Morgunblaðið - 29.11.1980, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 29.11.1980, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980 27 Hátíð hjá Lang- holtssöfnuði Fyrsta sunnudag í aðventu fagnar Langholtssöfnuður því, að kirkjan er risin. Yfir mörg torleiði hefir verið að sækja, en það tókst, og skuldabaggalaust er staðnæmst við merkan leiðarstein. Okkur langar til þess að fagna þessu með þér, langar til að hafa samráð við þig um framhaldið. Vissulega er- um við ósköp stolt, trúum því, að borgin okkar verði meiri og betri eftir, þegar þetta hús, sem nú er risið, breytist í gróðurreit þeirrar framtíðar, er börn okkar eiga í vændum. Hér hljóta hjörtu okkar að slá í takt, bæn okkar að vera ein og hin sama. Því höfum við undirbúið komu þína á gleðidegi. Við hefjum daginn með því að fagna með börnunum. Það er kl. 11, og eins og venjulega verður þar margt til fróðleiks og skemmtun- ar. Barnastarfið hefir gengið ákaflega vel, afar og ömmur, pabbar og mömmur koma með börnum sínum, eru þeim til trausts og haids, og trúi menn því Basar Kvenf élags Hallgrímskirkju I DAG, laugardaginn 29. nóv. heldur Kvenfélag Hallgríms- kirkju basar i safnaðarheimilinu til ágóða fyrir kirkjuna, hefst hann kl. 14. Margt góðra muna verður þar á boðstólum, eins og venja hefir verið, sem seldir verða á hag- stæðu verði, svo að þeir, sem timanlega koma geta gert góð kaup. Konurnar í kvenfélaginu hafa verið mjög duglegar við fjáröflun fyrir kirkjuna, og lagt stóran skerf til kirkjubyggingarinnar, þá hafa þær einnig lagt sitt að mörkum í safnaðarstarfi. Ég vil þakka hin óeigingjörnu og fórn- fúsu störf. Ég vil hvetja velunnara kirkj- unnar til þess að fjölmenna á basarinn, gera þar góð kaup og styrkja gott málefni. Ragnar Fjalar Lárusson. ekki, að söfnuður geti verið virkur í starfi, þá ættu þeir hinir sömu að líta inn og sannfærast um hið gagnstæða. Nú, kl. 2, er guðsþjónusta, og í henni eigum við erindi við fólk sem lætur sig framtíðina varða, fólk sem skilur, að lífshamingjan verður aldrei af öðrum mönnum keypt. Við væntum tónunnenda, og það mun koma í ljós, hvaða erindi við eigum við þá. Eftir guðsþjónustuna verður gengið til nýrisinnar kirkju og hún skoðuð. Kl. 3 efnir Kvenfélagið til kaffi- sölu, og verður ágóðanum varið til kirkjubyggingarinnar. Síðan, um kvöldið kl. hálfníu, hefst aðventuhátíð. Til hennar er mjög vandað. Einn af orðsnjöll- ustu mönnum íslenzkrar þjóðar, Andrés Björnsson, útvarpsstjóri, fiytur ræðu. Leikarinn Jón Gunn- laugsson les upp. Listahjónin Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Jón Stef- ánsson flytja, í tónum, þýzkan ljóðflokk, og svo mun Jón stjórna kór Langholtskirkju. Við hikum ekki við að fullyrða, að frábær mun sú dagskrá vera, sem tekur þessa kvölds fram. Enginn þarf að sakna kvöld- kaffis, því að Bræðra- og Kvenfé- lag munu renna á könnuna og bjóða gómsætt meðlæti þeim er þess óska. Komdu, þú sérð að við eigum von á þér, og gleðjumst saman. Sóknarnefndin Italskt andrúmsloft f m m m JT m i eldhusinu ítalir eru sérfræöingar í matargerð og þaö eru þeir einnig í eldhúsum og eldhúsinnréttingum. Höfum tekið upp mikið úrval af eldhúsinnréttingum. KOMIÐ, SJAIÐ OG SANNFÆRIST Opið kl. 10—12. ÚSGAGNA- MIÐSTÖÐIN SKAFTAHLÍÐ 24, SÍMI 31633. 'U/J HVERJU MA EG TRUA? eftir Harold Sherman Þetta er einstök bók um lífsspeki eftir hinn mikla frömuð rannsókna á yfirskil- vitlegum fyrirbærum, höfund bókanna DULARMÖGN HUGANS, LÆKNINGAMÁTTUR ÞINN og AÐ SIGRA ÓTTANN. - Þeir sem glata trúnni lifa í ótta og óvissu um framtíðina, þá skortir öryggi. En er mögulegt að endurheimta það, sem glatazt hefur? Og hvernig vita menn hverju þeir mega trúa? Þessi bók er hreinskilið, presónulegt svar Harold Sherman við þessum brennandi spurningum. SÝNIR í SVEFNI OG VÖKU eftir Halldór Pjetursson Frá örófi alda hafa draumar og vökusýnir fylgt mannkyninu. Draumurinn er margslungið ævintýri, sem menn ráða á ýmsa vegu, jafnvel hefur hver ráðandi sína eigin lausn, sinn eigin lykil að leyndardóminum. Hér segir fjöldi kunnra manna frá draumum sínum og vökusýnum. Hver segir frá á sinn sérstæða hátt, en sem heild mynda frásagnir þeirra óvenjulega og forvitnilega bók, sem stór hópur lesenda mun fagna. SKUGGSJÁ BÓKABÚD OUVERS STEINS SE HÉRERBÓKIN!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.