Morgunblaðið - 06.08.1982, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1982
Spánn:
Suarez býður fram
í næstu kosningum
Madríd, 5. ájfÚHt. AP.
Látin kona fyrir uUa litla verzlun sem hún rak í Nairobi. Hún reyndi ad veita
viðnám þegar æstur múgur rédst inn í búöina og var þá skotin og lézt af sárum
sínum.
Moi segir að 129
hafi fallið í Kenya
ADOLFO Suarez, fyrrum forsati.s
ráðherra, segir art hinn nýstofnaði
Lýöræðislegi miðflokkur hans muni
styðja sósíalista ef þeir vinni almenn-
ar kosningar, en nú er álitið að þær
muni jafnvel verða í haust.
Aimennar kosningar á Spáni eru
Adolfo Suarez, formaður Lýðræðis-
lega miöflokksins, sem stofnaður
var í síðustu viku.
ráðgerðar næsta vor, en Suarez
sagði í boði með erlendum stjórn-
arerindrekum að hann vænti þess
að núverandi forsætisráðherra ryfi
þing í haust og efndi til nýrra
kosninga í nóvember eða desem-
ber.
Hann var áður formaður Mið-
flokkabandalagsins, sem var sigur-
vegari kosninganna 1977 og 1979,
og telur nú að klofningur í banda-
laginu undir stjórn Calvo Sotelo
valdi mikilli stjórnmálalegri ólgu í
landinu og óvissu um framvindu
mála.
Suarez bætti við: „Hinu unga
lýðræði landsins er enn ógnað," og
vísaði þá til misheppnaðrar stjórn-
arbyltingar hersins 1981.
Hann sagði sig í síðasta mánuði
úr Miðflokkabandalaginu sem
hann stofnaði árið 1976 og stofnaði
Lýðræðislega miðflokkinn „til að
styrkja hið spænska lýðræði".
Hann sagði að flokkur hans byði
ódeigur fram í kosningum og ef
þeir fengju ekki meirihluta myndu
þeir styðja þann sem kosningarnar
ynni svo framarlega sem þar væri
um iýðræðislegan flokk að ræða.
Nairobi, 5. ágúst. AP.
DANIEL Arap Moi sagði í ávarpi til
þjóðar sinnar í dag, að vitað væri að
129 manns — einkum uppreisnar-
menn — hefðu látið lífið i byltingartil-
rauninni sem var gerð i landinu á
sunnudag. Forsetinn sagði, að upp-
reisnarmenn hefðu verið vanbúnir að
öllu leyti og stuðningur við aðgeröir
þeirra hefði enginn orðið frá óbreytt-
um borgurum. II m það bil 1.600
manns hafa verið handteknir og bíða
réttarhalda.
Moi sagði að hann myndi fara á
fund Einingarsamtaka Afríkuríkja
eins og fyrirhugað hefði verið og
hann hefði ekki áhyggjur af því að
neinir reyndu að rísa gegn honum í
fjarveru hans.
Eins og frá hefur verið sagt voru
verzlanir í Nairobi og ýmsum öðrum
borgum landsins rændar og ruplað-
ar í kjölfar þeirrar ringulreiðar sem
skapaðist við byltingartilraunina.
Ef verzlunareigendur reyndu að
veita viðnám voru þeir umsvifalaust
skotnir eða siegnir niður.
Pólland:
Kirkjan
mótmælir
Varsji, Póllandi, 5. ágúst. AP.
HELSTli ráðamenn kaþólsku kirkj-
unnar í Póllandi hafa formlega áfellst
stjórnvöld þar í landi fyrir að hafa
frestað komu páfa til landsins, í bréfi
sem verður lesið upp í prédikun í kirkj-
um næstkomandi sunnudag.
Bréf þetta, sem var gert opinbert í
dag, hefur að geyma fyrstu formlegu
viðbrögð kirkjunnar vegna seinkun-
ar stjórnvalda á heimsókn páfa, en
hans var vænst í þessum mánuði til
að taka þátt í trúarlegum hátíða-
höldum.
