Morgunblaðið - 28.08.1982, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1982
9
SyAra-Laugalandi, 18. ágúst 1982.
Kæri Gísli Jónsson.
Margfaldar þakkir fyrir fróð-
legar og skemmtilegar greinar
þínar um íslenzkt mál í Moggan-
um. Og alveg sérstaklega vil ég
þakka ykkur Baldri Símonar-
syni fyrir það, hve rækilega þið
tókuð í lurginn á kirkjuyfirvöld-
um fyrir það furðulega uppá-
tæki að breyta nafni Jesú í fall-
beygingunni og fella niður
ávarpsfall nafns hans, sem er
afar slysalegt.
Þetta allt saman er í rauninni
fullkomið hneykslismál. Það er
ekki aðeins, að þúsund ára hefð
sé rofin og að engu höfð, heldur
er hér um leið ruglað og breytt
verkum manna, sem hæpið er að
stæðist fyrir dómi. Þar við bæt-
ist svo, hve miklu verr það fer í
sálmasöng, að hafa nefnifall,
þar sem ávarpsfallið skyldi
vera.
Enn bætist svo við sú aðferð,
sem höfð er við þessar kúnstir
kirkjuvalda. Þetta er gjört
„þegjandi og hljóðalaust". Og
auðvitað skilur maður hvers
vegna þannig er að farið. En það
er bæði lítilsvirðing við Frelsar-
ann sjálfan og allt kristið fólk í
landinu. Það er rétt eins og hér
sé um það smámál að ræða, er
öllum hljóti að standa á sama
um. 'En hvað mundu þessir
menn segja, væri allt í einu far-
ið að rugla svona í þeirra eigin
nöfnum?
Hvað vakir svo fyrir þeim?
Það aleina sem ég get látið mér
detta í hug er það, að hér sé
verið að einfalda meðferðina á
nafni Jesú. En sé kristnu fólki
ofraun að læra að beygja nafn
Frelsarans, þá líst mér ekki á
þær lexíur aðrar, sem menn
þurfa að læra og tileinka sér,
vilji þeir kristnir heita. Og ég
hefi aldrei haft mætur á þeirri
aðferð að lækka „standardinn"
til þess að ná betra árangri!
En nóg um þetta að sinni, en
gleymum því þó ekki. Erindið
við þig núna var aðallega það, að
bera undir þig orðalag í nýju
handbók kirkjunnar.
Það sem hér um ræðir er að
finna í prests- og biskupsvígslu
formálunum. Svo segir í Helgi-
siðabók 1934 (prestsvígsla): „Svo
fel ég þér i hendur hið veglega
þjónsstarf í kirkju Krists ...“.
Nýja handbókin: „N N Ég af-
hendi þér hið heilaga prests- og
prédikunarembætti ...“. í bisk-
upsvígsluformála notar Helgi-
siðabók þetta sama orðalag: að
fela á hendur, en handbók: að af-
henda.
Að mínum dómi er það ólíkt
fegurra og betur viðeigandi að
tala um „hið veglega þjónsstarf
í kirkju Krists", heldur en „hið
heilaga prests- og prédikunar-
embætti", þó að í sjálfu sér sé
„allt í lagi“ með það orðalag. En
einkanlega var það þó munurinn
á orðalaginu „að fela á hendur"
og „að afhenda", sem ég vildi
„beina kastljósinu að“, eins og
þeir í sjónvarpinu segja.
Hér er svo sannarlega ólíku
saman að jafna, og skil ég ekki,
hvernig málkenndin getur rugl-
azt svo hjá nokkrum heilvita
manni, að hann ekki finni þetta.
Einhver orðheppinn maður
sagði, að þetta: „að afhenda",
minnti á afgreiðslu í búð! Auk
þess er það alls ekki rökrétt, að
biskup „afhendi", hvort heldur
er prests- eða biskupsembætti.
