Morgunblaðið - 25.05.1982, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1982
25
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ1982
Tilþrifalítill leikur
hjá KA og Akranesi
KA og ÍA skiptu stigunum bród-
urloga á milli sín er liðin skildu jöfn
í 1. deildinni í knattspyrnu á Akur-
eyri á sunnudaginn. Leikið var á
KA-vellinum í ákjósanlegu knatt-
spyrnuveðri. Leikurinn var frekar
tilþrifalítill, leikmenn börðust af
mikilli hörku allan tímann og
knattspyrnan, sem sýnd var, var
ekki mikið augnayndi. Liðin skiptust
á að sækja í upphafi og voru Skaga-
menn heldur sterkari.
KA-markið komst fyrst í hættu
á 10. mín. Jón Alfreðsson átti þá
gott skot af löngu færi en Aðal-
steinn var vel á verði í KA-mark-
inu og varði. Næsta stundarfjórð-
ung gerðist lítið markvert. Mikið
var um lang- og háspyrnur og
voru Skagamenn öllu iðnari við
það. Þeir leika mjög stórkarlalega
knattspyrnu, eru líkamlega
sterkir velflestir en ekki kom mik-
ið út úr tilraunum þeirra. Næsta
marktækifæri féll ÍA einnig í
skaut. Það var á 23. mín. að Sig-
urður Halldórsson skallaði á KA-
markið af stuttu færi eftir fyrir-
gjöf Arna Sveinssonar en Aðal-
steinn bjargaði. Fimm mínútum
síðar komst Sigurður Lárusson í
mjög gott færi inn á vítateig KA
en Aðalsteinn átti ekki í miklum
erfiðleikum með að verja laust
skot hans. Síðasta færi hálfleiks-
ins áttu sunnanmenn einnig, er
Sigþór skallaði framhjá af stuttu
færi eftir fyrirgjöf Árna. Eins og
á þessu sést fékk KA ekkert um-
talsvert færi í fyrri hálfleik og var
framlínan bitlaus.
Seinni hálfleikur var öllu líf-
legri en sá fyrri, en knattspyrnan
var þó sem fyrr ekki í háum gæða-
flokki. Skagamenn spiluðu kröft-
uglega, en þó brá fyrir tilraunum
til netts samleiks hjá einstaka
mönnum. KA-menn reyndu að
spila létt á stundum en varð lítt
ágengt. Guðbjörn fékk fyrsta færi
hálfleiksins. Hann skallaði yfir af
stuttu færi eftir fyrirgjöf. Skaga-
markið komst fyrst í hættu á 13.
mín. hálfleiksins er Jóhann Jak-
obsson átti skalla á markið, eftir
langt innkast Gunnars Gíslason-
ar, en Bjami bjargaði í horn.
Einni mínútu síðar skoraði Sigþór
Ómarsson fyrir ÍA en markið var
dæmt af vegna rangstöðu. Skaga-
menn voru sprækari fyrri hluta
hálfleiksins en um miðjan hálf-
leikinn sóttu KA-menn sig og voru
sterkari aðilinn. Þeir sóttu tölu-
vert en sköpuðu sér þó ekki mörg
færi. Besta færi þeirra kom á 39.
mín. er Ásbjörn átti mjög gott
skot utan úr teig á ská, en knött-
urinn hafnaði í hliðarnetinu utan-
verðu. Skagamenn áttu líka færi
en Aðalsteinn var ávallt á réttum
stað og bjargaði.
Liðin
Leikurinn var í heild ekki sér-
staklega vel leikinn. Hvorugt liðið
náði að sýna fallega knattspyrnu
heldur sátu kraftarnir í fyrirrúmi,
sérstaklega hjá Skagamönnum.
Sterkasti hluti KA-liðsins voru
miðverðirnir Erlingur og Harald-
ur ásamt Aðalsteini í markinu en
þeir stóðu allir vel fyrir sínu.
Framlínan var slök í fyrri hálfleik
en í seinni hálfleik var Hinrik
Þórhallsson mjög frískur og barð-
ist vel en hann fékk of litla aðstoð
til að skapa verulega hættu.
