Morgunblaðið - 29.04.1982, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 29.04.1982, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1982 13 Alræði Alþýðubandalagsins í húsnæðismálum: Veldur stórfelldum samdrætti íbúðarhúsabygginga einstaklinga eftir Lárus Jónsson, alþingismann Miklar umræður hafa orðið um húsnæðismál á Alþingi, einkum í tengslum við frv. til laga um 6% nýjan skyldu- sparnað sem ríkisstjórnin hefur lagt fram. A það hefur verið bent í þessum umræðum að núverandi stuðningslið ríkisstjórnarinnar á Alþingi hafi í raun tryggt Alþýðuband- alaginu eins konar alræði í húsnæöismálum, bæði embætti félagsmálaráðherra og fjármálaráðherra. Þetta hafi leitt til gífurlegs samdráttar í íbúðarbyggingum á vegum einstakl- inga og nánast gjaldþrots almenna húsnæðislánakerfisins. Þótt byggingarsjóður verkamanna hafi verið efldur með því að taka fjármagn úr almenna húsnæðislánakerfinu, hefur þaö ekki komið í veg fyrir mesta samdrátt í íbúðar- húsabyggingum í meira en áratug, en hann varð 10% í fyrra aö mati Þjóðhagsstofnunar. Eftirfarandi meginstaðreynd- ir hafa komið fram í þessum um- ræðum: • 1. Gífurlegur samdráttur hefur orðið í byggingu íbúðar- húsnæðis í heild undanfarin ár. Árið 1979 varð 5% magnsam- dráttur í íbúðarbyggingum, 1980 3% og í fyrra kastaði tólfunum en þá er samdrátturinn áætlaður af Þjóðhagsstofnun 10%. Miðað við 1978 var byggt í fyrra 19% minna af íbúðarhúsnæði en þá. • 2. Byggingarsjóður ríkisins — almenna húsnæðislánakerfið — hefur verið svipt öllum tekju- stofnum sínum sem áður voru, þ.e. byggingasjóðsgjaldi og hluta af launaskatti, en tekjur af þess- um mörkuðu tekjustofnum hefðu numið í ár um 250 millj. króna. Mikill hluti þessara skatta renn- ur nú til almennrar eyðslu ríkis- sjóðs. • 3. Áætlað er að lána tæpl- ega 800 færri frumlán til ein- staklinga sem byggja nú í ár en gert var 1978, eða helmingi færri. Þessi frumlán voru 1978 1883, 1979 1687, 1980 1665 og 1981 1075 (sjá meðf. mynd). 4*4. Fjármagn skortir í stór- um stíl til þess að unnt verði að lána þessi 1100 frumlán í ár. Fjárvöntun til þess er 90 millj. króna að mati Húsnæðismála- stjórnar en að auki er gert ráð fyrir að lífeyrissjóðirnir láni rúmlega tvöfalda fjárhæð miðað við síðasta ár til húsnæðiskerfis- ins. Fjárvöntunin gaeti því numið 100 til jafnvel 200 millj. króna til þess að þessi áætlun standist og er skemmst að minnast þess að Húsnæðismálastjórn þurfti að taka bráðabirgðalán í Seðla- bankanum í fyrra — í fyrsta sinn í sögunni — til þess að standa við lánsloforð sín. • 5. Vegna þessa fjárskorts sem stafar af skiptingu tekju- stofnanna, er Húsnæðismála- stjórn að skera niður útlánaáf- orm sín um þessar mundir (sbr. bréf stofnunarinnar til fjárhags- og viðskiptanefnda Alþingis). Allar likur eru því á að miklu færri frumlán verði veitt en í fyrra og örugglega meira en tvö- falt færri en 1978. • 6. Einstaklingar fá nú að- eins 17,4% af kostnaði staðalí- búðar lánað úr almenna húsnæð- iskerfinu skv. skýrslum Hús- næðismálastjórnar, en þeir sem hljóta íbúð í verkamannabústað frá pólitískum úthlutunarnefnd- um fá 90% lán og vandséð að þeir ráði við þau vegna ákvæða um að tekjur þeirra megi ekki fara fram úr ákveðnu marki. • 7. Þrátt fyrir mikið skrum alþýðubandalagsmanna og ann- arra stuðningsmanna ríkis- stjórnarinnar, hefur framlag til byggingarsjóðs verkamanna ver- ið skorið niður um 43 millj. króna á þessu ári frá áætlun Húsnæðismálastjórnar. Þegar er búið að ráðstafa meiru en helm- ingi af því fé sem renna á til byggingar verkamannabústaða þannig að fjárþröng er þar fyrir- sjáanleg ekki síður en í almenna lánakerfinu. Óhætt er að fullyrða, að sú kú- vending sem orðið hefur í stefn- unni í húsnæðismálum í tíð nú- verandi ríkisstjórnar og sem leitt hefur til þess ástands, sem áður er lýst, er eitt alvarlegasta spor sem núvérandi ríkisstjórn hefur stigið, og er þá langt til jafnað. I stað þess að leggja áherzlu á að styðja ungt og dug- legt fólk til þess að koma sjálft yfir sig eigin húsnæði, eru stein- ar lagðir í götu þess. Það fjár- magn sem styðja átti þetta fólk, hefur verið tekið að hluta til þess að byggja verkamannabú- staði og að hluta til almennrar eyðslu ríkissjóðs. Sjálfsagt er að þeir sem tekjulægstir eru fái stuðning til þess að komast yfir húsnæði, þótt hart sé til þess að vita, að einmitt það fólk þurfi helzt að lúta pólitískum úthlut- unarnefndum. Á hinn bóginn er einsýnt, að húsnæðislánakerfið á fyrst og fremst að hvetja fólk til þess að hjálpa sér sjálft í hús- næðismálum. Því miður hefur ríkisstjórn sú, sem nú situr, þveröfuga stefnu. Því fer sem fer. Að undanförnu hafa farið fram miklar umræður um hinar gífurlegu steypuskemmdir sem orðið hafa á íslenskum húsum og öðrum mannvirkjum af völdum veðrunar og annarra þátta. Nýleg könnun Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins á steypuskemmdum og sprungumyndunum (íslenskum húsum leiddi í Ijós að ein haldbesta vörnin gegn leka og áframhaldandi skemmdum, er að klæða þau alveg til dæmis með áli. A/klæðning gefur góða möguleika á einangrun. Besti árangurinn fæst með því að einangra hús að utan með t.d. steinull eða plasti þannig að veggir nái ekki að kólna. Með aukinni einangrun sparast hitakostnaður sem getur numið verulegum fjárhæðum þegar til lengdar lætur. Aukin einangrun er sérlega þýðingarmikil á eldri hús þar sem einangrun var verulega ábótavant hér áður fyrr. í A-klæðningu hefur verið hugsað fyrir hverjum hlut til þess að gera uppsetningu sem einfaldasta og spara bæði tíma og peninga. Framleiddir hafa verið ýmsir aukahlutir svo sem gluggakarmar, mænar, vindskeiðar og margt fleira sem hefur þurft að sérsmíða fyrir aðrar tegundir klæðninga. A/klæðning er nýtískuleg lausn - í eitt skipti fyrir öll á veggi, loft og þök. A/klæÓning klæðskerasaumuð á hvert hús. INNKAUP HE ÆGISGÖTU 7, REYKJAVlK - S(MI 22000 A/KLKÐNING klæðskerasaumuð á hvert hús. 0

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.