Morgunblaðið - 25.05.1982, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ1982
45
Útilokið skellinöðrurnar
eða færið göngustígana
K J. skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Ég bý í blokk við Vesturberg
í Breiðholti. Bæði fyrir framan
og aftan húsið eru göngugötur,
þar sem bannað er að aka um á
vélknúnum farartækjum, t.d.
skellinöðrum. Engu að síður
má sjá þar drengi brunandi á
skellinöðrum á öllum tímum
dagsins, og það sem verra er:
öll kvöld og langt fram á næt-
ur.
Þetta er orðið vandamál
þegar vinnandi fólk fær ekki
svefnfrið vegna þessara vél-
hjólaæfinga næturhrafnanna
fáeina metra frá svefnher-
bergisgluggum íbúðarhúsanna,
og þetta vandamál verður að
leysa. Ég hef margoft hringt í
lögregluna af þessum sökum.
Hún gerir ævinlega það sem í
hennar valdi standur, þ.e.
kemur og talar við drengina,
en eftir skamma stund drynur
í skellinöðrunum á ný og þær
þjóta eftir stígnum.
Nú bið ég borgaryfirvöld að
snúa sér að því í alvöru að
leysa þetta vandamál okkar
hér við Vesturbergið, þ.e. að
útiloka skellinöðrur frá göngu-
stígunum með einhverjum
hætti — eða flytja stígana
lengra frá íbúðarhúsunum."
Þessir hringdu . . .
Þriðja hjólinu
hans stolið
Birna Björnsdóttir hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — A
þriðjudagskvöldið í síðustu viku
var stolið hjóli frá syni mínum,
þar sem það stóð hér fyrir utan
gluggana á Fjólugötu 11A. Það
hafði aðeins staðið þarna í nokkra
klukkutíma, en drengnum hefur
sennilega láðst að læsa því. Þetta
er tíu gira silfurgrátt DBS-hjól,
með svörtum hnakk og verk-
smiðjunúmerið er 7132066. Eig-
andinn er alveg eyðilagður, því að
það hafði tekið hann langan tíma
að safna sér fyrir hjólinu. Ekki
bætir það heldur um, að þetta er
þriðja hjólið sem stolið er frá hon-
um. Ég leyfi mér að brýna fyrir
foreldrum að halda vöku sinni og
gá að sér ef börn þeirra koma
heim með hjól sem aðrir eiga. Það
eru nefnilega alltaf einhverjir sem
líða fyrir missinn og sitja eftir
með sárt ennið.
Fyrirspurn til
Strætisvagna
Reykjavíkur
Sigurlín Guðmundsdóttir hringdi
og hafði eftirfarandi að segja:
— Ég er svo lánsöm að geta kom-
ist ferða minna gangandi þrátt
fyrir háan aldur og dálitla fötlun.
En ég get hins vegar ekki notfært
mér ferðir strætisvagnanna vegna
þessarar fötlunar, af því að stigið
upp í þá er mér ofviða. Ég á heima
við Austurberg í Breiðholti og
verð ævinlega að taka leigubíl
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesend-
ur til að skrifa þættinum um
hvaðeina sem þeim liggur á
hjarta — eða hringja milli kl.
10 og 12 mánudaga til föstu-
daga. Bréf þurfa ekki að vera
vélrituð. Þeir sem ekki koma
því við að skrifa slá þá bara á
þráðinn og Velvakandi kem-
ur orðum þeirra áleiðis.
Nöfn, nafnnúmer og heimil-
isföng þurfa að fylgja öllu
efni til þáttarins, þó að höf-
undar þess óski nafnleyndar.
þegar ég fer til læknis, og það er
oft. Þetta er auðvitað dýrt fyrir
ellilífeyrisþega. Nú langar mig til
að biðja forstjóra SVR að láta álit
sitt í ljós á því, hvort hægt sé að
gera einhverjar ráðstafanir við
biðstöðvar strætisvagnanna, elleg-
ar í vögnunum sjálfum, sem auð-
veldað geti fötluðu fólki að komast
inn. Sjálfsagt er það fjöldi manns
sem ekki getur nýtt sér þessa
þörfu almenningsþjónustu af
sömu eða svipuðum ástæðum.
