Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981 Níu drukknuðu MirLshals, 1. desember. AF. ÞRÍR fiskimenn og sex björg- unarliðar, sem reyndu að bjarga þeim, drukknuðu í stór- sjó rétt hjá Hirtshals. Atburð- urinn sást úr landi. Veður víða um heim Akureyri 8 skýjaó Amsterdam 8 regn Aþena 15 heiðskirt Barcelona 18skýjaó Berlin 2 regn Brussel 9 skýjaó Chicago 4 regn Oenpasar vantar Dyflinni 12 skýjaó Feneyjar 4 þokumóóa Frankfurt 6 regn Færeyjar 7 skýjaó Genf 5 regn Helsinki 4 vantar Hong Kong 18 skýjað Jerúsalem 16 heiðskírt Jóhannesarborg 26 heiðskírt Kaupmannahöfn 3 skýjað Kairó 24 heiðskirt Las Palmas 20 léttskýjaö Lissabon 18 heiðskírt London 7 skýjaö Los Angeles 19 heiðskírt Madrid 17 heiðskirt Malaga 19 heiðskírt Mallorka 18 léttskýjað Mexikó 23 skýjað Miami 26 skýjað Moskva -2 heiðskirt New York 6 skýjað Nýja Delhí 23 heiöskírt Osló -1 heiðskirt París . 12 skýjað Perth vantar Reykjavik 8 skýjað Ríó de Janeiro 35 skýjað Rómaborg 13 heiðskirt San Francisco 14 skýjað Stokkhólmur 2 snjókoma Sydney vantar Tel Aviv 21 heiöskirt Tokýó 8 skýjaö Vancouver 7 regn Vinarborg 4 skýjað AF-símamynd. Nitze og Kvitsinsky, formenn bandarísku og sovézku samninganefndanna um takmörkun kjarnorkuvígbúnaðar í Evrópu komu í annað sinn til fundar í Genf í gær og var myndin tekin áður en sest var að samningaborðinu. René forseti vill fá málaliðana afhenta Victoria, Seychelles-eyjum. 1. desember. AF. FRANCE Albert René forseti skoraði í dag, þriðjudag, á SuðurAfríku að afhenda málaliðana 44, sem stóðu að hinni misheppnuðu byltingartilraun á Seychelles-eyjum, og sakaði James Mancham fyrrum forseta um að hafa verið viðriðinn samsærið. Forsetinn hefur beðið Einingarsamtök Afríku (OAU) um að styðja þessa málaieitan. René sagði í útvarpsávarpi til þjóðarinnar að stjórn hans mundi trúa staðhæfingum Suður-Afríku- manna að þeir hefðu hvergi komið nálægt árásinni, ef þeir afhentu málaliðana svo að réttarhöld gætu farið fram fyrir alþjóðlegum dómstóli, skipuðum af SÞ. Forsetinn kvað fyrir liggja sann- anir um að Mancham, sem René steypti af stóli 1977, væri viðriðinn árás málaliðanna. Meðal annars hefði farið fram rannsókn á hljóð- ritunum, sem málaliðarnir reyndu að brenna áður en þeir flúðu, en öryggissveitir komust yfir. René sagði að útvarpa hefði átt þessum hljóðritunum til þjóðarinnar ef byltingartilraunin hefði heppnazt. Mancham, sem nú býr í London, sagði, að hreyfing sem kallaði sig Byltingarhreyfinguna, hefði beðið sig að styðja byltinguna, en hann hefði aldrei áður heyrt slíka hreyf- ingu nefnda á nafn og vildi vita meira um hana áður en hann tæki ákvörðun. I London sagði talsmaður hreyf- íranir hafa í hótunum við íraka Bcirút, I. desember. AF. ALI AKBAR Rafsanjani, forseti ír anska þingsins, hótaði herliðum ír aka bráðum dauðdaga í íran í ræðu í dag ef það hefði sig ekki á brott frá íran hið skjótasta. Rafsanjani sagði að herliðin ættu engra annarra úr kosta völ en snúa heim og beita vopnum sínum gegn Saddam Huss- ein, forseta og leiðtogum Baath- flokksins, ef þau vildu ekki láta lífið í íran. Leiðtogar írans hafa oft áður látið í Ijós áhuga á stjórnarbyltingu í írak. Rafsanjani flutti ræðu sína tveimur dögum eftir að íranir lýstu yfir miklum sigri í bardög- um gegn írökum í suðvesturhluta landsins. Iranir sögðust hafa hrakið íraka út úr Bostan. írakar neita því. Rafsanjani sagði: „Blóð íraka litar vígvöllinn í Bostan. Það er ekkert gleðiefni fyrir okkur. En þetta er þó síðasta við- vörunin sem við gefum írökum og stuðningsmönnum þeirra á svæð- inu.“ Hann átti við íhaldssamari araba-ríki við Persaflóa sem hafa stutt írak síðan stríðið milli land- anna hófst fyrir 14 mánuðum þeg- ar írakar réðust inn í íran. Skotsveitir Khomeinis erki- klerks tóku 30 meðlimi Muja- hedeen Khalq-hreyfingarinnar af lífi í dag. Þar á meðal voru fimm konur. Irönsk stjórnvöld segjast hafa líflátið 1615 manns síðan í júní, en stjórnarandstaðan full- yrðir að sú tala sé nær 3000. ingarinnar að hún bæri ábyrgðina á byltingartilrauninni og að önnur tilraun yrði gerð. Samtökin segja að auðugir Seychelles-búar í útlegð, sem væru andvígir sósíalistastefnu Renés, hefðu staðið straum af kostnaði við byltingartilraunina. Rúmlega 1.000 skemmtiferða- menn eru enn