Morgunblaðið - 28.08.1982, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1982
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1982
21
pInrgiwiiiMaliiilí
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 120 kr. á mánuði innanlands. í lausasöiu 8 kr. eintakiö.
Hin stjórnskipulega
sjálfhelda
Býdst samn-
ingur hjá
Ford Models
INGA Bryndís Jónsdóttir, fulltrúi
íslands í keppninni „Andlit ní-
unda áratugarins“ sem haldin var
í New York á vegum Ford
Models-fyrirtækisins hinn 14. ág-
úst sl., er nú komin heim eftir ár-
angursríka ferð.
Ford Models er eitt virtasta
fyrirtæki sinnar tegundar í
heiminum og bauðst Ingu samn-
ingur við fyrirsætustörf hjá því
að keppni lokinni. í viðtali við
Mbl. sagði Inga að hún hefði
enga afstöðu tekið til tilboðsins.
Keppnin og undirbúningur
hennar hefðu opnað augu henn-
ar fyrir því hvað fyrirsætustarf-
ið væri í raun erfitt, og því
þyrfti hún að hugsa málið vand-
lega áður en hún tæki ákvörðun.
„Þetta tækifæri er einstakt og
býðst aðeins einu sinni," sagði
Inga, „en starfið er erfiðara en
ég gerði mér grein fyrir. Það
vita ábyggilega fæstar þeirra,
sem dreymir um fyrirsætustörf,
hve erfið þau eru í raun.“
Keppninni var sjónvarpað um
öll Bandaríkin og fylgdu henni
þrotlausar æfingar vikunni áður
en hún var haldin. Sigurvegari
varð 17 ára dönsk menntaskóla-
stúlka, Renée Toft Simonsen.
Inga sagði að henni hefði þótt
Renée eiga sigurinn skilið. Hún
hefði hið sérstaka andlit sem
verið var að leita að og myndað-
ist óvenjulega vel.
Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra, viðurkenndi í út-
varpsviðtali á fimmtudagskvöldið, að við þær aðstæður,
sem nú ríkja í landsstjórninni, gæti í rauninni „komið upp
stjórnskipuleg sjálfhelda". Síðan bætti forsætisráðherra við:
„Við skulum segja, að ríkisstjórnin hafi meirihluta á þingi,
31 þingmann, en minnihlutinn, sem hefur stöðvunarvald í
neðri deildinni — hann vill nýta þá aðstöðu til að fella eða
stöðva frumvarp fyrir stjórninni. Hvað á þá að gera? Á
stjórnin sem styðst við meirihluta að segja af sér til þess að
hinir geti tekið við, sem í rauninni geta ekki myndað stjórn,
eru í minnihluta?" I útvarpsviðtalinu svaraði forsætisráð-
herra síðan þessum spurningum á þann veg, að hann byggist
við því að „þessi meirihlutastjórn (!) okkar haldi áfram út
þetta kjörtímabil". í viðtali við Helgarpóstinn í gær ítrekar
Gunnar Thoroddsen að útilokað sé fyrir ríkisstjórnina að
segja af sér, svo að stjórnarandstaðan geti tekið við, af því að
hún geti ekki myndað stjórn. Síðan segir forsætisráðherra:
„Menn geta sagt að þá verði að rjúfa þing og efna til nýrra
kosninga. Það er hugsanlegt en það er engan veginn tryggt
að nýjar kosningar leysi vandann."
Eins og forsætisráðherra bendir sjálfur á í fyrrgreindum
viðtölum eru að sjálfsögðu til leiðir út úr þeirri stjórnskipu-
legu sjálfheldu sem hefur skapast fyrir frumkvæði ráðherr-
ans og ríkisstjórnar hans. En forsætisráðherrann vill ekki að
þessar leiðir séu farnar, því þar með yrði hann að biðjast
lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Hin stjórnskipulega
sjálfhelda felst í því, að ríkisstjórnin kemur málum ekki
fram á Alþingi, þar sem hana skortir meirihluta í neðri deild
Alþingis. Ríkisstjórnin nýtur ekki lengur starfhæfs meiri-
hluta á Alþingi, fari hún ekki frá hefur hún þingræðisregl-
una að engu, stofnar til stjórnskipulegrar sjálfheldu — sam-
hliða efnahagslegri óreiðu mun ríkja pólitísk upplausn.
