Morgunblaðið - 26.06.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.06.1982, Blaðsíða 1
44 SÍÐUR OG LESBÓK 138. tbl. 69. árg. LAUGARDAGUR 26. JUNI 1982 Prentsmidja Morgunblaðsins. „Reikul utanríkisstefha ástæða fyrir afsögninni“ - sagði Alexander Haig sem í gær sagði af sér embætti sem utanríkisráðherra Bandaríkjanna Washington, 25. júní. AP. ALEXANDER M. Haig hefur sagt af sér embætti sem utanríkisráðherra Bandaríkj- anna og hefur Reagan forseti fallist á afsögn hans. Reagan tilkynnti þessi tíðindi, sem komu vægast sagt mjög á óvart, á blaða- mannafundi í Hvíta húsinu í gærdag og var til fundarins boðað með aðeins hálftíma fyrirvara. Forsetinn kvaðst harma afsögn Ha- igs og greindi jafnframt frá því, að George P. Schultz, fyrrum fjármálaráðherra og vinnu- málaráðherra í stjórn Nixons, hefði verið val- inn eftirmaður hans. Á blaðamannafundi í kvöld skýrði Haig frá ástæðum afsagnarinn- ar. „Það er með miklum trega og harmi, sem ég segi hér frá afsögn þessa manns, sem þjónað hefur landi sínu af skyldurækni í meira en 40 ár og verið mér stoð og stytta í starfi. Nú hefur hann ákveðið að segja af sér og ég hef fallist á afsögn hans. Eftirmaður hans hefur verið valinn George P. Schultz og hefur Haig fallist á skipan hans.“ Með þessum orðum greindi Reagan frá afsögn Haigs og vildi engu svara spurningum fréttamanna. A blaðamannafundinum, sem Haig boðaði til í kvöld, kvaðst hann hafa sagt af sér vegna óánægju með reikula stefnu Bandaríkjastjórnar í utanríkis- málum, stefnu, sem væri alls ólík þeirri „samkvæmni, skýrleika og stefnufestu", sem stefnt hefði ver- ið að í upphafi. í afsagnarbréfinu til Reagans segir hann, að þeir hafi verið „sammála í byrjun um hlutverk Bandaríkjanna í heimin- um“ og um „nýja og framsýna Þota flaug í gosmökk og féli 25 þúsund fet London, 26. júní. AP. JÚMBÓ-þota frá British Airways missti hreyfilafl af öllum hreyflun- um fjórum og féll 25 þúsund fet þeg- ar henni var flogið inn í gosmökk frá Gallunggung eldfjallinu á Vestur- Jövu í gær. Flugmönnunum tókst að koma tveimur hreyflum í gang í dýf- unni og fljúga þotunni „á tvcimur" til Jakarta, þar sem nauðlent var. Enginn 239 farþega eða 16 áhafnar- lima varð fyrir meiðslum, en mikil hræðsia greip um sig um borð. „Þetta virtist aldrei ætla að enda, og allir voru dauðhræddir," sagði farþegi. Hann sagði eldtung- ur hafa staðið aftan úr hreyflun- um fjórum og að vélin hefði kast- ast til og frá. Gosaska og svartar gosgufur streymdu inn í klefann um loftræstikerfi þotunnar. Hann sagði farþega hafa farið með bæn- ir eftir að eldur kom upp í hreyfl- unum. „Síðan stöðvuðust hreyfl- 25 slasast í Belfast Bcltasl, 25. júní. AP. TALIÐ er að írski lýðveldisherinn (IRA) hafi verið að verki þegar bíla- sprengja sprakk fyrir utan sjúkrahús við miðborg Bclfast í dag með þeim afleiðingum að 25 menn, þar af 24 hjúkrunarkonur, liggja slasaðir eftir. Hins vegar er talið að öfgasinnar úr röðum mótmælenda beri ábyrgð á sprengingu, sem varð fyrir utan stúlknaskóla í hverfi kaþólikka, Ballyfillan, einnig í miðhluta Bel- fast. Tjón varð á skólabyggingum. Að sögn lögreglu urðu flestir hinna slösuðu fyrir fljúgandi gler- brotum og slösuðust þeir misjafn- lega mikið. Sprengjan var falin í bíl, sem tekinn hafði verið ránshendi í hverfi kaþólikka í Anderstown. arnir og við tókum heljardýfu, sem virtist heil eilífð." Boeing-747-þotan var á leið frá London til Perth í Ástralíu og var í 37 þúsund feta hæð suður af Jak- arta þegar hún flaug skyndilega inn í gosöskuna. Eldfjallið tók að gjósa nokkrum stundum áður en atvikið átti sér stað, en engin skýring er á því hvers vegna flug- mennirnir voru ekki varaðir við hættunni. Tók það flugmennina 12 mínútur að ná valdi á þotunni eft- ir að hún flaug inn í mökkinn. stefnu í utanríkismálum". „Á síð- ustu mánuðum,“ segir í bréfinu, „hefur mér orðið ljóst, að stefnan er ekki sú sama og áður, reikul og ekki jafn vel mörkuð." Af þessum sökum kvaðst hann hafa talið sér skylt að segja af sér. Haig greindi ekki nánar frá ástæðum afsagnarinnar en vitað er, að mikill ágreiningur hefur verið innan Bandaríkjastjórnar um afstöðuna til innrásar Israela í Líbanon. Hann hefur einnig verið mjög andvígur tilraunum Banda- ríkjastjórnar til að koma í veg fyrir samstarf Sovétmanna og Vestur-Evrópu um gasleiðsluna frá Síberíu og fyrir skömmu