Morgunblaðið - 25.05.1982, Side 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1982
Bond hafnaði
boði Benfica
JOHN BOND, enski framkvæmda-
stjórinn hjá Manchester City, lýsti
yfir í gær að hann hefði hafnað
glæsilegu tilboði um að gerast stjóri
hjá portúgalska stórliðinu Benfica.
„Ég og John Benson, aðstoðarmaður
minn, verðum áfram hjá City. Við
erum í þakkarskuld við félagið sem
gaf okkur leyfi til að ræða við Ben-
fica og leit meira á það sem almenna
kurteisi heldur en hitt að ræða við
forseta félagsins. Ég hef sagt það
alla tíð síðan ég kom til City að ég
kunni vel við mig hjá félaginu og
aðeins sárafá félög gætu freistað
mín að því marki að ég myndi hug-
leiða að yfirgefa félagið. Ég vona nú
að þetta mál sé úr sögunni svo ég
geti einbeitt mér að því verkefni
sem nærtækara er og það sem ég tók
að mér, að ná árangri með City,“
sagði John Bond í samtali við AP.
Fjölmargir kepptu á
Öldungamótinu á skíöum
ÖLDUNGAMÓT Skíðaráðs Reykja-
víkur var haldið i Bláfjöllum sunnu-
daginn 16. maí sl. Keppt var í göngu
og svigi. Úrslit urðu sem hér segir:
Ganga:
Konur 50 ára og eldri, 4 km mín.
Anna Hulda Sveinsdóttir 27,06
Konur 40—49 ára, 4 km
Svanhildur Árnadóttir 21,45
Konur 30—39 ára, 4 km
Sigurbjörg Helgadóttir 19,10
Arndís Björnsdóttir 21,46
Thorun Sigurösson 22,23
Karlar 55 ára og eldri, 4 km
Tryggvi Halldórsson 16,30
Haraldur Pálsson 16,38
Þorsteinn Bjarnason 18,50
Þór Þorsteinsson 27,35
Karlar 45—54 ára, 8 km
Hermann Guðbjörnsson 29,40
Vésteinn bætir
sig í kúluvarpi
VESTEINN Hafsteinsson HSK náði
sínum bezta árangri í kúluvarpi á
frjálsíþróttamóti í Tuscaloosa í Ala-
bama um helgina, varpaði 15,89
metra, en hann átti bezt áður 15,54
metra. Vésteinn sigraði í kúluvarp-
inu.
Vésteinn sigraði einnig í
kringlukasti á mótinu, kastaði
57,08 metra. Þórdís Gísladóttir ÍR
sigraði í 100 og 200 metra hlaupi,
hljóp á 12,9 og 26,66 sekúndum í
mótvindi.
Páll Guðbjörnsson 30,07
Sveinn Kristinsson 36,41
Ingibjörn Hallbergsson 37,18
Karlar 35—-44 ára, 8 km
Guðmundur Sveinsson 29,46
Þorbjörn Jónsson 32,34
Guðni Stefánsson 40,28
Svig:
Konur 46 ára og eldri sek.
Ásthildur Eyjólfsdóttir Á 105,75
Inga Ólafsdóttir ÍR 113,86
Jakobína Jakobsdóttir ÍR 130,22
Konur 41—45 ára
Þóra Vilbergsdóttir KR 82,18
Konur 26—40 ára
Svanhvít Hafsteinsdóttir Á 119,24
Konur 31—35 ára
Halldóra Friðriksdóttir Á 104,02
Jóhanna Guðbjörnsdóttir Á 120,68
Karlar 46 ára og eldri
Kristinn Eyjólfsson Á 88,32
Ingi S. Guðmundsson Á 96,96
Pétur Símonarson Eldborg 102,24
Ríkarður Pálsson Eldborg 105,62
Ólafur Þorsteinsson Eldborg 106,27
Karlar 41—45 ára
Viggó Benediktsson KR 81,96
Þorbergur Eysteinsson ÍR 84,53
Guðni J. Guðnason Á 115,29
Jón Gíslason Á 133,96
Leifur Gíslason KR 149,90
Karlar 36—40 ára
Sigurður Guðmundsson Á 85,31
Jón Kaldal Vík 86,99
Kristján Óskarsson KR 100,54
Sigurður Einarsson ÍR 116,67
• Óskar Jakobsson, til vinstri, bætir stöðugt árangur sinn í kúluvarpinu og nálgast nú óðum 21 metra. Besti
kúluvarpari okkar, Hreinn Halldórsson, til hægri, er nú hinsvegar frá keppni vegna bakmeiðsla. Ljósm. Þórarinn R.