Skagamenn voru sterkari á miðj-
unni. Þeir áttu flesta skallabolta
og voru sterkari í návígjum. Mest
hætta skapaðist af þeirra hálfu er
Árni Sveinsson kom fram í sókn-
ina og sköpuðu fyrirgjafir hans oft
töluverða hættu. Miðverðirnir,
Sigurður Halldórsson og Jón
Gunnlausson, voru traustir og
sterkir í skallaboltunum. KA-
menn gerðu þá skyssu að senda
háa bolta í gríð og erg inn á miðja
vörn íA og höfðu varnarmennirnir
oftast betur.
Dómari var Þóroddur Hjaltalín
og línuverðir Rafn Hjaltalín og
Kjartan Tómasson og stóðu þeir
sig vel ef á heildina er litið.
I stuttu máli:
KA-völlur 1. deild sunnudagur 23.
maí.
KA - ÍA 0:0.
Áminning: engin.
— sh.
Atli skoraði
1000. markið
HAMBORG SV hefur tryggt sér titil-
inn í v-þýsku knattspyrnunni um
helgina. Lið Kölnar sem átti mögu-
leika á að ná Hamborg gerði jafn-
tefli, 4—4, við Frankfurt. Hamborg
gerði jafntefli við Fortuna, 3—3.
Bayern-liðið sigraði Armenia Biele-
feld 3—2. Úrslit leikja urðu þessi:
Kaiserslautern — Niirnberg 2—1
Leverkusen — Bor. Mönchengl.0—0
Darmstadt — Stuttgart 3—1
Bremen — Duisburg 5—1
Fort. Diisseldorf — Hamb. SV 3—3
Karlsruhe — Eintr. Frankfurt 2—2
Braunschweig — FC Köln 4—4
B. Dortmund — Bochura 3—2
Bayern — Armenia 3—2
Ásgeir Sigurvinsson lék með Bay-
ern og átti allgóðan leik. Atli Eð-
valdsson skoraði fyrsta mark Diiss-
eldorf er liðið gerði jafnteflið við
Þýskalandsmeistarana. Var það
1000. markið i deildinni.
Staðan í deildinni er nú þessi:
liamburg SV 33 18 11 4 92:42 47
FC Köln 33 18 9 6 69:34 46
Bayern Múnchen 33 20 3 10 7643 43
BomsNÍa Dortmund 33 18 5 10 S9-A7 41
FT Kawerslautern 33 15 10 8 66:58 40
Werder Bremen 33 16 8 9 57:50 40
Bor. Mönchengladbach 33 14 10 9 55:50 38
Kintracht Frankfurt 33 16 3 14 79:70 35
VFB Stuttgart 33 13 9 11 60:51 35
Kintr. Braunnchweig 33 14 4 15 59*2 32
VFL Bochum 33 11 8 14 49:50 30
Arminia Bielefeld 33 12 6 15 45:47 30
SC Karlarube 33 9 8 16 47:65 26
F(’ Niirnberg 33 10 6 17 50:72 26
Fortuna Diiaseldorf 33 6 13 14 47:71 25
Bayer Leverkusen 33 8 7 18 42:71 23
Darmstadt 98 33 5 11 17 45:76 21
MSV Ihiwburg 33 7 3 23 38:76 17
• Sigurjón Kristjánsson skorar þriðja mark Breiðabliks eftir góða sendingu frá Sigurði Grétarssyni. Þorsteinn gerði hvað hann gat til að bjarga marki en allt kom fyrir
ekki. Ljósm. Kriatján Einnrason
Öruggur sigur UBK gegn Keflavík
LIÐ Breiðabliks trónar nú í efsta
Kti 1. deildar í knattspyrnu. UBK
hefur fengið óskabyrjun í mótinu
unnið tvo leikí og gert eitt jafntefli.
Skorað sjö mörk í þremur leikjum. Á
sunnudagskvöldið sigraði liðið ÍBK
3—0. En lið Keflavíkur hefur nú
leikið þrjá leiki í mótinu án þess að
skora mark. Má því alveg búast við
[iví að róðurinn verði þungur hjá liði
BK í 1. deild í sumar.
Fyrri hálfleikur í leik UBK og
ÍBK var mjög jafn. Liðin skiptust
á að sækja en ekki voru marktæki-
færin mörg. Sigurður Grétarsson
átti gott skot á 26. mínútu sem fór
rétt framhjá. Og Óli Þór átti mjög
laglegt skot á 29. máútu sem Guð-
mundur varði naumlega í horn. Á
33. mínutu leiksins skora Keflvík-
ingar mark úr þvögu inni í mark-
teig. En línuvörðurinn gerði
athugasemd við markið, taldi að
brotið hefði verið á vamarmanni
UBK og dómarinn dæmdi markið
því af. Á. 34. mínútu átti Hákon
Gunnarsson mjög gott færi en
Þorsteinn markvörður var vel á
verði og bjargaði í horn.