kast- aðist alvarlega í kekki með honum og Kirkpatrick, sendiherra Banda- ríkjanna hjá SÞ, vegna stuðnings stjórnarinnar við Breta i Falk- landseyjastríðinu. Afsögn Haigs kemur á óvart svo ekki sé meira sagt jafnvel þótt vit- að hafi verið um þann ágreining, sem var með honum og sumum samstarfsmanna hans. Viðbrögð bandamanna Bandaríkjanna í Evrópu einkennast af undrun og mikilli óvissu enda var Haig sá ráðherra í ríkisstjórn Reagans, sem best þekkti til og mest sam- skipti hafði við Evrópumenn. Full- trúar Austur-Evrópuríkjanna kváðust undrandi en vildu ekki tjá sig frekar. Sendimenn Palestínu- manna og sumra Arabaríkja hjá SÞ voru hins vegar himinlifandi en þeir telja Haig mjög hliðhollan ísraelum og hernaði þeirra í Líb- Alexander M. Haig þegar hann til- kynnti ástæður afsagnarinnar á blaðamannafundi í gær. Eftirmað- ur hans í embætti utanríkisráð- herra hefur verið valinn George Schultz, fyrrum fjármálaráðherra í stjórn Nixons og Fords. ap. Úrslit á HM í gær ^V, ÞRÍR leikir fóru fram á HM-keppninni á Spáni í gær, síðustu leikirnir í riðlakeppn- inni. Úrslit þeirra urðu sem hér segir: 2. riðill: Austurríki — V-Þýskaland 0—1 4. riðill: England — Kuwait 1—0 5. riðill: Spánn — N-írland 0—1 Norður-írar komu öllum á óvart með sigri sínum og halda í milliriðil, sem sigurvegarar riðilsins. Spánverjar héldu 2. sætinu. Sjá nánar á íþróttasíðum. Vopnahlé í Líbanon í kjölfar harðra árása Beirút, 26. júní. AP. HABIB sendifulltrúi Bandarikj- astjórnar tilkynnti í kvöld að náðst hefði samkomulag um enn eitt vopna- hlé milli ísraela annars vegar og Sýr- lendinga og Palestínuskæruliða hins vegar í kjölfar einna hörðustu árása á vesturhluta Beirút tii þessa. Vopna- hléð kom til framkvæmda nánast á sömu mínútu og tilkynnt var um af- sögn Alexander Haigs í Washington, en þó virtist fátt benda til samhengis þar á milli, þótt sagt sé í Beirút að Haig hafi verið fylgjandi aðgerðum ísraela gegn skæruliðum PLO. Ariel Sharon varnarmálaráð- herra ísraels sagði í kvöld að ísrael- ar hefðu unnið meiriháttar sigra í Líbanon í dag og hefðu þeir náð öll- um þjóðveginum frá Beirút til Dam- askus á sitt vald. Hann sagði svæð- in, sem tekin hefðu verið í dag, það mikilvæg, að sá, sem drottnaði á þeim, réði Líbanon. Jafnframt sagði Sharon Sýrlendinga vera að flytja sveitir sínar í átt til landamæra Sýrlands, en Israelar lofuðu að ráð- ast ekki á þá meðan þessir flutn- ingar stæðu yfir. Diplómatar segja ísraela hafa a.m.k. 560 skriðdreka, 120 sjálfvirk- ar sprengjuvörpur og 2.400 bryn- vagna í Beirút og sé það meir en nóg til að yfirbuga skæruliða. Þá hafi liðsauki verið fluttur til Beirút síð- ustu daga frá Gólan-hæðum, og einnig þungavopn, sem sérstaklega séu fallin til götubardaga. Shafik Wazzan forsætisráðherra Líbanon sagði af sér og kenndi Isra- elum um það árangursleysi sem orð- ið hefur af tveggja vikna tilraunum hans til að koma á friði í Líbanon. Einnig sagði Walid Jumblatt, leið- togi vinstri sinnaðra múhameðstrú- armanna, sig úr sérstöku ráði, sem sett var á laggirnar til að vinna að Bandarískir þegnar i Líbanon flykkjast um borð I bát, sem flutti þá um borð í bandaríska herskipið Nashville, en skipið flutti þá til Kýpur. Þúsundir vestrænna manna hafa horfið á brott frá Libanon vegna átakanna þar, og sendiráðum verið lokað. Símamynd-AP. lausn deilunnar í Líbanon. Jumblatt sagði á blaðamanna- fundi að skæruliðar PLO væru reiðubúnir að gefast upp og viður- kenna ósigur í átökunum, en ísrael- ar vildu ekki gefa þeim tækifæri til þess, ætluðu að útrýma þeim, og líb- önsku þjóðinni einnig. Útvarpsstöðin „Rödd Líbanons" sagði að Israelar hefðu neytt þúsund manna herlið Sýrlendinga í vestur- hluta Beirút til uppgjafar, og einnig hefðu Sýrlendingar hörfað frá borg- inni Aley, sem er við þjóðveginn til Damaskus. Þá náðu ísraelar al- þjóðaflugvellinum í Beirút á sitt vald að fullu er skæruliðar PLO hörfuðu þaðan. Israelar viðurkenndu að hafa misst 252 menn í átökunum í Líban- on og 1300 hefðu særst. Sýrlend- ingar héldu því fram að ísraelar hefðu beitt taugagasi í innrásinni, en því var harðlega mótmælt af hálfu Israela. Forsætisráðherrar Norðurland- anna fimm gagnrýndu ísraela í dag og sögðu innrásina í Líbanon ógnun við heimsfriðinn. Sjá „PLO á sér ekki við- reisnar von“ á bls. 18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.