Aðdragandinn að myndun þessarar ríkisstjórnar var
óskemmtilegur en ekki sýnast endalokin ætla að verða betri,
ef stjórnin ætlar að neita að horfast í augu við augljósar
staðreyndir og viðurkenna meginreglurnar í stjórnskipan
íslenska lýðveldisins. Með því að þrástagast á yfirlýsingum
um að ríkisstjórnin sitji út kjörtímabilið hvað sem líður fylgi
við hana á Alþingi er löggjafarvaldinu ögrað með mjög
ósæmilegum hætti. Ríkisstjórnin neitar að verða við þeirri
eðlilegu kröfu við núverandi aðstæður, að þing verði kallað
saman til aukafundar. Forsætisráðherra leyfir sér að svara
óskum um aukaþing með þeim rökum einum, að engin
ástæða sé til að efna „til þess aukakostnaðar nú að kalla
saman aukaþing". Á nú að leggja fjárhagslegt mat á virðingu
Alþingis? Á að viðhalda stjórnskipulegri sjálfheldu í land-
inu, af því að það kostar einhver aukaútgjöld að kalla Al-
þingi saman nú?
Rök stjórnarherranna fyrir efnahagsaðgerðunum sem þeir
gripu til eru ekki sannfærandi, enda blasir við að aðgerðirn-
ar eru gagnslausar eins og að þeim er staðið. Það ríkir
efnahagsleg sjálfhelda í því öngþveiti sem af störfum ríkis-
stjórnarinnar hefur leitt. Nú bætist stjórnskipulega sjálf-
heldan við. Það er athyglisvert, að við þessar aðstæður telja
alþýðubandalagsmenn skynsamlegt fyrir sig að efna til póli-
tískrar útrásar með fundum og öðru. Kommúnistar hreykja
sér helst af því, að nú takist þeim líklega að koma verslun-
inni á vonarvöl eins og útgerð, iðnaði og heimilum launþega.
Og með því að sitja sem fastast í ríkisstjórninni og hvetja
stuðningsmenn sína til fylgis við það sjá flokksbroddar
kommúnista sér þann leik á borði að vega að stjórnskipan
lýðveldisins og þeim lýðræðisreglum sem til þessa hafa verið
hafðar í heiðri.
„Samfélagið hefiir
sett Hofeós hjá“
segir Ófeigur Gestsson, nýráðinn sveitarstjóri
„Með starfi minu hjá Búnaðarsam-
bandi Borgarfjarðar var ég mikið í fé-
lagsmálum í mínum frístundum, með-
al annars í hreppsnefnd Andakíls-
hrepps, í stjórn llngmennasambands
Borgarfjarðar og ýmsu fleiru. Það hef-
ur þýtt að ég hef eytt hluta af kaupinu
minu í félagsmálin. Með sveitarstjóra-
starfinu skapast aftur á móti mögu-
lcikar til að sinna áhugamálunum í
vinnutimanum og á kaupi. Einnig
kemur það til að ég er ættaður héðan,
ég var hérna alla tíð í sveit á sumrin
og hér er ákaflega fallegt, þetta er
með allra fegurstu sveitum landsins.
Hofsós er litið sveitarfélag og þess
vegna ætti að vera auðveldara að hefja
störf hér, að sjá út yfir verkefnin frá
degi til dags en á ýmsum stærri stöð-
um.“ Þetta var svar Ófeigs Gestsson-
ar, þegar hann var spurður hversvegna
hann hafi tekið sig upp og ákveðið að
taka við starfi sveitarstjóra á Hofsósi.
