Morgunblaðið - 28.08.1982, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1982
5
Melarokk“ hefst! dag kl. 14:
Umfangsmestu úti-
tónleikar hérlendis
á Melavelli í dag
að reyna að skapa stemmningu
líkasta þeirri, sem þekkist á
slíkum stórhátíðum erlendis.
Gefst hljómleikagestum kostur
á ýmiss konar veitingum, auk
þess sem eitt og annað verður
til sölu. Verði veður skaplegt er
talið líklegt að 2—3000 manns
muni sækja hátíðina.
UNNENÐUR íslenskrar popp-
tónlistar fá væntanlega eitthvað
fyrir sinn snúð á Melavellinum í
dag. Umfangsmestu útitónleikar
hérlendis til þessa, „Melarokk“,
hefjast kl. 14 og standa linnu-
laust fram til kl. 23.30 í kvöld.
Á hátíð þessari koma flestar
kunnustu hljómsveitir landsins
fram, auk nokkurra nýrra og
óþekktra. Alls verða hljóm-
sveitirnar 17 talsins og sá tími
sem fer í að skipta um hljóm-
sveitir og tæki á sviðinu verður
nýttur til kynningar á nýjum
íslenskum plötum. Undirbún-
ingur hefur staðið í margar vik-
ur og síðustu daga hefur verið
unnið við að reisa heljarmikið
svið á Melavellinum.
Að sögn framkvæmdastjóra
hátíðarinnar, Hallvarðs Þórs-
sonar, hefur verið stefnt að því
Helgi Viggósson, ritstjóri, og Guðrún Þórðardóttir, skrifstofustjóri, með
fyrsta tölublað Tölvublaðsins.
Tæknimaður vinnur við lagningu
kapla fyrir „Melarokk" í einum
flóðljósastauranna á Melavellinum.
Morgunhlaftift Kmilía.
Nýtt tímarit um tölvumál
gefa það út örar. Fyrsta tölublaðið
byggist mikið á fræðslugreinum
fyrir þá sem hafa litla viðkynn-
ingu haft af tölvum. En í fram-
haldi af þeim lestri gætu menn
farið að lesa um flóknari hluti. Er
ætlunin, að blaðið komi sér upp
„pennakjarna" þar sem uppistað-
an verði innlendir sérfræðingar á
hinum ýmsu sviðum tölvutækn-
innar. Benti Helgi á, að fólk þyrfti
ekki að vera hrætt við tölvurnar,
heldur þyrfti fólk frekar að vera
hrætt við að kynnast þeim ekki,
þar sem svo mikið myndi byggjast
á þessum fræðum í framtíðinni.
NÝTT tímarit hóf göngu sína 20. ág-
úst sl. og heitir það Tölvublaðið, sem
bendir á viðfangsefni ritsins. Utgef-
andi Tölvublaðsins er Tölvuútgáfan
hf. Fyrsta tölublað Tölvublaðsins er
92 síður, og er efnisuppbyggingin að
mestu fræðslugreinar, skrif um
tölvukerfi og fréttir af vettvangi
tölvumarkaðarins. Sagt er frá tölvu-
væðingu nokkurra fyrirtækja hér-
lendis. Kn tölvuvæðingin á íslandi er
viðfangsefni fyrsta tölublaðsins.
Að sögn Helga Viggóssonar,
framkvæmda- og ritstjóra blaðs-
ins, er því ætlað að fræða almenn-
ing um tölvutæknina, jafnframt
því að vera fagrit fyrir þá sem
þurfa að fylgjast með þróuninni í
tölvuheiminum. Helgi sagði þörf-
ina fyrir svona blað vera mikla
hérlendis. Fólk vildi fræðast um
þessi mál, þar sem svo mikið
myndi byggjast á tækni samfara
tölvunotkun i frmtíðinni. Upplýs-
ingar hefðu til þessa ekki verið að-
gengilegar fyrir alþýðu manna. En
með útkomu Tölvublaðsins skap-
aðist vettvangur til fræðslu um
þessi efni. M.a. yrði þáttur í blað-
inu, sem héti „spurt og svarað"
þar sem fólk gæti sent inn spurn-
ingar um hin aðskiljanlegustu efni
varðandi tölvur og tölvubúnað.
