Morgunblaðið - 17.05.1981, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 17.05.1981, Blaðsíða 30
70 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAI1981 Nýkjörín stjórn Heimdallar: Gunnlaugur Snædal kjörinn varaform. FYRSTI íundur nýkjörinnar stjórnar Heimdallar, samtaka unjjra sjálfstæðismanna í Rpykjavík, var haldinn í Valhöll á miðvikudagskvöldið. Arni Sigfússon blaðamaður var sem kunnugt er kjörinn formaður Ileimdallar á aðalfundinum um síðustu helgi, en á fyrsta stjórnarfundinum skipti stjórnin með sér verkum að öðru leyti. Gunnlaugur Snædal há- skólanemi var kjörinn vara- formaður, Ásdís Loftsdóttir fatahönnuður var kjörin rit- ari, og Þór Fannar verslunar- AIGIASIM.A- SÍMINN KR: 22480 maður var kjörinn gjaldkeri fyrir næsta starfsár. Óll voru þau kjörin samhljóða. Stjórnin hefur þegar tekið til við að skipuleggja starfið næsta ár, og er þar fjölmargt á döfinni. Næsta vetur mun starfsemi Heimdallar mjög taka mið af borgarstjórnar- kosningum í Reykjavík vorið 1982, en auk þess er unnið að undirbúningi félagsmálanám- skeiða, funda ýmis konar, unn- ið verður að uppbyggingu fé- lagsheimilis Heimdallar í Val- höll, ætlunin er að vinna að frágangi á lóð Sjálfstæðis- hússins, gefin verða út blöð um ferðamál og sjávarút- vegsmál, farið í gróðursetn- ingarferð í Heiðmörk og margt fleira. Ljósm: Ragnar Axelsson Nýkjörin stjórn Heimdallar á fyrsta fundi sinum i Valhöll: talið frá vinstri: Sverrir Jónsson, Jó- hannes Sigurðsson, Anders Han- sen, Viggó Viggósson, Helgi örn yiggósson formaður Dags FUS i Árbæjarhverfi, Gunnlaugur Snæ- dal varaformaður, Árni Sigfús- son formaður, Ásdis Loftsdóttir ritari, Jón Stefán Rafnsson for- maður Þórs FUS í Breiðholti, Sigurður Óiafsson og Þór Fann- ar gjaldkeri. Á myndina vantar tvo stjórnarmcnn, þá Gísla Þór Gíslason og örn Þorvarðarson. SINDRA STALHR Fyrirliggjandi i birgðastöö PRÓFÍLPÍPUR □ □□□t=H=3DODI=ll=lCIinOD Fjölmargir sverleikar. Borgartúni 31 sími27222 SINDRA STALHR Fyrirliggjandi i birgðastöð VÉLASTÁL Fjölbreyttar stæröir og þykktir • • • • ■ ■ ■---# t • sívalt ferkantaö flatt sexkantað Borgartúni31 sími27222 * Rithöfundasamband Islands: Nefnd endurskoð- ar lög og reglur rithöfundasjóðs AÐALFUNDUR Rithöfunda- sambands íslands var haldinn i apríl sl. og lauk þar með 7. starfsári þess eftir sameiningu rithöfundafélaganna tveggja. Félags islenskra rithöfunda og Rithöfundaféiags íslands. í ein sameiginleg hagsmunasamtök árið 1974. Félagar eru nú 217 talsins. í upphafi aðalfundar minntist formaður tveggja félaga, sem látist höfðu á starfsárinu, þeirra Eiríks Sigurðssonar, Akureyri, og Jakobs Jónassonar, Reykja- vík. Á fundinum voru kjörnir tveir menn í aðalstjórn, þau Úlfur Hjörvar og Ása Sólveig og vara- maður Anton Helgi Jónsson. Fyrir í stjórn eru: Njörður P. Njarðvík formaður, Þorvarður Helgason varaformaður, Pétur Gunnarsson og Guðmundur Steinsson. Félagslegir endur- skoðendur voru endurkjörnir: Ási íBæ og Jónas Guðmundsson. Rithöfundaráð skipa auk ofan- nefndra sjö stjórnarmanna: Guðbergur Bergsson, Olga Guð- rún Árnadóttir, Valdís Óskars- dóttir og Þorgeir Þorgeirsson. Varamenn: Elías Mar, Guðrún Helgadóttir, Hjörtur Pálsson og Þórarinn Eldjárn. Fulltrúi Rithöfundasam- bandsins í stjórn Bandalags ís- lenskra listamanna er Þórarinn Eldjárn. Menntamálaráðherra hefur skipað nýja stjórn Launasjóðs rithöfunda til þriggja ára sam- kvæmt tilnefningu stjórnar Rit- höfundasambandsins. Stjórnina skipa: Guðrún Bjartmarsdóttir, Heimir Pálsson, Reykjavík, og Tryggvi Gíslason, Akureyri. í frétt frá stjórn Rithöfunda- sambands íslands segir að helstu verkefni sambandsins á liðnu starfsári hafi verið samn- ingamálin. Nýr samningur hefur verið gerður við Þjóðleikhús. Samningar standa yfir við Félag íslenskra bókaútgefenda um út- gáfusamning fyrir þýðingar og einnig er verið að semja við Ríkisútvarpið. Samningum við Námsgagnastofnun hefur verið sagt upp og ganga þeir úr gildi 1. júlí. Þá standa einnig yfir samn- ingar við MÍFA-tónbönd, Akur- eyri, um afnot höfundarréttar við útgáfu tónbanda (hljóðbóka). Langar og miklar samningavið- ræður hafa átt sér stað við menntamáiaráðuneyti og fjár- málaráðuneyti um greiðslur fyrir ólöglega fjölföldun í skól- um og er árangurs að vænta í náinni framtíð. Þá hefur stjórn Rithöfundasambandsins tekið þátt í samningu nýs frumvarps til laga um gjaldtekju af auðum hljómböndum ásamt STEFi og Sambandi flytjenda og hljóm- plötuframleiðenda. Á fyrsta fundi nýkjörinnar stjórnar var kosin nefnd til að gera tillögur um endurskoðun laga og reglugerðar um Rithöf- undasjóð Islands. Sjóðurinn starfar eftir lögum um almenn- ingsbókasöfn frá 1976 og er hann framlag ríkisins til höfunda fyrir afnot af bókum þeirra í almenningsbókasöfnum, al- mennt kallað „bókasafnspen- ingarnir". Formaður sagði á aðalfundi að hann teldi það óviðunandi ástand að hvorki skuli greitt fyrir bókaeign í rannsóknabókasöfnum né skóla- bókasöfnum og ennfremur þyrfti að tryggja þýðendum sómasam- lega þóknun fyrir afnot verka þeirra í bókasöfnum. Brýn nauð- syn væri á sérstakri laga- setningu fyrir sjóðinn. Björg Einars- dóttir á fundi á Selfossi Almennur fundur verður hald- inn hjá Sjálfstæðiskvennafélagi Árnessýslu n.k. þriðjudagskvöld kl. 20.30 að Tryggvagötu 8, Sel- fossi. Gestur fundarins, Björg Einarsdóttir, verður málshefjandi og síðan eru almennar umræður. Björg Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.