Fyrsta markið kom svo á 43.
mínútu. Hvað annað. Það er ekki
út af neinu sem þessi mínúta í
fyrri hálfleik er nefnd markamín-
útan. Sigurður Grétarsson komst
skyndilega einn innfyrir vörn ÍBK
sem var illa á verði. Sigurður lék
upp að markteig og reyndi skot.
Þorsteinn markvörður ÍBK kom
vel út á móti, kastaði sér fyrir
fætur Sigurðar og varði skot hans
vel, en hélt ekki boltanum, sem
skoppaði út til Birgis Teitssonar
sem var ekki í vandræðum með að
senda hann i netið af stuttu færi
með föstu skoti, 1—0.
Þannig var staðan i hálfleik. í
Einkunnagjofin
KA:
Aöalstainn Jóhannsson
Tómas Vilbargsson
Guójón Guójónsson
Haraldur Haraldsson
Erlingur Kristjánsson
Gunnar Gíslason
Elmar Geirsson
Ormarr Órlygsson
Hinrik Þórhallsson
Jóhann Jakobsaon
Ásbjörn Björnsson
ÍA:
Bjami Sigurósson
Guójón Þóröarson
Jón Gunnlaugsson
Siguróur Lárusson
Siguróur Halldórsson
Jón Áskalsson
Sveinbjörn Hákonarson
Jón Alfrsósson
Sigþór Ómarsson
Guóbjörn Tryggvason
Ámi Sveinsson
UBK:
Guómundur Ásgeirsson
Ólafur Björnsson
Valdimar Valdimarsson
Helgi Helgason
Ómar Ratnsson
Bjöm Þ. Egilsson
Hákon Gunnarsaon
Sigurjón Kristjánsson
Siguróur Grátarsson
Trausti Ómarsson
Birgir Teitsson
ÍBK:
Þorsteinn Bjarnason
Kristinn Jóhannsson
Gislí Eyjólfsson
Siguróur Björgvínsson
Einar Ólafsson
Magnús Garöarsson
Daníel Einarsson
Óli Þór Magnússon
Rúnar Georgsson
Ingiber Óskarsson
Hermann Jónasson
LID ÍBV
Hreggviöur Ágústsson
Snorri Rútsson
Ágúst Einarsson
Valþór Sigþórsson
örn Óskarsson
Sveinn Sveinsson
Jóhann Georgsson
Ómar Jóhannsson
Þóróur Hallgrímsson
Sigurlás Þorleifsson
Kárí Þorleifsson
Hlynur Stefánsson (vm)
LID KR
Stefán Jóhannsson
Guójón Hilmarsson
Sigurftur Pátursson
Ottó Guómundsson
Siguróur Indriöason
Jósteínn Einarsson
Ágúst W. Jónsson
Jakob Eínarsson
Óskar Ingimundarson
Willum Þórason
Magnús Jónsson
Siguróur Sigurósson (vm)
LID VÍKINGS:
Ögmundur Kristinsson
Þóróur Marelsson
Magnús Þorvaldsaon
Stefán Halldórsson
Helgi Helgason
Gunnar Gunnarsson
Ómar Torfason
Jóhann Þorvaróarson
Jóhannes Báróarson
Heimir Karlsson
Sverrir Herbertsson
Óskar Tómasaon vm.
LIÐ ÍBÍ:
Hreióar Sigtryggsson
Gunnar Pátursson
Guómundur Jóhannsson
Ámundi Sigmundsson
Örnólfur Oddsson
Gunnar Guómundsaon
Haraldur Stefánsaon
Kristinn Kristjánsson
Halldór Óiafsson
Gústaf Baldvinsaon
Jón Oddsson
UBK o n
-IBK 3-0
síðari hálfleiknum léku Breiða-
hliksmenn mun betur en í fyrri
hálfleik. Þeir náðu nú sína stutta
og hraða samspili betur og náðu
betri tökum á miðju vallarins.
