Morgunblaðið - 25.05.1982, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ1982
29
Hvart sejfja |>au um úrslit kosninganna
Akranes:
Bestu úrslit
frá 1946 fyrir
Sjálfstæðisflokkinn
„Hér hefur verið mjög góð
stemmning undanfarið og mikið hef-
ur verið unnið í flokknum enda er-
um við mjög ánKgðir með úrslit
þessara kosninga," sagði Valdimar
Índriðason, efsti maður á lista
SjálfstKðisflokksins á Akranesi, en
þar vann flokkurinn einn mann,
hlaut Qóra menn kjörna.
„Við endurheimtum mann sem
við töpuðum í kosningunum 1978,
enda eru þetta bestu úrslit fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í bæjar- og
sveitastjórnakosningum hér á
Akranesi síðan 1946. Við höfum
ekki farið yfir 40 prósent atkvæða
síðan þá.
Ástæðurnar fyrir þessum hag-
stæðu úrslitum fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn eru eflaust margar. Fólk-
ið vann mjög vel með okkur en
úrslitin sýna fyrst og fremst
traust til þess fólks, sem skipar
okkar lista. Við erum ekkert farn-
ir að ræða samstarf við neinn.
Fyrst þarf að átta sig á hlutunum.
Hér var áður meirihlutasamstarf
með okkur, Alþýðubandalaginu og
Alþýðuflokknum síðasta kjör-
tímabil og það er skrítið að eftir
að við höfum setið saman í stjórn
tapa þeir báðir manni en við vinn-
um mann og Framsóknarflokkur-
inn einnig. Það er því greinilegt að
það þarf að hugsa málið vel áður
en samstarf er ákveðið," sagði
Valdimar.
Keflavík:
Góð málefnastaða
og sýnilegur
árangur á
síðustu 4 árum
„ÞAÐ MÁ fyrst til telja að það var
unnið mjög vel. Fólk lét mjög til sín
taka í kosingaundirbúningnum og
einnig á kjördag. Þá var hlutur ungs
fólks hvað mest áberandi í starfinu,
sem er það bezta og ánægjulegasta
hvað ég man í almennu kosninga-
starfi," sagði Tómas Tómasson
oddviti sjálfstæðismanna í Keflavík,
en þar vann Sjálfstæðisflokkurinn
einn bæjarfuiltrúa af Alþýðuflokkn-
um.
Tómas sagði einnig; „Að öðru
leyti tel ég, að eftir 12 ára ágætt
samstarf okkar við Framsóknar-
flokkinn sé staðreyndin sú, að á sl.
fjórum árum hafi sýnilegur
árangur orðið í mjög veigamiklum
atriðum, sem vekur athygli. Mörg
góð mál komust í höfn á sl. fjórum
árum, málefnastaðan er því sterk.
Þá hefur fjárhagsstaða bæjarins
verið að styrkjast á þessum árum
og er nú góð. Þetta hefur allt
áhrif. Svo tel ég til viðbótar að það
hafi veruleg áhrif hvernig lands-
málin snúast. Staða þjóðmála hef-
ur geysileg áhrif, almenn þróun
þeirra hefur verið þannig undan-
farin ár. Allt frá því að viðreisnar-
stjórnin kvaddi hafa þeir sem ver-
ið hafa í ríkisstjórn alltaf fengið
bakslag. Þá finnst mér að fólk sé
ekki eins rigbundið í flokkum á
undanförnum árum og það var áð-
ur.
Þá vil ég að lokum þakka öllum
stuðningsmönnum Sjálfstæðis-
flokksins í Keflavík fyrir mjög
gott starf og ötult, því má þakka
þennan sigur,“ sagði Tómas að síð-
ustu.
Hafnarfjörður:
Lítum á kosninga-
úrslitin sem
traustsyfirlýsingu
„VIÐ sjálfstæðismenn i Hafnarfirði
erum mjög ánægðir með úrslitin.
Sjálfstæðisflokkurinn vann bæjar-
fulltrúa og hefur nú flmm í bæjar-
stjórn. Við lítum á úrslitin sem
traustsyfirlýsingu á stefnu þá sem
við höfum fylgt og þau störf sem við
höfum innt af hendi. Við teljum að
bæjarbúar hafí með þessu vottað
okkur traust til að halda áfram á
sömu braut. Þá er Ijóst að það mikla
moldviðri og þær blekkingar sem
andstæðingar okkar reyndu að þyrla
upp í sambandi við Bæjarútgerðina
hrifu ekki, — fólk sá í gegnum
blekkingarvefinn," sagði Árni Grét-
ar Finnsson, efsti maður Sjálfstæðis-
flokksins í Hafnarfirði.
