Morgunblaðið - 02.10.1982, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 02.10.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1982 23 Minning: Asta Sigurlaug Tryggvadóttir Fædd 7. júlí 1939 Dáin 25. seplember 1982 Kveðja frá vinkonum Ásta Sigurlaug lést á heimili sínu, Skólabraut 2, Garði, laugar- dagsmorguninn 25. september síð- astliðinn, aðeins 43 ára að aldri. Hafði hún átt við alvarlegan sjúkdóm að stríða í rúmt ár og dvalið á sjúkrahúsi af og til, og nú síðustu fjórar vikurnar alfarið í lungnadeild Landspítalans, utan þess að hún fékk að vera heima um helgar og kvöldið áður en hún lést dreif hún sig heim með sínum alkunna dugnaði, þvi heima hjá fjölskyldunni, sem var henni allt, dvaldi hugurinn sem var henni allt og í faðmi fjölskyldunnar fékk hún að kveðja þennan heim með þeirri reisn sem henni var ásköp- uð. Ásta var fædd 7. júlí 1939 að Bjarnastöðum í Garði. Foreldrar hennar voru hjónin Björg Guð- laugsdóttir og Tryggvi Einarsson. Var hún fjórða í röðinni af sjö systkinum, en þau eru: Einar, Tobías látinn, 1974, Helga, Ásta, Kristín, Ólafur og Tryggvi Björn. Ásta var snemma bráðþroska og fór fljótt að hjálpa til á stóru heimili. Innan við fermingu fór hún að vinna fyrir sér við fisk, síldarstörf og kaupavinnu, eða þa. til hún stofnaði sitt eigið heimili ung að árum með eftirlifandi manni sínum, Kristni Þorsteins- syni frá Siglufirði. Bjuggu þau í mörg ár í litlu húsi, Steinboga, niður við sjóinn, en byggðu síðar fallegt heimili að Skólabraut 2, og bjuggu þar síðan. Þau eignuðust fimm börn: Guð- björgu, Sigurð Aðalbjörn, Aðal- björn Heiðar, Björgu og Guðrúnu. Barnabörnin eru tveir litlir dreng- ir. Margt var það í fari Ástu sem verður ógleymanlegt. Má þar telja áræði, kjark og þor. Ekki var í hennar eðli að gefast upp og það ætlaði hún sér ekki gagnvart þeim sjúkdómi sem lagði hana að velli. Hún efaðist aldrei um að hún mundi sigra fram til hinstu stund- ar, enda kjarkur hennar óbugandi. Ásta var blátt áfram og hisp- urslaus, léttlynd og kát, átti auð- velt með að blanda geði við fólk, ómissandi í vinahópi. Orðheppin og á stundum kannski eilitið frökk, engum þó til skaða, heldur þvert á móti höfðu flestir gaman af. Hún var ástrík eiginkona og móðir, hreinleg og iðin, natin við saumaskap og handavinnu hvers- konar sem prýddi hennar heimili. Hörkudugleg og ánægðust virtist hún vera þegar hún sá ekki út úr því sem hún hafði að gera. Hún hafði um margra ára skeið verið húsvörður við samkomuhús- ið í Gerðum, ásamt manni sínum, og eignaðist þar marga góða vini meðal gesta hússins. Umboðsmað- ur Morgunblaðsins og fleiri dag- blaða var hún einnig. Og í nokkur ár sá hún um dagleg þrif barna- skólans. Á þessu má sjá að hún sat sjald- an auðum höndum, enda féll henni sjaldan verk úr hendi. Ásta var falleg kona, há og beinvaxin, dökk á brún og brá, tíguleg og kvenleg í fasi og vakti athygli hvar sem hún fór, vinsæl og vinamörg og þótti öllum vænt um hana. Ásta átti sérstaklega sam- heldna fjölskyldu og mikið ástríki var milli föður hennar og systk- ina, en fyrir fjórum árum urðu þau fyrir þeirri þungu sorg að bróðir þeirra og móðir létust með viku miilibili og ári seinna lítill bróðursonur. Og í janúar síðastliðnum lést svo tengdafaðir Ástu, sem hún virti mjög og dáði, langt um aldur fram. Þessu tók Ásta með stakri ró og jafnaðar- geði. Þann 4. júlí síðastliðinn var mikill hátíðardagur í lífi Ástu og Kristins, en þann dag voru litlu drengirnir skírðir og má segja að það hafi verið einn síðasti ham- Minning: Jónína Kr. Eyjólfs- dóttir í Dal Fædd 26. janúar 1901. Dáin 13. september 1982 Hún amma er dáin. Mörg okkar sem vorum saman komin til þess að kveðja hana í Borgarneskirkju 18. september sl., gátu tekið sér þessi orð í munn enda sagði amma mér þegar ég sýndi henni nýfædda dóttur mína í sumar, að sú litla væri 97. afkomandi sinn. Þrátt fyrir að við værum svona mörg trúi ég að hvert einstakt okkar eigi sér ljúfar og persónu- legar minningar um samskiptin við þessa hjartastóru konu. Græna hliðið fyrir stiganum niður í kjallarann, myndirnar í stofunni, sem slúttu svo ótrulega þar sem þær héngu á veggjunum upp undir lofti og harður trébekk- urinn á eldhúsgólfinu voru mér í æsku endalaus rannsóknarefni í heimsóknunum til ömmu í Dal. Þegar maður svo óx upp úr út- prjónuðu vettlingunum