Annað mark liðins kom á 52. mín-
útu. Hákon Gunnarsson átti skot
að marki eftir pressu á mark ÍBK
og einn varnarmaður ÍBK sá sér
þann kost vænstan að bjarga á
línu með höndunum. Sigurður
Grétarsson skoraði svo úr víta-
spyrnunni sem dæmd var, 2—0.
Lið ÍBK gafst síður en svo upp
við mótlætið í leiknum. Leikmenn
börðust af miklum dugnaði og
náðu oft að leika vel saman. Það
hefði síður en svo verið ósann-
gjarnt að liðinu hefði tekist að
skora mark. Á 69. mínútu til dæm-
is munaði mjög litlu. Þá var
Magnús Garðarsson í mjög góðu
færi en mistókst að skora. Guð-
mundi markverði tókst að bjarga
á síðustu stundu naumlega, bolt-
inn barst fyrir markið og þar var
stíft pressað en Ólafur fyrirliði
náði að bjarga á marklínu og
hreinsa frá. Þetta var besta tæki-
færi ÍBK í síðari hálfleiknum.
UBK bætti þriðja marki sínu við á
73. mínútu. Sigurður Grétarsson
átti allan heiðurinn af því. Hann
fékk langa sendingu út á kantinn,
brunaði upp, lék á varnarmann
IBK og gaf síðan gullfallega send-
ingu á Sigurjón Kristjánsson sem
kom á fullri ferð inn í vítateiginn
og skoraði framhjá Þorsteini
Bjarnasyni, 3—0.
Lið UBK lék allvel í síðari hálf-
leiknum gegn ÍBK, en var lengi að
ná sér almennilega á strik. Það er
alveg greinilegt að þrátt fyrir að
Iiðið leiki oft vel, þarf ekki mikið
til að það detti niður á sama plan
og liðin í neðri helmingi deildar-
innar. Styrkleiki Breiðabliks ligg-
ur meðal annars í því hversu jafn-
ir leikmenn liðsins eru. Þeir hafa
flestir góða boltameðferð og gott
auga fyrir samleik. Þá spilar liðið
vörnina vel. Leikmenn valda mað-
ur á mann, en Ólafur Björnsson er
látinn liggja aftast og er fríspil-
andi. Þetta gefst mjög vel. í leikn-
um gegn ÍBK átti Valdimar Valdi-
marsson góðan leik. Traustur leik-
maður sem valdar mjög vel í vörn-
inni og er ávallt tilbúinn að grípa
inn í leikinn og hjálpa samherjum
sínum. Ómar og Ólafur voru líka
mjög traustir. Sigurður Grétars-
son var góður í framlínunni, leik-
maður sem er ávallt hættulegur
hvaða vörn sem er. Sigurjón
Kristjánsson var mikið í boltan-
um, en hættir til að vera of seinn
að gefa hann frá sér, jafnframt
sem hann vantar meiri yfirsýn yf-
ir leikinn. Sigurjón hefur góða
boltatækni og er baráttuglaður.
Lið ÍBK lék alls ekki illa í leikn-
um, síður en svo. Leikmenn sýndu
allir mikla baráttu, en skorti
nokkuð á að ná beittum samleik.
Liðið mætti nýta vallarbreiddina
betur en það gerði í leiknum gegn
UBK. Um of var sótt upp miðju
vallarins. Leikmenn voru jafnir að
getu, en Óli Þór þó einna skástur.
Sigurður Björgvinsson lék allvel á
miðju vallarins en skorti nokkuð
stuðning. Kristinn Jóhannsson
kom vel frá bakvarðarstöðu sinni,
lipur leikmaður sem kann ýmis-
legt fyrir sér í knattspyrnunni.
í stuttu máli: íslandsmótið 1.
deild. UBK-ÍBK 3-0 (1-0)
Mörk UBK: Birgir Teitsson á 43.
mínútu. Sigurður Grétarsson úr
vítaspyrnu á 52. mínútu. Og Sigpir-
jón Kristjánsson á 73. mínútu.
Gult spjald: Þorsteinn Bjarnason,
markvörður ÍBK.
Dómari í leiknum var Gísli Guð-
mundsson og dæmdi hann vel.
Línuverðir voru þeir Hreiðar
Jónsson og Guðmundur Sigur-
björnsson.
Áhorfendur voru 1470. — ÞR.
