Morgunblaðið - 26.09.1982, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 26.09.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1982 51 anfarinna ára hefur sýnt þær hættur sem í því felast fyrir margar þjóðir, ef þær eiga of greiðan aðgang að erlendu fjár- magni án nokkurra skilyrða um skynsamlega nýtingu þess. Við þær aðstæður er hætt við því, að menn freistist til að fresta óhjá- kvæmilegum aðgerðum er miða að því að takmarka neyslu og fjár- festingu og koma þannig á viðun- andi greiðslujöfnuði gagnvart út- löndum — eyði sem sé um efni fram þar til allt er komið í óefni. Enginn vafi er á því, að þeim þjóðum, sem ekki hafa frestað vandanum með þessum hætti heldur reynt að leysa hann ýmist sjálfar eða með aðstoð Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins, hefur farnast betur en hinum sem láta reka á reiðanum. Nú fellur það í hlut sjóðsins að hafa forystu um samn- inga við Mexíkó sem síðan verða lagðir til grundvallar þegar gert er átak til efnahagslegrar við- reisnar þar í landi og samið að nýju við lánardrottna landsins. Það kom glöggt í ljós í umræð- um um þessi mál á fundinum í Toronto, að menn setja nú miklu meira traust á forystu Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins í þessum efnum en áður. Reynslan hefur sýnt að án forystu stofnunar sem hefur bæði til þess reynslu og þekkingu að setja skilyrði fyrir fjárhags- legri fyrirgreiðslu er hætt við að margar þjóðir gæti ekki að sér fyrr en þær eru sokknar of djúpt í skuldafenið til þess að geta bjarg- að sér af eigin rammleik. Eitt af þeim verkefnum sem mest áhersla er nú lögð á er að flýta endurskoðun á kvótum ein- stakra landa hjá Alþjóðagjaldeyr- issjóðnum og standa vonir til að hægt verði að ná samkomulagi um það efni á næsta fundi stjórnar- nefndar sjóðsins í apríl næstkom- andi. Með þessari endurskoðun er stefnt að því að auka fjármagn sjóðsins um 50 —100% og þar með aðgang aðildarríkjanna að lántök- um hjá honum.“ Erlendar skuldir íslendinga Línuritin sýna þróun erlendra skulda íslendinga frá 1977 en brotna línan fyrir þetta ár gefur til kynna sídustu spár. Til vinstri er þad dregið upp hvernig greiðslubyrði vaxta og afborgana hefur vaxið sem hlutfall af útflutn- ingstekjum. Til hægri kemur fram hlutfall erlendra skulda miðað við þjóðar- tekjur. — Hver er staða íslands gagnvart Alþjóðagjaldeyrissjóðnum nú og hvernig hefur samskiptunum við hann verið háttað? „íslendingar hafa nokkrum sinnum fengið mikilvæga aðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðunum. I fyrsta skipti þegar viðreisn efna- hagslífsins var skipulögð 1960, síð- an í efnahagsörðugleikunum 1967 — 68 og síðast eftir olíuverðs- hækkunina 1974 — 75. Síðustu lánin sem íslendingar fengu voru sérstök olíulán sem sjóðurinn veitti vegna áhrifa olíuverðshækk- ana á greiðslujöfnuð íslands 1974 —75 og er endurgreiðslu þeirra lána svo að segja fulllokið. íslend- ingar skulda Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum því nú svo til ekkert og felst óneitanlega mikið öryggi í þeim lánamöguleikum, sem við eigum hjá sjóðnum, ef á þarf að halda. pláss fyrir skólann á kirkjuloft- inu. Var þetta í fyrstu hugsað sem bráðabirgðahúsnæði, en skólinn var þar til húsa í tvo áratugi (23 ár) og fór jafnan vel á þessu sambýli skóla og kirkju með góðum skilningi og lipurð á báðar hliðar. Þeir, sem stund- uðu nám eða voru kennarar við gagnfræðaskólann á þessum ár- um eiga hinar bestu minningar