Oskar bætir sig og
varpar kúlu 20,57 m
„ÉG VAR búinn að eiga von á þessu,
styrkurinn er kominn aftur eftir
veikindin á dögunum, sem drógu úr
mér allan mátt. Eftir því sem ég
kemst næst er þetta næst bezti
árangur háskólamanns utanhúss að
sinni, og nú er háskólameistaramót-
ið framundan. Þar má búast við
harðri keppni,'* sagði Óskar Jakobs-
son ÍR í samtali við Morgunblaðið I
gær, en hann setti persónulegt met í
kúluvarpi í Bandaríkjunum um helg-
ina, varpaði 20,57 metra.
Eftir tíu daga keppir Óskar á
bandaríska háskólameistaramót-
inu, og blandar hann sér eflaust í
sigurbaráttuna í kúluvarpinu, en
hann varð í öðru sæti á mótinu
fyrir tveimur árum, og þriðji í
kringlukasti. Tveir kúluvarparar
vörpuðu yfir 21 metra innanhúss í
vetur, en ekkert hefur heyrst um
árangur þeirra utanhúss.
„Þetta fór ekki vel af stað hjá
mér um helgina, gerði fyrstu tvö
köstin ógild, og varpaði 19,50 í
þriðju umferð. En í fjórðu umferð
varpaði ég 20,30, þá 20,55 og loks
20,57 í síðustu umferð, sem er
skólamet. Eldra metið átti einn
þjálfarinn hérna, Dane LeDuc.
Næsti maður varpaði 19,98 og
þriðji 19,60, en tíu kastarar voru
yfir 18,30 metrum."
Óskar sagði að Oddur Sigurðs-
son KR hefði hlaupið 400 metra á
47,0 sekúndum og orðið í öðru
sæti. Hann hefði hlaupið sprett í
4x400 metra boðhlaupinu og feng-
ið 45,8 sek. í millitíma, en tími
sveitarinnar var 3:05,8 mín. Oddur
er nú við æfingar í níu þúsund feta
hæð yfir sjávarmáli, til að venjast
þunna loftinu, en Provo í Utah,
þar sem háskólamótið fer fram, er
í fimm þúsund feta hæð.
Ekkert lat a sigur-
göngu Gautaborgar
Ekkert lát er á sigurgöngu sænska
liðsins Gautaborg, sem varð UEFA-
bikarmeistari á kostnað Hamburger
SV á dögunum. Liðið lék um helgina
til úrslita um sænska bikarinn gegn
meistaraliði síðasta keppnistímabils,
Óster, og sigraði Gautaborg 3—2 í
líflegum leik.
Torbjörn Nilson skoraði fyrsta
mark leiksins fyrir Gautaborg, en
Öster náði forystunni með tveim-
ur mörkum fyrir leikhlé. Gauta-
borgarliðið náði sér vel á strik í
seinni hálfleik og þá tryggðu þeir
Tommy Holmgren og Jerry Karl-
son liðinu sigur með mörkum sín-
um.
Vegleg verðlaun
í Kaldals-hlaupinu
Meðal keppnisgreina á Vormóti
ÍR í frjálsíþróttum á uppstigningar-
dag var Kaldals-hlaupið, minn-
ingarhlaup um Jón heitinn Kaldal,
sem var fremsti frjálsíþróttamaður
þjóðarinnar á sínum tíma. íslands-
met hans í lengri hlaupum stóðu í
áratugi. Jón Kaldal var ÍR-ingur, og
verður Kaldals-hlaupið árleg grein á
Vormóti ÍR í framtíðinni. Hlaupið er
þrjá kílómetrar og var keppt um
veglegan bikar sem ganga mun
næstu áratugi, en jafnframt hlýtur
sigurvegari eignarbikar.
Á meðfylgjandi myndum Frið-
riks Þórs Oskarssonar má sjá
hlauparana 11 leggja af stað og
sigurvegarann, Gunnar Pál Jóa-
kimsson ÍR, hampa verðlauna-
gripnum, en það var dótturdóttir
Kaldals, sem verðlaunin afhenti,
og heldur hún á eignarbikarnum.
Hlaupararnir eru frá vinstri: Guð-
mundur Ólafsson ÍR, Sigurjón
Andrésson ÍR, Ingvar Garðarsson
HSK, Jóhann Sveinsson UBK,
Gunnar Birgisson ÍR, Magnús
Friðbergsson UÍA (bak við hann
er Gunnar Snorrason UBK),
Magnús Haraldsson FH, Einar
Sigurðsson UBK og Gunnar Páll
Jóakimsson ÍR (á bak við Gunnar
er Sighvatur Dýri Guðmundsson
HVÍ). Fyrstu fimm menn í mark
settu persónuleg met á þessari
vegalengd.