strandaglópar á Seychelles-eyjum og enn bendir ekkert til þess hvenær þeir fá að fara. í þeim hópi eru sendiherra Bandaríkjanna í Kenya, William C. Harrop, og kona hans. Útgöngu- bann hefur verið stytt. Jafnframt hefur indverska flug- félagið vísað á bug þeirri frétt Jó- hannesarborgar-blaðsins „Star" að flugmaður félagsins hafi samþykkt þá beiðni málaliðaleiðtogans Michael („Brjálaða Mikes") Hoares ofursta að fljúga með málaliðana frá Seychelles-eyjum áður en Boeing 707-flugvél hans lenti þar. Blaðið segir þetta koma fram í flugrita og hefur eftir áreiðanleg- um heimildum að flugstjórinn hafi orðið að lenda á Point Larue- flugvelli vegna eldsneytisskorts. Þotan lenti eftir að málaliðarnir náðu yfirráðum yfir flugvellinum. Blaðið segir að 51 maður hafi ver- ið viðriðinn samsærið og fimm menn hafi orðið eftir á eyjunum. Blaðið segir einnig að annar hópur málaliða hafi verið viðbúinn að fljúga til Seychelles-eyja, en hætt við það þegar fréttir bárust af bar- dögunum á flugvellinum. Natalie Wood Áfengismagn mældist í blóði Natalie Woods Los Angeles, 1. des. AF. NATALIE WOOD reiddist vegna rifrildis milli eiginmanns hennar, Robert Wagners, og leikarans Christopher Walkens, fór burt í fússi af snekkju Wagners og virðist hafa dottið í sjóinn þegar hún reyndi að fara um borð í gúmbát, að sögn líkskoðarans, Thomas Nog- uchi. Hann sagði að hún hefði neytt áfengis áður en hún drukknaði. Áfengjsmagnið í blóði hennar mældist rúmlega það sem telst ólöglegt við akstur bifreiða (það mældist 0,14%, en leyfilegt magn er 0,10%). Þótt Noguchi segði að hann hefði ekki talið hana drukkna sagði hann áfengismagn- ið í blóðinu samsvara því að hún hefði drukkið sjö eða átta vínglös með kvöldverðinum. Hann kvað það styðja kenning- una um slys að festar bátsins höfðu verið leystar og frú Wood var með rispu á kinninni er benti til þess að hún hefði dottið og rek- ið höfuðið í snekkjuna eða bátinn. Ekki hefur verið skýrt hvernig leikkonan gat laumazt frá snekkj- unni án þess að tekið væri eftir því og að því er virðist þrátt fyrir yfirlýsta vatnshræðslu hennar. „Ég kann dálítið að synda, en ég er hrædd við djúpt vatn,“ sagði hún nýlega í viðtali við New York-blaðið Daily News. Enginn um borð í snekkjunni, „Splendour", heyrði utanborðs- mótorinn ræstan. Þegar báturinn fannst var mótorinn ekki í gangi. Báturinn var óskemmdur. Natalie Wood var nýkomin um borð í „Splendour“ á laugar- dagskvöld eftir kvöldverð með Robert Wagner eiginmanni sín- um, leikaranum Christopher Walken, sem Wood hafði leikið með í nýrri kvikmynd, „Brain- storm“, og skipstjóranum á „Splendour". MGM framleiðir kvikmyndina og kvikmyndatakan átti að standa yfir í 12 vikur. Kvikmyndatökunni átti að ljúka eftir tvær vikur. Tal- ið er hugsanlegt að takast megi að ljúka gerð myndarinnar. Robert Wagner hefur forðazt fréttamenn síðan atburðurinn gerðist og vill ekkert um hann segja. Wagner-hjónin voru öllum stundum í snekkjunni í leyfum sínum. Þegar þau giftust öðru .sinni fór hjónavígslan fram um borð í skipi. 15 iÆM Halnarstræti 16 Laugavegur 30 Partnerbuxurnar fást nú í fleiri sniöum í fallegum vetrar- og jóla- litum. Einnig er mikiö úr- val af öörum vörum. Allt á góöu verði. Borgaðu ekki meira ... Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: GOOLE: Arnarfell 14/12 Arnarfell 11/01/’82 Arnarfell 25/01/’82 ROTTERDAM: Arnarfell 2/12 Arnarfell 16/12 Arnarfell 13/01/’82 Arnarfell 27/01/'82 ANTWERPEN: Arnarfell 3/12 Arnarfell 17/12 Arnarfell 14/01/'82 Arnarfell 28/01/'82 HAMBORG: Helgafell 7/12 Helgafell 23/12 Helgafell 13/01/’82 Helgafell 29/01/’82 HELSINKI: Dísarfell 23/12 Dísarfell 29/01/'82 GLOUCESTER , MASS: Skaftafell 2/12 Jökulfell 12/12 Skaftafell 6/01/'82 LARVIK: Hvassafell 14/12 Hvassafell 4/01/'82 Hvassafell 18/01/’82 GAUTABORG: Hvassafell 15/12 Hvassafell .. 5/01/’82 Hvassafell 19/01/’82 KAUPMANNAHÖFN: Hvassafell 16/12 Hvassafell 6/01/’82 Hvassafell 20/01/’82 SVENDBORG: Helgafell 9/12 Hvassafell 17/12 Helgafell 24/12 Dísarfell 29/12 Hvassafell 4/01/’82 Helgafell 14/01/’82 HALIFAX, KANADA: Skaftafell 4/12 Jökulfell 15/12 Skaftafell 8/01/’82 m SKIPADEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík Sími 28200 Telex 2101

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.