Ófeigur hefur verið búsettur á
Hvanneyri í Borgarfirði undanfarin
20 ár og starfað sem frjótæknir hjá
Búnaðarsambandi Borgarfjarðar
auk þess sem hann hefur starfað
þar mikið í félagsmálum.
— Hverjar eru helstu fram-
kvæmdir á Hofsósi í ár?
„Helstu framkvæmdir sem unnið
er að á þessu ári eru endurbætur við
höfnina, þ.e. viðgerð á hafnargarði
og klæðning og dýpkun hafnarinnar
og íþróttavallargerð. Til stóð að
hefja framkvæmdir við varanlega
gatnagerð og var boðinn út áfangi í
því verki, en ekkert tilboð kom og
var þá ákveðið að fresta því verki til
næsta árs. Þetta er brýn fram-
kvæmd því engar götur eru hér með
bundnu slitlagi.
Brýnustu verkefni sem eru á
dagskrá næstu árin eru áframhald-
andi endurbætur á hafnaraðstöð-
unni og áframhald gatnagerðar.
Það sem háir þessum stað mest er
hvað atvinnulífið er einhæft, það
vantar fjölbreyttari undirstöður.
Þetta 300 manna samfélag hefur þó
þrifist þrátt fyrir þetta en áberandi
er að unga fólkið, sem fer til fram-
haldsnáms, hefur ekki atvinnutæki-
færi hér heima.
Hofsós er eini þéttbýlisstaður
Skagafjarðar, austan Héraðsvatna,
og hefur öll skilyrði til að geta orðið
meira gildandi en verið hefur. Auð-
velt er að gera hér góða hafnarað-
stöðu, hér býr gott fólk og hér er
fallegt, það er ekki minnsta atriðið.
Sannleikurinn er sá að ég er
þeirrar skoðunar að samfélagið hafi
sett Hofsós hjá á tveimur síðustu
áratugum og það getur hver maður
séð sem skoðar sögu annarra þétt-
býlisstaða. Spurningin er sú hvort
hér á ekki að vera þéttbýlisstaður,
sem njóti sömu þjónustu og aðrir
staðir eða hvort á að iáta staðinn
koðna niður.
Hér er til dæmis rekið iðnfyrir-
tækið Stuðlaberg hf. Það er vel rek-
ið og á allan hátt mjög vel um geng-
ið, góð framleiðsla og snyrti-
mennska mikil. Ef verkefni fyndust,
er það sannað mál með þessum
rekstri, að það er hægt að gera
þessa hluti jafn vel og annars stað-
Fjórðungsþing Norðlendinga:
Ófeigur Gestsson, nýráöinn sveitar-
Stjóri á HofsÓSÍ. (Ljósu. Mbl. H.Bj.)
ar því það er einmitt slík starfsemi
sem hér vantar, það er að fólkið geti
fengið vinnu við annað en frystihús-
ið.“
— Hvernig hefur þér svo litist á
staðinn?
„Fólkið hefur verið ákaflega vin-
samlegt og mér hefur verið vel tek-
ið. Auðvitað er það svo að maður
getur ekki búist við neinum sérstök-
um móttökum, heldur verður að sjá
til hvers maður er nýtur, þú skalt
spyrja mig þessarar spurningar eft-
ir árið, í fyrsta lagi. í þessu sam-
bandi má nefna það að maður rekur
sig á hluti sem eru meira að segja
óþekkt fyrirbrigði í sveitinni í Borg-
arfirði, pósturinn kemur til dæmis
hingað aðeins þrisvar í viku,“ sagði
Ófeigur Gestsson að lokum. HBj.
Vilja staðsetningu orku-
freks iðnaðar á Norðurlandi
Sauðárkróki, 27. ágúst. Frá blm. Mbl.
Stefáni Friðbjörnssyni.