Þar við má bæta, að sögnin „að
afhenda" snýr einkum að þeim,
sem af hendi lætur, þar sem
orðalagið „að fela á hendur“
snýr að þeim, sem við tekur. Og
það þýðir, að einhverjum sé trú-
að fyrir einhverju, sem á vel við í
því sambandi, sem hér um ræð-
ir.
Svo kveð ég þig og endurtek
þakklæti fyrir greinar þínar og
óska jafnframt eftir áliti þínu á
þessu máli.
D.u.s.
Bjartmar Kristjánsson.
Ég þakka presti þetta sköru-
lega bréf og er sammála honum
í því álitamáli sem hann víkur
til mín. Vegna fyrri hluta bréfs-
ins endurbirtist 131. þáttur frá
24. janúar sl. Höfum við þá tekið
svo hvasst til orða, Baldur, ég og
Bjartmar, að ég vænti frekari
orðræðu um beygingu nafnsins
Jesús.
Fyrst er þá bréf Baldurs Sím-
onarsonar í Reykjavík:
Reykjavík, 11. desember 1981.
Kæri Gísli.
Mér þykir tímabært að vekja
athygli þína á breytingu sem er
að laumast inn í íslenzkt kirkju- i
mál. í nýju sálmabókinni, sem !
út kom 1975, er ávarpsfalli og
þolfalli Jesú breytt frá því sem
verið hefur um aldir í íslenzku
máli. Nú er frelsarinn ávarpað-
ur Jesús, ekki Jesú og þolfallið
er Jesú, ekki Jesúm.
Þannig heitir barnasálmurinn
alkunni, Ó, Jesú, bróðir bezti nú
Ó, Jesús, bróðir bezti, og þýðing
Matthíasar hefst nú svo: Ó, þá
náð að eiga Jesú í stað Ó, þá náð
að eiga Jesúm.
Hallgrímur Pétursson er ekki
óhultur fyrir hinum nýja sið.
Þannig er nú prentað: Víst ertu,
Jesús, kóngur klár. Mikill er
lærdómur þeirra sem breyta
orðum Hallgrims í nýju sálma-
bókinni, þvi að væntanlega
þekkja þeir formála hans að
Passíusálmunum: „En þess er eg
af guðhræddum mönnum
óskandi, að eigi úr lagi færi né
orðum mínum breyti, hver þeir
sjá orði drottins og kristilegri
meiningu ei á móti. Þeir, sem
betur kunna, munu betur gjöra."
í fljótu bragði sýnist mér, að
þessi breyting sé alls staðar í
nýju sálmabókinni, nema i stöku
lagboðum, sem eru ekki prent-
aðir þar sem sálmar (t.d. Sæti
Jesú, sjá oss hér). í nýju biblíu-
þýðingunni, sem kom út í
sumar, er sömu reglum fylgt —
ávarpsfall afnumið, þolfalli er
breytt.
Vafalaust þakka margir heil-
brigðri íhaldssemi kirkjunnar
hve vel mál okkar hefur varð-
veitzt. Erfitt er að geta sér til
um hvatir þær sem liggja hér að
baki. Má vera að notkun
ávarpsfallsins Jesú og þolfalls-
ins Jesúm vefjist fyrir ýmsum.
Fram til þessa hafa börnin
sungið: Ó, Jesú, bróðir bezti, og
er mér til efs að skaðað hafi sál-
arheill þeirra, þó að þau hafi
ekki skilið fyrr en löngu seinna,
hvers vegna þetta er svona.
Undanlátssemi af ýmsu tagi er
versti óvinur íslenzks máls. Hún
leiðir til málfátæktar, og málið
verður ekki eins gagnsætt og áð-
ur. Á sinum tíma töldu sumir að
zetunni mætti fórna, fyrst tókst
að bjarga yfsiloninu það skiptið.
Ég vona að þessar breytingar
séu ekki fram komnar vegna
þess að eignarfallsmyndin Jesú
á í vök að verjast fyrir hroða-
legri afbökun sem ég ætla að
hlífa þér við að sjá.
