Morgunblaðið - 29.02.1980, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 1980
27
INNLENT
TÓNLEIKAR á vegum Tónlist-
arskólans í Reykjavík og Sinfóníu-
hljómsveitar Islands verða haldn-
ir í Háskólabíói n.k. laugardag 1.
mars kl. 14.30. Einleikari í píanó-
konsert nr. 1 eftir Liszt verður
Jónas Sen, nemandi í Tónlistar-
skólanum í Reykjavík, og er það
liður í einleikaraprófi hans frá
skólanum. Önnur verk á tónleik-
unum eru forleikur að óperunni
Rúslan og Lúdmíla eftir Glinka og
Rapsódía nr. 1 eftir Georges
Enesco.
Hljómsveitarstjóri er Páll
Pampichler Pálsson. Þetta er í
annað sinn sem Tónlistarskólinn í
Reykjavík og Sinfóníuhljómsveit
íslands hafa samvinnu á þennan
hátt. Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
V atnslitamy ndir
á Snerru-lofti
MAGNÚS Jóhannesson sýnir eða frá síðastliðnu sumri. Sýn-
um þessar mundir 21 vatnslita- ingin er opin alla daga á verslun-
mynd á SNERRU-lofti í MOS- artíma og um helgar frá 14.00 til
FELLSSVEIT. Myndirnar eru 18.00 fram til 10. mars. Aðgang-
allar til sölu og eru flestar nýjar ur er ókeypis.
Þessar bráðfallegu ungu stúlkur frá Víðistaðaskóla
í Hafnarfirði voru í tvo daga í vikunni í starfskynn-
ingu á Morgunblaðinu. Litla grein sögðust þær
stöllur hafa gert sér fyrir þeirri miklu og fjölþættu
vinnu, sem býr að baki blaðaútgáfu, en vonandi eru
þær nú að fróðari. Á myndinni eru Ólöf Magnúsdótt-
ir og Sif Gunnlaugsdóttir en á myndina vantar
Arnfríði Methúsalemsdóttur.
Ráðstefna um
móðurmáls-
kennslu
LAUGARDAGINN 1. mars gang-
ast Samtök móðurmálskennara
fyrir ráðstefnu um íslensku-
kennslu á framhaldsskólastigi.
Ráðstefnan yerður haldin í Kenn-
araháskóla íslands og hefst klukk-
an 13.00.
Undanfarna mánuði hefur
starfað nefnd skipuð af mennta-
málaráðherra eftir tilnefningu
Samtaka móðurmálskennara. Var
nefndinni falið-að gera tillögur um
samræmda námsskrá í íslensku
fyrir framhaldsskólastigið. A
ráðstefnunni á laugardaginn mun
nefndin leggja fram fyrstu hug-
rnyndir sinar í þessu efni til
untræðu og athugunar fyrir fé-
lagsmenn.
Söfnun til hjálp-
ar flóttafólki
frá Afganistan
NÝLEGA harst Kauöa krossi
íslands hjálparheiðni frá Alþjóða-
samhandi Rauða kross félaga vegna
flóttafólks frá Afganistan. sem
streymir yfir landamærin inn í
Pakistan. Stjórn RKÍ ákvað þá
þegar að senda 2 milljónir krónáúr
hjálparsjóði félagsins til aðstoðar
þessu fólki.
1 skeyti Alþjóðasambandsins segir.
að miðað við núverandi ástand sé
þörf á fjárframlögum að uppha'ð 14
milljónir svissneskra franka. Fratn-
lög til hjálparstarfsins námu þá
rúmlega einni milljón franka. Talið
er að allt að 500.000 flóttamenn geti
enn bæst við þau 500.000 sem þegar
hafa flúið land. Fólk þetta fer matar-
og klæðlítið yfir fjallvegi og er talið
að þegar hafi margt harna orðið úti á
leiðinni. Upplýsingafulltrúi Alþjóða
RK, David Bedford, sem heimsótti
norðvestur-héruð Afghanistans um
ntiðjan þennan mánuð, telur að mikil
neyð eigi enn eftir að koma í Ijós þar
unt slóðir. Sagðist hann hafa séð
aldrað fólk sofa úti, klæðlítið.
— I tjaldbúðum sem ég heimsótti,
sagði hann, — hlupu börn unt
berfætt og hósti þeirra yfirgnæfði
önnur hljóð. Þúsundir flóttamanna
þarna eru hvergi skráðar sem slíkir
og hafa engrar hjálpar notið.
Óttast er að með vorinu, þegar
mjög hitnar í veðri á þessu svæði,
geti farsóttir brotist út.
Rauði kross íslands vill benda
þeini sem vilja aðstoða flóttafólk frá
Afganistan á gírónúmer hjálparsjóðs
félagsins, 90000—1. Þótt skanimt sé
stórra högga í milli í erlendri neyðar-
hjálp, þá er vonast til að enn sé
möguleiki á að fólk geti lagt eitthvað
af ntörkum.
(Fréttatilkynning frá Rauða kross
íslands)
Skuggi er á hjá mörgum
bændum þar sem efnaleg
afkoma er til muna verri
nú en áður og ekki sjáanleg
breyting þar á. Fiskafli
togara hefur verið með
ágætum góður og má segja
að varla hafi hafst undan
Jónas Sen við flygilinn.
