Morgunblaðið - 28.08.1982, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1982
Landssamband iðnverkafólks:
Mótmælir harðlega
að gripið sé inn í
gerða samninga
Stjórn Landssamhands ión-
vcrkafólks mótmælir harftlega, aft
gripift sé inn í gerfta kjarasamn-
inga meft lagahofti. Kftirfarandi
ályktun var samþykkt á stjórnar-
fundi, scm haldinn var 26. ágiíst:
„Stjórnvöld hafa nú ákveðið
margvíslegar aðgerðir í efna-
hagsmálum. í þeim er enn einu
sinni gripið með lagaboði inn í
gerða kjarasamninga með lækk-
un umsaminna verðbóta. Þeirri
aðgerð mótmælir stjórn Lands-
sambands iðnverkafólks harð-
' lega.
Ekki fer á milli mála að við
margs konar vanda er að glíma í
íslenskum efnahagsmálum.
Vandamál þessi má ekki undir
neinum kringumstæðum leysa á
kostnað láglaunafólks.
Stjórn Landssambands iðn-
verkafólks minnir á að atvinnu-
ástand iðnverkafólks er nú sums
staðar ótryggt og treystir því að
stjórnvöld sjái til þess að full
atyinna verði tryggð áfram.
I yfirlýsingu ríkisstjórnarinn-
ar er gert ráð fyrir ýmsum að-
gerðum til hagsbóta fyrir hina
lægst launuðu og treystir stjórn
Landssambands iðnverkafólks
því að þessi loforð verði efnd og
komi sem allra fyrst til fram-
kvæmda.“
Úr kvikmyndinni „Nútíma vandamát
Danska drottningarsnekkjan Dannebrog, þar sem hún liggur vift Ægisgarft í Reykjavíkurhöfn. Mbl. rax.
Dannebrog í Reykjavík
DANSKA drottningarsnekkjan
Dannebrog liggur nú í Reykja-
víkurhöfn. Hún kom til landsins
í gærmorgun og verður hér fram
á þriðjudaginn í næstu viku.
Hingað kemur hún frá Jakobs-
höfn í Grænlandi og tók sigling-
in hingað til lands fjóra daga.
Ástæðan fyrir veru drottn-
ingarsnekkjunnar á Grænlandi,
var hátíðin sem þar var haldin
vegna þúsund ára byggðar nor-
rænna manna þar í landi, en
viðstödd þau hátíðahöld var
danska konungsfjölskyldan og
forseti íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir, meðal annarra, eins og
mönnum er í fersku minni. For-
seti Islands bjó einmitt um borð
í snekkjunni í boði dönsku kon-
ungshjónanna meðan á hátíða-
höldunum stóð. Snekkjan er á
heimleið, en sjö vikur eru nú síð-
an hún lagði upp frá Danmörku.
Innbrotin í skartgripaverslanirnar:
Lögreglan gerði það
sem hægt var að gera
segir Grétar Norðfjörð lögreglufulltrúi
Nýja Bíó frumsýnir
„Nútíma vandamál"
Nýja bíó sýnir í dag myndina
„Nútíma vandamál“, sem á frum-
málinu heitir „Modern Problems"
og er bandari.sk kvikmynd frá
Twentieth ('entury-Fox.
Leikstjóri myndarinnar er Ken
Shapiro, en framleiðendur eru Al-
an Greisman og Michael Sham-
berg. Höfundur handrits er leik-
stjórinn Tom Sherohman og Arth-
ur Sellers. Tónlist í myndinni er
eftir Dominic Frontiere.
Aðalhlutverk leika Chevy
Chase, Patti d’Arbanville, Mary
Kay Place, Nell Carter o.fl.
„Kg harma ummæli einstakra
gullsmiða um störf lögreglunnar án
þess aft þeir hafi fyrir því aft kynna
sér þá vinnu sem lögreglan leggur á
sig til aft leysa einstök mál,“ sagði
Grétar Norðfjörð, fulltrúi í afbrota-
vörnum hjá Lögreglustjóranum i
Keykjavík, þegar Morgunblaftið leit-
afti umsagnar hans á þeim ásökun-
um, sem fram hafa komift í blöftum
að undanförnu, á störf lögreglunnar
i sambandi vift innbrotin i úra- og
skartgripaverslanir í Reykjavík i
sumar. Sigurftur Steinþórsson, eig-
andi skartgripaverslunarinnar Gull
og silfur, sagði m.a. í samtali vift
Morgunblaftið á þriðjudag: „Satt
best aft segja erum vift mjög hissa á
slælegri framgöngu lögregluyfir-
valda í þessu máli. Segja má aft þau
hafi alltaf verift víðs fjarri meftan á
þessari innbrotaöldu stóft.“
Grétar Norðfjörð sagði einnig:
„Ég veit ekki hvað götur borgar-
innar eru margir kílómetrar að
lengd eða hvað margir kílómetrar
eru á hvern lögreglumann, en það
get ég leyft mér að fullyrða að þó
svo að ekki sjáist alltaf einkenn-
isklæddir lögreglumenn á götum
borgarinnar, eru til aðrar lög-
regluaðferðir, þó menn verði ekki
Félag íslenzkra bifreiðaeigenda:
Mótmælir sköttum á bifreiðir
í tilefni setningar bráftabirgða-
laga 21. ágúst 1982, bendir stjórn
Félags íslenskra bifreiðaeigenda
(FÍB) á eftirfarandi:
Skattlagning á bifreiðar og
rekstrarvörur til þeirra hefur verið
óhófleg um langt árabil hér á
landi. International Road Federat-
ion (IRF, Alþjóða vegamálasam-
bandift) sbr. meðfylgjandi súlurit,
bendir á í skýrslu sinni 1981 aft
skattlagning á bifreiðar á íslandi
sé hærri en í nokkru öftru landi,
sem könnun þeirra nær til, sem
eru alls 22 lönd í öllum heimsálf-
um. í skýrslu sömu stofnunar
kemur fram aft vegakerfi á íslandi
er eitt frumstæðasta í heimi.