„MEÐ virkjun Blöndu er verið að
stórauka öryggi í orkubúskap þjóðar-
innar og skapa skilyrði fyrir meiri iðn-
þróun á Norðurlandi," segir i tillögu
frá Iðnþróunar- og orkumálanefnd
sem liggur fyrir fjórðungsþingi Norð-
lendinga, sem hófst á Sauðárkróki sl.
fimmtudag. Tillagan undirstrikar þá
staðreynd „að orkuiðnaðurinn mun í
vaxandi mæli verða undirstöðuat-
vinnuvegur þjóðarinnar við hliðina á
hinum hefðbundnu atvinnugreinum.
Jafnframt leggur þingið áherslu á
að á sviði orkunýtingar sem undir-
stöðuatvinnuvegar eru ónýttir
möguleikar sem gætu skipt sköpum
fyrir þjóðarbúskapinn og byggða-
þróun í landinu ... því telur fjórð-
ungsþingið eitt meginverkefnið í
byggðaþróun í Norðlendingafjórð-
ungi að stuðla að því í framhaldi
Blönduvirkjunar og með tilliti til
væntanlegrar Fljótsdalsvirkjunar
að á Norðurlandi, t.d. á Eyjafjarð-
arsvæðinu, verði næsta stjóriðjuver
á sviði orkufreks iðnaðar. Gunnar
Rafnar bæjarfulltrúi á Akureyri
hafði framsögu um dagskráriiðinn
stóriðnað og sagði þá m.a.: „Við eig-
um hiklaust að snúa okkur að því að
nýta vatns- og hitaorkuna og breyta
henni í iðnaðarvöru og flytja hana á
þann hátt út úr landinu. Við skulum
nota tíma okkar til þess ef við ætl-
um að halda áfram á leið til bættra
lífskjara." Áskell Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssambands-
ins, sagði í sinni ræðu: „Næstu
misseri geta skipt sköpum hvort
Norðurlandið og þar með lands-
byggðin verði megnug að tryggja
sér skerf í hinni miklu iðnaðarupp-
byggingu sem hlýtur að koma. Stór-
iðnaður í dag hefur sama gildi og
togaraútgerðin og síldarbræðslur
höfðu á sínum tíma. Þessu fylgir að
sjálfsögðu áhætta eins og í öllum
stórrekstri. Sú áhætta er óhjá-
kvæmileg eins og á sínum tíma þeg-
ar ráðist var í togarakaup og upp-
byggingu síldariðnaðar."
Aðrir frummælendur voru Björn
Dagbjartsson um matvælaiðnað,
Páll Hlöðversson um almennan iðn-
að og Guðmundur Sigvaldason um
þjónustustörf. Þingið var sett af
Bjarna Aðalgeirssyni bæjarstjóra á
Húsavík sem jafnframt er formaður
Fjórðungssambands Norðlendinga.
Það var sótt af tæplega eitt hundrað
sveitarstjórnamönnum úr báðum
Norðurlandskjördæmum. í gær,
föstudag, voru umræður um tillögur
frá milliþinganefnd-jm og fjórð-
ungsráði, en þinginu lýkur í dag.
Þingforseti er Magnús Sigurjónsson
bæjarfulltrúi á Sauðárkróki og
varaþingforseti Jón Guðmundsson
oddviti í Óslandi. Þingskrifarar eru
Stefán Gestsson oddviti á Arnar-
stöðum og Aðalheiður Arnórsdóttir
bæjarfulltrúi á Sauðárkróki. Ráð-
inn þingritari er Björn Björnsson
skólastjóri á Sauðárkróki.
XVII. NORRÆNA ÞINGIÐ
UM LÍFEÐLIS - OG LYFJAFRÆÐI
REYKJAVÍK 29-31ÁGÚST 1982
Þrír nóbelsverðlaunahafar í lífeðlis- og
læknisfræði taka þátt í þingi hér á landi
XVII. NORRÆNA þingið um lífeðl-
isfræði og lyfjafræði hefst í fyrra-
málið að Hótel Loftleiðum. Þingið
sækir fjöldi vísindamanna, sem
standa í fremstu röð í þessum fræð-
um, þeirra á meðal þrír Nóbelsverð-
launahafar í lífeðlis- og læknisfræði,
þeir Andrew F. Huxley, sem hlaut
Nóbelsverðlaunin 1963, Ulf S. von
Euler, sem fékk þau 1970 og Torsten
N. Wiesel, sem fékk þau síðastliðið
ár, 1981. Eru þeir hér kynntir lítil-
lega.
