Morgunblaðið - 22.10.1980, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 22.10.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1980 23 1. des. efni Vöku: Háskóli og lýðræði Vaka, félag lýðræðissinn- aðra stúdenta, býður í ár fram efnið: Háskóli og lýð- ræði. Þessi tvö hugtök eru samtvinnuð í hugum fólks. Háskólar hafa frá örófi alda verið sannkallaðir hornstein- ar lýðræðisins. Þannig er málum háttað enn þann dag í dag. Hvort sem litið er til fasistaríkja S-Ameríku eða kommúnistaríkja A-Evrópu þá er uppspretta lýðræðis- og frelsishugmynda oftast inn- an veggja háskólanna. Skýr- asta dæmið þessu til stað- festingar eru atburðirnir í Póllandi. Þar hafa mennta- menn staðið dyggilega við hlið verkamanna í kröfugerð þeirra um sjálfsögðustu mannréttindi, gegn hinu kommúníska alræði þar sem einstaklingurinn má sín einskis gagnvart ofurvaldi ríkisins. Frelsi fræðimanna Það er deginum ljósara að menntamenn eru burðarás- arnir í andófshreyfingum al- ræðisríkjanna og þetta er valdhöfunum ljóst, enda hafa þeir lagt sig fram við að hafa eftirlit með og ofsækja þá einstaklinga sem tilheyra þessum hópi manna. Þannig eru alræðisríkin skýr stað- festing þess að nauðsynlegt er að tryggja sjálfstæði há- skólanna gegn ríkisvaldinu. Merking þessa er sú að nauð- synlegt er að fræðimenn fái frelsi við vísindaiðkanir sín- ar. Einnig ber að gæta þess að Háskólinn þarf að sinna þeim skyldum sem þjóðfélag- ið leggur honum á herðar. Þannig verður hann að gæta fyllsta hlutleysis í starfsemi sinni. Lýðræði innan Háskólans Á undanförnum árum hafa átt sér stað miklar umræður innan Háskólans um lýðræð- ið í HÍ. Stúdentar hafa öðlast rétt til þátttöku í ákvarðana- töku í mikilvægum málefn- um, bæði hvað varðar yfir- stjórn Háskólans og hinum ýmsu deildum hans. Nú stendur yfir endurskoðun á lögum um Háskóla íslands og hafa stúdentar borið fram kröfur um stóraukin áhrif þeirra á alla ákvarðanatöku í HÍ. Það er staðreynd að marxistar hafa ætíð nýtt sér margræðni hugtaka, bylting- armálstað sínum til fram- dráttar. Hugtakið lýðræði er engin undantekning frá þess- ari reglu, sem skýrt hefur komið fram í málflutningi þeirra undanfarin ár. Allt bendir nú til þess að þeir hyggist nota aukið lýðræði innan Háskólans til þess að stuðla að afnámi lýðræðis utan Háskólans. Vaka telur því eðlilegt að stúdentar geri upp hug sinn um framtíðar- skipan þessara mála og taki þau til rækilegrar athugunar. Menntun í þágu ...? Á háskólamenntun að þjóna einstakiingnum eða samfélaginu? Það er augljóst að ekki er rétt að setja þetta upp sem andstæður, þar sem einstaklingarnir þjóna oft hagsmunum samfélagsins þó að þeir hafi engin önnur markmið í huga en að þjóna eigin hagsmunum. Hins veg- ar er til svokölluð neyslu- menntun til aðgreiningar frá hagnýtri menntun. Neyslu- menntun er sú menntun, sem kemur að því er virðist ein- göngu nemandanum sjálfum til góða. Ljóst er þó að mörkin milli menntunar til nytjar og menntunar til neyslu eru óskýr. Miklar deil- ur hafa átt sér stað undan- farið um hversu miklu fjár- magni skuli varið í hvorn þáttinn fyrir sig. Á tímum tímabundinna efnahagsörð- ugleika hafa gjarnan heyrst raddir