Bíllinn er mest notaða og
nauðsynlegasta samgöngutæki á
landi. Bílaeign er hér almennari
en í nokkru öðru landi í Evrópu,
eða 2,4 íbúar um hvern fólksbíl í
Iandinu, þ.e. rúmlega 1 bíll á
fjölskyldu að meðaltali. Útgjöld
meðalfjölskyldu vegna bifreiða
mun oftast meiri en húsnæðis-
kostnaður viðkomandi. Bíll er
nauðsyn og ómissandi hjálpar-
tæki fyrir störf og frístundir
flestra landsmanna.
Þessi nýi skattur á bifreiðar
leggst hvað þyngst á launastétt-
irnar og jafnvel allra þyngst á
þá tekjulægstu þ.e. áldraða og
öryrkja, enda lagður á smáa
sparneytna bíla hlutfallslega
jafnt og hina stærstu.
FÍB harmar að ríkisstjórnin
virðist hafa horfið frá fyrri
nýmótaðri stefnu sem fólst í
lækkun skatta á sparneytnar
bifreiðar. Slíkt verður að telja
hörmuleg mistök fremur en
TATLA II.
Sérstakt AÍold eftlr ttorft bíla.
t>yn(d bíi» k« St«ri vál«r lítr«r Sírgj»ld i bíl 30/V '82 S<rg)*ld i bíl 28/8*82
700 kg < - 1.0 1 0 t 7t
701-400 kg 1.1-1.) 1 St 12t
801-900 kg 1.3-1.8 1 íot 17t
901-1100 1.8-2.0 i m 22t
1101-1)00 2.0-2.) 1 20t 27%
1301-1900 kg 2.J-3.0 1 2St 32t
> 1S00 kg > 3.0 1 30t 37t
efnahagsaðgerð á tímum orku-
kreppu, (sbr. töflu II).
FÍB mótmælir harðlega þeim
nýju skattaálögum á minni bif-
reiðar og hækkun skatta á þær
stærri.
Hvað viðvíkur verðhækkun á
bílum vegna síðustu gengis-
lækkunar íslensku krónunnar
skal bent á að eindregin krafa
FÍB hefur ávallt verið sú, að öll-
um skatttekjum af bifreiðum og
rekstrarvörum þeirra eigi ein-
göngu að verja til vegafram-
kvæmda á meðan ólokið er lagn-
ingu varanlegra vega á fjölförn-
um leiðum í landinu. Þetta er
eitt stærsta hagsmunaverkefni
þjóðarinnar en hefur þó verið
vanrækt í marga áratugi. Hin
allra síðustu ár hillir þó undir
breytt viðhorf og skipulegar
framkvæmdir í gerð varanlegra
vega eru hafnar, að vísu í allt of
smáum stíl. FÍB með þjóðarhag
fyrir brjósti krefst þess að nýjar
skatttekjur og gengishagnaður
ríkisins af bifreiðum og rekstr-
arvörum þeirra verði strax látn-
ar renna til varanlegrar vega-
gerðar í landinu.
mikið varir við þær. Þeim kann að
hafa verið beitt, en það er
lögregluleyndarmál hvernig það
hefur verið gert.
Ég mun eiga þess kost innan
skamms að sitja fund með gull-
smiðum og leiðrétti ég þetta þá.
Ég harma allar árásir á lögregl-
una, því mér er fullkunnugt um
það, og þekki líka allt lögreglulið
Reykjavíkur, að þeir vilja allir allt
fyrir samborgarana gera. Við vor-
um aldeilis ekki víðs fjarri, en það
er með öllu útilokað að setja menn
við hverja verslun, því úra- og
skartgripaverslanir borgarinnar
eru 40, en ekki 20 eins og fram
kemur hjá Sigurði. Lögreglan í
Reykjavík verður einnig að sinna
fleirum en þeim og við gerum allt
sem við getum til að veita öllum
samborgurunum sem besta þjón-
ustu. Við náðum þessum ógæfu-
manni sem braust inn í skart-
gripaverslanirnar að lokum, en
þetta tekur allt sinn tíma. Við
verðum að njóta samstarfs við
borgarana til þess að geta náð
virkilegum árangri. Þó að okkur
hafi ekki tekist að koma í veg fyrir
þau innbrot sem voru framin í
þessar verslanir, tel ég að við höf-
um komið í veg fyrir nokkur, þó
aldrei verði hægt að sanna það.
Það voru úti lögreglumenn ein-
göngu vegna þessara verkefna,
sem síðan náðu árangri. Ég vil
ekki fara út í einstaka liði, en við
vorum á Laugaveginum og frá því
að þessi innbrot hófust, eyddi ég
mestu af mínum vinnutíma á
Laugavegi og í miðbænum og
meira er í sjálfu sér ekki hægt að
gera. Lögreglan gerði það sem
hægt var að gera við þessar að-
stæður.
Ég mun leiðrétta þann mis-
skilning, sem upp er kominn á
milli lögreglu og gullsmiða og
gullsmiðir hafa farið með í blöðin,
þegar tækifæri gefst á þrengri
vettvangi. Ég get fullvissað
Reykvíkinga um það að lögreglan
mun gera allt sem í hennar valdi
stendur til að stemma stigu við
öllum tegundum afbrota," sagði
Grétar Norðfjörð.