Andrew F. Huxley
Sir Andrew Fielding Huxley
er fæddur í London 22. nóvember
1917. Hann er sonarsonur nátt-
úrufræðingsins og rithöfundar-
ins Thomasar Huxley, sem var
einn dyggasti stuðningsmaður
Darwins, í þeim deilum sem risu
vegna þróunarkenningarinnar.
Hálfbræður hans voru hinn
þekkti líffræðingur Julian Huxl-
ey og rithöfundurinn Aldous
Huxley, sem margir munu kann-
ast við sem höfund bókarinnar
Brave New World.
Sir Andrew hlaut menntun
sína í University College School
1925—30, Westminster School
1930—35, og í Trinity College,
Cambridge, þar sem hann lagði
stund á náttúruvísindi. í upphafi
hafði hann ekki sérstakan áhuga
á lífeðlisfræði, en fyrir áhrif frá
kuningjum valdi hann hana sem
aðra af tveim vísindagreinum,
sem þurfti til að ljúka
fyrrihlutaprófi í Cambridge.
Hann segir um þessi fyrstu
kynni sin af lífeðlisfræði: „Mér
fannst lífeðlisfræðin áhugaverð,
bæði vegna viðfangsefna hennar
og eins vegna kynna minna af
lífeðlisfræðingunum Adrian,
Roughton, Rushton, Hodgkin og
Millikan (sem allir voru kennar-
ar við Tripity) og af öðrum i
deildinni, og ákvað að sérhæfa
mig í henni."
Skömmu fyrir stríðsbyrjun
hóf Sir Andrew rannsóknir í
samvinnu við kennara sinn A. L.
Hodgkin, sem síðar var aðlaður.
Um þessar mundir hafði fundist
í kolkrabbanum risavaxin tauga-
fruma, sem var svo sver að menn
héldu í fyrstu að um æð væri að
ræða. Taugafruma af þessari
stærð gerði mögulegar rann-
sóknir, sem menn hafði aðeins
dreymt um til þess tíma, eins og
það að stinga skráningarskaut-
um inn í frumuna eða athuga
áhrif þess að breyta salthlutföll-
um í henni. Heimsstyrjöldin
tafði þessar rannsóknir þeirra
Hodgkin og Huxleys, en eftir
stríðið tóku þeir upp þráðinn að
nýju. Samvinna þeirra leiddi til
þess, að þeir deildu Nóbelsverð-
laununum með Sir John C. Ecc-
les árið 1963, fyrir uppgötvanir
varðandi þær jónahreyfingar
sem liggja að baki örvun og
hömlun í himnu taugafruma,
eins og segir í greinargerð
Nóbelsnefndarinnar.
Frá stríðslokum til 1960
stundaði hann rannsóknir og
kennslu við Trinity College,
Cambridge. Þá tók hann við
stjórn lífeðlisfræðideildar Uni-
versity College, London, en 1969
var hann gerður Royal Society
Research Professor við sömu
deild. Hann var kjörin forseti
Royal Society 1980. Hann er
heiðursfélagi í fjölmörgum fé-
lögum og hefur verið gerður að
heiðursdoktor við marga há-
skóla.
Sir Andrew segir um vinnu
sína fram til þess tíma, er hann
fær Nóbelsverðlaunin 1963: „Frá
1946 til 1951 vann ég aðallega í
samvinnu við Hodgkin, að rann-
sóknum á taugaboðum, en einnig
með R. Stampfli við rannsóknir
á fituslíðri tauga. Árið 1952
sneri ég mér að rannsóknum á
vöðvasamdrætti og smíðaði sér-
staka smásjá tii rannsókna á
þverrákóttum vöðvafrumum.“
Þetta er enn aðalviðfangsefni
Sir Andrew og á þinginu hér
mun hann stjórna málþingi, sem
ber yfirskriftina Comparative
aspects of muscle mechanics.
