Morgunblaðið - 25.05.1982, Side 40
Síminn á afgreiðslunni er
83033
ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1982
Meirihlutasigur
Sjálfstæðisflokksins
í Eyjum og Njarðvík
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN vann meirihluta ba-jarfulltrúa í Vestmanna-
eyjum og Njarðvík í bæjarstjórnakosningunum, 6 menn af 9 í Vestmannaeyj-
um og 4 menn af 7 í Njarðvík, en litlu munaði að sjálfstæðismenn fengju
einum fulltrúa meira á hvorum stað.
í Vestmannaeyjum fengu sjálf-
stæðismenn 58,9% atkvæða og var
um 20,4% fylgisaukningu að ræða
og 6 menn í bæjarstjórn í stað 4
áður, en vinstri meirihluti hefur
Samninganefndir ASÍ
og VSÍ hittast í dag:
Byggingarmenn
í verkfalli
Samninganefndir ASÍ og VSÍ munu
koma saman til fundar hjá ríkissátta-
semjara klukkan 13.30 i dag, en fundir
hafa legið niðri frá því á fostudag.
Samningar hafa nú verið lausir við
flestöll félög ASÍ síðan 15. mai sl.
Sólarhrings verkfall flestra félaga
byggingarmanna skall á á miðnætti
í nótt og ef ekki verður komið sam-
komulag nk. fimmtudag hafa þessi
sömu félög boðað annað sólarhrings-
verkfall til að knýja á um gerð nýs
kjarasamnings. Þessi sömu félög
fóru í sólarhringsverkfall í síðustu
viku.
Félag framreiðslumanna var í sól-
arhringsverkfalli sl. laugardag, en
slitnað hafði upp úr viðræðum
þeirra og veitingahúsaeigenda að-
faranótt sl. föstudags. Félagið hefur
síðan boðað tveggja sólarhringa
verkfall um næstu helgi, 28.-29.
maí, hafi samningar ekki tekizt.
Guölaugur Þorvaldsson, ríkissátta-
semjari, sagði í samtali við Mbl., aö
enn hefði enginn fundur verið boðað-
ur í deilu aðila. — Við ákváðum á
síðasta fundi, að ef breyting yrði á
afstöðu annars hvors aðilans myndi
hann láta mig vita og viðræður yrðu
þá teknar upp að nýju. Það hefur
hins vegar ekki gerst og ég sé ekki
ástæðu til að hefja viðræður að svo
stöddu. Það ber svo mikið á milli
aðila, sagði Guðlaugur ennfremur.
verið í Vestmannaeyjum í 16 ár en
áður hafði Sjálfstæðisflokkurinn
meirihluta um árabil. í Njarðvík
fengu sjálfstæðismenn meirihluta
á ný, en þeir voru í minnihluta sl.
kjörtímabil eftir að hafa haft
meirihluta um langt árabil.
Það má til gamans geta þess að
efstu menn á listum Sjálfstæðis-
flokksins í Vestmannaeyjum og
Njarðvík, Sigurgeir Ólafsson í Eyj-
um og Aki Gránz í Njarðvík, voru
bekkjarbræður alla tíð í skóla í
Eyjum, árgangur 1925, og í þeirra
bekk var einnig fráfarandi borgar-
stjóri í Reykjavík, Egill Skúli Ingi-
bergsson.
Sjá viðtöl í miðopnu og bls. 30.
Sjálfstæðisflokkurinn í Vestmannaeyjum vann glæsiiegan sigur í bæjarstjórnarkosningunum, hlaut 6 menn af 9.
Myndina tók Sigurgeir Jónasson af nýja meirihlutanum þar sem karlmennirnir bera Sigurbjörgu Axelsdóttur á
örmum sér. Auk Sigurbjargar eru á myndinni frá vinstri: Georg Þór Kristjánsson, Arnar Sigurmundsson, Sigurgeir
Ólafsson (Siggi Vídó), Sigurður Jónsson og Bragi Ólafsson.
Samningur hjúkrunarfræðinga og ríkisins og Landakots:
Laun hjúkrunarfræðinga
hækka um tæplega 20%
Sjúkraliðar ganga út 1. júní nk. hafi ekki fengizt leiðrétting á kjörum þeirra
NÁÐST HEFUR samkomulag rnilli hjúkrunarfræðinga annars vegar og ríkis-
ins og Landakots hins vegar um nýjan sérkjarasamning, og hafa hjúkrunar-
fræðingar nú snúið til starfa að nýju. Enn er ósamið við hjúkrunarfræðinga á
Borgarspítalanum, en búizt er við að það verði gert á næstu dögum og þá á
sömu nótum.
Hjúkrunarfræðingar hækka
samkvæmt samningum úr 11.
launaflokki, 2. þrepi, en laun sam-
kvæmt þeim flokki verða eftir
hækkun 1. júní nk. 8.650 krónur,
upp i 14. launaflokk, 2. þrep, en
laun samkvæmt þeim flokki verða
eftir hækkunina 1. júní nk. 9.662
krónur, og síðan eftir 4 mánuði i
starfi upp í 15. launaflokk, 3. þrep,
en laun samkvæmt þeim launa-
flokki verða eftir hækkunina 1.
júní nk. 10.351 króna. Hækkunin
er því um 11,7% strax og í raun
tæplega 20% ef miðað er við fjög-
urra mánaða starf.
