Morgunblaðið - 29.02.1980, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 1980
31
bæði Carter forseti og Vánce
utanríkisráðherra mótmæltu
þessu, bað stjórnin í Moskvu
námsmennina fyrir siðasakir að
sleppa gíslunum, en tók síðan upp
fyrri hætti. írönsku námsmenn-
irnir þóttust fullvissir um stuðn-
ing stórnvalda í Moskvu og þegar
þeim var sagt að Bandaríkjamenn
færu ef til vill fram á að Samein-
uðu þjóðirnar beittu Iran refsiað-
gerðum, svöruðu þeir því til að
sovézki fulltrúinn mundi beita
neitunarvaldi gegn slíkri tillögu.
Meðan þessu fór fram var
Khomeini undir tvíþættu álagi frá
Moskvu. Hægt var að treysta
hinum Moskvusinnuðu háskóla-
stúdentum til að halda honum við
efnið en ef það reyndist ekki nóg
var hægt að þvinga hann með því
að styðja aðskilnaðarhreyfingar í
Azerbaijan og Kúrdistan. Um-
mæli Sovétmanna, sem fólu í sér
stuðning við uppreisnarmenn og
hvatningu til Khomeinis um að
ganga að kröfum þeirra, bentu til
þess að Kremlverjar væru að
notfæra sér þá. Það einkennilega
er, að á þessum slóðum og í
Indó-Kína hafa Rússar beitt Búlg-
örum fyrir sig, og það næsta, sem
þeir hafa komist því að viður-
kenna aðild sína, var að neita því,
að Búlgarar sæu uppreisnar-
mönnum gegn Khomeini fyrir
vopnum.
Sennilegt er, að hugmyndin um
réttarhöld yfir starfsmönnum
bandaríska sendiráðsins eigi ræt-
ur að rekja til Moskvu, og að
fyrirmyndin sé réttarhöldin yfir
Pol Pot og Ieng Sary í Kampútseu.
Þeir voru dæmdir til dauða að sér
fjarstöddum í viðurvist hóps
manna, sem í voru ýmsir erlendir
lögfræðingar, flestir hlynntir Sov-
étríkjunum, og fulltrúar ýmissa
samtaka á snærum Sovétmanna,
svo sem Heimsfriðarráðsins,
Bandalags um samstöðu Afríku og
Asíuríkja, og Alþjóðasambands
lýðræðissinnaðra lögfræðinga.
Það virðist eðlilegt að álykta að
sýndarréttarhöld yfir Bandaríkja-
mönnunum séu hluti af upphaf-
legri áætlun um töku sendiráðsins
í Teheran. Þau væru niðurlægj-
andi fyrir Bandaríkin og sigur
fyrir sovézkan áróður.
Blásið í glæðurnar
Tvö grundvallarmarkmið í
stefnu Sovétmanna eru að hvetja
til kynþáttastríðs í Bandaríkjun-
um, með því að egna svarta menn
gegn hvítum, en það er hluti
víðtækari áætlunar um að eggja
„þriðja heiminn" gegn „heims-
valdastefnu Bandaríkjanna". Það
að Khomeini sleppti svörtum
starfsmönnum sendiráðsins og sú
krafa hans að svertingjar yrðu í
hópi bandarísku prestanna, sem
leyft var að koma í sendiráðið til
að halda jólaguðsþjónustur, var
merki til bandarískra svertingja
um að stjórn Khomeinis styðji þá
í baráttunni gegn hinum hvítu
bandarísku „kúgurum".
Innan „þriðja heimsins" hafa
Rússar beint athygli sinni sér-
staklega að löndum múhameðs-
trúarmanna, en söguleg og stund-
um ofstækisfull andúð þeirra á
vestrænum háttum var eins og
púðurtunna, sem aðeins beið eftir
neista. Árásin á moskuna í Mekka
var gerð af útsendurum Suður-
Jemens, sem er hliðhollt stjórn-
völdum í Moskvu. í löndum mú-
hameðstrúarmanna lögðu menn
víða trúnað á þá sögu, sem áróð-
ursvél Sovétmanna breiddi út, að
þarna hefðu verið að verki út-
sendrarar CIA, en harðorð mót-
mæli stjórna Bandaríkjanna og
Saudi-Arabíu megnuðu ekki,
fremur en venjulega, að kveða
niður orðróminn.
Hvað um framtíðarhorfur?
Jafnvel þótt Rússar hefðu fyrir
siðasakir samþykkt kröfur Banda-
ríkjamanna um að Öryggisráðið
samþykkti refsiaðgerðir, þá hefði
það í reynd ekki komið í veg fyrir
að þeir sendu Irönum vörur yfir
hin löngu sameiginlegu landa-
mæri. Það hefur ekki valdið þeim
erfiðleikum að sjá Indó-Kína fyrir
nauðsynjum þótt fjarlægt sé.
Þótt refsiaðgerðir kæmu að litlu
haldi gegn Ródesíu og Suður-
Afríku, eru aðalnotin af Samein-
uðu þjóðunum þau að hlera undir-
tektir „þriðja heimsins" við áróðri
Sovétríkjanna. Hvað um hafn-
bann? Það þyrfti ekki að reynast
áhrifaríkara en það, sem Sovét-
stjórnin kallar „hafnbann" Banda-
ríkjamanna á Kúbu. En ein-
hverskonar hernaðaraðgerðir?
