Morgunblaðið - 04.05.1982, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 04.05.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ1982 55 Athyglisverðar niðurstöð- ur rannsóknar á áhættu- þáttum hjartasjúkdóma NORSKU hjartasérfræðingarnir dr. Paul Leren og dr. Ingvar Hjermann eru nú staddir hér á landi í boði Hjartaverndar og Landspitalans. Þeir eru báðir læknar við Ulleváll-sjúkrahúsið í Osló. Þar hafa þeir veitt forstöðu, ásamt fleiri læknum, víðtækri rannsókn á hjartasjúkdómum í Oslóarborg. Hafa þeir báðir flutt erindi um rannsóknir sínar á áhættuþáttum hjartasjúkdóma og niðurstöður þeirra hér á landi, dr. Hjermann á fundi í Manneldisfé- lagi íslands að Hótel Esju sl. fimmtudag og dr. Leren í fundar- sal Hjúkrunarskóla íslands á föstudag. Dr. Hjermann ræddi um áhrif breytts mataræðis og minnkun reykinga á kransæðasjúkdóma. Vissir áhættuþættir stuðla að kransæðasjúkdómum og beind- ist rannsóknin að því hvernig unnt sé að lækka tíðni þessara sjúkdóma og fækka dauðsföllum af þeirra völdum með fyrir- byggjandi aðgerðum. Tveir áhættuþættir kransæðasjúk- dóma eru reykingar og of mikið kólesteról í blóði. Reynt var að komast að raun um hvernig minnkun reykinga og lækkun blóðfitu meðal heilbrigðra karlmanna á aldrinum 40—49 ára, sem hafa alvarlega áhættu- þætti kransæðastíflu, hamlaði gegn sjúkdómum og fækkaði þannig dauðsföllum. Þátttak- endur í rannsókn þessari voru 1232. Var hópnum skipt í tvennt og fékk annar helmingurinn reglulega ráðgjöf hjá læknum um mataræði og skaðsemi reyk- inga, en hinn helmingurinn fékk engar slíkar leiðbeiningar. Að rannsóknartíma loknum kom í ljós að kransæðastíflutil- felli, bæði banvæn og þau sem ekki leiddu til dauða, voru 47 % fátíðari meðal þeirra sem tóku þátt í varnaraðgerðum en hinna sem ekki breyttu um lifnaðarh- ætti. Niðurstöður urðu þannig þær, að heilbrigðir karlmenn með alvarlega áhættuþætti kransæðasjúkdóma sem minnk- uðu reykingar og breyttu neyslu- venjum urðu sjúkdóminum síður að bráð. Erindi dr. Paul Leren fjallaði um blóðfitu og lyf gegn of háum blóðþrýstingi. Talið er að mikil í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTAR- STÖÐINNI blóðfita og háþrýstingur séu helztu áhættuþættir kransæða- sjúkdóma. Dr. Leren sagði að í Oslóarrannsókninni hefði komið í ljós að a.m.k. sum lyf gegn há- þrýstingi virtust ekki minnka líkur á kransæðasjúkdómum, en drógu hins vegar marktækt úr heilablóðfallstilfellum. Lyfin virðast hafa þau áhrif á blóðfitu að hún verður ekki í því jafnvægi sem æskilegt er. Dr. Leren kvað þetta rannsóknarefni mjög þýð- ingarmikið og mikil þörf væri á frekari könnunum. Þá ræddi hann um Oslóarrannsóknina al- mennt og ýmsa aðra áhættu- þætti kransæðasjúkdóma, og hvaða varnir væru helztar gegn þessum sjúkdómi, sem af öílum sjúkdómum leggur flesta að velli. Dr. Ingvar Hjermann og dr. Paul Leren. NoithStar' North Star eru á meðal leiðandi framleiðenda í Bandaríkjunum á sviði smátölva til atvinnunotkunar. Rafrás býður HORIZON tölvurfyrir þá sem vilja eiga möguleika á fjölvinnslu (Multi-User) og ADVANTAGE handa einstaklingum og smáum fyrirtækjum sem ekki þurfa á margnotendakerfi að halda. Rafrás býður þér vandaðan og áreiðanlegan búnað sem búið er að laga fyrir íslenskar aðstæðurs.s. lyklaborð, skjáir og prentarar. Hugbúnaðarvalkostir (forrit) eru margir: Rafrás getur afgreitt strax forrit fyrir Rit- vinnslu (íslenska), Upplýsingaskrá, Fjárhalds- bókhald og Fjárhaldsskýrslugerð. Fljótlega verða fáanleg fleiri forrit s.s. Tollskýrslugerð, Viðskiptamannabókhald, Pantanir- og sölu- afgreiðsla, Birgðakerfi og Launavinnsla. Hagtala hf. býður einnig forrit fyrir HORI- ZON, sem tilheyra svo nefndum „FYRIR- TÆKJAPAKKA". Auk þess eru margvísleg er- lend forrit/forritunarmál fáanleg (CP/M). GEFÐU PÉR TÍMA TIL AÐ LÍTA VÐ OG RÆÐA VIÐ SÖLUMENN OKKAR FYLGDU LEIÐARSTJÖRNUNNI. . . NORTH STAR . . . FRÁ RAFRÁS /BapjBás Hreyfilshúsinu v/Grensásveg. Símar: 82980 eða 82055. Norskir hjartasérfræðingar flytja fyrirlestra:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.