Líjill meistarabragur
á Islandsmeisturunum
- er þeir töpuðu 2-3 fyrir nýliðum ÍBÍ
NÝLIDAR ÍBÍ í 1. deild komu heldur betur á óvart á sunnudaginn, er liðið
gerði sér lítið fyrir og sigraði meistara síðasta árs Víking mjög verðskuldað á
Laugardalsvellinum. Fyrsti sigur ÍBÍ í 1. deild, ekki bara á þessu keppnis-
tímabili heldur frá upphafi félagsins. Óhætt er að segja að lítill meistarabrag
ur hafi verið á leik meistaranna og ef framhald verður á slíkri frammistöðu
hjá liðinu þarf það frekar að hafa áhyggjur af falli en að verja titilinn. Hreinl
ótrúlegt að sjá hversu illa liðið lék, engu líkara en að leikmenn liðsins hafi
talið það nægja að mæta til leiks, sigurinn væri vís. Gestirnir gengu á lagið,
hreinlega hlupu yfir Víkingana og sigur liðsins var meira en verðskuldaður.
Stórkarlaleg knattspyrna
Leikur þessi var afar stórkarla-
legur, fyrst og fremst gífurleg
barátta og kraftur ísfirðinga setti
mark sitt á leikinn. Tilviljana-
kennd langspyrnuknattspyrna hjá
ÍBÍ og ómarkviss og misheppnuð
þríhyrningaknattspyrna Víkinga,
krydduð langspyrnum fyrst og
fremst út í bláinn. Sigur ÍBÍ var
afar sanngjarn eins og fram kem-
ur í upphafi greinar, sanngjarn
vegna þess að leikmenn liðsins
börðust af fádæma og aðdáunar-
verðum krafti. Og það sem skipti
ekki minna máli, liðið fékk þrjú
marktækifæri og nýtti þau öll.
Víkingarnir á hinn bóginn gátu
varla talist þátttakendur í leikn-
um og færi fengu þeir fá sem kall-
andi er því nafni.
Víkingsmarkið slapp vel eftir
nokkrar góðar fyrirgjafir Isfirð-
ínga og darraðardansa framan af
fyrri hálfleiknum, en á 25. mínútu
skoraði ÍBÍ. Liðið fékk auka-
spyrnu hægra meginn og er knött-
urinn barst vel fyrir markið
gnæfði körfuknattleiksrisinn úr
IS, Guðmundur Jóhannsson, yfir
aðra leikmenn og stýrði knettin-
um í fallegum boga yfir ögmund
markvörð og í hornið fjær. Mikill
fögnuður hjá ÍBÍ, 1—0. Fleira
markvert gerðist hreint ekki í
fyrri hálfleik og þeir að vestan
gengu teinréttir og reifir til bún-
ingsklefa í hálfleik.
ÍBÍ eykur forskotiö
Síðari hálfleikur hófst með leið-
inlegu og sorglegu atviki. Andrés
Kristjánsson fyrrum leikmaður
ÍBÍ og nú með Víking kom inn
fyrir Sverri Herbertsson, en vart
voru tvær mínútur liðnar er hann
var borinn ökklabrotinn af leik-
velli. Sparkaði hann saman við ís-
firðing nokkurn er báðir sóttu að
Víkingur-ÍBÍ
2-3
• Andrés Kristjánsson framlínu-
maður hjá Víking varð fyrir því
óhappi i leiknum að ökklabrotna eft-
ir aðeins fárra minútna leik
knettinum. Algjört óviljaverk.
Óskar Tómasson kom þá inn á og
leikurinn hélt áfram. En þegar
hálfleikurinn var aðeins tíu mín-
útna gamall greiddu ísfirðingar
Víkingum vænan kinnhest. Vík-
ingar sóttu og var mikil þvaga í
kring um vítateigslínu ÍBI. Einn
varnarmanna liðsins náði til
knattarins og spyrnti langt fram.
Hinn fótfrái Jón Oddsson og Jó-
hannes Bárðarson hófu þá kapp-
hlaup um knöttinn og þarf vart að
taka fram hvor hafði betur. Virt-
ist Jóhannes hreinlega hafa skotið
stólparót í völlinn og dró hann þó
ekkert af sér. Komst Jón einn að
marki Víkings og skoraði af ör-
yggi!
Víkingar jafna og ...