Kona Sir Andrews er Lady
Richenda og eiga þau sex börn.
Ileimildir: Le« Prix Nobel, 1963.
Ulf S. von Euler
Ulf S. von Euler er fæddur í
Stokkhólmi 7. febrúar 1905. Fað-
ir hans var Hans von Euler-
Chelpin, sem hlaut nóbelsverð-
launin í efnafræði 1929. Hann
var einn frumkvöðla lífefna-
fræðinnar og rannsakaði einkum
ensím og vítamín. Móðirin,
Astrid Cleve, var doktor í grasa-
fræði. Hún var dóttir Per Teodor
Cleve, sem var prófessor í efna-
fræði í Uppsölum og fann tvö
frumefni, thulium og holmium.
Von Euler segir um andrúms-
loftið á æskuheimili sínu: „And-
rúmsloft vísinda á heimili mínu
og regluleg tækifæri til að hitta
vísindamenn — Svante Arrheni-
us (sjá Les Prix Nobel 1929, bls.
74) var guðfaðir minn — átti án
efa stóran þátt í vaxandi áhuga
mínum á rannsóknum. Þeim var
hins vegar ekki haldið að mér í
uppvextinum."
Von Euler stundaði fyrst nám
í Svíþjóð og lauk doktorsprófi í
lyfjafræði 1930. Eftir það fór
hann til framhaldsnáms erlend-
is, þar sem hann stundaði rann-
sóknir og nám hjá mörgum
fremstu lífeðlisfræðingum
heims. Sama árið og hann lauk
doktorsprófi, fann hann boðefnið
„substance P“ og eftir heimkom-
una til Svíþjóðar, prostaglandin
og vesiglandin á árinu 1935, pip-
eridine 1942 og loks noradrenal-
ine 1946. Hann segir svo um
rannsóknir sínar eftir það, fram
til ársins 1970: „Eftir að hafa
sýnt fram á árið 1946, að nora-
drenaline var boðefnið í adren-
ergum taugum, hafa rannsóknir
mínar einkum verið helgaðar því
efni. Dreifing þess í taugum og
líffærum, magn þess, losun og
eyðing við margvísleg heilbrigð
og sjúkleg skilyrði hafa verið
rannsökuð á rannsóknarstofu
okkar. Sú uppgötvun (ásamt fé-
laga mínum N.Á. Hillarp heitn-
um), að boðefnið væri geymt í
blöðrum inni í taugafrumunni
beindi rannsóknunum inn á nýj-
ar brautir og spurningar varð-
andi upptöku, geymslu og losun
úr taugablöðrunum, sem og boð-
sendingarnar sjálfar, hafa verið
höfuðviðfangsefni rannsókna
minna síðan 1958.“
Þess má geta hér til nánari
skýringar, að taugar miðla boð-
um til annarra fruma, með því
að losa svokölluð „boðefni". Boð-
efnin losna vegna spennubreyt-
inga yfir himnu taugafrumunn-
ar, berast yfir á næstu frumu og
tengjast þar viðtökum. Virkjun
viðtakanna er fyrsti hlekkurinn í
svari þeirrar frumu.
Mikilvægi þess fyrir læknis-
fræðina að þekkja þessi efni og
eiginleika þeirra er augljóst. Það
gerir kleift að breyta áhrifum
taugafruma á þær frumur sem
þær stjórna. Þessu er beitt í
meðferð ótal sjúkdóma, svo sem
hjartasjúkdóma, blóðþrýstings-
breytinga, geðsjúkdóma og
lungnasjúkdóma.