Ótrúlegt er, hve mikinn svip
sálmar missa við þessa breyt-
ingu, eins og þú getur sannfært
þig um með því að bera saman
gömlu og nýju bókina. Einkum
þykir mér eftirsjá í ávarpsfall-
inu, sem hlýtur að vera sára-
sjaldgæft. Ég vona að á hátíð-
inni sem í hönd fer syngi kirkju-
kórarnir eftir sem áður: Jesú, þú
ert vort jólaljós.
Lifðu heill.
Mér brá illilega við lestur
þessa bréfs. Ég hafði ekki fylgst
nógu vel með því sem var að ger-
ast. Um beygingu orðsins Jesús
hef ég alltaf farið eftir fyrir-
mynd Hallgríms Péturssonar.
Hann beygði orðið svo:
Nefnifall: Jesús.
Ávarpsfall: Jesú.
Þolfall: Jesúm.
Þágufall: Jesú.
Eignarfall: Jesú.
Ég fæ með engu móti séð þörf,
hvað þá heldur nauðsyn, til þess
l að breyta þessari hefð. Fjöldi
sálma, þeirra sem bestir hafa
verið ortir og sungið sig inn í
hjörtu ungra sem aldinna, er að
minni tilfinningu svo viðkvæm-
ur að þessu leyti, að breytingar
jafngilda helgispjöllum fyrir
mér. Baldur Símonarson tók
nokkur ágæt dæmi. Mætti ég að-
eins bæta við.
í einhverjum yndislegasta
sálmi sínum, Hugbót, segir sr.
Hallgrímur.
Af mér þó féð og auðlegð með
óðum svo ganga megi
grátbæni eg nú, góði Jesú,
gleymdu mér þó aldregi.
Lát mig hjá þér, þá héðan fer,
í himnasælu lenda.
Nafn drottins sætt fær bölin bætt,
blessað sé það án enda.
Eigum við nú að taka til að
lesa og syngja: Grátbæni ég nú,
góði Jesús?
í 25. passíusálmi, um útleiðslu
Kristi úr þinghúsinu, er orðið
sonur mikið lykilorð. Þessi
sálmur endar á versi, þar sem
orðið kemur fyrir í listrænni
klifun (anafór), svo að fáir geta
látið ólært.
Skáldið mótmælir ákaflega
þeim dómsforsendum Júða, að
Jesús væri verður dauðadóms
vegna þess að hann hefði „gjört
sig guðs syni að“. Þarf ég að
minna menn á þetta erindi?
Son guðs ertu með sanni,
sonur guðs, JESÍI minn.
Son guðs, syndugum manni
sonararf skenktir þinn,
son guðs einn eingetinn.
Syni guðs syngi glaður
sérhver lifandi maður
heiður í hvert eitt sinn.
Ég spyr enn: Eigum við að
láta hafa okkur til aö syngja:
Sonur guðs, Jesús minn? Er
leyfilegt að breyta listaverkum
mestu trúarskálda okkar með
þvílíkum hætti? Ég segi nei og
aftur nei. Það er lágmarkskurt-
eisi við minningu höfuðskálda
að þau fái að halda listaverkum
sínum um hin helgustu efni
óbreyttum, og ég bið þá, sem
fara með stjórn íslenskra
kirkjumála, að lofa okkur, van-
trúuðum og efagjörnum, sem
sterk-trúuðum og efasemdar-
lausum, að hafa beygingu orð-
sins Jesús í friði, eins og við höf-
um lært hana í þeim sálmum
sem hrært hafa hjörtu okkar og
vakið til hrifningar fyrr og síð-
ar.
Hallgrímur Pétursson kvað í
35. passíusálmi:
Gefðu að móðurmálið mitt,
minn JSSU, þess ég beiði,
frá allri villu klárt og kvitt
krossins orð þitt út breiði
um landið hér
til heiðurs þér,
helst má það blessun valda
meðan þín náð
lætur vort láð
lýði og byggðum halda.