Bjartari sól yfir
borginni minni
Sigurður Pétursson hringdi og
hafði eftirfarandi að segja:
— Þegar ég var að ganga í vinn-
una í morgundýrðinni, í einstakri
veðurblíðu og glöðu sinni eftir
skemmtilega kosningahelgi, varð
þessi staka til í huga mínum:
Fjöturinn rauði er fallinn að sinni,
og frelsið mun leysa vandann.
Það er bjartari sól yfir borginni minni
og betra að draga andann.
Ekkert okkar
kaus kratana
Hanna hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Ég vinn á fjöl-
mennum vinnustað og við komum
okkur saman um það, starfsfólkið,
af því að vinnutíminn er oft lang-
ur hjá okkur, að kanna það hjá
framboðslistunum, hver væri af-
staða þeirra til opnunartíma
verslana. Best líkaði okkur svar
kvennalistans og undirtektir við
fyrirspurn okkar. Hjá krötunum
svaraði kona nokkur og kvað hún
verslunarfólk verða að fá frí á við
aðrar stéttir, en sjálf sagðist hún
vinna í verslun. Ég held að fólk sé
almennt orðið afar þreytt á því að
komast ekki í verslanir utan síns
vinnutíma, t.d. á laugardögum,
eins og tíðkast í nágrannalöndum
okkar, þrátt fyrir þá staðreynd að
vinnutími er hér lengri en nokkurs
staðar þekkist. Ég held að enginn
á mínum vinnustað hafi kosið
kratana. Þá má í leiðinni nefna
annað dæmi um það þegar þrýsti-
hópar vilja ráða þeirri þjónustu
sem veitt er hér í borginni, en það
er lokun dagvistarheimila hér í
borginni vegna sumarfría, í heilar
6 vikur, þrátt fyrir að nóg framboð
sé af vinnuafli skólafólks á sama
tíma og jafnvel atvinnuleysi í röð-
um þess.
Skrýtin tilviljun
SJ. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Þjóðviljinn segir
frá því á laugardaginn, að 15 af
aðalaðstandendum kvennafram-
boðsins hafi hringt í blaðið og sagt
upp áskrift vegna krossaprófs sem
verið hafi í blaðinu þann dag.
Skrýtin tilviljun að svo margir af
forsvarsmönnum listans skuli
hafa verið áskrifendur að Þjóðvilj-
anum.
■
SMi
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Stjórnarsinnar og stjórnarandstæðingar ásaka
hverjir aðra um óheilindi.
Rétt væri: Stjórnarsinnar og stjórnarandstæðingar saka
hvorir aðra um óheilindi. (Ath.: Þarna er aðeins um tvenna
að ræða.)
Bólstrarar —
Húsgagnaverslanir
Leðurlíki í miklu úrvali nýkomið, heildsölubirgðir.
Davíð S. Jónsson og Co hf.,
Sími 24333.
Lokar! Lokar!
Einstefnulokar lóö-
og lóróttir Vi“—2“
Rennilokar V« “—3“
Keílulokar 2“
Síur %“
Vatnshæðalokar
&
öryggislokar —y«“
Kúlulokar 2“
Útvegum allar geröir og stærðir loka.
LEITID SÉRTILBOÐA
G.J. Fossberg Vélaverzlun.
Skúlagötu 63.
Sími 18560.
Sænsk gæðavara
KORK-gólfflísar
með vinyl-
plastáferð.
Kork*o*Plast
í 10 gerðum
Veggkork
í 8 gerðum
Ávallt ^
tilá
lager
Aörar korkvörutegundir 6 lager:
Undirlagskork í þremur þykktum.
Korkvélapakkningar í tveimur þykktum
Gufubaðstofukork.
Veggtöflu-korkplötur í þremur þykktum
Kork-parket venjulegt í tveimur þykktum
Einksumboð A (slandi fyrir WICANDERS KORKFABRIKER
bb Þ. ÞORGRÍMSSON & GO
VV Ármúla 16 — Sími 38640 — Pósthólf 242