Von Euler varð prófessor í líf-
eðlisfræði við Karolinska Instit-
utet í Stokkhólmi 1939 og gegndi
því starfi til 1971. Hann hefur
hlotið margvíslegar viðurkenn-
ingar fyrir störf sín aðrar en
nóbelsverðlaunin, meðal annars
er hann félagi í yfir 20 vísinda-
akademíum og heiðursdoktor við
10 háskóla. Hann varð varafor-
seti Alþjóðasambands lífeðlis-
fræðinga 1965. Þá hefur hann
setið í nóbelnefndinni fyrir
lífeðlis- og læknisfræði og verið
ritari hennar um árabil. Forseti
stjórnar Nóbelstofnunarinnar
1965-75.
Honum voru veitt nóbelsverð-
launin í lífeðlis- og læknisfræði
1970, ásamt þeim Bernard Katz
og Julius Axelrod, fyrir uppgötv-
anir varðandi taugaboðefni:
geymslu þeirra, losun og niður-
brot, eins og segir í áliti nóbels-
nefndarinnar.
Von Euler er kvæntur greif-
ynjunni Dagmar Cronstedt.
Ileimildir: Les Prix Nobel, 1970.
Torsten N. Wiesel
TORSTEN Nils Wiesel er af
sænsku bergi brotinn, fæddur í
Uppsölum í Svíþjóð 3. júní 1924.
Hann hlaut menntun sína við
Karolinska Institutet í Stokk-
hólmi, lauk læknisprófi frá
þeirri stofnun 1954 og fór eftir
það í framhaldsnám til Banda-
ríkjanna. Þar hófst samstarf
hans við David Hubel fljótlega
upp úr því, en Hubel hlaut ásamt
honum nóbelsverðlaunin í fyrra.
Þriðji nóbelsverðlaunahafinn þá
var Roger Sperry.
Torsten Wiesel hefur dvalist í
Bandaríkjunum og unnið vís-
indastörf sín þar, frá þessum
tíma. Hann er nú Robert Win-
throp Professor í taugalíffræði
við Harvard Medical School og
deildarforseti þar. Hann hefur
unnið til ótal verðlauna og viður-
kenninga fyrir vísindastörf sín
annarra en nóbelsverðlaunanna,
sem hann hlaut eins og fyrr
sagði 1981.
Torsten N. Wiesel og David
Hubel fengu nóbelsverðlaunin
fyrir rannsóknir sínar á sjón-
skyni. Um eðli rannsókna þeirra
má það segja nánar, að þeir hafa
reynt að skýra með hvaða hætti
heilinn túlkar þau boð sem frá
auganu berast. í því skyni hafa
þeir fylgt eftir sjónáreitinu, frá
því það ertir nethimnu augans
og þar til það berst til hinna
ólíku frumulaga í sjónstöð heila-
barkarins. Þeir hafa sýnt fram
á, að boð um myndina á net-
himnunni er greint í heila-
berkinum af kerfi taugafruma,
sem raðast saman í eins konar
súlur. Innan hverrar súlu svara
taugafrumur á mismunandi hátt
ákveðnum áreitum. Þetta hafa
þeir fundið með því að skrásetja
boðin frá einstökum frumum í
heilaberkinum, á meðan til-
raunadýrið horfir á tilteknar
myndir. Með þessu móti hefur
Hubel og Wiesel tekist að kort-
ieggja sjónstöð heilabarkarins
að hluta. Niðurstöður þeirra
benda til, að frumur í sjónberk-
inum séu ákaflega sérhæfðar.
Hver fruma fáist til dæmis að-
eins við áreiti frá ákveðnum stað
á nethimnu augans og svari því
aðeins, að áreitið hafi ákveðna
lögun eða stefnu. Boðin fara síð-
an frá þessum frumum til æðri
stöðva heilans, þar sem þau eru
túlkuð frekar og öðlast
merkingu.
Torsten N. Wiesel er kvæntur
og á eina dóttur.
Heimildir: Scientific American,
dcsember I9KI. Time, oktober I9K1.