Árni Grétar sagði einnig; „Það
verður að sjálfsögðu farið í það að
mynda meirihluta næstu daga.
Við sjálfstæðismenn setjum það á
oddinn að tekist verði á við þau
miklu vandamál sem eru hjá Bæj-
arútgerð Hafnarfjarðar. Úttekt
fari fram á stöðu fyrirtækisins og
unnið verði að því að finna leiðir
til að tryggja rekstur þess þannig,
að það geti staðið á eigin fótum, en
verði ekki áfram rekið með stór-
kostlegum halla sem bæjarbúar
þurfa að greiða upp. Að öðru leyti
bíða fjöldamörg verkefni sem við
höfum verið að undirbúa og höfum
verið með í gangi. Maður bindur
vonir við að hægt verði að vinna
áfram að þeim og við munum setja
metnað okkar í að standa við
okkar fyrirheit, eins og við höfum
gert.
Það var mikill fjöldi sem vann
að kosningasigri okkar á einn eða
annan hátt og fjöldi nýrra kjós-
enda gekk til liðs við okkur og við
erum þakklátir þeim öllum. Þá var
sérstaklega áberandi hversu mikið
af ungu fólki kom til starfa og
studdi okkur við þessar kosningar.
Fyrir þetta eru við mjög þakklátir
og munum gera okkar ýtrasta til
að bregðast ekki því trausti,“ sagði
Árni Grétar Finnsson að lokum.
Kópavogur:
Sjálfstæðis-
flokkurinn sterk-
asta stjórnmála-
aflið í Kópavogi
„ÉG ER ákaflega ánRgður með úr-
slitin og þakka Kópavogsbúum fyrir
þann stuðning sem þeir hafa veitt
SjálfstKðisflokknum og öllum þeim
fjölmörgu sjálfstKðismönnum og
öðrum sem unnu að þessum sigri
okkar. Þeim vil ég þakka fyrir mikla
vinnu og veitta aðstoð. Sjálfstæðis-
flokkurinn fer út úr þessum kosn-
ingum með hRsta hlutfall sem hann
hefur nokkurn tima fengið í Kópa-
vogi. Hlutfallið er heldur ha'rra en í
beztu kosningunum þar á undan,
munar þar 5%. Það var 37,1% 1974
en nú er það 42,1%,“ sagði Richard
Björgvinsson, oddviti sjálfstæð-
ismanna í Kópavogi, en sjálfstKð-
ismenn þar fengu nú fimm fulltrúa,
en höfðu aðeins þrjá áður.
Richard var spurður hverju
hann þakkaði þessi úrslit. Hann
svaraði: „í fyrsta lagi vil ég þakka
það, að flokkurinn er nú samein-
aður. Hann var klofinn í upphafi
kjörtímabils, en það hefur tekist
mjög vel að sameina hann og fá
einhuga flokk og það held ég að sé
fyrsta grundvallaratriðið. I öðru
lagi held ég að stefna meirihluta-
flokkanna, vinstriflokkanna, hafi
beðið skipbrot. Fólk hafi fengið
nóg af þeirri skattaáþján sem þeir
hafa lagt á almenning, þrátt fyrir
litlar framkvæmdir. Til mótvægis
má sjá að sú stefna sem við rákum
áður, meðan við vorum í meiri-
hluta, og fluttum tillögur um í
framhaldi af á meðan við vorum í
minnihluta, hefur átt upp á pall-
borðið hjá kjósendum. Einnig má
nefna að við höfum hagstæðan byr
vegna ástandsins í landsmálum í
dag. Það er ekki um það að villast
að það á líka mikinn þátt í þessum
sigri.“
Richard sagði í lokin, að allt of
snemmt væri að spá um hver
meirihlutinn verður. Vinstri
flokkarnir hafa samanlagt sex
menn og sagði Richard, að vinstri
menn hefðu lýst yfir áhuga á að
vinna saman áfram. „Þessi sigur
þarf alls ekki að þýða að við kom-
umst í meirihluta, en hins vegar
er Sjálfstæðisflokkurinn sterkasta
stjórnmálaaflið i Kópavogi i dag.
Um það er engum blöðum að fletta
lengur," sagði hann í lokin.
Akureyri:
„Greinilegt hvað
menn hér vilja“
„Úrslit kosninganna eru mikið
fagnaðarefni fyrir okkur. Bæði hér
og ekki síður í Reykjavík, en þangað
beindust augu allra landsmanna, og
ég samfagna flokksbræðnim mínum
í höfuðborginni. Það er stórkostlegt
að þeir hafa unnið þetta vígi sitt aft-
ur,“ sagöi Gísli Jónsson, efsti maður
á lista sjálfstæðismanna á Akureyri,
en þar vann Sjálfstæðisflokkurinn
einn mann, fékk fjóra.
