Morgunblaðið - 25.05.1982, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1982
31
Samitingur Hjúkrunarfræðingafélags Islands og ríkisins:
Samþykktur með mikl-
um meirihluta félaga
Hjúkninarfreðingar hjá ríkinu og á
Landakoti hafa samþykkt nýjan sér-
kjarasamning við ríkið, sem tekur gildi
1. ágúst nk., en þó eru atriði í samn-
ingnum sem eru afturvirk til 16. maf sl.
og vegur þar þyngst, að námstími er
metinn að fullu i sambandi við launa-
skrið.
Samningurinn gerir ráð fyrir, að
byrjunarlaun hjúkrunarfræðinga
verði samkvæmt 14. launaflokki, 2.
þrepi, en hjúkrunarfræðingar færast
síðan 4 mánuðum eftir að þeir ljúka
námi upp í 15. launaflokk, 2. þrep, i
samræmi við það ákvæði samnings-
ins, að þeir skuli hækka í 15. launa-
flokk, 2. þrep eftir þriggja ára starf.
Hjúkrunarfræðingar fengu áður
greidd byrjunarlaun samkvæmt 11.
launaflokki, 2. þrepi, en gerðu kröfu
um, aö fá þau greidd samkvæmt 16.
launaflokki, 2. þrepi, en kjaranefnd
úrskurðaði, að þeir skyldu fá byrjun-
arlaun greidd samkvæmt 13. launa-
flokki, 2. þrepi. Það má því segja, að
hækkun hjúkrunarfræðinga sé fjórir
launaflokkar í stað fimm, sem þeir
fóru fram á í sínum kröfum.
Þá má geta þess, að samkvæmt
samningnum fá hjúkrunarfræðingar
í stjórnunarstöðum launaflokks-
hækkun eftir fimm ára starf í stöð-
unni, s.s. hjúkrunarstjórar, hjúkrun-
arframkvæmdastjórar og hjúkrun-
arforstjórar, bæði í heilsugæzlu-
stöðvum og á sjúkrahúsum, auk þess
sem deildarstjórar fá launaflokks-
hækkun eftir sem áður eftir fimm
ára starf.
Hjúkrunarfræðingafélag íslands
boðaði sl. laugardag til almenns fé-
lagsfundar til að ræða um þennan
nýja samning og sýndist sitt hverj-
um á fundinum, en síðan spunnust
mjög harðar deilur, þegar ákveðið
var af stjórn félagsins, að aðeins
þeir hjúkrunarfræðingar, sem starf-
að höfðu hjá ríkinu áður en þeir
sögðu upp, skyldu greiða atkvæði um
hann. Mjög margir hjúkrunarfræð-
ingar gengu þá af fundi og voru
greidd atkvæði. Samningurinn var
samþykktur með miklum meirihluta
atkvæða. Hann var síðan til umfjöll-
unar á fundi hjúkrunarfræðinga á
Landakoti í fyrradag og var enn-
fremur samþykktur með miklum
meirihluta atkvæða.
Samkvæmt upplýsingum Mbl. var
öll starfsemi sjúkrahúsanna að kom-
ast í eðlilegt horf í gærdag, en þess
ber þó að geta, að enn hefur ekki
verið gengið frá samningum við
hjúkrunarfræðinga á Borgarspítal-
anum, en þeir hafa sagt störfum sín-
um lausum 1. júní. Hins vegar hefur
verið boðaður fundur með fulltrúum
Reykjavíkurborgar og hjúkrunar-
fræðingum síðar í vikunni og er
reiknað með, að samningurinn verði
samþykktur þar eins og annars stað-
ar.
Vegna ótrúlega hagstæðra samninga við verksmiðjumar getum við nú boðið nýjan Skoda á
aðeins
59.700k,
Við fengum ekki nema 200 bfla á þessum vfldarkjömm svo nú er um að gera að panta strax
Þetta er tilboð sem talandi er um
ÆTLIÐ ÞER
AÐ KAUPA
IGNIS
ÞVOTTAVÉL
IGNIS K-12 þvottavélin er
nú fáanleg aftur. Margra
ára reynsla á þessari frá-
bæru þvottavél jafnvel' í
fjölbýlishúsum sannar að
þetta er vél framtíðarinnar.
Veltipottur úr ryðfriu stáli.
Legur beggja megin við
veltipott. Vinduhraði 600
sn/mín.
Tekur 5 kg. með sparn-
aðarkerfi fyrir 3 kg.
RAFIÐJAIM H.F.
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll
Sími 19294 og 26660
ÆTUÐ ÞÉR AÐ
KAUPA
IGNIS
CONCORD
KÆLISKÁP ?
TILBOÐSVERÐ
Vegna magninnkaupa get-
um við boóið 310 It. kæli-
skáp á tækifærisverói:
Verð áður 7.455
Verð nú 6.800
Sérstaklega sparneytinn
með polyurethane einangr-
un.
Hljóðlátur, öruggur, stll-
hreinn.
Möguleiki á vinstri og
hægri opnun. Gott fernu-
pláss.
Hægt að skipta um lit aó
framan.
Algjörlega sjálfvirk af-
þýðing.
Góðir greiðsluskilmálar.
RAFIÐJAN H.F
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll
S.19294 og 26660