Morgunblaðið - 01.04.1982, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 01.04.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1982 3 Ríkið eigi allt að 40% í sykur- verksmiðju í Hveragerði FRUMVARP til laga um sykurverksmiðju í Hveragerði var lagt fram á Alþingi í gærdag, en í athugasemdum frumvarpsins segir, að reiknað sé með, að ríkið sé eigandi allt að 40% af hlutafé félagsins. Einstaklingar, fyrirtæki og sveitarfélög verði eigendur 60% hlutafjár. Samkvæmt 2. grein frumvarps- ins er ríkisstjórninni heimilt, að leggja fram allt að 29 milljónum króna af fé ríkissjóðs, sem hlutafé í nefndu félagi, og taka lán í þessu skyni. Framangreind upphæð miðast við lánskjaravísitölu 1. marz 1982 og breytist í samræmi við hana. Ríkisstjórninni er ennfremur heimilt, að veita ríkisábyrgð fyrir lánum eða taka lán, er hlutafélag- Ljósmyndarafélag íslands: Býður öldruðum gjafamyndatökur Morgunblaðinu hefur borizt fréttatilkynning frá Ljósmyndarafé- lagi íslands, þar sem segir að frá 1. apríl til 1. nóvember 1982 muni fé- lagið standa fyrir gjafamyndatökum til aldraðra, 70 ára og eldri. Gjafamyndatökur fara þannig fram, að þær ljósmyndastofur, sem taka þátt í þessu tilboði taka niður pantanir og taka síðan 4 uppstillingar þegar fólkið kemur í myndatökuna, viðkomandi að kostnaðarlausu. „Þetta er m.a. gert i tilefni af ári aldraðra en þó einnig vegna þess að ljósmyndarar vilja garnan reyna að ná til þessa fólks. Það er enginn hégómaskapur hjá þessu gamla fólki að láta mynda sig, það munu ættingjar þess reiðubúnir að taka undir," segir í frétt félags- ins. inu verði veitt til byggingar verk- smiðjunnar, að fjárhæð samtals 43 milljónir króna, eða jafnvirði þess í erlendri mynt, þó ekki meira en 25% af heildarlánsþörf vegna stofnkostnaðar. Þá er ríkisstjórninni heimilt að fella niður aðflutnings- og sölu- gjöld af vélum, tækjum og vara- hlutum til verksmiðjunnar. Fjár- málaráðherra setur reglur um framkvæmd þessa ákvæðis og aðra þætti er varða aðflutnings- og sölugjöld af efni og aðföngum til verksmiðjunnar. Ennfremur er ríkisstjórninni heimilt að leigja hlutafélaginu lóð úr landi ríkisins í ölfusdal undir verksmiðjubyggingu og tryggja því rétt til nýtingar jarðgufu á jarðgufusvæði í eigu ríkisins í Ölf- usdal. í frumvarpinu er ákvæði til bráðabirgða, en í því segir, að ekki sé ríkisstjórninni heimilt að taka þátt í hlutafélaginu né leggja fram fé ríkissjóðs, sem hlutafé, né veita ríkisábyrgð eða taka lán fyrr en tryggð hafa verið hlutafjár- framlög annarra aðila fyrir 60% af hlutafé væntanlegs félags. Aðalfundur Eimskips Aðalfundur Eimskipafélags ís- lands hf. verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu og hefst klukkan 13.15, næstkomandi föstudag, 2. apríl. Starfsmenn ríkisverksmiðjanna hafa aflað verkfallsheimilda STARKSMENN ríkisverksmiðjanna hafa aflað verkfallsheimilda, en ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um boðun vcrkfalla. Verksmiðjur þær sem hér um ræð- ir eru Áburðarverksmiðjan í Gufu- nesi, Sementsverksmiðjan á Akra- nesi og afgreiðsla hennar á Ártúns- höfða í Reykjavík, og Kísiliðjan