Morgunblaðið - 26.07.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 26.07.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ1980 5 bað var hörku keppni i kassabilaþeysunni og öku- mennirnir létu gamminn geisa. Það var hörku keppni i kassabilaþeys- unni og ökumennirnir létu gamminn geisa. ÞAÐ var mikið um að vera á Strandgötunni i Hafnarfirði er blaðamann og ljósmyndara Morgunblaðsins bar þar að um tvöleytið í gær. Þar stóð yfir kassabilaþeysa og hafði Strandgötunni verið iokað frá pósthúsinu að Reykjavikurvegi. Keppendur voru fjöimargir og farartækin allsundurleit enda hver farkostur sérhannaður. Að kassabilaþeysunni lokinni var hjólreiðakeppni en siðan keppt i pokahlaupi og sigling- um. Uppákomur þessar voru gerð- ar í tilefni þess að í gær var vinnuskóla Hafnarfjarðar slitið. Að sögn Ingvars Viktorssonar, skólastjóra Vinnuskólans, voru 1700 unglingar í skólanum í sumar, þar af 340 á launaskrá. Auk unglingavinnunnar er Vinnuskólinn með íþróttanám- Kassabílaþeysa í Hafnarfirði skeið, skólagarða og starfsvelli á sínum vegum. Meðal þátttakenda í kassa- bilaþeysunni voru þeysukapp- arnir Ómar Ragnarsson, Haf- steinn Aðalsteinsson og Haf- steinn Hauksson. Kepptu þeir í sér riðli og sigraði Ómar eftir geysiharða og spennandi keppni. Blaðamaður Morgunblaðsins átti stutt spjall við Ómar og var hann fyrst spurður hvað hann vildi segja um sigur sinn í þessari keppni: „Ég sigraði fyrst og fremst vegna þess hve bíllinn var vel smurður", sagði Ómar, „það var reyndar engu líkara en smurolíunni hafi verið hellt yfir hann. Eins var þessi bíll alveg sérstaklega vel búinn, — það var í honum varadekk, gír og meira að segja svisslykill, sem getur komið sér mjög vel að hafa.“ Þá var Ómar spurður hvort hann væri genginn í barndóm eða hvort hann hyggðist leggja þessa íþrótt fyrir sig. Það var Baldvin Kr. Baldvinsson sem varð sigurvegari i kassabilaþeysunni. Hann sést þarna halda verðlaununum á lofti en að baki honum stendur ómar Ragnarsson sem sigraði í flokki stóru strákanna. „Við sem stundum bílþeysur erum allir fyrir löngu gengnir í barndóm og ég skammast mín ekkert fyrir að keyra kassabíl", svaraði hann, „munurinn á stóru strakunum og þeim litlu er ekki annar en sá að stóru strákarnir eru á dýrari leikföngum. — Ég hef ekki í hyggju að fara út í atvinnumennsku á þessu sviði enda ekki fengið tilboð um það. En ég á áreiðanlega eftir að keppa aftur á kassabíl — þetta er stórsniðug íþrótt", sagði Ómar að lokum. I yngri flokknum var keppni geysihörð og lengi tvísýnt um hver myndi hreppa efsta sætið. ‘Úrslitin urðu þannig í fyrsta sæti, Baldvin Kr. Baldvinsson á bíl nr. 22, vél: Þorvaldur Stef- ánsson. í öðru sæti Björn Þorf- innsson, á bíl nr 16, vélartegund Halli, í þriðja sæti Jóhann Har- aldsson á bíl nr. 12, vél: Margeir Sveinsson. - bó „Hef teiknað og málað síðan á unga aldri66 GUNNAR Halldór Sigurjónsson er með málverkasyningu i Eden, Hveragerði, þessa dagana. Þetta er önnur sýning hans þarna en áður hefur hann haldið átta einkasýningar og tekið þátt i fjöimörgum samsýningum. Á sýningunni eru 29 aktýl- og oliumyndir. Þær eru málaðar á siðustu tveim árum og eru allar til sölu. Sýningunni lýkur 31. þ.m. Morgunblaðið átti stutt spjall við Gunnar og sagði hann þá m.a.: „Ég er búinn að teikna og mála síðan ég var á unglingsaldri og hef ajltaf haft ákaflega gaman af því. Ég uni mér t.d. aldrei betur en þá góðviðrisdaga sem ég get farið eitthvað, helst langt frá Gunnar Halldór Sigurjónsson við eitt verkanna á sýningunni. mannabyggðum, og verið aleinn við að mála. Ég hef haldið nokkuð margar sýningar og alltaf selt vel enda hef ég reynt að vera sann- gjarn í verðlagningu á myndunum mínum og reyndar fengið ákúrur fyrir það hjá sumum. — Ég hef unnið rúma þrjá áratugi á Gufu- nesradíói og vann oft mikla yfir- vinnu, sérstaklega á sumrin. Það hafa því orðið heldur fáar frí- stundir hjá mér í gegn um árin og ég hef því ekki geta sinnt þessu hugðarefni mínu sem skyldi. Það lítur dálítið undarlega út, að þegar ég hætti í Gufunesi þá dreif ég mig á sjóinn. Ég var mestallan fjórða áratuginn loftskeytamaður á togaranum Garðari frá Hafnarfirði með Sig- urjóni Einarssyni, þeim fræga aflamanni, og langaði alltaf á sjóinn aftur. Ég stóðst því ekki freistinguna þegar ég átti kost á skipsrúmi á Bakkafossi í vetur. Þar hef ég verið síðan, en tók mér frí til að reka smiðshöggið á sýninguna sem nú stendur yfir í Hveragerði. Ég var víðs fjarri þegar hún var sett upp, um fimm sólarhringa siglingu frá íslandi, það voru strákarnir mínir sem sáu um þetta fyrir mig. Ég mun hér eftir, sem hingað til, nota allar mínar frístundir til að mála og hver veit nema komi stund og stund á sjónum til að grípa í það. Frí fær maður sér öðru hvoru og reynir að nota þau vel.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.