Net róttæklinga við bandaríska
háskóla og íranskir námsmenn
þar mundu skipuleggja samskonar
mótmæli og þau sem heftu
stríðsreksturinn í Vietnam.
Algert öngþveiti gæti tekið við í
íran, Khomeini yrði þá kastað
burt eins og slitnu fati og Tudeh
flokkurinn, með aðstoð Sovétríkj-
anna, mundi hirða völdin upp af
götunni, eins og Lenin orðaði það.
Milli tveggja elda
Hernám Sovétmanna í Afghan-
istan í kjölfarið á morðunum á
Taraki og Amin, sem báðir töldu
sig njóta fulls stuðnings Kreml-
verja, kom óþyrmilega við jafnvel
dyggustu handbendi þeirra í Te-
heran. Það rann skyndilega upp
fyrir þeim að sömu örlög gætu
beðið þeira sjálfra, og að maður á
borð við Babrek Karmal, enn
dyggari Sovétríkjunum, gæti kom-
ið í þeirra stað. Hinn angi
klípunnar var að Iran treysti því,
að Sovétríkin beittu neitunarvaldi
sínu gegn refsiaðgerðum hjá Sam-
einuðu þjóðunum. Byltinarráðið
birti efni orðsendingar til sovézka
sendiráðsins þess efnis, að innrás
Sovétmanna í Afghanistan væri
óvinveitt aðgerð og vekti andúð
hvarvetna í heiminum. Þetta var
dulbúin hótun um að íranir gætu
beint andúð múhameðstrúar-
manna frá Bandaríkjunum gegn
Sovétríkjunum og að íran gæti
tekið upp sömu afstöðu gegn
Afghanistan og Egyptar gagnvart
Lybíu. Enn heldur hið austræða
pókerspil áfram.
Það kann að verða þörf á
einbeittum og sjálfstæðum að-
gerðum af hálfu Bandaríkja-
manna, en við skulum vona að
gíslunum verði sleppt og að málið
fjari út. Þótt við verðum að gera
okkur grein fyrir, að Rússar hafa
sömu afstöðu gagnvart íran og
Bandaríkin gagnvart Mexíkó,
(þótt Sovétstjórninni hafi tekizt
bærilega að koma á jafnvel hern-
aðarlegum samskiptum við Mex-
ikó) þá hvetja Bandaríkin ekki til
töku sendiráða og hryðjuverka um
allan heim. Það er víst, að ef
Bandaríkjamönnum tekst ekki að
bregðast við þessari ögrun á
réttan hátt, verður aðeins eitt
risaveldi eftir.
1 1 \ W~ -1
k. ;
gJL / J
Leikarar, leikstjóri og aðrir aðstandendur Skagaieikflokksins sem sýnir gaman- og ærslaleikinn Allir i verkfall.
Allir í verkf all á Skaganum
Skagaleikflokkurinn frumsýnir
2. verkefni vetrarins 29. feb. kl.
20.30 i Bióhöilinni á Akranesi.
Þetta er léttur gaman- og ærslaleik-
ur fyrir alla fjölskylduna. eftir
Duncan Greenwood. og heitir „Allir
i verkfaiP. Æfingar hófust um
miðjan janúar undir stjórn Sigur-
geirs Schevings, scm sviðsetti
„Linu langsokk" með Skagaleik-
flokknum fyrr í vetur við mjög
góða aðsókn. Vöktu þær sýningar
mikla ánægju jafnt hjá eldri sem
yngri áhorfendum.
„Allir í verkfall" gerist á okkar
tímum í Englandi og fjallar á
gamansaman hátt um þau vandræði
sem verða þegar húsmóðirin fer í
verkfall. Leikurinn fer allur fram á
heimili Hellewell-hjónanna, en þau
eru leikin af Kristínu Magnúsdóttur
og Þorsteini Ragnarssyni, dóttur
þeirra og tilvonandi tengdason leika
Alfa Hjaltalín og Þórður Sveinsson
og auk þess koma við sögu ýmsir
einkennilegir leigjendur, sem eru
leiknir af Valgeiri Skagfjörð, Þórey
Jónsdóttur, Þórhildi Björnsdóttur,
Helgu Brögu Jónsdóttur og Önnu
Hermannsdóttur. Aðrir starfsmenn,
við ljós, leiktjöld, leikmuni og bún-
inga, eru um tíu talsins. Næstu
sýningar verða laugardag 1. mars kl.
16.00 og sunnudag 2. mars kl. 16.00.
Þetta er 11. verkefni Skagaleik-
flokksins og væntanlega láta Akur-
nesingar og nágrannar þetta tæki-
færi til að létta skapið í skammdeg-
inu ekki fram hjá sér fara.
VIÐ LIKAMA ÞINN ENNÞA?
BRITTANIA, FURDULEGA FRÁBRUGDNAR
SKYRTUR, JAKKAR, BUXUR.
ERU HVARVETNA AD YFIRTAKA LÍKAMANN.