við Mývatn. Síðdegis í gær var haldinn sameiginlegur fundur Dagsbrúnar og Verkakvennafélagsins Framsókn- ar og þar samþykkt heimild til handa trúnaðarmannaráðum félag- anna, en önnur félög höfðu þá þegar samþykkt slíkar heimildir. Það eru trúnaðarmannaráðin sem boða vinnustöðvanir á viðkomandi stöð- um. Ottó A. Michelsen, fráfarandi for- Gunnar M. Hansson, forstjóri stjóri IBM. IBM. Ottó A. Michelsen lætur af forstjórastarfi hjá IBM — Gunnar M. Hansson, framkvæmda- stjóri markaðssviðs tekur við FORSTJÓRASKIPTI verða hjá IBM á Islandi í dag, 1. apríl. Þá mun Ottó A. Michelsen láta af störfum forstjóra að eigin ósk, en mun áfram starfa hjá IBM, sem ráðgjafi um sérstök málefni. Við forstjórastarfinu tekur Gunnar M. Hansson, sem undanfarið hefur verið framkvæmd- astjóri markaðssviðs fyrirtækisins. Ottó A. Michelsen lærði skriftvélavirkjun í Þýzkalandi á árunum 1938 til 1944 og brautskráðist sem fínvirki frá Teknologisk Institut í Kaup- mannahöfn árið 1945. Ottó var aðalstofnandi Skrifstofuvéla hf. árið 1946 og stjórnaði því fyrir- tæki til ársins 1967. Hann vann að stofnun útibús IBM World Trade Corporation hér á landi og var ráðinn forstjóri þess er það tók til starfa í maí 1967. Því starfi hefur hann gegnt síðan. Þótt nokkuð vanti á, að Ottó hafi náð hámarksstarfsaldri starfsmanna IBM, sem er 65 ár, óskaði hann eftir því við yfir- stjórn fyrirtækisins, að yngri maður leysti hann nú af hólmi í forstjórastarfinu. Það hefur nú verið ákveðið, en Ottó mun eins og áður sagði taka að sér störf sem ráðgjafi hjá IBM. Ottó er fæddur 10. júní 1920 á Sauðár- króki og er kvæntur Gyðu Jóns- dóttur og eiga þau hjón fjögur börn. Gunnar M. Hansson lauk viðskiptafræðiprófi frá Háskóla íslands 1969. Þá þegar hóf hann störf sem kerfisfræðingur hjá fyrirtækinu. Árið 1973—1974 starfaði hann að markaðsmálum IBM í Danmörku, en fór síðan til Parísar og vann þar í tvö ár í aðalstöðvum IBM í Evrópu. Eftir heimkomuna tók hann við ný- stofnaðri söludeild IBM á ís- landi, en á síðasta ári var hann skipaður framkvæmdastjóri markaðssviðs fyrirtækisins. Gunnar M. Hansson er fæddur i Reykjavík 13. júlí 1944 og er kvæntur Gunnhildi S. Jónsdótt- ur og eiga þau hjón tvö börn. HEIMSMEISTARAR í SKÍÐAFIMISÝNA LISTIR SÍNAR í BLÁFJÖLLUM 3.0G 4.APRÍL Meö hjálp góöra manna hefur okkur hjá SKÍ tekist aö fá hiö heimsfræga VOLVO skiöaliö til þess aö sýna listir sinar á íslandi. Auövitaö ætlum viö aö nota tækifæriö og reyna aö rétta viö bágan hag skiöasambandsins. Viö höfum því fengiö leyfi yfirvalda til aö selja inn á Bláfjallasvæöiö sýningardagana. Veröinu er mjög stillt í hóf, aöeins 20 krónur. Sýningin fer fram kl. 13.30 báöa dagana og veröurselt inn á svæöiö til kl. 14.00 Notiö þetta einstaka tækifæri og styrkiö skiöa- sambandiö i leiöinni. SKÍÐASAMBAND ÍSIANDS Skí&akabarett í Broadway, sjá bls. 43 Tónlist er stór þáttur i skíöasýningunni. BOSE hljómkerfi frá Heimilistækjum mun koma henni tilskila. Volvo Ski Show eru á BLIZZARD Skíöum. Þau fást í utiuf Volvo Ski Show nota salomon bindingar. Þær fást i A jpPORTVAL /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.