og ullar- hosunum hennar, sem hún bjó til á allan skarann, og komst eins og sagt er til vits og ára, lærði maður enn betur að meta mannkosti hennar. Hún var með afbrigðum minnug og viðræðugóð og ætt- fræði var nokkurs konar sérgrein hennar. Þá var varla rætt svo um atburði og dægurmál að hún kynni ekki vísu, sem varpaði ljósi á um- ræðuefnið eða tengdist því á ann- an máta. Þessi fáu orð mín eru harla ófullkomin og mega sín lítils við að lýsa minningunni um ömmu í Dal. Hún hafði þá kosti, sem okkur skortir svo mjög nú á tím- um; þrautseigju, nægjusemi, náungakærleik og vilja til þess að láta gott af sér leiða. Reynum að feta í fótspor hennar, þannig varð- veitum við minninguna um hana best. Við kveðjum öll góða konu. Olafur Ingi Ólafsson ingjudagur í lífi hennar því eftir það fór að halla undan fæti. I byrjun ágúst dreif hún sig samt fársjúk til Akureyrar og átti hún og maður hennar þar dásam- lega daga hjá skyldfólki hans. Ásta var hamingjusöm og lífs- glöð og finnst okkúr sárt að sjá á eftir henni í blóma lífsins, eins dugleg og hún var til síðustu stundar. Að lokum þökkum við henni samveruna allt frá æskudögum. Hér með er fyrir hönd fjöl- skyldu hinnar látnu sendar alúð- arþakkir til lækna og hjúkrunar- fólks lungnadeildar Landspítalans fyrir frábæra umönnun og ástúð í hennar garð. Við vottum eiginmanni, börnum og ástvinum öllum dýpstu samúð, biðjum þeim og henni Guðs bless- unar. Ingibjörg og Kristín Hún var aðeins ellefu ára, er við hjónin fluttum hingað í Garðinn og foreldrar hennar áttu húsið hinu megin við götuna. Fljótlega varð mikill samgangur á milli heimilanna og í 32 ár hefur aldrei borið skugga á þá vináttu. Eftir að Ásta giftist, byggðu þau hjónin húsið sitt hér steinsnar frá, svo segja má að við höfum búið hér hlið við hlið blómann af ævi okkar. Þótt Ásta tæki ekki þátt í nein- um opinberum störfum, var hún ein af þessum þörfu konum lands- ins, sem elskaði og sá vel um heimili sitt, börn og mann. Hún var ætíð kát og glöð og hress í framkomu, líka þegar hún barðist við sín veikindi. Það hefur stórt skarð verið höggvið í þessa fjöl- skyldu þar sem móðir hennar og bróðir dóu í sömu vikunni fyrir fáum árum. Hún giftist ung Kristni Þor- steinssyni frá Siglufirði og eiga þau fimm börn, yngsta 8 ára, og eru þau öll mannvænleg og dugleg. Ég fyllist harmi er ég hugsa til þess að vina mín, aðeins 43 ára, er farin frá ástvinum sínum 0g öllu sem henni var kært og er sárt saknað af öllum sem til hennar þekktu. Foreldrar Ástu voru Björg Guð- laugsdóttir og Tryggvi K. Einars- son og er óhætt að segja að hún fékk tryggð og skapfestu í arf frá þeim. Börn Ástu og Kristins eru Guð- björg, Sigurður, Aðalbjörn, Björg og Guðrún. Ég bið Guð að styrkja ástvini hennar í þessari erfiðu raun og innilegustu kveðjur okkar hjón- anna fylgja henni til landsins ókunna. Ósk Aldrei kemur það betur fram en þegar dauðinn ber að garði hversu mikilvægar minningar eru í lífi okkar. Við viljum geyma minningu um góða mágkonu, og þökkum fyrir allar ógleymanlegar stundir sem við áttum saman í gegnum árin. Því alltaf var Ásta kát og glöð hvar sem hún var og hrifust allir með af lífsgleði hennar og dugn- aði. Hún hefur um langt skeið átt við veikindi að stríða sem síðan drógu hana til dauða en alltaf var hún hress og glöð þegar maður heimsótti hana og sagði alltaf að þetta færi nú að batna. Við ætluð- um ekki að fara að rekja ættir Ástu, en hún var fædd og uppalin í Garðinum og hefur alltaf átt heima þar. Hún var gift Kristni Erlendi Þorsteinssyni og áttu þau 5 efnileg börn og 2 barnabörn. Kiddi minn, börn og aðrir ástvinir, megi Guð blessa ykkur og styrkja á kveðjustund og um ókomin ár. Sibba og Jóhann SPURÐU NÁNAR ÚT 1 - 18354 gata tromluna 50% vatnsspamaðinn 40% sápuspamaðinn 25% tímaspamaðinn efnisgæðin byggingarlagið lósíuleysið lúgustaðsetninguna iúguþéttinguna ytra lokið denparana þýða ganginn stöðugleikann öryggisbúnaðinn hitastillinguna spamaðarstillingar taumeðferðina hægu vatnskælinguna lotuvindinguna þvottagæðin ...... /rQnix HÁTÚNI 6A • SÍMI 24420 KOMDU OG REYNSLUGAKKTU NÝJU K-BUXURNAR FRÁ KÓRONA, ÞÆR ERU FÁAN- LEGAR í FLANNEL-FLAUELS-OG TWILL VEFNAÐI. BANKASTRÆTi 7 • AÐALSTRÆTI4 Ný efnisblanda ull+terylene+lycra AUGLÝSINGASTOFA KRISTlNAR HF 7.190

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.