S aziii
Opiö í dag
________1—3
íbúöir lausar strax
Viö Breiövang
m. bílskúr
4ra herb. 120 fm ibúö á 3. hæö.
Þvottahús innaf eldhúsi. Laus
strax. Verö 1250 þús.
Viö Dvergabakka
4ra herb. vönduö íbúö á 2. hæö.
Þvottaherb. og búr á hæöinni. Verö
1100 þús. Laus strax.
Viö Sólvallagötu
4ra herb. íbúö á 2. haaö. íbúöin
þarfnast standsetningar Varö 900
þús. Laus strax.
Austurbrún
Ein af þessum vinsælu einstakl-
ingsibuöum Ekkert áhvilandi. Utb.
500 þús. Laus strax.
Viö Garöaveg Hf.
Höfum til sölu gamalt einbýlishús. Húsiö
er i góöu ásigkomulagi. Snotur eign.
Varö aöains 1.350 þús.
Breidvangur HaffnarfirAi
5—6 137 fm íbúö á 1. haBÖ í fjölbýlis-
húsi (endaibuö). íbúöin er 4 herb., stofa,
hol, búr og þvottaherb. o.fl Suöursvalir.
i kj. fytgja 3 herb. og nyrting. 70 fm meö
sérinngangi tengt íbúöinni. íbúöin er
vönduö og vel meö farin. Varö 1.550
þús. Ákvaötn sala.
Viö Karfavog
4ra herb. 90 fm snotur rishaaö. Varö
930 þús.
Viö Miklubraut
5 herb. 154 fm haeö 2 saml. stórar stof-
ur og 3 svefnherb Suöursvalir. Ekkert
áhvilandi Útb. 1 millj.
Viö Drápuhlíö
5 herb. vönduö íbúö á 1. haBÖ. Danfoss.
Sér inng. Varö 1400 þús.
Lúxusíbúö
við Breiövang
4ra herb. 130 fm íbúö á 4. hæö. Vand-
aöar innréttingar. Þvottaaöstaöa i íbúö-
inni. Ðilskur Varö 1,4 millj.
Viö Blönduhlíö
150 fm efri haaö meö 28 fm bílskúr.
Varö 1.650 þús.
íbúöir
m. vinnuaöstööu
Höfum til sölu 2 íbuöir, 3ja og 4ra herb.
viö Laugarnesveg 60 fm vandaöur
bílskur meö 3 f. rafmagni og vaskí, get-
ur fylgt annarri hvorri ibúöinni. Verö: 3ja
harb. íb. 800 þús. 4ra harb. Ib. 1 millj.
Bflskúr 400 þús.
Viö Kleppsveg
4ra herb. ibúö á 4. haBÖ. Suöursvalir.
Verö 1.150 þús.
Viö Hraunbæ
3ja herb. vönduö ibúö á 2. h. Verö 950
þús.
Viö Leifsgötu
3ja—4ra herb. 90 fm risibúö Varö 750
þús.
Viö Engjasel
3ja—4ra herb. vönduö ibúö á tveim
haeöum geymslurými. Staaði i bilhýsi.
Útb. 730 þús.
Viö Einarsnes
3ja herb. ibúö á 2. hæö i timburhúsi.
Varö 750 þús.
íbúö í Miöborginni
2ja herb. vönduö íbúö á 3. hæö (efstu) í
nylegu sambýlishúsi viö Miöborgina.
Bilastæöi í opnu bílhysi fylgir. Góö eign.
Viö Rofabæ
2ja herb. 55 fm vönduö íbúö á jaröhaBÖ.
Gengiö út i garö úr stofu. Varö 675 þús.
Við Lindargötu
2ja herb. snotur 60 fm íbúö á jaröhæö
Varö 630 þús.
Viö Krummahóla
50 fm einstaklingsibúö á 3. hæö Staaöi
i bilhysi fylgir Varö 680 þús.
3ja herb íbúö viö Flyöru-
granda óskast.