um þetta samstarf. Það hefur einnig oft komið í ljós, að marg- ir nemendur muna vel eftir skólavist sinni á kirkjuloftinu og hafa sýnt kirkjunni ræktar- semi við mörg tækifæri, ekki síst nú, í sambandi við vígslu hins nýja safnaðarheimilis. Eitt langar mig sérstaklega að minnast á í sambandi við þessa eftirminnilegu kirkjuhá- tíð, er sýnir glöggt góðan hug og ræktarsemi við kirkjuna, en það er hópferð fermingarbarnanna frá 1946, er fædd voru 1932 og því jafnaldrar kirkjunnar og héldu upp á fimmtugsafmæli sitt með þessum sérstaka hætti. Alls voru fermingarbörnin þetta ár (1946) 70 að tölu, og dreifð, ef svo mætti segja um allar jarðir, nokkur búsett í öðr- um heimsálfum, en aðeins 12 þeirra eru búsett í Siglufirði. Það var ekki svo lítið átak, að ná sambandi við þennan tiltölu- lega stóra hóp og undirbúa og skipuleggja síðan ferð norður til Siglufjarðar á þessum tímamót- um. Og allt þetta tókst með ágætum. Langflest fermingar- börnin frá 1946 hittust í Siglu- firði, rifjuðu upp gömul kynni og nutu góðra stunda í dásam- lega fögru veðri á æskustöðvum sínum, heilsuðu upp á frænd- fólk og vini og sáu fjörðinn skarta sínu fegursta. Viðtökur heimafólks voru bæði hlýlegar og höfðinglegar. í mínum huga og okkar hjón- anna verður þessi ferð til Siglu- fjarðar ógleymanleg. Hlýhugur fólksins var sem blíður vorblær, þótt tekið væri að halla sumri. En minnisstæðast af öllu verður mér þó þessi hópur fermingarbarnanna frá 1946, jafnaldra kirkjunnar, sem héldu upp á fimmtugsafmæli sitt með þessum sérstæða hætti. Þá sýndu þau mér þann per- sónulega sóma, að tengja nafn mitt fallegri gjöf til kirkjunnar og veita okkur hjónunum þá ánægju, að fá að fylgjast með þeim til og frá Siglufirði í þess- ari einstæðu sögulegu ferð, sem tókst öll svo giftusamlega. Ég held líka að Siglfirðingum hafi þótt alveg sérstaklega vænt um þessa ræktarsemi við æsku- stöðvarnar, sem lýstu sér í heimsókn þessa afmælisár- gangs á þessari velheppnuðu kirkjuhátíð. Ef þessar fáu línur skyldu koma fyrir augu þeirra, sem voru í þessum afmælisárgangi frá 1932, þá sendum ^ið hjónin þeim sérstakar kveðjur og þakkir fyrir ánægjulegar sam- verustundir og ræktarsemi í okkar garð og Siglfirðingum öll- um fyrir hlýhug þeirra og gest- risni fyrr og síðar. A efri árum þykir manni al- veg sérstaklega vænt um allan hlýhug og ræktarsemi, ekki síst þegar það tengist þeim málum, sme manni eru hjartfólgin. Það hefur löngum verið gæfa og styrkur íslensku kirkjunnar að hún hefur átt velunnara og áhugafólk í öllum stéttum og starfshópum, sem hafa viljað efla áhuga fyrir kristilegri menningu og verðmætum. Vax- andi kristin áhrif er gæfa þjóð- ar vorrar. — í Toronto ræddu menn al- mennt um þróun efnahagsmála í veröldinni. Hvert er þitt mat eftir ad hafa hlýtt á þ»r umræður? „Umræðurnar um efnahagsmál á þessum ársfundum eru ávallt mjög fróðlegar. Það vakir ekki síst fyrir mönnum að finna leiðir til að samræma stefnu ríkjanna i því skyni að ná sem bestum efna- hagslegum árangri. Eins og kunn- ugt er hefur heimsbúskapurinn einkennst af stöðnun undanfarin ár og vaxandi atvinnuleysi. A ársfundinum 1981 bjuggust flestir við því, að úr myndi rætast nú í ár, en nú er ljóst að litlar horfur eru á efnahagsbata fyrr en 1983 og eru reyndar mjög skiptar skoðanir um það, hvort um nokkurn teljandi hagvöxt getur orðið að ræða á því ári. Erfið afkoma fyrirtækja og mikil fjárhagsvandamál þeirra, sem hlaðist hafa upp á löngu