinum og velskir kolanámu-.
menn greiddu atkvæði gegn því að
fara í verkfall. Verkamenn ríkisfyr-
irtækisins „British Steel“ sögðu í dag,
að þeir mundy halda baráttu sinni
áfram en þeir' hafa nú verið átta
vikur í verkfalli.
Grænlendingar taka harð-
ar á landhelgisbrotum
- skipstjóri v-þýzka verksmiðjuskipsins fyrir rétti í Nuuk
Nuuk — 27. fehrúar — frá Philip
Lauritsen. fréttaritara Mbl.
GRÆNLENZK stjórnvöld hafa herzt í afstöðu sinni gagnvart landhelgisbrjótum á Grænlandsmiðum, en
þegar mál v-þýzka togarans Heidelberg kom i gær fyrir landsrétt i Nuuk, sem áður hét Godtháb, var visað
frá kröfu um að togarinn fengi að láta úr höfn, þrátt fyrir það að fyrri togarinn, sem mál var höfðað gegn
vegna ólöglegra þorskveiða á Grænlandsmiðum, fengi á sínum tima leyfi til að iáta úr höfn i Grænlandi
gegn tryggingu að upphæð þrjár milljónir danskra króna. V-þýzka útgerðarfyrirtækið Nordsee Deutsche
Hochseefischerei, sem Unilever er helzti hluthafi i, krafðist þess fyrir landsrétti að skipstjóri togarans væri
sýknaður og skipið fengi að láta úr höfn þegar i stað. Skipið hefur legið við bryggju i Nuuk frá þvi að það
var staðið að ólöglegum þorskveiðum á Grænlandshafi, þ.e. sundinu milli Grænlands og tslands.
Skipstjóri Heidelbergs er ák- töku þess og að hafa þannig reynt um að hafa reynt að flýja af
ærður fyrir að hafa stundað ólög-
legar þorskveiðar vitandi vits, auk
þess sem hann hafi reynt að falsa
skýrslur í því skyni að villa um
fyrir yfirvöldunum í Grænlandi.
Þá er skipstjórinn sakaður um að
hafa reynt að færa sér í nyt að
skip hans var statt úti á rúmsjó er
fiskveiðieftirlitið tilkynnti um
að hindra yfirvöld við löggæzlu.
Fyrir réttinum í gær viður-
kenndi skipstjóri togarans að
þorskur hefði verið umfram leyfi-
legt hámark í aflanum. Þá viður-
kenndi hann að hafa falsað skýrsl-
ur. Á hinn bóginn neitaði hann að
hafa veitt þorskinn vísvitandi, auk
þess sem hann vísaði á bug ákæru
Þetta geróist 29. fehrúar
1964 — Tilkynnt um leynismíði
bandarískrar þotu sem flýgur
2.000 mílur á klst. í 70.000 fetum. 1
1960 — Jarðskjálftinn mikli í
Agadir, Marokkó.
1956 — Pakistan verður isl-
amskt lýðveldi.
1952 — Stjórn Edgar Faure
fellur í Frakklandi og Antoine
Pinay myndar stjórn.
1944 — Bandarískt herlið gerir
árás á Admiralty-eyjar á Kyrra-
hafi.
1932 — Uppreisn fasista hefst í
Finnlandi.
1928 — Bandaríski ofurstinn
Harry L. Stimson kemur til
Manila og tekur við embætti
landstjóra á Filipseyjum.
1920 — Stjórnarskrá Tékkó-
slóvakíu tekur gildi.
1916 — Skipun Þjóðverja um að
skjóta vopnuð kaupskip tekur
gildi.
1912 — Herbylting í Peking.
1892 — Samningur Breta og
Bandaríkjamanna um Bering-
sund.
1872 — Ungur byltingarmaður
reynir að ráða Viktoríu Eng-
landsdrottningu af dögum.
1832 — Nýja-Granada í Suður-
Ameríku fær stjórnarskrá þar
sem gert fer ráð fyrir lýðveldis-
stjórn.
1720 — Ulrica Svíadrottning
afsalar sér völdum við eigin-
mann sinn Friðrik I, prins af
Hessen-Kassel.
Afmæli — Gioacchino Rossini,
ítalskt tónskáld (1792-1868) =
Michele Morgan, frönsk leikkona
(1920—) = Louis Joseph de
Montcalm, franskur hermaður
(1712-1759).
Andlát — 1528 Patrick Hamil-
ton, skozkur mótmælandi-
píslarvottur (brenndur á báli).-
Innlent — 1884 „Fjallkonan"
hefur göngu sína » 1920 f.
Klemenz Jónsson leikari.
Orð dagsins — Engin rós er án
þyrna — Ókunnur höfundur.
hólmi. Fyrir réttinum var lögð
fram skýrsla yfirvalda um aflann
í togaranum, en við rannsókn
hafði komið í ljós að tveir þriðju
hlutar aflans var fiskur, sem
ólöglegt er að veiða á þessum
miðum. í aflanum voru aðeins 39
tonn af karfaflökum, en karfa
hafði togarinn heimild til að veiða,
en 179 tonn af þorskflökum, auk
verulegs magns af þorskmjöli.
Þorskveiðar eru bannaðar á svæð-
inu.
Komist rétturinn að þeirri
niðurstöðu að skipið, sem er verk-
smiðjuskip, hafi verið að vísvit-
andi ólöglegum þorskveiðum, eru
líkur á að afli og veiðarfæri verði
gerð upptæk.
Fyrir réttinum neitaði skip-
stjórinn því ekki að aflatölur þær,
sem saksóknarinn lagði fram,
væru réttar, en hélt því fram sér
til málsbóta, að hann hefði ekki
tekið við stjórn skipsins fyrr en 2.
febrúar, þegar fyrri skipstjórinn
hefði veikzt. „Hvað hefur gerzt
undir hans stjórn verður hann
sjálfur að segja til um,“ sagði hinn
fertugi v-þýzki skipstjóri. Verk-
smiðjutogarinn Heidelberg hefur
verið að veiðum frá því fyrir
áramót.
1 Um meinta flóttatilraun hafði
skipstjórinn það að segja, að hann
hefði að vísu heyrt fyrirmælin um
að hann ætti að halda til hafnar í
Nuuk, en uppnám hefði verið um
borð, auk þess sem hann hefði rétt
fengið orðsendingu um að feng-
sælt væri við Suðureyjar. „Eg
slökkti á radíóinu og setti á fulla
fart í austur," sagði skipstjórinn.
Næsta morgun, hinn 19.
febrúar, kvaðst skipstjórinn hafa
tekið eftir því að eftirlitsskipið
elti Heidelberg enn og hefði hann
því sett sig í samband við útgerð-
arfyrirtæki sitt. „Þar fékk ég
fyrirmæli um að halda til
Godthab," sagði hann.
Búizt er við því að réttarhöldun-
um ljúki ekki fyrr en eftir nokkra
daga. Danski sjávarútvegsráð-
herrann, Poul Dalsager, er kom-
inn til Nuuk vegna þessa máls til
skrafs og ráðagerðar við græn-
lenzku landsstjórnina.
Aðskilnaður
mistókst
llouston. Ti'vas.
28. írb. \I».
í GÆR reyndu læknar við
barnasjúkrahúsið í Houston
að aðskilja Síamstvíbura frá
Puerto Rico, en tvíburarnir.
24 daga gamlar stúlkur.
létust.
Tvíburasysturnar Ivette og
Ivonne Morales vógu samtals
aðeins 3,28 kíló, eða um 13
merkur. Ivette lézt á skurðar-
borðinu, og Ivonne þremur
klukkustundum síðar.