Eins og áður sagði fóru hjúkr-
unarfræðingar fram á, að byrjun-
arlaun þeirra yrðu samkvæmt 16.
launaflokki, 2. þrepi, en laun sam-
kvæmt þeim launaflokki verða eft-
ir hækkun 1. júni nk. 10.351 króna,
eða sama upphæð og hjúkrunar-
fræðingar fá í raun eftir fjögurra
mánaða starf í 15. launaflokki, 3.
þrepi. En síðan kemur venjulegt
launaskrið eftir sem áður eftir 3, 6
og 9 ár.
Starfsemi sjúkrahúsanna er nú
óðum að færast í eðlilegt horf, en
það gæti orðið skammvinn sæla,
því sjúkraliðar hafa sagt upp
störfum sínum frá 1. júní nk. hafi
ekki fengizt leiðrétting á kjörum
þeirra fyrir þann tíma. Ekkert
virðist benda til þess að svo verði,
því enn hafa engar alvöruviðræð-
ur farið fram milli aðila.
Geir Hallgrímsson um kosningaúrslitin:
Samheldni og sóknarhugur
— styrkur í baráttunni framundan
— Kosningaúrslitin eni ákaflega ánægjuleg fyrir okkur sjálfstæðis-
menn. Við eigum mikilli fylgisaukningu að fagna um allt land, sagði Geir
llallgrimsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, þegar Morgunblaðið ræddi
við hann í gær um kosningaúrslitin. — Þegar við misstum meirihlutann í
borgarstjórn Reykjavikur fyrir fjórum árum, sögðu andstæðingar okkar,
að útilokað væri, að Sjálfstæðisflokkurinn ynni meirihlutann í höfuðborg-
inni á ný. Strax að loknu fyrsta kjörtímabili vinstri meirihlutans hefur
þessi kenning verið afsönnuð. Hið mikla fylgi Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavik og nágrannasveitarfélögum og raunar Reykjaneskjördæmi
öllu, að ekki sé rainnzt á hinn glæsilega sigur i Vestmannaeyjum, hefur
vakið mikla athygli.
Hver verða áhrif þessara
kosningaúrslita á stöðu mála
innan Sjálfstæðisflokksins?
— Þessi góði árangur sjálf-
stæðismanna ber vitni um sam-
heldni og sóknarhug, sem á eftir
að verða okkur styrkur í næstu
kosningabaráttu fyrir væntan-
legar alþingiskosningar, sem
hljóta að vera skammt undan og
alla vega ekki síðar en á næsta
ári.
Frambjóðendur flokksins í
Reykjavík og annars staðar á
landinu, sem ég hef fylgzt með,
hafa flutt mál sitt skýrt og skil-
merkiiega og staðið sig með af-
brigðum vel. Eðli málsins skv.
reyndi sérstaklega á borgar-
stjóraefni okkar, Davíð Oddsson,
og hann gat sér almannalof og
traust fyrir framgöngu sína í
þessari kosningabaráttu.
Reynslan í þessari kosningabar-
áttu verður okkur gott veganesti.
Við munum halda baráttu okkar
áfram og ég tel, að sú samheldni,
sem hefur borið svona góðan
árangur, verði til þess, að allir
sjálfstæðismenn fylki saman liði
í kosningabaráttunni fyrir
næstu alþingiskosningar.
En áhrif kosningaúrslitanna á
landsmálin?
— Það er ljóst, að Alþýðu-
flokkur og Alþýðubandalag hafa
misst þá miklu fylgisaukningu,
sem þessir flokkar náðu með
blekkingum 1978 undir kjörorð-
inu „samningana í gildi“, sem
þeir hafa svo vandlega svikið.
Framsóknarflokkurinn, sem
fékk minnsta fylgi sem hann
hefur nokkru sinni fengið í kosn-
ingunum 1978, stendur í því fari,
þótt hann hafi náð sér upp í
þingkosningunum 1979, en misst
það aftur nú. Stjórnarflokkarn-
ir, Alþýðubandalag og Fram-
sóknarflokkur, hafa því beðið af-
hroð í þessum kosningum og má
búast við, að þeir ókyrrist í ríkis-
stjórninni. Ummæli talsmanna
þeirra bera þessa merki, þar sem
Framsóknarflokkurinn hvetur
til aðgerða í efnahagsmálum, en
Alþýðubandalagið skellir skolla-
eyrum við.
Sjálfstæðisflokkurinn kvað
upp úr um það á landsfundi, að
hann ætti enga aðild að ríkis-
stjórninni og bæri ekki ábyrgð á
gerðum hennar. Kjósendur hafa
þess vegna sýnt Sjálfstæðis-
flokknum traust í þessum kosn-
ingum.
Ég flyt sjálfstæðismönnum
um allt íand beztu þakkir fyrir
fórnfús störf við kosningaund-
irbúninginn og ég þakka lands-
mönnum fyrir það traust, sem
þeir sýndu Sjálfstæðisflokknum
í nýafstöðnum kosningum, sagði
Geir Hallgrímsson að lokum.