4ra herb. íbúö í Foss-
vogi óskast.
3ja herb. íbúð í Heimum
óskast.
EiGnnmiÐLunin
ÞINGHOLTSSTRÆTI 3
SÍMI 27711
Sölustjóri Sverrir Kristinsson
Valtýr Sigurösson lögfr.
Þorleifur Guömundsson sölumaöur
Unnsteinn Bech hrl. Simi 12320.
KVÖLDSÍMI SÖLU-
MANNS 30483
t
26933
Grænahlíð
Góð einstaklingsíbúð á
jarðhæð, sér inng. og hiti.
Verð 520 þús.
Víöimelur
2ja herb. ca. 65 fm falleg
íbúð á jaröhæö. Mikið
endurnýjuð. Verð 700 þús.
Smáragata
I Blikahólar
4ra herb. ca.
íbúð á 1. hæð.
1,2 millj.
Fellsmúli
A
A
A
ð
A
A
*
A
*
A
A
A
A
A
3ja herb. ca. 95 fm neöri
hæð í nýstandsettu húsi.
Bílskúr. Verð 1,4 millj.
117 fm góð
Útsýni. Verð
4ra herb. ca. 110 fm vönd-
uð íbúð á 4. hæö. Góöur
bílskúr. Laus 1. okt. nk.
aðurinn
Hafnaratr 20, s. 26933,
(Nýja húsinu viö Lækjartorg)
Danisi Arnsson, lögg.
fastsignasali.
29555
Opið 10—15 í dag
SKOÐUM 0G METUM
EIGNIR SAMDÆGURS.
Baldursgata
2ja herb. 85 fm ibúö á 2. haBÖ i nýlegu
steinhúsi. Ðílskýli. Verö 880 þús.
Blikahólar
2ja herb. 65 fm íbúö á 7. hæö. Fallegt
útsýni. Verö 700 þús.
Leifsgata
2ja herb. 50 fm kjallaraíbúö. Verö 660
þús.
Vallargeröi Kópavogi
2ja herb. 68 fm íbúö á 1. haBÖ í tvíbýl-
ishúsi Sér inng. Verö 730 þús.
Gnoóarvogur
3ja herb. 90 fm ibúö á jaröhæö. Nýtt
gler Verö 960 þús.
Hofteigur
3ja herb. 75 fm kjallara ibúö i þribýlis-
húsi. Verö 790 þús.
Kleppsvegur
3ja herb. 80 fm íbúö á 1. hæö. Verö 870
þús.
Fellsmúli
3ja herb. 80 fm ibúö á jaröhæö Verö
900 þús.
Miðvangur
3ja herb. 97 fm ibúö á 2. hæö. Verö 1
millj.
Eyjabakki
4ra herb. 110 fm ibúö á 3. hæö Þvotta-
herb. í íbúöinni. Verö 1150 þús.
Hjallavegur
4ra herb. 100 fm íbúö á 2. hæö í tvíbýli.
Góöur btlskúr. Verö 1200 þús.
Mióvangur
4ra herb. 120 fm ibúö á 3. hæö. Þvotta-
herb. i ibúöinni. Verö 1200 þús.
Miklabraut
4ra herb. 110 fm sérhaBÖ i tvíbyli. 30 fm
btlskur Verö 1250 þús.
Espigeröi
5—6 herb. 130 fm íbúö á 5. haaö
Makaskipti á raöhúsi eöa einbýli í
Reykjavík.
Þingholtsstræti
5 herb. 130 fm 1. hæö i þríbýti. Eigin er
mikiö endurnýjuö. Verö 1,2 millj.
Kambasel
240 fm raöhús sem skiptist i tvær haBÖir
og ris. 24 fm innbyggöur bílskúr. Verö
2.2 millj.
Eignanaust
Skipholti 5.
Sími 29555 og 29558.
Þorvaldur Lúðvíksson hrl.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
5*5*5*5»5*5*5*5*í*5*5*5*5»í»5*5*5*5»í>i,5*l