Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1982 43 stundum. Það hefur verið honum ómetanlegur styrkur. Frændrækni og ræktarsemi var mjög sterkur þáttur í eðli Berg- ljótar. Var hún alla tíð í bréfa- sambandi við frændlið og vini hér heima og sjálfsagt verða þeir margir nú á komandi jólum, er sakna jólakveðjanna hennar. Síðasta ferð þeirra hjóna til ís- lands var árið 1980 og var sú ferð gagngert farin til þess að geta ver- ið samvistum við Stefaníu, móður Bergljótar, sem þá var búin að missa heilsuna og dvaldi í Öldrun- ardeild Landspítalans, Hátúni 10B. Heimsótti Bergljót hana daglega, en það var alla tíð mjög náið samband milli þeirra mæðgna og nutu þær því báðar þessara síðustu samverustunda. En tvisvar hafði Stefanía dvalið hjá Bergljótu og Theodore í Kali- forníu í nokkra mánuði í senn. Þegar ég nú minnist Bergljótar mágkonu minnar koma í hug minn margar góðar minningar um ánægjulegar samverustundir hér heima og í Kaliforníu. Með samúð leitar hugur minn til Theodore og sona þeirra, sem nú sjá á bak góðri eiginkonu og móður. Þeir hafa mikið misst. Bergljótu þakka ég samfylgdina héma megin, blessun fylgi henni á æðri leiðum. Aðalsteinn Eggertsson Mig langar til að minnast með örfáum orðum minnar kæru æskuvinkonu, Bergljótar Snorra- dóttur Schweitzer, sem hvarf svo skjótt úr heimi hér síðast í októ- bermánuði. Hún var búin að búa tæp 40 ár í Bandaríkjunum, en þótti alltaf jafn vænt um landið sitt og alla, sem hún átti þar og hélt alltaf sama sambandinu með bréfa- skriftum og nokkrum sinnum kom hún heim, annaðhvort ein eða með eiginmanni sínum og voru þá fagnaðarfundir. Bergljóti var ekki gjarnt að flíka tilfinningum sínum. Hún minntist því lítið á lasleika sinn og einmitt þess vegna kom andlát hennar okkur hérna heima ennþá meira á óvart. Hún var fædd á Eskifirði 28. september 1925, dóttir hjónanna Stefaníu Stefánsdóttur og Snorra Jónssonar og var hún næstyngst af sjö börnum þeirra. Fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur árið 1935, en árið eftir hittumst við Bergljót fyrst, er við lentum saman í bekk í barnaskóla og upp frá því hefur aidrei slitnað sambandið á milli okkar. Bergljót giftist 19. maí 1945 bandarískum manni, Theodore P. Schweitzer, miklum ágætismanni og var sambúð þeirra mjög góð alla tíð. Þau eignuðust tvo syni, Stefán Paul, fæddur 1946, og Gunnar Richard, fæddur 1955. Þeir eru báðir kvæntir og hafa eignast sínar fjölskyldur og voru litlu sonardæturnar ömmu sinni og afa til mikils yndis. Trúlegt finnst mér, að Bergljót hefði, ef hún hefði mátt ráða, viljað vera hér lengur til að geta gert meira fyrir sonardætur sínar og þá ekki síður til að annast eiginmann sinn, sem er búinn að missa heils- una og þurfti mikið á hjálp og að- stoð hennar að halda, en vegir Guðs eru órannsakanlegir og sjálfsagt hefur stærra og meira starf beðið hennar handan við móðuna miklu. Innilegar samúðarkveðjur sendi ég Theodore manni hennar, son- um, tengdadætrum, sonardætrum og öðrum ættingjum. Sérstaklega Hrafnhildi, systur hennar, sem einnig býr í Bandaríkjunum, en hún missti mann sinn í september sl. Blessuð sé minning Bergljótar. „Þér kiera aendi kvedju meé kvöldsljörnunni blá þad hjarla s« m þú áU en sen er mvo lanj{( þér frá þar ma-tasl okkar au^u þótt ei oftar sjáumst hér. Ó, (>uð minn ávallt ga*li þín cg gleymi aldrei þér.“ (Bjarni l*orst) Ásta + Viö þökkum hjartanlega alla hjálp og vináttu viö andlát og jaröar- för sonar okkar, RÖGNVALDAR FINNBOGASONAR, Guö blessi ykkur öll. Margrét Áageirsdéttir, Fríöa og Finnbogi Bjarnason. t Hugheilar þakkir til allra þeirra sem vottuöu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför mannsins míns, RUDOLF THEIL HANSEN, klœðskerameistara. Guö blessi ykkur öll. Fyrir hönd barna og aöstandenda. Margrét Finnbjörnsdóttir Hansen. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, PÁLS STEFÁNSSONAR, bifreiöastjóra, Aöalgötu 10, Blönduósi. Hulda Bjarnadóttir, Stefán Guömundur Pálsson, Bjarni Pálsson, Hulda Leifsdóttir, Ingibjörg Ásdís Pálsdóttir, Guðmundur Arnarson og barnabörn. t Eiginkona mín, móðir, tengdamóöir og amma, ÁGÚSTA MAGNÚSDÓTTIR, Hæöargaröi 30, Reykjavlk, veröur jarösungin frá Bústaöakirkju 13. desember kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbamelnsfélag Is- lands eöa SÍBS. Guömundur Bjarnleifsson, Svava Viggósdóttir, Helgi Magnússon, Ágústa Magnúsdóttir, Ástrós Guömundsdóttir, Magnea Guömundsdóttir, Guömundur Helgason, Guörún Björnsdóttir, Gunnar Gunnarsson, Bragi Kristinsson, Guðmundur Símonarson. Áskriftarsíminn er 83033 Við framleiðum 16 geiðir skrifborðsstóla 1 Líttu inn til okkar, viö höfum ábyggilega eitthvaö fyrir þig. STÁUÐJANhf SMIÐJUVEGI 5, KÓPAVOGI, SÍMI 43211 Viö leggjum áherslu á fjölbreytni í skrifborðs- stólum og vandaða vöru. 15 ára reynsla hefur kennt okkur margt og ennþá vinnum við aö því aö bæta framleiðsluna og auka úrvaliö. TV3 TV1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.