Að sögn Helga mun Tölvublaðið
koma út þriðja hvern mánuð til að
byrja með, en fyrirhugað er að
Samkoma í Kaldárseli
un, sunnudaginn 29. ágúst, verður
samkoma í Kaldárseli og hefst
hún klukkan 14.30. Þar talar cand.
theol Benedikt Arnkelsson, er ver-
ið hefur starfsmaður í drengja-
flokkunum um árabil. Þegar að
lokinni samkomunni verður borið
fram kaffi og aðrar veitingar og
gefst þá samkomugestum og öðr-
um sem heimsækja Kaldársel
tækifæri til þess að styrkja
sumarbúðirnar.
STARFR/EKSLA sumarbúða i Kald
árseli ofan við Hafnarfjörð hefur í
mörg ár verið liður í sumarstarfi
KFUM og KFUK í Hafnarfirði. í
sumar dvöldust á vegum félaganna
um 240 börn, stelpur og strákar, í
sex dvalarflokkum á tímabilinu frá
27. maí til 26. ágúst.
I fréttatilkynningu frá félögun-
um segir, að á hverju hausti, þegar
starfinu lýkur sé haldin samkoma
og kaffisala i Kaldárseli. Á morg-
i dag og á morgunfrá kl. 13.30—6
Nýjungar í
starfsemi
Hafskips
Sú skipulagsbreyting verður gerð á
markaðs- og þjónustumálum Hafskips
hf. í Gvrópu í næsta mánuði, að Sveinn
Kr. Fétursson mun taka til starfa sem
forstöðumaður markaðsmála félagsins
í Gvrópu. Mun hann jafnframt verða
yfirmaður skrifstofu llafskips í Ham-
borg og hafa aðsetur þar. Sveinn hefur
unnið i 13 ár hjá fyrirtækinu, og verið
yfirmaður ýmissa deilda þess.
„Eins og kunnugt er hefur Hafskip
hf. opnað tvær eigin svæðisskrifstof-
ur erlendis á þessu ári, í Ipswich og
Þessi húsgögn eru vestur-
þýzk gœöavara á góöu verði
fyrir hina svokölluöu hús-
gagnafagurkera.
Rúm, bordstofuhúsgögn,
sófasett, smáhlutir, s.s.
lampar o.m,fl Þú getur búið
íbúðina alla í þessum sér-
stæða stíl — og haft heimili
þitt öðruvísi, — en þetta
vanalega.
Hefur þú
áhuga á að
skapa sérstæð-
an stil á heim-
ili þínu?
Ef svo er þá
skalt þú at-
\ huga þetta
mál.
Sveinn Kr. Pétursson
New York,“ sagði Björgólfur Guð-
mundsson framkvæmdastjóri Haf-
skips er Morgunblaðið spurðist fyrir
um þessa nýskipan. „Þá er í ráði að
fleiri slíkar skrifstofur verði opnað-
ar innan tíðar með íslensku starfs-
fólki. Þetta var gert að lokinni ítar-
legri úttekt á rekstrarhagkvæmni og
ekki síður, hvernig unnt yrði að bæta
þjónustu við viðskiptavini félagsins.
Reynslan af skrifstofunum tveimur
hefur verið mjög góð, og nú í sept-
ember stígum við svo nýtt og stórt
skref í starfsútrás félagsins, er
Sveinn tekur við forstöðu mark-
aðsmála í Evrópu með aðsetur í
Hamborg," sagði Björgólfur.
- JS/f . ////• ý///,/l./////////‘ ,
//ítf {/////>//,//, /,/,/, /j^// U///j l JÍ’//Mm- AmA/Á. f ■
éé */• ///„/,,/,/,,,/,f, //, /i' .V/W"^ff/f /'f/t. I >
f/ ffrfr/' ffr-/, //f/f/f-ftfY/t, ///f//t/fff/ f
//ffpff/f, //tt/f/f. / K>j/ ,,/ts////>//■„ //, , Ktf i/y.t
Ármúla 44 Símar 32035
— 85153
ys/f/t.