Víkingarnir hófu nú að sækja af
hálfgerðri örvæntingu, en til að
byrja með gekk ekkert. Á 66. mín-
útu lék lánið þó við þá, þeir brugðu
sér þá á flóamarkað og festu kaup
á einu af ódýrustu mörkunum sem
þar fengust. Heimir Karlsson tók
aukaspyrnu langt úti á vinstri
kantinum og sendi knöttinn inn að
markinu. Ömar Torfason hljóp
fyrir skotlínuna en snerti ekki
knöttinn. Nærvera hans ruglaði þó
Hreiðar markvörð illa og var hann
í gervi áhorfanda er knötturinn
sniglaðist skoppandi í netið. Þetta
ódýra mark lífgaði Víkinga aðeins
við og dró að sama skapi kjark úr
ÍBÍ—mönnum um hríð. Vík-
ingarnir jöfnuðu því umsvifalaust,
Jóhann Þorvarðarson skoraði af
stuttu færi eftir fyrirgjöf Heimis
frá vinstri.
En atgeirar Víkinganna voru nú
orðnir bitlausir, einnig tennur
þeirra á því að bíta í skjaldarend-
urnar, allt sótti í sama horfið á ný
og tíu mínútum fyrir leikslok
skoraði ÍBÍ glæsilegt sigurmark.
Stefán Halldórsson braut á Jóni
Oddssyni út við endalínu skammt
utan vítateigs og aukaspyrnu
Kristins Kristjánssonar skallaði
Gústaf Baldvinsson stórglæsilega
í netið. 3—2 fyrir ÍBÍ og fleiri urðu
mörkin ekki.
Það var fátt um fína drætti hjá
íslandsmeisturunum, helst að
Sverrir Herbertsson sýndi góða
takta, en vegna meiðsla gat hann
ekki leikið síðari hálfleik. ísfirð-
ingamir eiga hins vegar allir lof
skilið fyrir frammistöðu sína,
jafnræði leikmanna liðsins var
styrkur þess og ósanngjarnt væri
að taka einn út úr og skjalla öðr-
um fremur. Þetta var sanngjarn
sigur samtaka liðsheildar.
I stuttu máli:
íslandsmótið 1. deild: Víkingur-
ÍBÍ 2-3 (0-1)
Mörk Víkings: Heimir Karlsson á
66. mínútu og Jóhann Þorvarðar-
son á 68. mínútu.
Mörk ÍBÍ: Guðmundur Jóhanns-
son á 25. mínútu, Jón Oddsson á
55. mínútu og Gústaf Baldvinsson
á 80. mínútu.
Áminningar: Engar.
Áhorfendur: 600.
Dómari: Vilhjálmur Þór Vil-
hjálmsson. — gg.
Þrjú lið eru efst
og jöfn í 2. deild
FH-INGAR sigrudu Reyni í miðju-
þófsleik í Kaplakrika um helgina.
Það var nýliðinn í liði FH-inga, Guð-
jón Árnason, sem skoraði mark FH
með glæsilegum skalla eftir góða
fyrirgjöf fri Jóni Halldóri, um miðj-
an fyrri hálfleik.
Leikurinn var annars ekki mikið
fyrir augað, en þó kom fyrir að
liðin spiluðu sæmilega knatt-
spyrnu. FH-ingar voru sterkari
aðilinn í fyrri hálfleik og sköpuðu
sér þá nokkur hættuleg færi, en í
FH-
Reynir
síðari hálfleik snerist dæmið við
og Reynir sótti meira. Ef Reynir
hefði nýtt sín færi hefðu þeir
hæglega getað farið með eitt stig
með sér heim.
Völsungur sigraði Einherja 2-1
í 2. deild á Húsavík á sunnudag.
Leikur liðanna var nokkuð jafn.
Mörk Völsungs skoruðu Jónas
Hallgrímsson og Hörður Benón-
Islandsmðtlð 2. delld
ýsson. Mark Einherja skoraði
Baldur Kjartansson.
Á Neskaupstað léku heima-
menn, Þróttur, við Þór, Akureyri,
og sigraði Þór 1-0.
STAÐAN
Staðan í 2. deild eftir leiki helg-
arinnar er þessi:
Þróttur R
Þór Ak.
Völsungur
Fylkir
FH
Þróttur N
Einherji
Reynir S
Njarðvík
Skallagrímur
22005-04
2 2 0 0 5-2 4
2 2 0 0 3-1 4
21103-23
21102-13
10010-10
10011-20
2 0 0 2 0-2 0
2 0 0 2 2-5 0
2 0 0 2 1-6 0