sam- dráttartímabili, veldur hvort tveggja hér miklu um, og enn virð- ist vera að draga úr fjárfestingu í atvinnutækjum. Nokkuð hefur þó áunnist. Dreg- ið hefur úr verðbólgu meðal helstu iðnríkja heims og virðist þeim þjóðum hafa farnast best sem tek- ist hefur að halda verðbólgu í skefjum svo sem Japönum og Þjóðverjum. Efnahagsstefna flestra iðnríkja hefur því að und- anförnu mjög beinst að því að draga úr verðbólgu og skapa þann- ig grundvöll hagvaxtar á komandi árum. Yfirleitt voru menn sam- mála um það í Toronto að þessi barátta gegn verðbólgunni hlyti að verða meginatriði í efnahags- stefnunni enn um sinn. Hins vegar greindi menn nokkuð á um það, hvaða tækjum skyldi beitt í þessu skyni og hversu hratt skyldi farið. Margir töldu að of mikil áhersla hefði verið lögð á aðhald í pen- ingamálum sem leitt hefur til mjög hárra vaxta en úr þessu megi bæta með því að styrkja ríkisfjármálin og draga úr eftir- spurn opinberra aðila eftir lánsfé, með því móti megi bæði lækka vexti og auka framboð á fjár- magni til atvinnufyrirtækja. Sum lönd, meðal annars Norðurlöndin, lögðu áherslu á hlutverk stefnunn- ar í launamálum, með víðtækum samningum um tekjustefnu væri hægt að draga úr þörfinni fyrir harðvítugar aðgerðir í peninga- málum. Ennfremur virðist nauð- synlegt að leggja meiri áherslu á það en gert hefur verið, að efna- hagskerfið sé sveigjanlegt. Þetta er unnt að gera með því að draga úr verndaraðgerðum í þágu at- vinnugreina sem eru í hnignun og hvetja jafnframt til flutnings á vinnuafli og fjármagni til nýrra og vaxandi atvinnuvega. Er eink- um þörf á meiri sveigjanleika í mörgum hinna eldri iðnríkja." — Var ekki dálítið erfitt að sitja undir þessum ræðum sem íslending- ur með hugann við okkar vandræði og stefnu sem sýnist ganga þvert á þetta allt saman? „Þegar litið er á það sem kom fram á fundinum í Toronto þá gef- ur fæst af því íslendingum tilefni til bjartsýni. í fyrsta lagi er ljóst, að enn er mjög tvísýnt um það hve fljótt megi vænta efnahagslegs aftur- bata er nægi til þess að létta Is- lendingum róðurinn. Horfurnar eru sérstaklega alvarlegar þegar hugað er að því að koma á fót ýmsum nýjum iðngreinum til að auka útflutning einkum að því er varðar orkufrekan iðnað. í öðru lagi bendir flest til þess að bilið milli Islands og annarra landa sé að aukast bæði þegar litið er til verðbólgu og viðskiptajafn- aðar. Flest hin þróuðu ríki í kring- um okkur hafa verið að ná dýr- keyptum árangri í þessum efnum. Hins vegar horfum við Islend- ingar nú, meðal annars vegna sér- stakra aðstæðna, bæði fram á vax- andi verðbólgu og meiri viðskipta- halla en áður. í þriðja lagi felst í þróuninni á erlendum lánamörkuðum alvarleg áminning til íslendinga um að draga úr erlendri skuldasöfnun og bæta stöðu sína út á við, svo að efnahagslegu sjálfstæði þjóðar- innar verði ekki stefnt í alvarlega hættu." Bj-Bj. KOMATSU ALLAR STÆRDIR OG GERÐIR LYFTARA FRÁ KOMATSU Opiö mastur Opna mastrið á Komatsu- lyfturunum veitir óhindraó útsýni. Eigum til afgreiðslu nú þegar eftirtalda lyftara: 3 tonna dieselknúinn. 21/a tonna rafknúinn. IV2 tonna rafknúinn. Ýmis aukabúnaður fáanlegur. Gott verð og greiðsluskilmálar. Margar aðrar stærðir af diesel og rafknúnum lyfturum væntanlegar á næstunni. Aukið öryggi á vinnustööum meö Komatsu. Varahluta og viöhaldsþjónusta. KOMATSU á íslandi BÍLABORG HF. Véladeild Smiöshöföa 23. Sími: 81299

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.