„Við hér á Akureyri erum af-
skaplega ánægðir með okkar
hlut,“ sagði Gísli ennfremur.
„Aukning sjálfstæðismanna hér er
meiri en meðaltalsaukning flokks-
ins yfir landið. Við bættum að vísu
ekki við nema einum manni, þótt
atkvæðatalan hefði nægt okkur til
að bæta við okkur tveimur full-
trúum. Við vorum óheppnir með
skiptingu atkvæða milli keppi-
nauta okkar.
Við teljum að Akureyringar
hafi komið til móts við okkur í
þessum kosningum. Þetta er
traustsyfirlýsing þeirra til okkar.
Kjósendur vilja veita okkur um-
boð til að þoka frá meirihluta
vinstrimanna. Úrslit kosninganna
eru greinileg vísbending um hvað
menn hér vilja.“
„Sérstakar þakkir okkar fram-
bjóðendanna færi ég kosninga-
stjórn okkar, ritstjórn íslendings
og öllu okkar baráttuliði. Þá var
einstaklega uppörvandi hversu
margt ungt fólk kom nú til liðs við
stefnu Sjálfstæðisflokksins," sagði
Gísli.
Grindavík:
„Þakka góðan
stuðning viö
sjálfstæðismenn“
>.Ég er mjög ánægð með úrslit
kosninganna hér hjá okkur. Útkom-
an var mjög góð þar sem við bættum
við okkur manni en að því unnura
við fyrir þessar kosningar,** sagði
Ólína G. Ragnarsdóttir, fyrsti maður
á lista sjálfstæðismanna í Grindavik,
en þar bætti Sjálfstæðisflokkurinn
við sig einum manni og fékk þrjá
menn kjörna. Sjálfstæðisflokkurinn
fékk 364 atkvæði, sem er 12% aukn-
ing frá þvi i kosningunum 1978.
„Svona virðist þetta vera víða
um landið," sagði Ólína ennfrem-
ur. „Það er furðuleg þróun hér í
Grindavík þar sem vinstra fylgið
virðist hoppa á milli flokka. Þeir
missa báða sína menn yfir til
Framsóknar. Það er einkennilegt
en þeir hljóta að hafa haft svona
mikið lausafylgi.
Ég þakka þessi jákvæðu úrslit
því að við sjálfstæðismenn erum
með ábyrga stefnuskrá þar sem
ekki er lofað því sem við ekki kom-
um til með að geta staðið við. Listi
okkar er sérstaklega vel skipaður
og á honum gott fólk og ég vil
þakka íbúunum hér þennan góða
stuðning, sem þeir hafa sýnt
okkur sjálfstæðismönnum," sagði
Ólína í lokin.
Selfoss:
„Úrslitin krafa
um breytingu á
stjórn bæjarins“
„Við túlkum úrslitin hér á Selfossi
á þann veg að þau séu krafa um
breytingu á stjórn bæjarins frá því
sem var síðasta kjörtímabil þegar
vinstri flokkarnir voru saman í
stjórn," sagði Óli Þ. Guðbjartsson,
efsti maður á lista Sjálfstæðisflokks-
ins á Selfossi, en þar hlaut flokkur-
inn fjóra menn kjörna en hafði áður
þrjá menn.
„Við erum vitaskuld mjög
ánægðir með þennan árangur og
sérstaklega með það að við hlutum
80 atkvæða fylgisaukningu. Sam-
staða innan flokksins á stóran
hlut í þessum árangri sem náðst
hefur og dugnaður þeirra, sem
unnu fyrir flokkinn í kosningabar-
áttunni. Þá á blaðið Suðurland ef-
laust stóran hlut í því hvernig úr-
slitin hafa ráðist. Það er greini-
legt að öll breyting á fylgi flokk-
anna rennur til okkar, sem er eins
og ég segi krafa um breytingu á
meirihlutanum, sem hefur verið
við lýði hér undanfarin ár.
Ekkert er enn farið að ræða
samstarf enda liggja endanlegar
tölur ekki enn fyrir.
Þetta er mesta fylgi, sem
Sjálfstæðisflokkurinn hefur feng-
ið held ég síðan 1954 hér á Selfossi
og því ber að fagna. Okkar megin-
verkefni verður að svara kröfu al-
mennings hér um aukna atvinnu-
uppbyggingu á svæðinu," sagði Óli
Þ. Guðbjartsson í lokin.
SJÁ NÆSTU SÍÐU