Stjórnvöld hafa hins vegar kunn-
gert áform um að endurnýja og gera
við Sigurtorgið í Varsjá sem hefur
verið bitbein stjórnvalda og þegn-
anna, eða öllu heldur hefur „Kross
Wyszynski" verið það.
Krossinn er til merkis um það
hvar kista Stefan Wyszynski stóð
meðan á jarðarför hans stóð á síð-
astliðnu ári og hann hefur einnig
orðið merki um þá ólgu sem ríkt hef-
ur í landinu frá því herlög tóku gildi
13. desember sl. Sérstök lögreglu-
sveit hefur nú numið krossinn á
brott að kvöldi undanfarinna sex
daga, en hann er jafnan kominn á
sinn stað í dögun, myndaður úr
blómum og kertum.
Komdu í IKEA eldhúsdeildina.
Þar sýnum við þér nokkur dæmi
um hvernig þitt eldhús gæti litið
út.
(IKEA eldhúsdeildinni fullvissar
þú þig um að góðar og glæsilega
hannaðar eldhúsinnréttingar
kosta ekki lengur stórfé!
HAGKAUP
Skeifunni15
Marilyn
Monroe
Einka-
spæjarinn
Speriglio:
Marilyn myrt
með mebumal
Loh Angeles, 5. ágúst. AP.
MILO Speriglio, einkalögreglumaður sem segist hafa eytt megninu aí
síðasta áratug í að rannsaka hvernig dauða leikkonunnar Marilyn Mon-
roe bar að í ágúst 1962, skýrði frá því á blaðamannafundi í gærkvöldi,
miðvikudag, að leikkonan hefði verið myrt eftir að lauk ástarævintýri
hennar og Roberts heitins Kennedys.
„Robert Kennedy hafði lofað Marilyn því að hann myndi skilja við
ko’nu sína. Marilyn vissi að Kennedy stefndi að því að verða forseti og
hugði gott til að verða forsetafrú, ef Kennedy yrði kjörinn," sagði Sperigl-
jo. Hann sagði að einkasími frá heimili Marilyn á skrifstofu Kennedys
hefði verið aftengdur rétt fyrir andlát hennar, og að Kennedy hefði sést
fara út úr íbúð hennar daginn sem hún lézt.
Talsmaður Kennedy-fjölskyld-
unnar, sem ekki var nafngreindur,
sagðist ekki vilja sýna þessu blaðri
og slúðri þá virðingu að anza því
einu orði.
Speriglio sagði, að hann væri
ekki að bera upp á Kennedy að
hann hefði staðið að baki morðinu,
en bætti við, að hann teldi að það
hefði verið framið af einhverjum
aðilum innan CIA, sem hefðu verið
andsnúnir yfirmönnum sínum.
Hann sagði að Marilyn hefði verið
sprautuð með mebumal, en hún
hefði ekki tekið of stóran skammt
af svefnlyfjum, eins og jafnan hef-
ur verið talið.
Þessum ásökunum var vísað á
bug af Roger Richman sem hefur
farið með eignamál leikkonunnar.
Hann sagði að ljóst væri, að Sper-
iglio væri aðeins að reyna að vekja
á sér athygii.
Speriglio sagði, að Marilyn hefði
sárnað mjög þegar Kennedy vildi
slíta sambandinu og hefði hótað
að halda blaðamannafund og
skýra frá því, sem hún hefði skrif-
að í dagbók sína. Robert Slatzer,
vinur Marilyn, kveðst hafa séð
dagbókina — en hún hefur verið
glötuð svo árum skiptir — og að í
henni væru ýmsar leynilegar upp-
lýsingar sem Kennedy hefði skýrt
henni frá. Fyrr í vikunni bauð
fornbókasali nokkur, John Bowen
hundrað þúsund dollara fyrir
týndu dagbókina og kvaðst vera á
höttunum eftir henni fyrir ríkan
iðjuhöld sem vildi fá hana í bóka-
safn sitt. Áður höfðu Speriglio og
Slatzer boðið tíu þúsund þeim,
sem gæti gefið upplýsingar um,
hvar týndu dagbókina væri að
finna.