Morgunblaðið - 29.03.1981, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 29.03.1981, Blaðsíða 28
68 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1981 COSPER Ég kom með hann til þess að hann gæti beðist fyrirgefningar! Já það er farið að þrenKjast um og nú verð ég að selja golfvell- Auli. þú gleymdir að kyssa mig ina mína í Bretlandi og i kveðjukossinn! Svíþjóð! HÖGNI HREKKVÍSI . þRJM M'NÚTlR 6T AF, O'lNA Upplýsir ekkert umfram það sem öllum er kunnugt Bjðrn Steffensen skrifar: „Enn á ný hefur Verðlagsstofn- un birt skýrslu um útsöluverð nokkurra vörutegunda í matvöru- búðum, til leiðbeiningar fyrir neytendur. Nú er ekki aðeins birt verð á sama vörumerki í ýmsum mat- vörubúðum, eins og áður var gert, heldur er líka birtur samanburður á verði á ýmsum merkjum sama vöruheitis í ólíkum gæðaflokkum, t.d. niðursoðnum baunum, rúsín- um, kakói, tómatsósu o.fl., alls 10 vöruheitum. Eins og 60—70% verð- bólga hafi farið framhjá Verðlagsráði Á hvern hátt þetta síðasttalda á að geta leiðbeint nokkrum manni er vandséð. Allir vita að vörur með sama heiti eru misjafnlega vandaðar og ljúffengar, og þar af leiðandi misjafnlega dýrar. Að bera saman verð á góðri vöru og miður góðri eða slæmri er, hátt- víslega orðað, bara einhverskonar meinloka, sem upplýsir ekkert umfram það, sem öllum er kunn- ugt, og er því ekkert efni til skýrslugerðar. Ekki er heldur auðskilið hvaða tilgangi það getur þjónað, í þjóð- félagi þar sem verðlag er ákveðið með lögum, að bera saman verð á sama vörumerki í ýmsum mat- vörubúðum. Það er eins og það hafi farið framhjá verðlagsstjóra að við búum við 60—70% verð- bólgu, og að kaupmenn eru háðir þeim ólögum, að vera bannað að hækka útsöluverð gamalla vöru- birgða, þótt innkaupsverð nýrra birgða hafi hækkað, t.d. vegna gengisfellingar. Bendir til að kaupmenn fari eftir settum reglum Nú er það vitað að einmitt þær vörur, sem Verðlagsstofnun nefnir í skýrslu sinni, þ.e. dósa- og pakkavörur, standa oft nokkuð lengi við í búðahillum, enda þola þær talsverða geymslu. Það væri því í meira lagi tortryggilegt ef þessar vörur væru ekki með mis- jafnlega háu verði i hinum ýmsu búðum, þar sem þær eru að sjálfsögðu keyptar inn á misjöfn- um tíma og þá á misjafnlega háu verði. Einmitt það, að verð þessara vara er mishátt i hinum ýmsu búðum, og það jafnvel stundum svo að um munar, bendir fyrst og fremst til að kaupmenn fari yfirleitt eftir settum regium og hækki ekkiútsöluverð gamalla birgða. Ég hefi jafnvel rekist á þrenns konar verð á nákvæmlega sömu vöru í einni og sömu búð. Margir kunningjar mínir hafa svipaða sögu að segja. Það er dálítið hlálegt að Verð- lagsstofnun skuli svo nota þessa lofsverðu staðreynd á þann hátt, sem mér virðist vera til þess eins fallinn að gera kaupmenn tor- tryggilega. Að neytendur fái um það vitn- eskju að hér og þar leynist í hillum slattar af gömlum vörum, réttlætir varla þessa umfangs- miklu skýrslugerð." Svolítil athugasemd Óánægðu skiðakapparnir Diddú og Didda skrifa: Kæri Velvakandi! Okkur langar til að koma á framfæri svolítilli athugsemd. Við erum tveir skíðakappar, sem höf- um mjög gaman af að fara í Bláfjöll um helgar. En eitt verðum við að setja út á þar, sem má alls ekki dragast að ráða bót á. Það er salernisaðstaðan, sem er fyrir neðan allar hellur. Ætti ekki að láta þetta viðgangast Vegna þess hve Bláfjöll eru vel sótt af skíðamönnum, ætti að hugsa örlítið meira um hreinlæt- isaðstöðu þar. Heilbrigðiseftirlitið ætti ekki að láta þetta viðgangast eins og það er. Fólk heldur í sér, þar til það er á síðasta snúningi, og oft hefur legið nærri, að við værum búnar að sprengja í okkur hlandblöðruna. Bráðum verða Bláfjöll talin ömurlegur skíða- staður ef ekki verður ráðin bót á hreinlætisaðstöðunni þar. Við skorum á heilbrigðiseftirlitið að taka til hendinni." Frumv. til barnalaga: Mun eiga að taka gildi við samþykkt Einstæð móðir skrifar: „Nú liggur fyrir alþingi frum- varp til barnalaga. Frumvarp þetta hefur legið fyrir alþingi síðan árið 1975. Slíkt framtaks- leysi þingmanna er þeim svo sannarlega til skammar að mín- um dómi. í þessu frumvarpi er kveðið á um meðlagsgreiðslur til 18 ára aldurs. Frumvarpið mun eiga að taka gildi við samþykkt. Þannig gæti farið svo, að barn sem yrði 17 ára deginum fyrir samþykkt þess, fengi ekki greiðslur. En barn sem yrði 17 ára deginum eftir samþykkt þess, fengi greiðslur. Mín skoðun er sú, að meira réttlæti væri fólgið í því, að lögin næðu til allra barna, sem ekki væru orðin 18 ára, án tillits til þess, hvenær lögin væru samþykkt."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.