um að skorin skuli niður fjárframlög til neyslu- menntunar í Háskóla ís- lands. Réttlæting slíkra ráðstafana er vægast sagt mjög umdeilanleg, en í þess- um efnum þarf Háskólinn oft að sæta ákvörðunum misvit- urra stjórnmálamanna. Vaka telur varhugavert að fórna slíkri menntun með tilliti til þess gildis, sem hún hefur fyrir einstaklinginn. Háskólinn og almenningur Vaka vill vara við þeirri óheillaþróun, sem átt hefur sér stað undanfarin ár hvað varðar álit hins almenna skattborgara á Háskóla ís- lands. Það er staðreynd að Háskólinn hefur fallið í áliti hjá almenningi. Sú tíð er liðin að einstaklingar og fé- lagasamtök þeirra leggi fram stórar fjárfúlgur stúdentum til stuðnings. Frekar er litið á stúdenta sem stóran „ hóp kröfugerðarmanna, sem í raun sé ekkert annað en fjárhagslegur baggi á al- menningi. Orsök þessa vandamáls er augljós. Hana er að finna hjá þeim ábyrgð- arlausa róttæklingameiri- hluta, sem ríkjandi hefur verið í stúdentapólitíkinni undanfarin ár. Róttæklingar þessir hafa leyft sér að demba yfir lands- menn byltingarkjaftæði sínu í gegnum útvarpið á sjálfum fullveldisdegi íslendinga, 1. desember, nú um nokkurt skeið. Það er engum vafa undirorpið að yfirgnæfandi meirihluti íslensku þjóðar- innar hefur megnustu fyrir- litningu á blekkingaráróðri þessa fámenna hóps öfga- manna, að ekki sé talað um þá smekkleysu að velja 1. desember til flutnings þessa boðskapar. Hið kommúníska alræði og fullveldi íslands eiga ekkert sameiginlegt. Er ekki mál að linni. Kosið í dag KOSNINGAR til hátfðarnefnd- ar 1. desember fara fram á almennum fundi stúdenta i hátiðarsal Háskóia ísiands i dag, miðvikudaginn 22. októ- ber. Nefndin skal skipuð sjö mönnum er kosnir skuiu leyni- legri listakosningu. Fundurinn hefst með framsögu. Hver listi fær 30 minútur til ráðstöfunar og að því loknu hefjast almenn- ar umræður. Kosningarnar standa yfir frá kl. 20.00— 22.30. Fundurinn er opinn all- an timann. Vaka hvetur stúd- enta til þess að neyta kosn- ingaréttar síns og kjósa A-list- ann, lista Vöku. Framboðslisti VÖKU Gerður Thoroddsen, læknislræöi: Gunnar Jóhann Birgisson. lögtræði: Karitas Gunnarsdóttir, lögfræði; Kristinn Andersen, verkfræði; Lára Friðjónsdóttir, viðskiptafræöi: Óskar Einarsson, læknisfræði; Sveinn Guðmundsson, læknisfræði. Gerður Gunnar Jóhann Karitas Kristinn Lára Óskar Sveinn Mikið byggt í Stykkishólmi Stykkishólmi. 19. október. Byggingarframkvæmdir eru þó nokkrar og ný hverfi tekin í notkun. Áshverfi hefir verið skipulagt og mikið byggt þar nú á þessu ári. Einingahús ryðja sér til rúms og fleiri og fleiri byggja slík, þykja bæði hagkvæm og þægileg. Þrátt fyrir byggingarfram- kvæmdir virðist alltaf hörgull á húsnæði og sérstaklega leigu- húsnæði og háir þar að menn flytji hingað en á þessu ári hefir verið mikil atvinna og nóg að gera fyrir allar vinnufúsar hend- ur. — Fréttaritari Fastar áætlunarferðir. GAUTABORG Umboösmenn: Borlind, Bersén & Co. P.O.Box 2511 S-403 17 GÖTEBORG Skeyti: Borlinds Telex: 2340 borlind s Sími: 31/139122 SKIPADEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík Sími 28200 Telex 2101

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.