Tekur einleikarapróf frá
Tónlistarskólanum í Rvík
Brákaðist á hrygg
er bíllinn f auk
Hveragerði. 28. febr.
TVEIR ungir menn úr Hvera-
gerði meiddust er bíll þeirra
fauk neðst á Sandskeiði í óveðr-
inu á mánudagsmorgun. Fór
bifreiðin, sem er Willys-jeppi
með blæjum, a.m.k. eina veltu
og stöðvaðist loks á hliðinni. Er
hún mikið skemmd, m.a. lögðust
blæjurnar alveg saman. Eigandi
bílsins, Haukur Svavarsson, er
talinn brákaður á hrygg og er á
sjúkrahúsi en farþeginn, Ari
Axelsson, skarst í andliti en
fékk að fara heim að rannsókn
Tantrisk
hugleiðsla,
endurholdgun,
„karma“,
hugvíkkun
HVERN laugardagseftirmið-
dag kl. 14.00—16.00 er í
Aðalstræti 16, 2. hæð, opið
kynningarnámskeið í hug-
myndafræði PROUT. Hvern
laugardag eru tekin fyrir
ákveðin atriði hugmynda-
fræðinnar. Heimilt er að
sækja hluta námskeiðsins og
er það opið nýjum þátttak-
endum á meðan það stendur
yfir, en því lýkur laugardag-
inn 22. mars.
Næstkomandi laugardag 1.
mars (kl. 14.00—16.00), verður
fjallað um tantríska hug-
leiðslu, hagnýtar þroskaæf-
ingar, endurholdganir,
„karma", gervivitund/sjálf,
orkumiðstöðvar líkamans. Út-
skýrð verða hugtök eins og
„samskara", „guru“, „tan-
matra" o.fl.
Þeir, sem hafa áhuga á að
læra hugleiðslu, líkamlegar
jógaæfingar eða fá aðrar hag-
nýtar leiðbeiningar, geta feng-
ið aukatíma.
Námskeiðið og öll kennsla
ér ókeypis.
(Fréttatilkynning frá Þjóð-
málahreyfingu Islands.
lokinni. Þeir félagar stunda
nám í Reykjavík og voru á leið í
skólann að loknu helgarleyfi.
Hér í Hveragerði var hið
versta veður þennan dag en ekki
er mér kunnugt um önnur slys
eða óhöpp en þess má geta, að
rafmagn- og símasamband hef-
ur verið mjög skrykkjótt hér
síðustu daga.
— Sigrún
Aukasýning
á Kabarett
ARISTÓFANES, leikklúbbur
nemenda í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti, verður með sérstaka
aukasýningu á söngleiknum Kaba-
rett í Breiðholtsskóla í kvöld
klukkan 20.30. Uppselt hefur verið
á síðustu sýningar og því var
ákveðið að hafa þessa aukasýn-
ingu. Um 20 leikendur eru í
þessari uppfærslu á Kabarett auk
hljómsveitar, en leikstjóri er Sig-
rún Björnsdóttir.
Höfðaströnd:
Ba‘. Höfðaströnd, 28. feb.
MJÖG óstillt er til lands
og sjávar. Stórviðri hafa
komið, þar sem jafnvel
bílar hafa fokið af vegum,
en manntjón hefur ekki
orðið, svo vitað sé. Skaga-
fjörður mun jafnvel stund-
um hafa orðið miili veðra.
Jörð er að mestu rauð,
klaki u.þ.b. eitt og hálft fet
í jörðu og mjög lítill þar
sem snjór liggur yfir. Fén-
aði hefur víða verið beitt en
gefið kjarnfóður með beit-
inni. Hafa því hey sparast
mjög mikið en kjarnfóður
verið mikið keypt. Hross
eru í haustholdum. Víða sér
maður nýborinn húsdýra-
áburð á túnum og yfirleitt
er tíðarfarið mjög ólíkt og
1979. Vegir eru alls staðar
auðir en nokkuð misjafnir
vegna þíðviðra sem hafa
komið og mikillar umferð-
ar.
Á þorranum var blótað
mjög víða og leið ekki sú
helgi að hákarl, súrmatur
og annað sælgæti væri ekki
á borðum. Er þetta orðið
vani og einnig er nú að
koma tími árshátíða félaga.
Eru því Skagfirðingar að
venju syngjandi glaðir
enda hafa söngkórar verið
mjög mikið við æfingar.
Karlakórinn Heimir æfir
til utanlandsferðar og
margir aðrir kórar eru við
æfingar.
að vinna. Margar húsmæð-
ur í sveitinni eru í vinnu í
frystihúsinu á Hofsósi en
láta bændum sínum eftir
húsverkin en ungbarna-
pössun hefur verið komið
upp á Hofsósi vegna mikill-
ar vinnu, sem foreldrarnir
þurfa að inna af hendi.
Annars veit ég ekki nema
vellíðan sé yfirleitt hjá
fólki.
— Björn.
Óstillt vedur til
lands og sjávar